Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 09.01.2021, Qupperneq 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Gengi manna í skákkeppnumhangir oft á einum leik í tví-sýnni stöðu og eru um þaðóteljandi dæmi. Í mótaröð á netinu, sem heimsmeistarinn Magn- ús Carlsen skipuleggur ásamt fyrir- tæki sínu Play Magnus group og fleiri aðilum, sannaðist þetta strax í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Þar atti hann kappi við Rússann Daniil Dub- ov. Magnús vann fyrstu skákina í fyrra fjögurra skáka einvígi þeirra en Dubov náði að jafna metin og niður- staðan eftir fyrsta dag, 2:2. Dubov komst svo 1½:½ í seinni hrinu. Tvær skákir eftir og Magnús varð að jafna. Þá kom þessi staða upp: Airthings Masters 2021: Dubov-Magnús Carlsen Dubov hafði misst þráðinn eftir góða byrjun og var nú með tapað tafl. Tveir voru kostir: að leika 34. … De7 eða 34. … Da5. Magnús valdi … 34. … De7?? Í ljós kemur að 34. .. Da5! vinnur strax t.d. 35. Dd4+ Kg5 36. Df4+ Kxh5 37. Dxf7+ g6 og ekki má taka hrókinn vegna máts eftir 38. … De1+ o.s.frv. 35. Dd4+ Kg5 36. f3! Skyndilega getur svartur enga björg sér veitt því að 36. … Rf6 er svarað með 37. De5 mát! 36. … f5?! Skárra var 36. … Dxd6 37. Dxd6 Kxh5 38. fxg4+ Kg6 með smá von um að halda jafntefli. 37. fxg4 Hc8 38. Df4 Kf6 39. Dxf5 mát. Þar með féll Magnús Carlsen úr keppni og fannst löndum hans það súrt í broti því á norsku sjónvarps- stöðinni NRK voru beinar útsend- ingar alla keppnisdagana. Hug- myndin stendur fyrir sínu en 70 milljón manns fylgdust með mótaröð- inni á síðasta ári. Öllum á óvart vann Aserinn Teimour Radjabov þetta mót eftir sigur yfir Levon Aronjan í úr- slitaeinvíginu. Næsta verkefni Magnúsar er stór- mótið í Wijk aan Zee sem hefst um næstu helgi. Skák ársins 2020 Aftur að Daniil Dubov en þessi 24 ára gamli Rússi tefldi án efa glæsileg- ustu skák ársins á rússneska meist- aramótinu sem lauk rétt fyrir jólin með sigri Jan Nepomniachtchi. Dubov varð í 3.- 4. sæti á eftir Nepo og Karjakin og vann þá báða en skákin um ræðir var tefld í síðustu umferð: Rússneska meistaramótið 2020; 11. umferð: Daniil Dubov – Sergei Karjakin Ítalski leikurinn 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3 Rf6 5. d4 exd4 6. b4!? Endurvekur gamlan og gleymd- an gambít skyldan Evans-bragði. 6. … Bb6 7. e5 Re4?! Staðan sem kemur upp eftir 7. … d5 8. exf6 dxc4 9. b5! er afar óljós. 8. Bd5 Rxc3 9. Rxc3 dxc3 10. Bg5 Re7 11. O-O h6 12. Bh4 O-O?! Það er spurning hvort 12. .. g5!? hefði ekki verið betra. „Vélarnar“ eru a.m.k. á þeirri skoðun. 13. He1 De8 14. Bb3 a5 15. Bf6! Upphafið á stórkostlegri atlögu. 15. … a4 16. Bc4 Rg6 17. Dd3 Hótar 18. Dxg6. 17. … d5 18. exd6 Be6 19. Dxg6! fxg6 20. Hxe6 Df7 Eftir 20. … Dc6 kemur 21. He7+ Dxc4 22. Hxg7+ Kh8 24. Hxc7+ Hxf6 25. Hxc4 og hvítur á góða sig- urmöguleika í endatafli. 21. Bxc3 Kh8 22. He4 Df5 23. He7 Hg8 24. Bxg8 Hxg8 25. dxc7 Með hrók og léttan og þetta erf- iða frípeð fær ekkert við ráðið. 25. … Dc2 26. Be5 Bxf2+ 27. Kh1 Bb6 28. h3 Kh7 29. He1 a3 30. Kh2 Hvítur fer sér að engu óðslega því að svartur má aldrei taka a2- peðið vegna – Hxg7+ o.s.frv. Loka- atlagan er frábærlega útfærð. 30. … g5 31. Rd4 Dc4 32. Rf5 Dxb4 33. Hc1! Kg6 34. Hxg7+ Kxf5 35. Hxg8 Bxc7 36. Bxc7 Db2 37. Hc5 Ke4 38. Hd8 - og Karjakin gafst upp. Dubov sló út Magnús Carlsen og tefldi skák ársins Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Chess24 Snilldartilþrif Daniil Dubov. Séra Kristinn Jens Sigurþórsson, síðasti sóknarpresturinn í Saurbæ, eins og hann titlar sig sjálfur, hefur nú um nokkurt skeið birt greinar í Morg- unblaðinu. Þar hefur hann m.a. tekið til um- fjöllunar skipulags- breytingar sem og ágreiningsmál sem upp hafa komið innan þjóðkirkj- unnar. Ekki