Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 23

Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Samkvæmt frétt Morgunblaðsins 6. janúar sl. hefur landsmönnum með svonefnt 75% ör- orkumat fækkað nokkuð undanfarin ár, eftir samfellda fjölgun undanfarna áratugi. Nú eru 19.749 Íslendingar með umrætt ör- orkumat, sem veitir rétt til mán- aðarlegs örorkulífeyris, en voru 20.078 og 19.999 fyrir einu og tveimur árum. Hlutfall öryrkja af íbúafjölda landsins hefur fallið úr 5,6% í ársbyrjun 2019 í 5,3% af áætluðum íbúafjölda í árs- byrjun 2021. Að sama skapi fór nýgengi 75% örorkumats minnkandi síð- ustu tvö ár, en í hugtakinu felst fjöldi þeirra einstaklinga sem ár- lega fá umrætt mat. Nýgengið var 1.223 í fyrra, 1.273 árið 2019 og 1.611 árið 2018. Nýgengið nam 0,46% af meðalmannfjölda ársins 2018, 0,35% árið 2019 og 0,33% árið 2020. Þessi þróun er í takt við nýja stefnu Tryggingastofnunar í ör- orkulífeyrismálum. Trygg- ingastofnun í samstarfi við fé- lagsmálaráðuneytið, Vinnumálastofnun, heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, fé- lagsþjónustuna í Reykjavík og VIRK stóð að verkefni þar sem stefnt var að því að auka lífsgæði ungs fólk með skerta starfsorku með það að markmiði að lækka nýgengi örorkumats aldurshóps- ins 18-29 ára um 25% á árinu 2019. Það markmið náðist með samstarfi fyrrgreindra aðila og var verkefninu haldið áfram 2020. Stefnt var að því að auka enn frekar þátt endurhæfingar hjá ungu fólki með skerta starfs- getu. Samtök atvinnulífsins fagna þeim árangri sem að framan er lýst. Árið 2016 var nýgengi ör- orku í fyrsta sinn meira en nátt- úruleg fjölgun vinnandi fólks. Sú þróun er mjög varhugaverð og því fagnaðarefni að vel gangi að snúa henni við. Hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði er unn- ið að því að efla starfsgetu ein- staklinga með heilsubrest sem stefna á aukna þátttöku á vinnu- markaði. Hjá sjóðnum starfa meðal annars at- vinnulífstenglar sem aðstoða ein- staklinga að lokinni endurhæfingu við að finna starf við hæfi en VIRK vinn- ur með atvinnulíf- inu að því að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir einstaklinga með skerta starfs- getu. Margir fá hlutastörf í byrjun en auka starfshlut- fall í fullt starf í áföngum. Ávinningur einstaklings með skerta starfsgetu af endurhæf- ingu hjá VIRK er þannig mikill. Fjárhagslegur ávinningur sam- félagsins af starfsemi sjóðsins er jafnframt ótvíræður. Árið 2019 var hann metinn 20,5 milljarðar króna, að teknu tilliti til afdrifa einstaklinga ef þjónustu VIRK hefði ekki notið við. Í nóvember sl. undirrituðu Samtök atvinnulífsins og Vinnumálastofnun hvatningu til atvinnulífsins þar sem skorað var á fyrirtæki og stofnanir að veita fólki með skerta starfsgetu tækifæri til starfa. Hjá Vinnu- málastofnun geta atvinnurek- endur sótt faglegan og fjárhags- legan stuðning við ráðningu starfsmanna með skerta starfs- getu. Samtök atvinnulífsins hafa lagt áherslu á að sveigjanlegur vinnutími og hlutastörf bjóðist þeim sem vilja leggja sitt af mörkum og hefur reynsla at- vinnulífsins af verkefninu verið góð. Með virkri starfsendurhæfingu og fjölbreyttum tækifærum er einstaklingum með skerta starfs- orku veitt tækifæri til atvinnu- þátttöku. Með réttum hvötum og tækifærum, eins og þeim sem hér hefur verið lýst, er mögulegt að lækka nýgengi örorku til frambúðar. Ávinningurinn er ótvíræður. Eftir Halldór Benjamín Þorbergsson »Með virkri starfs- endurhæfingu og fjölbreyttum tækifær- um er einstaklingum með skerta starfsorku veitt tækifæri til