Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 36

Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 36
ÞÝSKALAND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Stuðningsmenn þýska knatt- spyrnuliðsins Tasmania Berlín eru farnir að mæta fyrir utan leikvang Schalke í borginni Gelsenkirchen til að reyna að hvetja leikmenn liðsins til dáða. Hvers vegna? Jú, þeir hjá Tasm- ania, sem leikur í fimmtu efstu deild Þýskalands, vilja alls ekki missa af titlinum „versta lið sögunnar“ í þýsku Bundesligunni. Nú er nefni- lega mikil hætta á að Schalke taki þann titil af þessu lágstemmda en samt ágætlega þekkta knattspyrnu- félagi frá Berlín. Árið 1965 fékk Tasmania sæti í Bundesligunni, vesturþýsku 1. deildinni, tveimur vikum áður en keppni hófst. Nágrannarnir í Herthu Berlín höfðu verið dæmdir niður um deild, sæti var laust og vegna stöðu Vestur-Berlínar inni í miðju Austur-Þýskalandi vildi vest- urþýska knattspyrnusambandið að áfram væri spilaður fótbolti í efstu deild í borginni. Eftir að tvö félög í Berlín höfðu hafnað boði um að láta kasta sér fyrir úlfana í efstu deild stukku forráðamenn áhugamanna- félagsins Tasmania á tækifærið. Mörg met sem enn standa Félagið lék þar með í deildinni keppnistímabilið 1965-66, spilaði 34 leiki gegn bestu liðum landsins og setti mörg met sem standa enn þann dag í dag. Tasmania vann bara tvo leiki (sem ætti þó að teljast nokkuð gott miðað við aðstæður), fékk bara átta stig (10 ef reiknuð væru þrjú stig fyrir sigur eins og síðar var gert), skoraði bara 15 mörk, fékk á sig 108, var með markamismuninn 93 mörk í mínus, og náði ekki sigri í 31 leik í röð. Tasmania lék heimaleikina á lang- stærsta velli deildarinnar, ólymíu- leikvanginum í Berlín, og gat tekið á móti 100 þúsund áhorfendum. Samt var eitt af metunum sem félagið setti lægsta áhorfendatala sög- unnar, eða fram að kórónuveirulok- unum, því aðeins 827 áhorfendur mættu á heimaleik liðsins gegn Mönchengladbach í janúar 1966. Schalke með fjögur stig Nú er hætta á að Schalke jafni eitt af metum Tasmania í dag. Schalke hefur ekki unnið í 30 leikj- um í röð í deildinni, frá því í janúar 2020, og situr á botninum með fjög- ur stig eftir fjórtán leiki á þessu tímabili. Takist Schalke ekki að vinna Hoffenheim í dag verður met Tasmania jafnað og þá gæti það fall- ið um næstu helgi. En hvers vegna vill Tasmania Berlín halda í titilinn „versta lið sög- unnar“? Mikilvægasta auglýsingin Almir Numic, eigandi Tasmania, sagði við vefmiðilinn Fussball á dög- unum að metin sem félagið hefur átt í 55 ár séu mikilvægasta auglýsingin sem það fær. Ekkert veki meiri at- hygli á félaginu en að þessi met séu rifjuð upp af og til, og þau kosti ekk- ert. „Fáir þekkja hin smáliðin í borg- inni, eins og Viktoria Berlin og Berl- iner AK, en allir þekkja okkur þótt við séum í fimmtu deild. Þetta snýst um nafn og stöðu félagsins. Vegna metanna erum við reglulega í frétt- um á landsvísu,“ sagði Numic, sem reyndar segist sjálfur styðja Dort- mund, erkifjendur Schalke, og þess vegna mætti Schalke því tapa sem oftast. Leyfið Tas að halda metinu Stuðningsmenn félagsins eru sammála Numic og þeir hafa að undanförnu flaggað borðum fyrir utan leikvang Schalke með áletr- uninni: „Leyfið Tas að halda met- inu.“ Tasmania á annars góðu gengi að fagna á yfirstandandi tímabili. Liðið er efst í norðausturriðli Oberlig- unnar, fimmtu efstu deildar Þýska- lands, með sjö sigra í fyrstu níu leikjunum, og gæti því unnið sig upp um deild í vetur. Rétt eins og ná- grannarnir í Viktoria sem eru með fullt hús stiga einni deild ofar. Hertha, besta lið borgarinnar sem fyrr, er í tólfta sæti Bundesligunnar fyrir leiki helgarinnar. Vilja vera áfram versta lið sögunnar  Schalke gæti jafnað eitt af 55 ára metum Tasmania Berlín í dag AFP Vandræði Leikmenn Schalke hafa ekki haft yfir miklu að gleðjast enda er að verða heilt ár síðan þeir unnu síðast leik í þýsku deildakeppninni. 