Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 38

Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Ég gladdist mjög. Líka yfir því að bein, sem væntanlega eru Ragnhild- ar, skyldu vera nánast ofan í sömu gröf. Það er gott að vita til þess að þau hvíli saman,“ segir Þórarinn Hjartarson sagnfræðingur, stál- smiður og trúbador þegar hann er spurður hvernig honum hafi orðið við þær fréttir að gröf ástar- skáldsins Páls Ólafssonar hafi loks fundist á dögunum í Hólavalla- kirkjugarði, eftir að hafa verið týnd í áratugi. „Ég vissi að Páll hafði verið lagð- ur til hinstu hvílu í sérstakri stell- ingu, hann hafði þvertekið fyrir að rétt yrði úr honum eftir dauðann. Hann vildi fá að liggja í hnipri í sinni gröf og hafði því verið lagður á hliðina í kistuna. Fyrir vikið var kistan óvenjuleg í laginu, sem gerði að verkum að hún fannst nú loks með jarðsjá.“ Þórarinn er vel kunnugur kvæð- um Páls og ævi hans, hann gerði út- varpsþætti um Pál fyrir rúmum tuttugu árum og þar sungu hann og Ragnheiður Ólafsdóttir m.a. saman nokkur kvæði Páls. „Þetta þróaðist áfram og úr varð diskur okkar Ragnheiðar, Söngur riddarans, þar sem við syngjum við texta Páls. Fyrir tólf árum safnaði ég svo öllum ástarljóðum Páls sam- an í bók sem heitir Eg skal kveða um eina þig alla mína daga.“ Hallaði sér upp að hestinum og söng með tragískum hljóðum Þegar Þórarinn er spurður hver fyrstu kynni hans hafi verið af Páli segir hann að þau hafi verið fyrir til- stuðlan Þórarins afa hans, þegar hann var barn að aldri. „Afi kenndi okkur systkinunum mikið af kvæðum og hann lét okkur læra langt og mikið kvæði eftir Pál sem heitir Litli fossinn. Ég kunni líka Hrísluna og lækinn, eins og aðr- ir Íslendingar, og hafði ungur heyrt Erlu Stefánsdóttur syngja Lóan er komin. Snemma varð lagið hans Harðar Torfa við texta Páls, Án þín, eitt af mínum uppáhaldslögum í söng og ég fór svo fyrir tilviljun að lesa úrval ljóða Páls sem Kristján Karlsson tók í Íslenskt ljóðasafn. Þá sá ég hvað Páll var snjall og ég fór að leita fyrir mér,“ segir Þórarinn og bætir við að ein af hans fyrstu minningum af kynnum af Páli sé frá því hann á unglingsaldri var á landsmóti hestamanna á Hólum 1966. „Þetta var sterk upplifun. Þarna var afspyrnu slæmt vatnsveður og við bræður komum inn í hlöðu þar sem maður með hest sinn hafði flúið undan rigningunni. Hann var nokk- uð drukkinn og rennblautur, hallaði sér upp að hestinum og söng Hrísl- una og lækinn. Hann gerði það með svo tragískum hljóðum að ég gleymi því aldrei. Kvæðið greyptist inn í mig við að heyra þetta og sjá.“ Hans ást var miklu holdlegri Þegar Þórarinn er spurður hvað einkenni Pál eða greini hann frá samtímaskáldum á nítjándu öldinni segir hann að Páll hafi sjálfur kom- ist svo að orði: „Ég er fyrsti Íslend- ingurinn ómenntaður sem aldrei hef verið leirskáld og næst komist óbundnu máli.“ Þetta sýnir að hon- um var keppikefli að yrkja sem næst mæltu máli. Það er klárlega eitt megineinkenni á hans kveðskap, en líka hinn mikli tilfinningahiti ljóða hans og að hann skyldi gera ástar- ljóð að stærsta þætti í sínum skáld- skap. Hann orti um sína persónu- legu ást en notaði ekki formúlur rómantíkurinnar um ást sem fólst í sérsambandi við guðdóminn og ann- að slíkt. Rómantíkerar hans tíma ortu um tapaða ást og ástarharm, en ekki upplifaða ást eins og Páll gerði. Hans ást var miklu holdlegri en and- ans ást hinna skáldanna, mönnum fannst fyrir vikið að þetta væri tæki- færisskáldskapur hjá honum, eins og lausavísur alþýðuskálda. Páll fór sínar eigin leiðir í skáldskapnum og að einhverju leyti var hann hluti af