Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 26

Morgunblaðið - 09.01.2021, Page 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Fyrir rúmu ári laumaði ný útgáfa kórónuveiru sér yfir í mannfólk og sýndi sig geta valdið sjúkdómn- um Covid-19. Veiran reyndist miklu meira smitandi en frænkur hennar, SARS-CoV frá 2003 og MERS- CoV árið 2012, og þótt dánarhlutfallið sé miklu lægra er heildarfjöldi dauðsfalla orðinn margfalt meiri í þessum faraldri SARS-CoV-2- veirunnar sem skýrir jafnframt áhersluna á að hefta útbreiðslu hennar. Óttast var í fyrstu að um drep- sótt sambærilega spænsku veik- inni 1918 væri að ræða sem þurrk- aði út 2,3% mannkyns, aðallega yngra heilsuhraust fólk. Smám saman hefur skýrst að Covid-19 er langt frá því að vera slík drepsótt, en hún leggur að velli helst eldra og heilsuveilt fólk. Flestir veikjast vægt en hjá sumum þeirra sem sýkjast getur tekið langan tíma að jafna sig líkamlega og andlega. Að meðaltali fæðast á Íslandi u.þ.b. 12 börn á dag og sex manns deyja. Á þeim tíu mánuðum sem liðnir eru frá því nýja veiran greindist hér hafa því um 1.800 manns látist og þar af um 30 úr Covid-19 sem þýðir að yfir 98% deyja úr öðrum sjúkdómum, slys- um og sjálfsvígum á tímabilinu. Að veikjast af Covid-19 getur haft áhrif á geðheilsu vegna bólguviðbragða ónæmiskerfisins og meðferða sem beitt er. Aðrir áhættuþættir geðsjúkdóma geta legið í sóttvörnunum sjálfum, þær hafa í för með sér félagslega ein- angrun og geta magnað upp við- varandi ótta, atvinnumissi, fjár- hagslega erfiðleika og aukið vímuefnamisnotkun. Nýr formaður breska geðlæknafélagsins, Adrian James, telur faraldurinn mestu ógn okkar kynslóðar við geðheils- una á næstu árum. Ef áætluð þjónustuaukning Breta er yfirfærð beint á okkur mætti gera ráð fyrir að um 50 þúsund Íslendingar og þar af um átta þúsund börn þurfi geðheilbrigðisþjón- ustu vegna faraldurs- ins, fyrst og fremst vegna kvíða og þung- lyndis. Þótt farald- urinn í Bretlandi hafi orðið verri en hér á landi og sótt- varnaaðgerðir meira íþyngjandi þarf að gera ráð fyrir sams konar afleiðingum á geðheilsu landsmanna á næstu misserum og árum. Fjöldi rannsókna hefur þegar verið birtur um geðrænar afleið- ingar Covid-19-faraldursins. Þær sýna að geðheilsa hefur versnað í tengslum við félagslegar og efna- hagslegar afleiðingar sóttvarna- aðgerða. Geðrænar heilsufars- legar afleiðingar Covid-19-kreppunnar, þar með talin sjálfsvígshegðun ná hámarki seinna en faraldurinn sjálfur. Það mun taka tíma að meta þennan áhrifaþátt t.d. í löndum eins og Bandaríkjunum þar sem sjálfs- vígstíðni hefur farið vaxandi síð- ustu tvo áratugi en á Íslandi hef- ur hún lítið breyst á þessari öld fram að þessu. Síðan faraldurinn fór af stað hafa fjölmiðlar lagt áherslu á end- urteknar tölulegar upptalningar án þess samhengis sem nauðsyn- legt er til skilnings á þeim. Þessi yfirborðskennda og villandi fram- setning hefur orðið til að vekja yf- irdrifinn ótta hjá almenningi sem ekki hefur forsendur til að skilja þær öðru vísi en að eitthvað mun skelfilegra sé í gangi en í raun er. Það er ekki nýtt að staðreyndir mála séu ekki leiðarljós fjölmiðla heldur sá ótti sem fær móttakand- ann til að veita miðlinum