36 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 England Bikarkeppnin, 3. umferð: Aston Villa – Liverpool ............................ 1:4 Wolves – Crystal Palace .......................... 1:0 Þýskaland Mönchengladbach – Bayern.................... 3:2 Staða efstu liða: Bayern München 15 10 3 2 46:24 33 RB Leipzig 14 9 4 1 25:9 31 Leverkusen 14 8 4 2 29:14 28 Dortmund 14 8 1 5 28:18 25 Union Berlin 14 6 6 2 29:18 24 Wolfsburg 14 6 6 2 20:15 24 Bor. M’gladbach 15 6 6 3 28:24 24 Katar Al-Arabi – Al Ahli Doha.......................... 1:0  Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Heimir Hallgrímsson þjálfar liðið. Holland B-deild: Nijmegen – Excelsior.............................. 3:2  Elías Már Ómarsson var ekki í leik- mannahópi Excelsior.  „Ég bjóst við því að vinna með fleiri mörkum í hreinskilni sagt,“ sagði Paulo Pereira, landsliðsþjálfari Portúgals í handknattleik, við mið- ilinn Ojogo um sigurinn gegn Ís- landi í undankeppni EM á miðviku- daginn. Íslandi tapaði 26:24 í Porto en liðin mætast aftur á Ásvöllum á morgun og svo í fyrsta leik á HM. „Seinni leikurinn skiptir ekki jafn miklu máli, við erum það ná- lægt sæti á EM að við hugsum meira um að undirbúa okkur fyrir heimsmeistaramótið. Við viljum samt ekki tapa gegn Íslandi.“ Bjóst við stærri sigri gegn Íslandi Ljósmynd/FPA Ósigur Elvar Örn Jónsson verst í leiknum á miðvikudaginn. Hólmbert Aron Friðjónsson hefur náð sér að fullu af meiðslum og gæti spilað sinn fyrsta leik með ítalska knattspyrnuliðinu Brescia annan laugardag, 16. janúar. Hólmbert meiddist í leik með Aalesund í Noregi um miðjan sept- ember, nokkrum dögum eftir að hafa skorað mark Íslands gegn Belgíu í Þjóðadeild UEFA, og hefur ekki spilað síðan. Brescia keypti hann af Aalesund í byrjun október og skýrði félagið frá því á heima- síðu sinni í gær að Hólmbert sé bú- inn að ná sér að fullu. Hólmbert hefur náð sér að fullu Ljósmynd/Aalesund Tilbúinn Hólmbert er klár í að spila fyrsta leik með Brescia á Ítalíu. Gott gengi Heimis Hallgrímssonar og hans manna í Al-Arabi hélt áfram í gær en Aron Einar Gunnarsson og samherjar lögðu þá Al Ahli Doha að velli, 1:0, í katörsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Eftir slæma byrjun á tímabilinu hefur Al-Arabi nú unnið fjóra leiki í röð og er búið að lyfta sér upp í sjöunda sæti deildarinnar. Liðið er nú aðeins fimm stigum frá þriðja sætinu sem veitir keppnisrétt í Asíu- mótum félagsliða.  Samtök handknattleiksmanna í Evr- ópu hafa sent forseta Alþjóðahand- knattleikssambandsins, Hassan Mou- stafa, bréf þar sem þeir fara fram á að hætt verði við að vera með áhorfendur á heimsmeistaramóti karla sem hefst í Egyptalandi, heimalandi forsetans, næsta miðvikudag. Þar stendur til að selja aðgang að 20 prósentum sæta í keppnishöllunum sem þýðir að allt að þrjú þúsund manns geta verið á leikj- unum. Margir leikmenn eru uggandi yfir þessu vegna smithættu og nokkrir hafa ekki gefið kost á sér í sín landslið af þessum sökum.  Luka Doncic frá Slóveníu átti enn einn stórleikinn í NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrrinótt. Hann skoraði 38 stig, níu þeirra í framlengingu, þeg- ar Dallas lagði Denver á útivelli, 124:117, og átti auk þess 13 stoðsend- ingar og tók níu fráköst. Serbinn Nik- ola Jokic átti líka stórleik með Denver. Hann skoraði líka 38 stig og tók 11 frá- köst.  