Morgunblaðið - 09.01.2021, Side 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2021
Guðrúnarkviða er grát-brosleg og frumleg ljóð-saga, full af svörtumhúmor. Titillinn og kápan
gefa enga hugmynd um það sem
koma skal og valda í raun undrun
þegar kápunni er upp lokið og svo
athyglisverð, fyndin og undarleg
saga birtist.
Ljóðsagan fjallar um Guðrúnu og
ástvini hennar. Hún vaknar í kistu
og gerir sér fljótlega grein fyrir því
að ekki sé allt með felldu.
Þú ert stödd í jarðarför
Þinni eigin jarðarför
og ritningarlestur er að hefjast.
Guðrún er hin eðlilegasta kona,
alls óvön sviðsljósinu. Hún hefur
látið svo lítið fyrir sér fara að útfar-
arstjórinn telur að það sé honum að
þakka að hún hafi loks fengið
nokkra athygli.
„Ef ekki væri
fyrir þessa
jarðarför myndi
engum finnast
mikið til Guð-
rúnar koma,“
segir útfarar-
stjórinn.
Þegar Guðrún
liggur í kistunni fer hún yfir farinn
veg og birtist lesandanum fljótt
mynd af kúgaðri konu. Konu sem
hefur verið bæld niður, bæði af
samfélaginu og sjálfri sér, og stend-
ur þannig fyrir ótal aðrar konur í
sömu stöðu. Guðrún virðist ekki
hafa þrek til að taka það pláss í ver-
öldinni sem hún, sem einstaklingur,
á skilið. Hún vill ekki vekja of mikla
athygli, eða trufla þessa fínu jarð-
arför, og lætur sér því nægja að
banka létt í kistulokið.
Þessi glíma Guðrúnar við kúg-
unina er meginstefið í bókinni. Á
hún að standa upp úr kistunni og
eyðileggja jarðarförina fyrir öllum
eða á hún að láta kyrrt liggja og
leyfa ástvinum sínum þannig að öðl-
ast einhverja ró? Eyrún Ósk Jóns-
dóttir, höfundur bókarinnar, nær að
fjalla um þessa kúgun, sem enn fyr-
irfinnst í samfélagi okkar, á afhjúp-
andi hátt með húmorinn að vopni.
Þannig málar hún upp mynd af
veruleikanum sem er næstum því
hlægileg og bendir þannig á fárán-
leikann sem felst í því sem raun-
verulega á sér stað frá degi til dags.
Á þann hátt má því segja að ljóð-
saga Eyrúnar sé satíra, ádeilukveð-
skapur.
Guð gefi að svo sé.
Að þú hafir bara dáið
úr einhverju ósköp venjulegu og
algengu.
Svo þú skerir þig nú ekki úr
og dauði þinn verði ekki að
smellibeitufyrirsögn
á einhverjum æsifréttavefmiðlinum.
Svo þú verðir ekki aðhlátursefni.
Bara að Guð gefi!
Það er ýmislegt óhefðbundið við
Guðrúnarkviðu annað en umfjöll-
unarefnið sjálft. Eyrún blandar
saman ljóðrænum prósa, hefð-
bundnari kveðskap og jafnvel til-
kynningum frá lögreglunni sem
miðast að týndum draumum, þrá,
löngun, sjálfi og fullnægingu.
Prósinn er því brotinn upp með
ljóðum sem eru aðeins fjarlægari
söguheiminum en prósinn sjálfur.
Það gerir söguna háfleygari og ljær
henni fegurri blæ. Þrátt fyrir það
geta þessi ljóð orðið örlítið til-
gerðarleg og dregið úr húmor sög-
unnar. Þau færa söguna þannig nær
jörðinni og er það hvers og eins að
meta hvort þörf sé á því.
Hið þriðja sem er óvenjulegt í
ljóðsögunni er að höfundur ávarpar
lesandann í annarri persónu, jafnvel
þótt um sé að ræða sjónarhorn
nokkurra mismunandi persóna. Það
er auðvelt að ímynda sér að slíkt
gæti orðið klunnalegt og til að byrja
með er það örlítið ruglingslegt en
lesandinn ætti að vera fljótur að
átta sig á skilum á milli persóna.