at- vinnuþátttöku. Halldór Benjamín Þorbergsson Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Aukin lífsgæði ungs fólks með skerta starfsgetu Samgöngur Fararskjótar mannsins eru jafn misjafnir og þeir eru margir. Meðal þeirra er forláta þríhjól með kassa framan á sem getur komið sér vel í snatti á milli staða, líkt og hjá þessum manni í Austurstræti um miðjan dag í gær. Eggert Ósnortin náttúra er auðlind sem fer hratt þverrandi á heimsvísu. Friðlýst svæði á Ís- landi spanna allt frá fossum og hellum til heilu þjóðgarðanna og ná yfir margt af því merkasta og dýrmæt- asta í náttúru landsins. Svæðin hafa hlotið vernd í þeim tilgangi að tryggja að komandi kynslóðir fái notið þeirra, rétt eins og við. Aukin vernd og bætt aðgengi Eðli málsins samkvæmt hafa frið- lýst svæði mikið aðdráttarafl. Þess vegna er mikilvægt að tryggja að friðlýstu svæðin hafi sterka innviði sem stuðla að vernd þeirra og auðvelda fólki aðgengi að perlum ís- lenskrar náttúru, án þess að hún hljóti skaða af. Í þeim til- gangi var fjármagn sett í Landsáætlun um uppbyggingu innviða í upphafi þessa kjör- tímabils en í krafti áætlunarinnar er nú á hverju ári varið um milljarði til verndar náttúru og menningar- sögulegum minjum á ferðamannastöðum á landinu. Dyrhólaey, Þingvellir, Gjáin, Rauðufossar og Jökulsárlón Til viðbótar þessum milljarði veitti Alþingi með sérstöku fjárfest- ingaátaki ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirunnar tæpar 400 milljónir króna árið 2020 til verndunar nátt- úru og bættrar aðstöðu á friðlýstum svæðum. Fjármagninu hefur einkum verið varið í stígagerð, t.d. í Dyrhóla- ey, á Þingvöllum, í Gjánni í Þjórs- árdal og við Rauðufossa að Fjalla- baki. Rauðufossar eru dæmi um viðkvæmt svæði þar sem heimsóknir jukust mikið á skömmum tíma og því var brýnt að bregðast við. Hand- verkið og frágangurinn á stígagerð- inni er til fyrirmyndar en ég skoðaði svæðið í haust. Í fjárfestingaátakinu var líka ráðist í lagningu bílastæðis við Eystri-Fellsfjöru við Jökulsárlón og lauk verkinu nú fyrir áramót. Uppbygging á nýfriðlýstum svæðum Á síðasta ári voru átta svæði frið- lýst á landinu. Ég hef lagt ríka áherslu á að fjármagn og landvarsla fylgi nýjum friðlýsingum. Um 140 m.kr. af fjárheimildum 2020 munu nú renna til uppbyggingar innviða á þessum svæðum. Á Geysissvæðinu verða til að mynda reistir timbur- pallar og lagðir malarstígar. Í Kerl- ingarfjöllum hefur verið unnið mikið og gott starf til verndar náttúrunni en þar verður gripið til frekari að- gerða til verndar einstökum hvera- svæðum. Þá verða innviðir einnig efldir í Búrfellsgjá, við Goðafoss og í Þjórsárdal. Friðlýsingar halda áfram Undirbúningur að friðlýsingu all- margra svæða stendur nú yfir. Frið- lýst svæði eru einir helstu seglarnir okkar þegar kemur að heimsóknum ferðamanna. Þannig fylgir nýjum friðlýsingum aukin vernd náttúr- unnar á sama tíma og sköpuð eru frekari efnahagsleg tækifæri í af- þreyingu, gistingu og veitingaþjón- ustu í nágrenni svæðanna. Ég hef metnað til að búa vel að þessum svæðum en stór skref hafa verið stigin á þessu kjörtímabili í þá átt, bæði með aukinni landvörslu og upp- byggingu innviða sem skýla nátt- úrunni. Höldum áfram á þessari braut. Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson »Ég hef metnað til að búa vel að þessum svæðum en stór skref hafa verið stigin á þessu kjörtímabili í þá átt, bæði með aukinni land- vörslu og uppbyggingu innviða sem skýla nátt- úrunni. