Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 39

Morgunblaðið - 09.01.2021, Síða 39
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Nú eru þrjú ár liðin síðanfyrsta plata Kötlu, Móður-ástin, kom út. Dúettinn er skipaður þeim Guðmundi Óla Pálmasyni (sem var í Sólstöfum) og Einari Thorberg Guðmundssyni (Fortíð, Potentiam). Fyrri platan var stór og mikil- úðleg, tónlist sem tónar vel við jarðfræðiundrið sem sveitin heitir eftir, og öll ímyndarvinna og slíkt með glæsi- brag, hvar staða Guðmundar sem ljósmyndara og hönnuðar nýtist vel (sjá umslög á breiðskífum sem sjö- tommum og kynningarmyndir af Ást orðum ofar … liðsmönnum). Það er þýska útgáfan Prophecy sem gefur út, bæði frum- burðinn og Allt þetta helvítis myrkur. Það er varla hægt að hugsa sér meira hæfandi heimili fyrir Kötlu en Prophecy gerir út á tónlist af þyngra taginu sem nokk- uð erfitt er að pinna niður stíllega. Og það er nákvæmlega tilfellið með Kötlu. Svartþungarokk? Já, að ein- hverju leyti. Þjóðlagakennt? Mögu- lega. Gotneskur bragur. Auðvitað! En að mestu, þá rennur bandið úr skilgreiningargreipum, líkt og eld- fjallasandur. Katla er tiltölulega þekkt band í alþjóðlegum heimi öfgarokks og nokkur viðtöl (og dómar) hafa birst í tengslum við plötuna nýju. Í yfir- gripsmiklu viðtali við vefritið stönd- uga Arrow Lords of Metal, sem á varnarþing í Hollandi, lýsir Guð- mundur því að í þetta sinnið sáu þeir félagar svo gott sem um allt sjálfir, í samstarfi við góða vini og fjölskyldu. Einar sá þannig um alla upptökustjórn t.d. Guðmundur lýsir því líka að Katla hafi alla tíð verið fjarvinnuverkefni, en Einar var bú- settur í Noregi um langa hríð og er bara nýfluttur heim. Og þó að þeir búi báðir á Íslandi núna þá muni fjarvinnan líkast til vera það líkan sem unnið verði með áfram, enda sé Guðmundur að flytja út fyrir Reykjavík á næstunni. Tónlistarlega er allt undir á Allt þetta helvítis myrkur. Og ekki þarf að koma á óvart að það er lím- ið sem heldur plötunni saman, hel- vítis myrkrið! „Allir textarnir fjalla um myrkur á einn eða annan hátt,“ segir Guðmundur í nefndu viðtali. „Sumt á sér rætur hið innra en sumt hið ytra.“ Íslenska náttúran sem allir elska er hérna. Já, henni er oft rænt af klisjukóngum en gleymum því ekki að hún er rosa- leg, falleg og svakaleg og Katla gerir vel í því að spegla þá stað- reynd. Hamfarir hið innra gera og vart við sig og á plötunni eru þessir tveir þættir hnýttir listavel saman. Vel tekst því að hljómsetja þessi temu enda er pallettan stór sem unnið er með. Öfugt við það sem margir gætu ætlað er tiltölulega lítið um ofsa á plötunni. Spennunni er meira haldið og ýjað að hlutum en þeim sé troðið að þér. Það virkar. Hálfgerðir proggsprettir gera stundum vart við sig og oft eru smíðarnar teygðar og togaðar og þeim stillt upp sem hálfgerðum „ambient“-verkum. Sjá t.d. „Sálar- svefn“ þar sem lagið fær að anda og vera, andrúmsloft sem dettur í hálfgerðan trans á köflum (en er svo brotið upp með viðeigandi hríðarstormi). Einar lætur þá arg og garg að mestu vera, oftast er söngurinn hreinn og giska meló- dískur. Heildaáhrifin eru nokk ógurleg, það hangir angist yfir, jafnvel hætta, og lagaröðun er vel heppnuð að þessu leytinu til. Bless- unarlega er þetta um leið alls ekki eintóna verk, það er hnýtt í ýmsa stíla eins og ég nefndi hérna fyrr, nokkuð sem heldur manni sperrt- um út í gegn. » Öfugt við það semmargir gætu ætlað er tiltölulega lítið um ofsa á plötunni. Spenn- unni er meira haldið og ýjað að hlutum en þeim sé troðið að þér. Það virkar. Allt þetta helvítis myrkur er önnur breið- skífa Kötlu sem er sveit þeirra Guðmundar Óla Pálmasonar og Einars Thorberg Guðmunds- sonar. Kynngikraftur býr í plötunni rétt eins og í samnefndu fjalli. Tvíeind Kötlubræður spúa bæði eldi og brenni- steini á nýju plötunni. MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021 Sýning listakonunnar Gígju Jóns- dóttur, „Þrjár kynslóðir af bleik- um“, verður opnuð í sýningar- salnum Midpunkt í Hamraborg í Kópavogi í dag frá kl. 14 til 17. Verður sýningin opin á laugar- dögum og sunnudögum til 24. jan- úar. Á sýningunni eru könnuð „hlutverk sem birtast í mæðra- veldinu, samskiptamynstur milli systra, mæðra, mæðgna, dætra, frænkna, dótturdætra og ömmu í gegnum athöfn þar sem hinn elsk- aði/hataði litur innan fjölskyld- unnar, bleikur, er í brennidepli“. Gígja lauk meistaranámi í mynd- list frá San Francisco Art Institute vorið 2018. Hún nálgast viðfangs- efni sín í gegnum ólíka miðla svo sem gjörninga, vídeó, tónlist, teikn- ingu, sviðslistir og dans. Mann- veran og umhverfi hennar í svið- setningu og raunveru er hennar helsta þema sem og sambandið og samtalið við áhorfandann. Þetta er fyrsta einkasýning hennar. Bleikt Eitt verka Gígju á sýningunni þar sem bleikur litur er í brennidepli. Sýning Gígju Jónsdóttur opnuð í Midpunkt í dag Myndlistarmaðurinn Andreas Brunner opnar í dag, laugardag, kl. 14 sýninguna „Ég hugsa upphátt það sem ég segi hljóðlega“ í Komp- unni í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Sýningin er opin daglega frá kl. 14 til 17 til 24. janúar með þeim fjöldatakmörkunum og sóttvörnum sem eru í gildi. Á sýningunni er leikið með tví- ræðni hluta og möguleg sambönd milli þeirra. Andreas fæddist í Sviss og býr og starfar í Reykjavík og Lucerne í Sviss. Á morgun, sunnudag, kl. 14.30 flytur Ottó Elíasson síðan erindið „Ljós mótar efni“ á Sunnudagskaffi í Alþýðuhúsinu. Ottó er nýorðinn doktor í atóm- eðlisfræði frá Árósaháskóla í Dan- mörku. Andreas Brunner Andreas sýnir og Ottó segir frá Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE HOLLYWOOD REPORTER CHICAGO SUN-TIMES

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.