Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 37

Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 37
ÍÞRÓTTIR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Mikill gleðidagur fyrir íþrótt- irnar sagði Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleiks- sambands Íslands, í samtali við mbl.is í gær um þau tíðindi heil- brigðisráðherra að allt stefndi í að hefja megi keppni á ný í íþróttum frá og með 13. janúar. Gleðin leyndi sér ekki hjá Hann- esi frekar en undirrituðum þegar fréttirnar bárust. Keppni í öllum íþróttagreinum hérlendis hefur enda legið niðri frá því í byrjun október eða í um þrjá mánuði. Það er ekkert grín fyrir okkur áhugamennina og ég get varla ímyndað mér kvöl íþróttamannanna sjálfra sem hafa ekki átt kost á því að stunda sína iðju með eðlilegu móti í vet- ur. Haldist veirufaraldurinn áfram í lágmarki verður væntanlega hægt að hefja Íslandsmótin í m.a. handknattleik og körfu- knattleik á næstu vikum og þá auðvitað styttist í fyrstu vetr- armótin í knattspyrnu. Þetta væri frábært, ekki bara fyrir íþróttafólk og áhugamenn heldur íþróttafréttamenn líka. Sköpunargleðin hefur feng- ið að njóta sín á íþróttasíðum Morgunblaðsins og mbl í vetur og hafa vonandi einhverjir les- endur haft gaman af. Ofaukin umfjöllun um enska fótboltann hefur hins vegar reynst mikill vá- gestur í fréttaflutningi ef marka má athugasemd sem ég fékk frá ættingja um jólin. „Bölvað mas er þetta enda- laust um erlenda fótbolta- kappa,“ sagði frænka mín þegar hún hringdi til að óska mér gleði- legra jóla. „Meira en vanalega og er þá mikið sagt,“ bætti hún við. Ég vona hennar vegna, og okkar allra, að ég geti brátt fært henni fréttir af íslensku íþróttafólki hérlendis og afrekum þess. Ann- ars er HM í handbolta að fara að byrja, það er eitthvað. BAKVÖRÐUR Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is LANDSLIÐIÐ Kristján Jónsson kris@mbl.is Karlalandsliðið í handknattleik mætir Portúgal í undankeppni EM karla í handknattleik á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16 á morgun. „Ég held að möguleikarnir séu bara góðir. Þetta hefði alveg eins getað dottið okkar megin úti í Portúgal. Við erum að undirbúa okkur fyrir síðari leikinn. Við eigum eftir að greina leikinn almennilega og það verður gert á videófundi síð- ar í dag [í gær]. Þar munum við skoða vel hvað fór úrskeiðis í fyrri leiknum og laga það,“ sagði hægri skyttan Viggó Kristjánsson þegar Morgunblaðið ræddi við hann í gær. Portúgal hafði betur 26:24 eftir talsverða spennu í fyrri leik liðanna í Portúgal í vikunni en þar skoraði Viggó fjögur mörk í síðari hálfleik. Liðin eiga eftir að mætast í fyrsta leiknum á HM í Egyptalandi og þau mættust einnig á EM fyrir ári og þá vann Ísland 28:25. „Mig minnir að við höfum byrjað vel í leiknum í janúar og það reið líklega baggamuninn í það skiptið. Ekki kemur annað til greina en að vinna á sunnudag [á morgun] og helst með þremur mörkum eða meira til að eiga möguleika á efsta sæti í riðlinum. Einnig getur skipt máli upp á framhaldið að vinna þá áður en við mætum þeim á HM. Leikurinn á móti þeim á HM getur skipt miklu máli um hvernig það mót mun þróast hjá okkur.