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Höfundur er umhverfis- og auðlinda- ráðherra. Aukið fjármagn til verndar náttúru landsins Frammi fyrir ótrú- legum myndum frá bandaríska þinghúsinu 6. janúar sl. er hollt fyrir okkur Íslendinga að minnast þess að frá seinna stríði a.m.k. hefur ekkert vestrænt lýðræðisríki komist nær þessu ástandi en Ísland árið 2008 þegar umsátursástand ríkti í Alþingishúsinu við Austurvöll. Á þessum grunni gætum við fundið til samkenndar með bandarísku þjóð- inni í stað þess að fella dóma yfir henni. Þótt halda mætti því fram að mótmælin á Austurvelli hefðu frem- ur átt að fara fram utan við skrif- stofur útrásarvíkinga en stjórn- valda skulum við ekki útiloka að sár eftirmál bankahrunsins hafi fært okkur Íslendingum dýrmætar lexíur sem við gætum miðlað til vina okkar vestan hafs. Getum við miðlað einhverju um samfélagssátt- mála? Um það að sannleikurinn sé ekki afstæður og tilheyri ekki þeim sem á hverjum tíma hafa tyllt sér í hásæti veraldlegs eða siðferðilegs valds? Gæfa Íslendinga var sú að hugrakkir mótmælendur á Aust- urvelli áttuðu sig á því að reiðinni eru takmörk sett og að við bætum ekki samfélag okkar með ofbeldi eða skemmdarverkum. Fólkið sem snerist lögreglu og Alþingi til varn- ar skildi að skrefið frá lýðræði til ofríkis er bæði stutt og af- drifaríkt. Þetta er nefnt hér til að minna á að lýð- ræðið er ekki sjálf- gefið heldur dýrmætt: Lýðræðið er fjöregg sérhverrar þjóðar sem vill kallast frjáls. Í lýðræðinu kristallast brothætt samband borgaranna sín á milli, en einnig út á við, gagnvart valdinu. Aðför að lýðræð- inu er um leið aðför að borgaralegu samfélagi. Hvað á ég við með borg- aralegu samfélagi? Jú, það er sam- félagsgerð sem beinir ágreiningi í friðsamlegan farveg, þar sem menn geta verið ósammála án þess að það valdi vinslitum. Þar sem unnt er að ræða jafnvel alvarlegustu ágrein- ingsmál án þess að ráðast að fólki. Án þess að rægja, smána, lítils- virða, hæða eða ófrægja þá sem eru okkur ósammála. Í stuttu máli: Án þess að skrumskæla aðra með stað- alímyndum og gera þeim upp skoð- anir að ósekju. Í borgaralegu sam- félagi leyfist mönnum að hugsa upphátt, setja fram nýjar hug- myndir – og vekja gamlar til nýs lífs – án þess að kalla yfir sig sið- ferðilega fordæmingu, útskúfun eða þöggun. Orð Krists um náunga- kærleikann eiga enn fullt erindi inn í þennan veruleika 21. aldar. Nú sem aldrei fyrr þurfum við að geta iðkað þróttmikla rökræðu um hvert við viljum stefna. Forsenda þess að slík rökræða beri ávöxt er að við leyfum okkur að efast um það sem við heyrum, en einnig um það sem við hugsun og segjum sjálf! Heilbrigður efi er forsenda framfara í vísindum, löggjöf og stjórnarfari. En efinn má ekki ganga svo langt að hann umbreyt- ist í vantrú á allt sem gott er, því þá er efinn orðinn að sjálfstæðri, íþyngjandi kreddu. Þeir sem eru al- gjörlega sannfærðir um að hafa höndlað sannleikann eru jafn illa settir og þeir sem ekkert vita. Ef marka má reynsluna er lokaður hugur jafnvel hættulegri en tómur hugur. Getum við á nýju ári heitið því að hætta að draga aðgreiningarlínur milli okkar og hinna? Getum við efast um eigin málstað og skoðanir? Getum við munað að setja okkur í spor annarra áður en við dæmum? Leyft fólki að njóta vafans og treyst á einlægni og góðan ásetn- ing? Landamæri góðs og ills liggja ekki utan við okkur, heldur þvert í gegnum okkar eigið hjarta, sem geymir bæði ljós og skugga. Eftir Arnar Þór Jónsson » Aðför að lýðræðinu er um leið aðför að borgaralegu samfélagi Arnar Þór Jónsson Höfundur er héraðsdómari. Landamæri góðs og ills?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.