Víkingur í Reykjavík hefur gert þriggja ára samning við knattspyrnu- manninn unga Kristal Mána Ingason sem lék með liðinu á síðasta keppn- istímabili sem lánsmaður frá FC Kö- benhavn. Kristall, sem verður 19 ára síðar í þessum mánuði, er uppalinn hjá Fjölni, en fór þaðan til Danmerkur áður en hann kom upp í meistaraflokk Graf- arvogsliðsins. Hann vann sér fast sæti í Víkingsliðinu og lék 15 af 18 leikjum þess í úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark. Kristall Máni á að baki 30 leiki með yngri lands- liðum Íslands. Eitt ogannað deild karla, Dominos-deildinni, á fimmtudag og föstudag. Þar var að- eins búið að leika eina umferð í byrj- un október en stefnt er að því að ljúka hefðbundinni keppni, 22 leikj- um á lið, og spila afar þétt. Hvert lið myndi spila sex leiki frá 14. janúar til 1. febrúar. Handboltinn næsta föstudag Handboltinn ætti að fara af stað næsta föstudag með keppni í 1. deild karla, samkvæmt mótaskrá, en heil umferð er á dagskrá í úrvalsdeild kvenna, Olísdeildinni, á laugardag- inn kemur, 16. janúar. Karlahand- boltinn á að fara í gang á ný 24. jan- úar. Konurnar höfðu leikið þrjár umferðir og karlarnir fjórar þegar keppni var stöðvuð í haust. Blaksambandið er þegar búið að endurraða sínu Íslandsmóti og ætl- ar að hefja keppni í úrvalsdeildum karla og kvenna, Mizuno-deild- unum, helgina 16.-17. janúar. Þar FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íþróttahreyfingin tók viðbragð í gær þegar Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra skýrði frá því að samkvæmt tillögum frá Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni stæði til að heimila keppni í íþróttum á nýjan leik frá og með næsta miðvikudegi, 13. janúar. Þann dag er áformað að slaka á samkomutakmörkunum úr tíu manns í tuttugu manns, sem og að opna á ný fyrir bæði æfingar og keppni í íþróttum fyrir alla aldurs- hópa. Áhorfendur verða hins vegar ekki leyfðir að sinni í íþróttahús- unum. Svandís tók fram að þessi áform miðuðust við að kórónuveirufarald- urinn héldist áfram í lágmarki fram yfir þessa helgi. Öll keppni í íþróttum hér á landi hefur legið niðri frá 7. október, að undanskildum landsleikjum og Evr- ópuleikjum sem undanþága var veitt fyrir í október og nóvember. Körfuboltakonur fyrstar? Körfuboltakonur verða vænt- anlega fyrstar í gang. KKÍ birti fyrr í vikunni áætlun um keppnisfyr- irkomulag sem miðaðist við að leyfi fengist til að hefja keppni á ný 13. janúar. Strax þá um kvöldið er á dagskrá heil umferð í úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildinni. Þar er venjan að leika fjórfalda umferð átta liða en mótið verður stytt og leikin þreföld umferð til vorsins, 21 leikur á lið, ef allt gengur upp. Liðin höfðu leikið einn til þrjá leiki hvert þegar keppni var hætt í haust. Fyrirhugað er að hvert lið leiki fimm leiki á aðeins fimmtán dögum í janúar. Heil umferð er á dagskrá í úrvals- voru liðin búin að leika tvo til þrjá leiki hvert í haust. Ný niðurröðun er ekki komin á Íslandsmótin í íshokkí en þar hafði verið leikinn einn leikur í hvorri deild, karla og kvenna, í haust. Reykjavíkurleikar líklegir Reykjavíkurleikarnir þar sem á annan tug íþróttagreina eru á dag- skránni ættu að geta farið fram dag- ana 28. janúar til 7. febrúar eins og til stóð. Hætt er þó við að erfitt verði um vik fyrir erlenda kepp- endur að mæta til leiks vegna reglna um skimanir og sóttkví en leikarnir gætu reynst mikilvægt upphaf nýs tímabils í mörgum greinum. Þá gæti knattspyrnuvertíðin farið af stað í vikulokin en áformað hafði verið að hefja keppni bæði á Reykjavíkurmótinu og Norður- landsmótinu dagana 15. til 16. jan- úar ef leyfi fengist. Allir komnir í startholurnar  Útlit fyrir að keppni í öllum greinum megi fara af stað næsta miðvikudag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.