Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í gær að hann hygðist ekki sækja innsetningarathöfn Joes Biden, verðandi Bandaríkjaforseta, 20. janúar næstkomandi. Trump verður þar með fyrsti forsetinn frá árinu 1869 til að sækja ekki innsetn- ingarathöfnin eftirmanns síns, en ekki var víst hvort Mike Pence vara- forseti myndi sækja athöfnina í hans stað. Trump sætir nú þrýstingi úr ýms- um áttum um að segja af sér emb- ætti í kjölfar áhlaups stuðnings- manna hans á þinghúsið í vikunni, þrátt fyrir að hann hafi nú viður- kennt sigur Bidens í kosningunum og sagst ætla að tryggja friðsæl valdaskipti í myndbandi sem birtist á Twitter í fyrrinótt. Betsy DeVos menntamálaráð- herra tilkynnti um afsögn sína í gær með sérstakri vísan til áhlaupsins, en hún sagði engan vafa um að ávarp forsetans til mótmælenda skömmu áður hefði átt mikinn þátt í því hvernig fór. Áður hafði Elaine Chao samgönguráðherra yfirgefið ríkis- stjórnina. Óttast „óstöðugan forseta“ Nancy Pelosi, forseti fulltrúa- deildar Bandaríkjaþings, sagði í gær að hún hefði rætt við Mark Milley, yfirmann herráðs Bandaríkjahers, um hvernig mætti koma í veg fyrir að Trump myndi beita kjarnorku- vopnabúri Bandaríkjanna á síðustu dögum sínum í embætti. Þetta kom fram í bréfi sem hún ritaði til kollega sinna í fulltrúadeild- inni, og sagði Pelosi að brýnt væri að gera allt sem mögulegt væri til þess að verja bandarískan almenning fyr- ir „óstöðugum forseta“. Pelosi tók jafnframt fram að hún og Chuck Schumer, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, hefðu óskað eftir samtali við Mike Pence, en ekki heyrt til baka, en erindi þeirra var að ýta á um að Pence myndi virkja 25. viðauka stjórnarskrárinnar til þess að ýta Trump úr embætti eftir árás- ina á þinghúsið í vikunni. Pelosi vís- aði til þess að í Watergate-málinu hefðu helstu forystumenn repúblik- ana á þingi ýtt á um afsögn Nixons, og sagði að nú væri kominn tími fyrir repúblikana á Bandaríkjaþingi að gera slíkt hið sama. Talið er líklegt að demókratar í fulltrúadeildinni muni samþykkja aðra ákæru til embættismissis á hendur Trump strax eftir helgi, verði hann enn í embætti. Hann yrði þá fyrsti forseti Bandaríkjanna til þess að sæta slíkri ákæru tvisvar. Óvíst er hins vegar hvort að hún myndi ná fram að ganga, þar sem 67 öldungadeildarþingmenn þarf til þess að samþykkja embættissvipt- inguna. Fyrri ákæra demókrata var felld í byrjun síðasta árs, þar sem einungis Mitt Romney, öldunga- deildarþingmaður Utah og fyrrver- andi forsetaframbjóðandi, gekk gegn flokksbræðrum sínum í Repú- blikanaflokknum. Best að hann geri sem minnst Ljóst er þó að ákæra til embætt- ismissis nýtur nú meiri stuðnings meðal repúblikana í öldungadeild- inni eftir atburði vikunnar en hún gerði fyrir ári. Repúblikaninn Ben Sasse, sem situr fyrir Nebraska, sagði í gær að hann myndi íhuga það alvarlega að greiða atkvæði með ákærunni ef hún kæmi á borð öld- ungadeildarinnar. Sagði Sasse að það minnsta sem Trump gæti gert væri að halda sig til hlés og láta stjórnina í hendur Mike Pence vara- forseta. „Ég tel að því minna sem forsetinn gerir næstu 12 daga, því betra,“ sagði Sasse. Demókratinn Joe Manchin, sem situr fyrir Vestur-Virginíu, varaði hins vegar fulltrúadeildina við því að ákæra Trump aftur, þar sem hann teldi ekki nægan stuðning meðal repúblikana í deildinni til þess að hún gæti náð fram að ganga. Repú- blikaninn Lindsey Graham frá Suð- ur-Karólínu var sama sinnis og sagði að slík ákæra gæti jafnframt gert Joe Biden, verðandi Bandaríkjafor- seta, erfiðara fyrir að græða þau sár sem nú væru á þjóðarsálinni. Fimm nú látnir eftir áhlaupið Greint var frá því í fyrrinótt að lögreglumaður úr lögregluliði þing- hússins, Brian Sicknick, hefði látist á sjúkrahúsi af sárum sínum, en mót- mælendur höfðu höfuðkúpubrotið hann með slökkvitæki í áhlaupinu á miðvikudaginn. Fánar við þinghúsið voru dregnir í hálfa stöng í minningu Sicknicks, en hann hafði þjónað þar í 12 ár. AFP Sorg Fánar við Bandaríska þinghúsið voru dregnir í hálfa stöng í gær til minningar um lögreglumanninn Brian Sicknick sem lést af sárum sínum í fyrrinótt eftir átök við