Með þessari annarrar persónu frá-
sögn verður ljóðsagan persónuleg
gagnvart lesandanum, ekki endilega
persónum bókarinnar.
Með þessu þrennu sem hér hefur
verið talið upp er ljóst að sagan er
mjög frumleg þótt ekki sé hægt að
segja að hún sé tilraunakennd. Höf-
undur hefur gott vald á textanum,
hinni óvenjulegu frásagnaraðferð og
formi sögunnar.
Að taka pláss eða sleppa því bara
Skáldið Eyrún blandar saman ljóðrænum prósa, hefðbundnari kveðskap og
jafnvel tilkynningum frá lögreglunni sem miðast að týndum draumum, þrá,
löngun, sjálfi og fullnægingu, segir um Guðrúnarkviðu Eyrúnar Óskar.
Ljóðsaga
Guðrúnarkviða
bbbbn
Eftir Eyrúnu Ósk Jónsdóttur.
Bjartur, 2020. Kilja, 102 bls.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Tilkynntar hafa verið úthlutanir árs-
ins 2021 úr launasjóðum listamanna.
Til úthlutunar úr launasjóðnum í ár
eru 2.150 mánaðarlaun, sem er 550
mánaða aukning frá 1.600 lögfestum
mánuðum, til kominn vegna heims-
faraldurs. Fjöldi umsækjenda var
1.440, sem skiptist í 1.305 ein-
staklinga og 135 sviðslistahópa með
um 940 listamönnum innanborðs.
Sótt var um 13.675 mánuði. Út-
hlutun fá 308 listamenn og 26 sviðs-
listahópar með um 145 sviðslista-
mönnum, alls rúmlega 450 lista-
menn. Starfslaun listamanna eru
409.580 krónur á mánuði samkvæmt
fjárlögum 2021. Um verktaka-
greiðslur er að ræða. Listann í heild
má sjá á vefnum rannis.is.
Hönnuðir
Launasjóður hönnuða úthlutaði 75
mánaðarlaunum. Alls bárust 106
umsóknir þar sem sótt var um 793
mánuði. Starfslaun fá 10 hönnuðir,
sex konur og fjórir karlar.
12 mánuðir: Arnar Már Jónsson
og Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir.
Níu mánuðir: Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir. Átta mánuðir: Hanna
Dís Whitehead og Rán Flygenring
Myndlistarmenn
Launasjóður myndlistarmanna
úthlutaði 526 mánaðarlaunum. Alls
bárust 373 umsóknir þar sem sótt
var um 4.065 mánuði. Starfslaun fá
83 myndlistarmenn, 50 konur og 33
karlar. 12 mánuðir: Anna Júlía Frið-
björnsdóttir, Anna Rún Tryggva-
dóttir, Elín Hansdóttir, Finnbogi
Pétursson, Guðný Rósa Ingimars-
dóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Ing-
unn Fjóla Ingþórsdóttir, Sindri
Leifsson, Þórdís Aðalsteinsdóttir og
Örn Alexander Ámundarson.
10 mánuðir: Gunnhildur Hauks-
dóttir. Níu mánuðir: Anna Guðrún
Líndal, Carl Théodore Marcus Bout-
ard, Margrét H. Blöndal, Páll Hauk-
ur Björnsson og Sirra Sigrún Sig-
urðardóttir. Sex mánuði fengu m.a.:
Eirún Sigurðardóttir, Eygló Harð-
ardóttir, Helgi Þórsson, Hildigunn-
ur Birgisdóttir, Ingólfur Örn Arn-
arsson, Ólöf Nordal, Ragnar
Axelsson (RAX) og Rúrí (Þuríður
Rúrí Fannberg).
Rithöfundar
Launasjóður rithöfunda úthlutaði
646 mánaðarlaunum. Alls bárust 295
umsóknir þar sem sótt var um 3.097
mánuði. Starfslaun fá 94 rithöf-
undar, 45 konur og 49 karlar.