sjálfum þá athygli sem hann byggir til- veru sína á. Sænski læknirinn Hans Rosling sá af þeirri ástæðu tilefni til að stofna Gapminder Foundation sem er ætlað að gefa staðreyndamiðaða heimsmynd til að sporna við skelfilegri fáfræði sem heimsmynd fjölmiðla elur af sér. Ótti sem í eina tíð tryggði það að forfeður okkar héldu lífi tryggir núna að fjölmiðlafólk haldi vinnunni segir Rosling í síðustu bók sinni Raunvitund þar sem rakin eru fjölmörg dæmi þessu til stuðnings. Frægt er atvik á póstmiðstöð í bænum Stokke í Noregi árið 2016 þegar umslag með hvítu dufti rifn- aði og starfsmenn óttuðust hryðju- verk sem þá voru mikið í fréttum. Margir starfsmenn urðu veikir, fengu öndunarerfiðleika, kláða, brunatilfinningu í koki og voru sendir á sjúkrahús. Efnið reyndist hveiti og sýna viðbrögðin þann mátt sem yfirdrifinn kvíði og ótti getur valdið, nokkuð sem er vel þekkt sjúkdómsmynd geð- sjúkdóma. Í yfirstandandi faraldri er mikil- vægt að minnka streitu, kvíða, ótta og einmanaleika hjá almenn- ingi og sérstaklega fólki með geð- sögu, hjá sjúklingum sem hafa sýkst og eldra fólki. Fjölmiðlar þurfa að fjalla um allar hliðar far- aldursins án þess að vekja til- hæfulausan ótta við hvort heldur veiruna sjálfa eða hin lofandi bólu- efni sem eru að komast í gagnið. Sá merki og á sínum tíma um- deildi frumkvöðull Guðmundur Björnsson landlæknir benti m.a. á þýðingu geðheilsunnar í smáriti sem gefið var út af Stjórnarráðinu í nóvemberlok 1918 þegar drep- sóttin stóð sem hæst. „Gegnd- arlaus sótthræðsla er miklu háskalegri en flesta menn grunar, þeir sem æðrast og hleypa hræðslu og hugleysi í fólk eru allra manna óþarfastir og vinna miklu meira tjón en almennt er talið,“ og á eftir fylgdu ýmis sígild ráð um það hvernig fólk geti forð- ast inflúensuna og brugðist við ef það veikist. Þessi orð landlæknis eiga ekki síður vel við í dag, einni öld síðar. Geðheilsan í kófinu Eftir Ólaf Ó. Guðmundsson »Ef áætluð þjónustu- aukning Breta er yfirfærð má gera ráð fyrir að tugþúsundir Ís- lendinga þurfi á geðheil- brigðisþjónustu að halda vegna faraldursins. Ólafur Ó. Guðmundsson Höfundur er geðlæknir. Nýverið birti Haf- rannsóknastofnun skýrslu um niður- stöður stofnmælingar að haustlagi en í henni kemur fram að vísitala þorsks lækkar nú þriðja árið í röð og mældist hún svipuð og fyrir um áratug. Þess- ar niðurstöður ríma að mestu leyti við mæl- ingar stofnunarinnar frá í mars á síðasta ári. Lækkunina í vísitölunni má rekja til þess að minna mældist af 40-80 cm þorski sem skýrist að hluta til af því að árgangarnir frá 2013 og 2016 eru litlir. Stjórn landssambands smábáta- sjómanna sendi á dögunum út ályktun þar sem vakin er athygli á lækkuninni og bent á að líklegasta ástæða hennar sé vanveiði þar sem stórþorski hafi fjölgað mikið og fæðusamdráttur hafi stuðlað að stórauknu sjálfsafráni. Skorar landssambandið á ráðherra að hefja gagngera endurskoðun á aðferða- fræði Hafrannsóknastofnunar varðandi ráðgjöf um nýtingu þorsks. Rétt er að stórþorski hefur fjölg- að á undanförnum árum og er það fyrst og fremst vegna þess að sókn hefur verið hófleg eins og kveðið er á um í aflareglu stjórnvalda. Rann- sóknir hafa sýnt fram á að eldri þorskhrygnur