mótmælendur í þinghúsinu á miðvikudaginn. Enn þrýst á um afsögn  Trump hyggst ekki sækja innsetningarathöfn Bidens  Betsy DeVos segir af sér embætti  Pelosi ræddi við formann herráðsins  Óvíst um samþykkt ákæru Ursula von der Leyen, forseti fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins, lýsti því yfir í gær að sambandið hefði náð fram breytingu á sam- komulagi sínu við BioNTech og Pfi- zer og þannig tvöfaldað þann fjölda bóluefnaskammta gegn kórónuveir- unni sem aðildarríki sambandsins myndu fá upp í 600 milljónir skammta. Von der Leyen sagði að upphaf bólusetningarherferðar aðildarríkj- anna hefði verið „brösugt“ og varaði við því að fram undan gætu verið erf- iðir mánuðir á meðan reynt væri að bæta upp fyrir það. Hins vegar sagði hún að stefna framkvæmdastjórnarinnar um að semja við nokkur mismunandi lyfja- fyrirtæki í einu hefði nú sannað sig, þar sem nú hefðu aðildarríkin að- gang að nægu bóluefni frá Pfizer/ BioNTech annars vegar og Moderna hins vegar til þess að bólusetja um 380 milljónir manns, eða rúmlega 80% allra íbúa sambandsins. Ákvörðun fyrir mánaðamót Evrópska lyfjastofnunin lýsti því yfir í gær hún myndi ákveða hvort veita ætti bóluefni frá Oxford-há- skóla og AstraZeneca leyfi fyrir lok þessa mánaðar. ESB og stofnunin hafa verið gagn- rýnd fyrir hægagang í bólusetning- armálum, en nú hafa aðildarríkin einungis aðgang að um 75 milljónum skammta frá Pfizer og BioNTech og næsta afhending verður ekki fyrr en á næsta ársfjórðungi. Þá hlaut bóluefni lyfjafyrirtækis- ins Moderna einungis samþykki á miðvikudaginn, en sambandið á rétt á 160 milljónum skammta þaðan. Semja um fleiri skammta frá Pfizer  Upphaf herferðarinnar „brösugt“ AFP Bóluefni Evrópusambandið hefur samið við Pfizer um fleiri skammta. Kínversk stjórnvöld ákváðu í gær- morgun að setja tvær borgir sunn- an höfuðborgarinnar Peking í sóttkví vegna mesta fjölda nýrra tilfella kórónuveirunnar í landinu í hálft ár. Faraldurinn átti upphaf sitt í Kína, en stjórnvöld þar náðu að bæla hann tiltölulega fljótt niður. Nú hafa hins vegar 127 ný smit ver- ið tilkynnt í Hebei-héraði á einni viku. Hafa því borgirnar Shijiazhu- ang og Xingtai verið settar í sóttkví, en þar búa samtals 18 millj- ónir manna. Íbúar borganna mega nú ekki yf- irgefa þær nema brýna nauðsyn beri til, og er þeim stranglega bannað að ferðast til Peking. KÍNA Tvær borgir settar í sóttkví vegna smits Bandaríska kosningafyr- irtækið Dom- inion Voting Systems hefur kært Sidney Po- well, fyrrverandi þátttakanda í lögfræð- ingateymi Do- nalds Trump Bandaríkja- forseta, fyrir rógburð og meiðyrði í garð fyrirtækisins, en Powell hafði m.a. haldið því fram að fyrirtækið hefði forritað kosninga- vélar sínar til þess að færa Joe Bi- den, verðandi forseta, atkvæði sem greidd voru Trump. Krefst fyrirtækið að Powell greiði rúm- lega 1,3 milljarða bandaríkjadala fyrir þann skaða sem hún hafi valdið með tilhæfulausum ásök- unum sínum. Powell var rekin úr teymi Trumps eftir blaðamannafund þar sem hún hélt því m.a. fram að Hugo Chavez, fyrrverandi forseti Venesúela, hefði átt hlut í Dom- inion, en á sama fundi hét hún því að lögfræðingateymið ætlaði sér að „sleppa kolkrabbanum lausum“, en það var vísun í gríska goða- fræði. BANDARÍKIN Kæra „kolkrabb- ann“ fyrir rógburð Sidney Powell Inniheldur: • Kólín sem stuðlar að: - eðlilegum fituefnaskiptum - viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar • Mjólkurþistil ogætiþistil sem talin eru stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls • Túrmerik og svartur pipar HEILBRIGÐ MELTING Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Góður árangur „Ég er mjög meðvituð um líkamsstarfsemina og veit að fita getur safnast á lifrina. Ég ákvað að prófa Active Liver eftir að ég sá að það er gert úr náttúrulegum efnum. Ég fann fljótlega mun á orkunni og mér finnst auðveldara að halda mér í réttri þyngd. Ég finn líka mun á húðinni en hún ljómar meira og er mýkri. Ég er mjög ánægðmeð árangurinn ogmæli með Active Liver fyrir fólk sem hugsar um heilsuna og vill halda meltingunni góðri.” Jóna Hjálmarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.