12 mánuðir: Andri Snær Magna-
son, Auður Jónsdóttir, Bergsveinn
Birgisson, Einar Már Guðmunds-
son, Eiríkur Örn Norðdahl, Elísabet
Kristín Jökulsdóttir, Gerður Kristný
Guðjónsdóttir, Guðrún Eva Mín-
ervudóttir, Gyrðir Elíasson, Hall-
grímur Helgason, Hildur Knúts-
dóttir, Jón Kalman Stefánsson,
Sigrún Pálsdóttir og Þórdís Gísla-
dóttir. 10 mánuðir: Sölvi Björn Sig-
urðsson. Níu mánuði fengu m.a.:
Bergrún Íris Sævarsdóttir, Berg-
þóra Snæbjörnsdóttir, Bragi Ólafs-
son, Einar Kárason, Fríða Ísberg,
Hjörleifur Hjartarson, Kristín
Eiríksdóttir, Oddný Eir Ævars-
dóttir, Ófeigur Sigurðsson og Tyrf-
ingur Tyrfingsson. Sex mánuði
fengu m.a.: Benný Sif Ísleifsdóttir,
Dagur Hjartarson, Friðgeir Einars-
son, Halldór Armand Ásgeirsson,
Halldór Laxness Halldórsson,
Kamilla Einarsdóttir, Ragnar Helgi
Ólafsson, Sigríður Hagalín Björns-
dóttir og Yrsa Þöll Gylfadóttir. Þrjá
mánuði fengu m.a.: Brynja Hjálms-
dóttir, Eva Rún Snorradóttir, Ólína
Kjerúlf Þorvarðardóttir, Þórarinn
Eldjárn og Ævar Þór Benediktsson
Sviðslistafólk
Launasjóður sviðslistafólks út-
hlutaði 307 mánaðarlaunum til 26
hópa og 15 einstaklinga. Alls bárust
umsóknir frá 940 listamönnum sem
tilheyrðu 135 sviðslistahópum og 68
einstaklingum, þar sem sótt var um
1.841 mánuð. Starfslaun í sviðs-
listahópum fá 145 sviðslistamenn í
26 hópum, 79 konur og 66 karlar.
Starfslaun einstaklinga fá 15 sviðs-
listamenn 59 mánuði, 10 konur og
fimm karlar. Finnur Arnar Arnar-
son hlaut 10 mánuði; Sólveig Guð-
mundsdóttir fimm mánuði og meðal
þeirra sem hlutu fjóra mánuði voru
Kolbrún Halldórsdóttir og Páll
Baldvin Baldvinsson. Af hópum fékk
Animato 24 mánuði til að setja upp
óperuna Mærþöll; Gaflaraleikhúsið
fékk 20 mánuði tengt samstarfs-
samningum Gaflaraleikhúss við
Hafnarfjarðarbæ og sviðslistasjóð;
Menningarfélagið Tær 19 mánuði til
að setja upp Öldu; Fimbulvetur 15
mánuði til að setja upp Blóðugu kan-
ínuna; EP, félagasamtök 13 mánuði
til að setja upp Venus í feldi; Undur
og stórmerki 11 mánuði til að setja
upp Fíflið; Leikfélagið Annað svið
sjö mánuði til að setja upp Það sem
er og Menningarfélagið Marmara-
börn fimm mánuði til að setja upp Ó,
veður.
Tónlistarflytjendur
Launasjóður tónlistarflytjenda út-
hlutaði 315 mánaðarlaunum. Alls
bárust 237 umsóknir þar sem sótt
var um 1.870 mánuði. Starfslaun fá
62 tónlistarmenn, 34 konur og 28
karlar. 12 mánuðir: Guðrún Ýr Ey-
fjörð Jóhannesdóttir, Hallveig Rún-
arsdóttir, Óskar Guðjónsson og
Tómas Jónsson. Níu mánuðir:
Magnús Jóhann Ragnarsson og Þor-
grímur Jónsson. Átta mánuðir:
Svavar Knútur Kristinsson. Sjö
mánuðir: Björk Níelsdóttir og Skúli
Sverrisson. Sex mánuði hlutu m.a.:
Alexandra Kjeld, Elfa Rún Krist-
insdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson,
Francisco Javier Jauregui Narvaez,
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, Ingi-
björg Elsa Turchi, Jóhann Krist-
insson, Kristinn Sigmundsson og
Ómar Guðjónsson.