framleiða lífvænlegri egg og lirfur og yfir lengra tímabil á vorin en yngri hrygnur. Hrygningarstofn sem samsettur er af þorski á sem víðustu aldursbili er því líklegri til að gefa góða nýliðun. Þetta má sjá hér við land þar sem nýliðun hefur vaxið nokkuð á und- anförnum árum og tíðni slakra ár- ganga minnkað mikið. Horfur eru jákvæðar fyrir 2019- og 2020- árgangana þótt vissulega séu þeir ekki í hendi þar sem margt getur hent smáþorsk áður en hann birtist í veiðunum. Varðandi fæðuframboð þá er ekki að sjá að það sé hamlandi miðað við gögn stofnunarinnar. Þannig er þyngd þorsks fjögurra ára og eldri í stofnmælingunni frá í haust um eða yfir meðaltali áranna 1996 til 2020. Vöxtur þorskstofnsins og afla- aukning á undanförnum árum hefur fyrst og fremst verið vegna þess að sókn hefur verið hófleg og árgang- ar endast lengur í stofninum. Nú má hins vegar segja að ákveðnu jafnvægi sé náð miðað við þá nýlið- un sem verið hefur á undanförnum árum. Það er því ekki að vænta aukningar á næstu árum á sömu forsendum heldur má búast við ein- hverjum sveiflum í ráð- gjöf ef missterkir ár- gangar ganga í gegnum veiðistofninn. Ef nýlið- un heldur áfram að aukast mun það hins vegar leiða til aukn- ingar í aflaheimildum. Rétt er að benda á að við mat á stofnstærð þorsks eru notuð gögn úr afla- og stofnmæl- ingum að vori og hausti. Stofnmatið fylgir aldrei vísitölum fullkomlega heldur vegur það gögnin m.t.t. innra samræmis og dreifni. Í tækni- skýrslu stofnunarinnar um þorsk frá síðastliðnu vori má sjá að stofn- matið fylgdi ekki að fullu eftir hækkun vísitalna á árunum 2012 til 2017 og svo ekki að fullu lækkun síðustu ára. Það er því ólíklegt að stofnmat þorsks lækki viðlíka mikið milli ára og vísitalan. Auk þess er innbyggð sveiflujöfnun í aflaregl- unni þar sem aflamark síðasta árs vegur helming á móti stofnmati þegar aflamark næsta árs er gefið. Síðastliðinn vetur skipaði sjávar- útvegsráðherra nefnd til að fara yfir árangur af aflareglu þorsks og gera tillögur um breytingar ef þurfa þyk- ir. Meðal annars vegna Covid-19 hefur vinna nefndarinnar dregist en búist er við að hún skili áliti sínu til ráðherra á næstunni. Í kjölfarið hefur Alþjóaðahafrannsóknaráðið (ICES) verið beðið að fara yfir for- sendur aflareglunnar og þá aðferða- fræði sem notuð er til að áætla stærð þorskstofnsins. Niðurstöður ICES munu liggja fyrir áður en ráðgjöf verður gefin út fyrir fisk- veiðiárið 2021/2022. Það er því ofsögum sagt að þorsk- stofninn sé í frjálsu falli þótt vissu- lega séu horfur til skamms tíma ekki jákvæðar. Nauðsynlegt er að standa vörð um þá vöktun og rann- sóknir sem unnar hafa verið á und- anförnum árum. Hafrann- sóknastofnun hefur nú hafið merkingar á þorski eftir langt hlé og einnig eru fyrirhugaðar auknar rannsóknir á nýliðun þorsks á næst- unni. Vonir standa til að þær muni varpa ljósi á ýmsa óvissuþætti í stofnmati okkar verðmætasta nytjastofns. Er þorskurinn í frjálsu falli? Eftir Guðmund Þórðarson Guðmundur Þórðarson »Nauðsynlegt er að standa vörð um þá vöktun og rannsóknir sem unnar hafa verið á undanförnum árum. Höfundur er sviðsstjóri botnsjávar- sviðs hjá Hafrannsóknastofnun. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.