“ Fjölbreytni hjá Portúgal Í liði Portúgals eru margir lík- amlega sterkir leikmenn en um þessar mundir teflir Ísland fram liði með mörgum leikmönnum í lág- vaxnari og léttari kantinum á mæli- kvarða handboltamanna. Útheimtir það ekki mikla orku að glíma við þetta portúgalska lið? „Eins og við spilum varnarleikinn þá fer hvort sem er alltaf mikil orka í hann. Það er rétt að þeir eiga marga líkamlega sterka leikmenn. Þeir eru til dæmis með stóra og sterka línumenn. Í útilínunni geta þeir einnig skipt inn á minni og snöggum mönum. Portúgal er því með góða blöndu af ólíkum leik- mönnum og fyrir vikið er þetta hör- kulið,“ benti Viggó á sem er næst- markahæsti leikmaður þýsku 1. deildarinnar á tímabilinu á eftir Bjarka Má Elíssyni. Hægra megin er einnig Ómar Ingi Magnússon í ís- lenska hópnum sem er lykilmaður hjá Magdeburg og þá nýtur baráttu- mannsins reynda, Alexanders Pet- erssonar, enn við. Þá er ótalinn Kristján Örn Kristjánsson sem leik- ið hefur mjög vel í Frakklandi. Er ekki mikil samkeppni um skyttu- stöðuna í landshópnum um þessar mundir? „Jú það er alveg hægt að segja það. Einhvern tíma hef ég heyrt tal- að um á síðustu árum að skyttu- staðan hægra megin væri spurning- armerki hjá landsliðinu. En í dag erum við með þrjá sem spila í efstu deild í Þýskalandi og einn sem spil- ar í efstu deild í Frakklandi. Hægt væri að tína til fleiri góða leikmenn í þessari stöðu. Það er bara betra hafa góða samkeppni og er jákvæð- ur hauskverkur fyrir þjálfarana. Við viljum auðvitað hafa leikmannahóp- inn sem sterkastan. Þessu fylgir að maður fær ekki að spila 60 mínútur í hverjum einasta leik en ég myndi miklu frekar vilja hafa Alexander með heldur en ekki. Enda er hann einn besti bakvörður í vörn í heim- inum og þar að auki frábær í sókn Ég læri mikið af honum,“ sagði Viggó og dvelur ekki of mikið við þá staðreynd að landsliðið þurfi að leika fyrir tómum áhorfendastúkum á morgun. „Við höfum vanist þessu í Þýska- landi og svona var þetta einnig á móti Litháen í Laugardalshöll í nóv- ember. Þrátt fyrir þetta myndaðist stemning. Tónlistin var þá bara höfð í botni í staðinn. Ég held að það verði ekkert mál að gíra okkur upp í leikinn,“ sagði Viggó Kristjánsson. Lærir mikið af Alexander  Viggó Kristjánsson er einn þeirra leikmanna sem gera tilkall til að leika í skyttustöðunni hægra megin í landsliðinu  Vilja hafa hópinn sem sterkastan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gegnumbrot Viggó í leiknum gegn Litháen í nóvember en þá var ekki heldur heimilt að vera með áhorfendur. leikjahæsti leikmaður félagsins í efstu deild frá upphafi með 285 leiki og sá fjórði markahæsti með 68 mörk. Hann er um leið fimmti leikjahæsti leikmaðurinn í efstu deild karla hérlendis frá upphafi. Að viðbættum leikjunum með HK og Fjölni hefur Atli spilað 311 deildaleiki hér á landi og skorað í þeim 81 mark. Atli hefur ennfremur gefið næst- flestar stoðsendingar allra leik- manna í deildinni frá árinu 1992, 84 talsins. Atli Guðnason, einn reyndasti knattspyrnumaður landsins og burðarás í sigursælu liði FH um árabil, tilkynnti í gær að hann væri hættur. Hann hefur spilað með meistara- flokki FH frá árinu 2004, að und- anskildu hálfu öðru ári í byrjun fer- ilsins þar sem hann var í láni hjá HK og Fjölni í 1. deild. Atli, sem er 36 ára gamall, varð sex sinnum Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeistari með FH, sem er hans uppeldisfélag. Þá er hann Sexfaldur Íslandsmeistari dregur sig í hlé Morgunblaðið/Eggert Hættur Atli Guðnason kvaddi FH í gær eftir glæsilegan feril með félaginu. HANDKNATTLEIKUR Undankeppni EM karla: Ásvellir: Ísland – Portúgal ..................... S16 UM HELGINA! Spánn B-deild: Castello – Girona ........................ (frl.) 82:84  Kári Jónsson lék í 18 mínútur fyrir Gi- rona, skoraði 3 stig, gaf eina stoðsendingu og tók eitt frákast. NBA-deildin Brooklyn – Philadelphia .................. 122:109 Memphis – Cleveland........................... 90:94 Denver – Dallas...................... (frl.) 117:1124 LA Lakers – San Antonio................ 109:118 Portland – Minnesota....................... 135:117 Efstu lið í Austurdeild: Philadelphia 7/2, Orlando 6/2, Indiana 6/2, Boston 6/3, New York 5/3, Milwaukee 5/3, Brooklyn 5/4, Cleveland 5/4, Atlanta 4/4. Efstu lið í Vesturdeild: Phoenix 6/2, LA Clippers 6/3, LA Lakers 6/3, Utah 4/4, New Orleans 4/4, Golden State 4/4, Portland 4/4, Sacramento 4/4.   Svíþjóð Kristianstad – Västerås...................... 28:23  Andrea Jacobsen var ekki með Kristi- anstad. Undankeppni EM karla 6. riðill: Noregur – Hvíta-Rússland.................. 27:19  Noregur 4, Hvíta-Rússland 2, Ítalía 2, Lettland 0.   Eins og fram kemur annars staðar á íþróttasíðum dagsins fer lands- leikur Íslands og Portúgals á morg- un fram á Ásvöllum í Hafnarfirði. Ekki er hægt að spila í Laugardals- höllinni í þetta skipti þar sem hún er lokuð vegna viðgerða. Ísland nýtir áfram undanþáguna sem það fær vegna ófullnægjandi mann- virkja og færir leikinn á Ásvelli. Þegar flett er í fljótu bragði í gegnum gamla árganga af Morg- unblaðinu virðist síðasti mótsleikur hjá karlalandsliðinu sem ekki var í Laugardalshöll- inni einmitt hafa verið á Ásvöllum. Virðist það hafa verið leikur gegn Eistlandi í undankeppni EM 2010. Fór hann fram í mars árið 2009 og vann Ís- land stórsigur, 38:24. Í þetta skiptið þarf að meina áhorfendum aðgang að leiknum vegna sóttvarna í tengslum við heimsfaraldurinn. Árið 2009 þurfti reyndar einnig að vísa fólki frá en það var vegna þess að eftirspurnin eftir miðum var miklu meiri en framboðið þar sem íþróttaunnendur voru æstir í að sjá silfurdrengina spila á heimavelli. „Það voru á að giska tvö til þrjú hundruð manns sem biðu fyrir utan þegar loka varð húsinu. Við mátt- um ekki og gátum ekki tekið við fleirum, því miður. Okkur þykir þetta leiðinlegt,“ sagði Róbert Geir Gíslason starfsmaður HSÍ í samtali við Morgunblaðið 23. mars 2009 vegna þessa en Róbert er í dag framkvæmdastjóri sambandsins. Þegar leikurinn fór fram var Laugardalshöllin bókuð undir ann- an viðburð. Þegar ekki hefur verið hægt að leika í höfuðstaðnum hefur farið vel á því að færa landsleiki í Hafnarfjörð sem oft hefur verið kallaður „handboltabær“. Fyrir tveimur til þremur áratugum eða svo þótti gott að leika í Kaplakrika en þar náði Ísland gjarnan hag- stæðum úrslitum. kris@mbl.is Leikið í „handboltabænum“  Tæp tólf ár síðan karlalandsleikur í undankeppni var ekki í Laugardalshöllinni Róbert Geir Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.