Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 39
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Nú eru þrjú ár liðin síðanfyrsta plata Kötlu, Móður-ástin, kom út. Dúettinn er
skipaður þeim Guðmundi Óla
Pálmasyni (sem var í Sólstöfum) og
Einari Thorberg Guðmundssyni
(Fortíð, Potentiam). Fyrri platan
var stór og mikil-
úðleg, tónlist sem
tónar vel við
jarðfræðiundrið
sem sveitin heitir
eftir, og öll
ímyndarvinna og
slíkt með glæsi-
brag, hvar staða Guðmundar sem
ljósmyndara og hönnuðar nýtist vel
(sjá umslög á breiðskífum sem sjö-
tommum og kynningarmyndir af
Ást orðum ofar …
liðsmönnum). Það er þýska útgáfan
Prophecy sem gefur út, bæði frum-
burðinn og Allt þetta helvítis
myrkur. Það er varla hægt að
hugsa sér meira hæfandi heimili
fyrir Kötlu en Prophecy gerir út á
tónlist af þyngra taginu sem nokk-
uð erfitt er að pinna niður stíllega.
Og það er nákvæmlega tilfellið með
Kötlu. Svartþungarokk? Já, að ein-
hverju leyti. Þjóðlagakennt? Mögu-
lega. Gotneskur bragur. Auðvitað!
En að mestu, þá rennur bandið úr
skilgreiningargreipum, líkt og eld-
fjallasandur.
Katla er tiltölulega þekkt band
í alþjóðlegum heimi öfgarokks og
nokkur viðtöl (og dómar) hafa birst
í tengslum við plötuna nýju. Í yfir-
gripsmiklu viðtali við vefritið stönd-
uga Arrow Lords of Metal, sem á
varnarþing í Hollandi, lýsir Guð-
mundur því að í þetta sinnið sáu
þeir félagar svo gott sem um allt
sjálfir, í samstarfi við góða vini og
fjölskyldu. Einar sá þannig um alla
upptökustjórn t.d. Guðmundur lýsir
því líka að Katla hafi alla tíð verið
fjarvinnuverkefni, en Einar var bú-
settur í Noregi um langa hríð og er
bara nýfluttur heim. Og þó að þeir
búi báðir á Íslandi núna þá muni
fjarvinnan líkast til vera það líkan
sem unnið verði með áfram, enda
sé Guðmundur að flytja út fyrir
Reykjavík á næstunni.
Tónlistarlega er allt undir á
Allt þetta helvítis myrkur. Og ekki
þarf að koma á óvart að það er lím-
ið sem heldur plötunni saman, hel-
vítis myrkrið! „Allir textarnir fjalla
um myrkur á einn eða annan hátt,“
segir Guðmundur í nefndu viðtali.
„Sumt á sér rætur hið innra en
sumt hið ytra.“ Íslenska náttúran
sem allir elska er hérna. Já, henni
er oft rænt af klisjukóngum en
gleymum því ekki að hún er rosa-
leg, falleg og svakaleg og Katla
gerir vel í því að spegla þá stað-
reynd. Hamfarir hið innra gera og
vart við sig og á plötunni eru þessir
tveir þættir hnýttir listavel saman.
Vel tekst því að hljómsetja þessi
temu enda er pallettan stór sem
unnið er með.
Öfugt við það sem margir
gætu ætlað er tiltölulega lítið um
ofsa á plötunni. Spennunni er
meira haldið og ýjað að hlutum en
þeim sé troðið að þér. Það virkar.
Hálfgerðir proggsprettir gera
stundum vart við sig og oft eru
smíðarnar teygðar og togaðar og
þeim stillt upp sem hálfgerðum
„ambient“-verkum. Sjá t.d. „Sálar-
svefn“ þar sem lagið fær að anda
og vera, andrúmsloft sem dettur í
hálfgerðan trans á köflum (en er
svo brotið upp með viðeigandi
hríðarstormi). Einar lætur þá arg
og garg að mestu vera, oftast er
söngurinn hreinn og giska meló-
dískur. Heildaáhrifin eru nokk
ógurleg, það hangir angist yfir,
jafnvel hætta, og lagaröðun er vel
heppnuð að þessu leytinu til. Bless-
unarlega er þetta um leið alls ekki
eintóna verk, það er hnýtt í ýmsa
stíla eins og ég nefndi hérna fyrr,
nokkuð sem heldur manni sperrt-
um út í gegn.
» Öfugt við það semmargir gætu ætlað
er tiltölulega lítið um
ofsa á plötunni. Spenn-
unni er meira haldið og
ýjað að hlutum en þeim
sé troðið að þér. Það
virkar.
Allt þetta helvítis
myrkur er önnur breið-
skífa Kötlu sem er sveit
þeirra Guðmundar Óla
Pálmasonar og Einars
Thorberg Guðmunds-
sonar. Kynngikraftur
býr í plötunni rétt eins
og í samnefndu fjalli.
Tvíeind Kötlubræður
spúa bæði eldi og brenni-
steini á nýju plötunni.
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021
Sýning listakonunnar Gígju Jóns-
dóttur, „Þrjár kynslóðir af bleik-
um“, verður opnuð í sýningar-
salnum Midpunkt í Hamraborg í
Kópavogi í dag frá kl. 14 til 17.
Verður sýningin opin á laugar-
dögum og sunnudögum til 24. jan-
úar. Á sýningunni eru könnuð
„hlutverk sem birtast í mæðra-
veldinu, samskiptamynstur milli
systra, mæðra, mæðgna, dætra,
frænkna, dótturdætra og ömmu í
gegnum athöfn þar sem hinn elsk-
aði/hataði litur innan fjölskyld-
unnar, bleikur, er í brennidepli“.
Gígja lauk meistaranámi í mynd-
list frá San Francisco Art Institute
vorið 2018. Hún nálgast viðfangs-
efni sín í gegnum ólíka miðla svo
sem gjörninga, vídeó, tónlist, teikn-
ingu, sviðslistir og dans. Mann-
veran og umhverfi hennar í svið-
setningu og raunveru er hennar
helsta þema sem og sambandið og
samtalið við áhorfandann. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar.
Bleikt Eitt verka Gígju á sýningunni þar
sem bleikur litur er í brennidepli.
Sýning Gígju Jónsdóttur opnuð í Midpunkt í dag
Myndlistarmaðurinn Andreas
Brunner opnar í dag, laugardag, kl.
14 sýninguna „Ég hugsa upphátt
það sem ég segi hljóðlega“ í Komp-
unni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14 til 17 til 24. janúar með þeim
fjöldatakmörkunum og sóttvörnum
sem eru í gildi.
Á sýningunni er leikið með tví-
ræðni hluta og möguleg sambönd
milli þeirra. Andreas fæddist í Sviss
og býr og starfar í Reykjavík og
Lucerne í Sviss.
Á morgun,
sunnudag, kl.
14.30 flytur Ottó
Elíasson síðan
erindið „Ljós
mótar efni“ á
Sunnudagskaffi í
Alþýðuhúsinu.
Ottó er nýorðinn
doktor í atóm-
eðlisfræði frá Árósaháskóla í Dan-
mörku.
Andreas Brunner
Andreas sýnir og Ottó segir frá
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
THE HOLLYWOOD REPORTER
CHICAGO SUN-TIMES