er ætlunin hér í þessum stutta pistli að ávarpa öll þau atriði sem hann hefur fjallað um í sínum fjölmörgu greinum, en nokkur atriði er að mati undirritaðs nauðsynlegt að staldra við og jafnvel leiðrétta. Kirkjuþing lagði niður Saurbæj- arprestakall á Hvalfjarðarströnd. Afleiðingin varð sú að embætti sóknarprests Saurbæjarprestakalls var þar með úr sögunni. Fráfarandi sóknarprestur naut biðlaunaréttar, eftir að embættið var lagt niður, eins og lög gera ráð fyrir. Þetta er staðreynd málsins. Önnur staðreynd málsins er sú að biskup og kirkjuráð buðu fráfarandi sóknarpresti nýtt og sambærilegt starf, innan þjóðkirkjunnar, sem hann þáði ekki, sem og uppgjör og bætur vegna niðurlagningarinnar, sem ekki náðist samkomulag um þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir af hálfu kirkjunnar. Þegar þannig er háttað er hverjum frjálst að leita til dómstóla, úrskurðarnefndar þjóð- kirkjunnar, umboðsmanns alþingis eða hvers annars sem fólk telur rétt að fela úrlausn mála sinna. Séra Kristinn Jens Sigurþórsson fjallar í greinum sínum um nafn- greinda aðila, sem hafa látið af störfum innan þjóðkirkjunnar á um- liðnum misserum. Ekki veit ég hvort hann hafi fengið heimild viðkomandi til að fjalla á slíkan máta um þeirra persónulegu málefni. Þegar um er að ræða skipulagsbreyt- ingar, hugsanleg sið- ferðisbrot og/eða aga- brot, þegar fagráð um meðferð kynferð- isbrota hefur fjölda mála um sama ein- stakling til umfjöll- unar, sem og úrskurðarnefnd og áfrýjunarnefnd, er ljóst að um við- kvæm og erfið mál er að ræða. Málavextir liggja þá gjarnan ekki fyrir allra augum og úrlausnin stundum flókin, þar sem margir koma að, svo sem kirkjuþing, ýmsar nefndir og einnig biskup. Vandalaust er að geta í eyður og gera afgreiðslu og niðurstöðu mála tortryggilega þegar um svo við- kvæm og erfið mál er að ræða. Það sem ég þekki til af þeim úrlausn- arefnum sem séra Kristinn Jens Sigurþórsson fjallar um get ég full- yrt að biskup Íslands hefur lagt sig í líma við að leysa úr þeim á sem far- sælastan og bestan máta. Tvo þarf hins vegar til svo samningar náist, og svo verður fólk auðvitað að bera ábyrgð á gjörðum sínum og fram- komu. Að gefnu tilefni Eftir Þorvald Víðisson » Það sem ég þekki til get ég fullyrt að biskup Íslands hefur lagt sig í líma við að leysa úr þeim málum á sem farsælastan og bestan máta. Þorvaldur Víðisson Höfundur er biskupsritari. Hólmfríður Sigurðardóttir fæddist 9. janúar 1617 og var prófastsfrú í Vatnsfirði. Foreldrar hennar voru Sig- urður Oddsson í Hróarsholti í Flóa, sonur Odds biskups Einarssonar, og kona hans Þórunn ríka Jónsdóttir, f. 1594, d. 1673. Sigurður drukknaði sama ár og Hólm- fríður fæddist en móðir henn- ar giftist aftur Magnúsi Ara- syni sýslumanni á Reykhólum og ólst Hólmfríður þar upp. Hún giftist 1636 Jóni Ara- syni prófasti í Vatnsfirði, sem var yngri bróðir Magnúsar stjúpföður hennar, og bjuggu þau í Vatnsfirði þar til Jón lést árið 1673. Þá flutti hún í Hóla í Hjaltadal til Ragnheið- ar dóttur sinnar sem var bisk- upsfrú og síðar í Laufás til Helgu dóttur sinnar. Hólmfríður og Jón áttu níu börn. Málverkið hér að ofan af Hólmfríði er eftir séra Jón Guðmundsson á Felli í Sléttu- hlíð. Útskorni ramminn er eftir Illuga Jónsson í Nesi í Höfðahverfi. Talið er að Helga hafi látið mála mál- verkið í minningu móður sinn- ar. Hólmfríður lést 25. apríl 1692. Merkir Íslendingar Hólmfríður Sigurðar- dóttir Allt um sjávarútveg Hraunsvegur 16, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Töluvert endurnýjað 4ra herbergja einbýli á einni hæð á góðum og rólegum stað í Njarðvík. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 47.500.000 120,8 m2

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.