skáldskaparhefðinni austur á fjörð- um, sem var svolítið öðruvísi, dálítið veraldleg og tengd hagmælsku meira en einhverjum lærðum straumum,“ segir Þórarinn og bætir við að ljóð Páls hafi lifað á vörum fólksins, því þau er svo lipurlega ort. „Mikið af hans ástarkveðskap kemur ekki út fyrr en löngu eftir að hann fellur frá 1905. Dálítið kom út í ljóðabók sem Jón bróðir hans gaf út um aldamótin 1900, stuttu áður en Páll dó, en megnið af ástarljóðum hans týndist. Þau lentu á flakki hjá Leikfélagi Reykjavíkur því Björn sonur Páls tengdist félaginu. Þau lágu þar í kjallara og síðan fóru þau í Þjóðleikhúsið þegar það var í bygg- ingu, lentu svo hjá Bretum, en fund- ust fyrir tilviljun eftir stríð. Síðan týndust þessi ljóð aftur en fundust fyrir raðir af tilviljunum um 1970.“ Orti um 500 ástarljóð til hennar Páll átti nokkuð sérstaka ævi, hann fæddist 1827 á Dvergasteini við Seyðisfjörð þar sem faðir hans var prestur. „Páll vildi ekki ganga mennta- veginn en langaði að verða stór- bóndi og giftist sýslumannsdóttur og prestsekkju, Þórunni á Hall- freðarstöðum. Þá var hún 45 ára en hann 29 ára. Nokkrum árum síðar fluttu Páll og Þórunn að Höfða á Völlum til að Páll gæti verið í ná- grenni við góðan vin sinn, Björn Skúlason, en þeir voru miklir sálu- félagar. Þar er Páll kominn í fremstu röð stórbænda í Suður- Múlasýslu en tveimur árum síðar flytja þau Þórunn að Eyjólfsstöðum til Björns og þeir vinirnir búa þar félagsbúi. Þar þróast ástir með Páli og dóttur Björns, Ragnhildi, sem þá er 21 árs. Þegar Björn vinur hans deyr skyndilega ári síðar flytjast Páll og Þórunn fljótlega aftur heim í Hallfreðarstaði. Páll tók við sem umboðsmaður konungsjarða að Birni látnum og hann sat um tíma á þingi, en þá gat hann haldið við kynnum við Ragnhildi því hún hafði verið send til Reykjavíkur þegar reynt var að stía þeim í sundur,“ segir Þórarinn og bætir við að til- hugalíf Páls og Ragnhildar hafi var- að í 17 ár, eða þar til þau gátu gifst, þegar Þórunn lést. „Þetta var brennandi ást í mein- um og í hjónabandi sem gerir ástar- kveðskapinn meiri að magni. Páll hægir lítið á sér við það að giftast Ragnhildi, hann orti um 500 ástar- ljóð til hennar, sem var mjög óhefð- bundið, að yrkja ástarljóð til sinnar eiginkonu.“ Tilhugalíf þeirra varði í 17 ár  Nýlega fannst gröf ástarskáldsins Páls Ólafssonar  Þórarinn Hjartarson þekkir vel sögu Páls og ljóðin hans sem þrungin eru tilfinningahita  „Þetta var brennandi ást í meinum og í hjónabandi“ Ljósmynd/Áslaug Með gítar um öxl Þórarinn syngur Pál í Landnámssetri Borgarnesi 2011. Ljósmynd/Eyjólfur Jónsson. Eigandi Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni. Óbilandi ást Heitar tilfinningar voru alla tíð milli Ragnhildar og Páls. Mig langar svo að lifa og vaka, sú löngun vex með hverri stund, og lífsglaður þér mín kvæði kvaka. Því kvíði’ eg ekki að hníga í blund, ef að samviskan sagt mér getur seinast þegar ég andann dreg: Konu sína’ enginn kyssti betur né kvað um hana líkt og ég. Sæll var ég þá Sæll var ég þá, sumarbjört nóttin, og þú varst mér hjá svo saklaus og fögur, sem rós varstu rjóð, mig reifaðir örmum, þú varst mér svo góð, ég man hvað þú kysstir, þú kysstir. Sæll er ég enn af sömu ég ástinni loga og brenn. Komið að náttmálum ævinnar er, æ, komdu’ í logann og brenndu hjá mér æ, komdu, mig þyrstir, mig þyrstir. Konu sína enginn kyssti betur TVÖ AF LJÓÐUM PÁLS Ljósmynd/Ágúst H. Bjarnason Nýlega fundin gröf Páls Norðarlega í Hólavallagarði, rétt ofan Suðurgötu, skammt frá grafhýsinu og næsta leiði neðan við Jón ritstjóra Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.