Tónskáld
Launasjóður tónskálda úthlutaði
281 mánaðarlaunum. Alls bárust 226
umsóknir þar sem sótt var um 2.012
mánuði. Starfslaun fá 44 tónskáld,
21 kona og 23 karlar. 12 mánuðir:
Bára Gísladóttir, Bára Grímsdóttir,
Halldór Smárason, Hildur Kristín
Stefánsdóttir, Teitur Magnússon,
Úlfur Eldjárn og Þuríður Jóns-
dóttir. Níu mánuðir: Andri Ólafsson
og Veronique Jacques. Sex mánuði
hlutu m.a.: Agnar Már Magnússon,
Gyða Valtýsdóttir, Hafdís Bjarna-
dóttir og Páll Ragnar Pálsson.
Um 450 listamenn fá starfslaun
2.150 mánaðarlaunum úthlutað til 308 listamanna og 26 sviðslistahópa með
um 145 sviðlistamönnum Sótt um 13.675 15,7% umsóttra mánaða úthlutað
Rán
Flygenring
Elín
Hansdóttir
Ragnar
Axelsson
Tyrfingur
Tyrfingsson
Ragnar Helgi
Ólafsson
Kolbrún
Halldórsdóttir
Elísabet Kristín
Jökulsdóttir
Jón Kalman
Stefánsson
Páll Baldvin
Baldvinsson
Guðrún Ýr Eyfjörð,
GDRN
Svavar Knútur
Kristinsson
Gyða
Valtýsdóttir
Samtals 132 milljónum til 30 verk-
efna hefur verið úthlutað úr sviðs-
listasjóði fyrir 2021. Alls bárust 143
umsóknir frá atvinnusviðslista-
hópum, en sótt var um ríflega 738
milljónir. Stjórnvöld juku framlag til
sjóðsins milli ára um 37 milljónir.
Hæsta styrkinn í ár fær sviðslista-
hópurinn dB undir stjórn Ást-
bjargar Rutar Jónsdóttur eða 11,2
milljónir til að setja upp leikverkið
Eyju. Fimbulvetur fær 10 milljónir
til að setja upp leikritið Blóðugu
kanínuna eftir Elísabetu Kristínu
Jökulsdóttur. EP, félagasamtök
undir stjórn Eddu Bjargar Eyjólfs-
dóttur, fær átta milljónir til að setja
upp leikritið Venus í feldi. Pokahorn
undir stjórn Margrétar Kristínar
Sigurðardóttur fær átta milljónir til
að setja upp tónleikhúsverkið
Kossafar á ilinni. Forspil að framtíð
undir stjórn Ævars Þórs Benedikts-
sonar fær sjö milljónir til að setja
upp barnaverkið Forspil að framtíð.
Menningarfélagið Tær undir stjórn
Katrínar Gunnarsdóttir fær sjö
milljónir til að setja upp dansverkið
Öldu. Selsaugu undir stjórn Aðal-
bjargar Þóru Árnadóttur fær 6,5
milljónir til að setja upp barnaverkið
Þoka/Mjørka. Undur og stórmerki
undir stjórn Karls Ágústs Úlfssonar
fær 6,5 milljónir til að setja upp
Fíflið. Lab Loki undir stjórn Rúnars
Guðbrandssonar fær 5,2 milljónir til
að setja upp leikverkið Skáldið í
speglinum. Soðið svið undir stjórn
Sölku Guðmundsdóttur fær 5,2
milljónir til að setja upp Framhald í
næsta bréfi. Heildarlistann má sjá á
vefnum rannis.is.
30 fá 132
milljónir
Morgunblaðið/Eggert
Glöð Sviðslistaráð gerir 20 milljóna
króna samning við Gaflaraleikhúsið
til tveggja ára með því skilyrði að
Hafnarfjarðarbær leggi fram sam-
bærilegt framlag til leikhússins.
Úthlutað úr sviðs-
listasjóði fyrir 2021