Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 18

Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 9. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.54 Sterlingspund 172.23 Kanadadalur 99.56 Dönsk króna 20.876 Norsk króna 15.017 Sænsk króna 15.44 Svissn. franki 143.38 Japanskt jen 1.2217 SDR 183.01 Evra 155.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.4635 Hrávöruverð Gull 1911.05 ($/únsa) Ál 2062.5 ($/tonn) LME Hráolía 54.13 ($/fatið) Brent ● Sylvía Ólafs- dóttir hefur verið ráðin í starf fram- kvæmdastjóra við- skiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur sæti í framkvæmda- stjórn félagsins. Sylvía hefur frá árinu 2018 starfað hjá Icelandair Gro- up, síðast sem forstöðumaður leiða- kerfis félagsins. Áður en Sylvía fór til Icelandair starfaði hún sem deild- arstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar. Hún er með M.Sc.-próf London School of Economics og B.Sc.-próf í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinn stundakennslu við verk- fræðideild HÍ í rekstrarfræði, kvikum kerfislíkönum og verkefnastjórnun (MPM). Sylvía situr í stjórn Símans og Ölgerðarinnar. Í tilkynningu frá Origo segist Sylvía spennt fyrir nýjum verk- efnum. „Upplýsingatæknigeirinn er í miklum vexti og það kemur sífellt betur í ljós að upplýsingatækni er ekki lengur til að styðja við þjónustu og rekstur fyr- irtækja og stofnana heldur lykillinn að því að bæta og umbreyta honum.“ Sylvía Ólafsdóttir fer frá Icelandair til Origo Sylvía Ólafsdóttir STUTT Þóroddur Bjarnason Stefán Einar Stefánsson Baldur Arnarsson Lífeyrissjóðir sem Morgunblaðið setti sig í samband við í gær upp- lýstu allir nema einn að þeir hefðu ekki selt hluti sína í olíufélaginu Skeljungi til Strengs í vikunni. Heimildir Morgunblaðsins herma hins vegar að Urðarbogi ehf., félag Þorvaldar Gissurarsonar, forstjóra ÞG verks, hafi selt hlut sinn í Skelj- ungi til Strengs. Urðarbogi var 17. stærsti hluthafinn með 0,5% hluta- fjár. Fimm milljarða viðskipti Hátt í fimm milljarða króna við- skipti voru með bréf Skeljungs í Kauphöllinni í vikunni, en á mánu- daginn rann út frestur yfirtökutil- boðs Strengs hf. í hlutabréf í Skelj- ungi og samþykktu hluthafar sem eiga 2,56% hlutafjár tilboðið. Gengið sem boðið var í þeim við- skiptum var 8,315 krónur hver hlutur. Eftir að yfirtökutilboði lauk var eignarhlutur Strengs rúm 40%. Í lok dags á fimmtudag var hlut- urinn kominn yfir 50% að teknu til- liti til eigin hluta félagsins, og Strengur þar með kominn með meirihluta í Skeljungi. Aðilar á markaði sem Morgun- blaðið ræddi við töldu að nú þegar Strengur væri kominn í meirihluta, myndi hægjast á í viðskiptum með félagið. Í gær urðu 195 milljóna króna viðskipti með bréf félagsins og var gengið í lok dags 10,20 sem er 23% hærra en það gengi sem boðið var í yfirtökutilboðinu. Lágt gengi yfir- tökutilboðsins var sögð ein megin- ástæða þess að lífeyrissjóðirnir ákváðu að taka ekki tilboðinu. Gengi Skeljungs í upphafi yfirtöku- tilboðsins í byrjun desember var 8,8, sem er 16% lægra en í gær. Þeir lífeyrissjóðir sem seldu ekki og eru á lista yfir 20 stærstu hlut- hafa félagsins eru Gildi, Frjálsi líf- eyrissjóðurinn, Birta, Festa, Lífs- verk, Stapi, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Lífeyrissjóður bænda. Ekki fengust upplýsingar frá Eftirlaunasjóði íslenskra at- vinnuflugmanna við vinnslu frétt- arinnar. Vilja ekki selja að sinni Árni Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Gildis, sem er næst- stærsti hluthafi Skeljungs, segir að Gildi hafi ekki áhuga á að selja sinn hlut að sinni a.m.k. enda eigi Skelj- ungur meira inni. Hann telur aðspurður að þrátt fyrir að Strengur vilji afskrá Skelj- ung úr Kauphöll, þá verði það ekki endilega raunin. „Það er ekki aug- ljóst að það gerist, enda hefur kom- ið fram að margir eru því mótfalln- ir,“ segir Árni. Hann segir margt í Skeljungs- málinu vera mjög sérkennilegt og eitt af því sé að yfirtökuaðilarnir hafi ekkert minnst á það í tilboðs- yfirliti sínu að tilboðið væri gert á tímum heimsfaraldurs, sem hljóti að hafa áhrif á gengi hlutabréf- anna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er ekki víst að haldinn verði hluthafafundur í félaginu fyrr en í mars þegar aðalfundur verður haldinn. Morgunblaðið hafði samband við sjóðastýringafélagið Stefni sem í byrjun vikunnar fór með 4,97% hlut í Skeljungi. Framkvæmdastjórinn, Jóhann Möller, varðist allra frétta af mögulegri sölu bréfa úr sjóðum félagsins. Funda á næstu dögum Jón L. Árnason framkvæmda- stjóri Lífsverks segir í samtali við Morgunblaðið að of lágt yfirtöku- tilboð hafi verið ástæðan fyrir því að lífeyrissjóðurinn seldi ekki hlut sinn. „Við ætlum að sjá hvernig úr þessu spilast. Við höfum trú á fé- laginu. Við erum langtímafjárfestir og teljum félagið eiga meira inni.“ Jón segir að Lífsverk muni funda með stjórnendum Strengs á næstu dögum og fara yfir stöðuna sem upp er komin. Lífeyrissjóðirnir seldu ekki Skeljungsbréf í vikunni Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Sala Strengur ræður nú yfir meirihluta hlutabréfa í Skeljungi.  Strengur keypti 0,5% af Urðarboga  Ekki augljóst að af afskráningu verði Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS) lýsir yfir stuðningi við frum- varp sem felur meðal annars í sér heimildir til að koma til móts við rekstrarvanda fyrirtækja út af kórónuveirufaraldrinum. Þetta kemur fram í umsögn SÍS um drög að frumvarpi um breyting- ar á ýmsum lögum vegna áhrifa far- aldursins á sveitarfélög. Umsögn SÍS er samin í samráði við lánasjóð sveitarfélaga. Fram kemur í umsögninni að breytingarnar í frumvarpinu séu í fjórum liðum og snúi að fjármála- reglum sveitarfélaga, ákvæðum sveitarstjórnarlaga um neyðar- ástand, innheimtu fasteignagjalda og auknar heimildir Lánasjóðs sveitarfélaga til að lána sveitarfélög- um vegna rekstrarhalla. Fái rýmri heimildir Segir þar jafnframt að til standi að veita sveitarfélögum aukið svigrúm við innheimtu fasteignagjalda. Lagt sé til að lögveðsréttur fasteigna- gjalda verði lengdur úr tveimur ár- um í fjögur og sveitarfélög fái rýmri heimildir til að lækka eða fella niður dráttarvaxtakröfur á fasteigna- skattskröfum. Samtök verslunar og þjónustu, SVÞ, segja í umsögn sinni að fram- angreindar breytingar séu mjög mikilvægar: „Í ýmsum rekstri vegur kostnaður vegna eignarhalds og rekstrar fasteigna mjög þungt og þau opinberu úrræði sem beinst hafa að ráðningarsamböndum launþega og atvinnurekenda hafa því ekki megnað að létta nægilega byrðar margra atvinnurekenda.“ Fjármála- og áhættustýringarsvið Reykjavíkurborgar skilar líka um- sögn um frumvarpið. Auknar skuldir borgarinnar Að mati sviðsins er mikilvægt að veita sveitarfélögum aukið svigrúm til að takast á við aðsteðjandi rekstrarvanda vegna faraldursins. Tekjufall borgarinnar vegna veirunnar í fyrra var metið 12,5 milljarðar í nóvember síðastliðnum og útgjaldaauki um 2,6 milljarðar. Þá sé gert ráð fyrir að samstæða borgarinnar uppfylli ekki skulda- viðmið árin 2022-2025 (sjá graf). Síðan er bent á að frestun á greiðslu fasteignaskatta geti numið 1,6-2 milljörðum á ári. „Slík frestun kallar eðlilega á aukna lántökuþörf af hálfu Reykjavíkur, aukinn fjár- magnskostnað og auk þess talsverð- an aukakostnað vegna yfirferðar og utanumhalds,“ segir þar m.a. Borgin sé „algjörlega mótfallin“ tillögu um að breyta stöðu dráttar- vaxta af vangreiddum fasteigna- sköttum þannig að dráttarvextir teljist ekki órjúfanlegur hluti af fast- eignaskattakröfu sveitarfélags. Það standist ekki lög að sveitar- félög setji reglur um lækkun eða nið- urfellingu dráttarvaxta. Loks kosti greining á rekstrar- vanda umsækjenda mikið fé og kalli á víðtækan stuðning ríkisins. Styðja frestun fasteignagjalda  SÍS og SVÞ lýsa yfir stuðningi  Borgin hins vegar á móti og vísar á skuldir Afkoma Reykjavíkurborgar skv. 5 ára áætlun Skuldaviðmið samstæðu til ársins 2025 Uppsöfnuð þriggja ára rekstrarniðurstaða samstæðu til ársins 2025* 175% 150% 125% 100% 75% 50% 25% 40 30 20 10 0 -10 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025 '15-'17 '16-'18 '17-'19 '18-'20 '21-'23 '23-'24 '22-'25 '19-'21 '20-'22 Heimild: Reykjavíkurborg 18 35 27 7 -11 -12 5 26 36 Rauntölur Áætlun *Án OR til og með 2021, samstæðan í heild 2022-2025 Samstæða án OR Samstæðan án OR til og með 2021, og í heild 2022-2025 78,0% 67,2% 168,1% 119,3% 158,7% 129,1%110,7% Rauntölur Áætlun Hámark Gildi kallaði eftir því í bréfi til skrif- stofu fjármálamarkaðar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í desem- ber að lögum um yfirtökur og yf- irtökutilboð verði breytt til verndar minnihlutaeigendum. Inntur eftir því hvort hann hefði fengið við- brögð við bréfinu segir Árni að ekk- ert hefði heyrst frá ráðuneytinu. „Við höfum einvörðungu fengið viðbrögð frá öðrum aðilum á mark- aði sem hafa lýst ánægju með framtakið.“ Meðal þess sem lagt var til í bréfinu var að yfirtöku- skylda í hlutafélögum myndaðist ekki bara einu sinni, þegar farið er yfir 30% eignarhlut, heldur kvikni að nýju við 50% atkvæðarétt, og jafnvel bæði við 40% og 50%. Árni segir að Skeljungsmálið hafi enn frekar vakið upp spurn- ingar um hvort regluverkið sjálft sé gallað, og hvort breytinga sé þörf. Ráðuneytið hefur ekki svarað BREYTINGAR Á LÖGUM TIL VERNDAR MINNIHLUTAEIGENDUM

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.