Morgunblaðið - 13.01.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 13.01.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Ekki eru gerðar tillögur í öryggisátt í framhaldi af flugslysi í Svefneyjum á Breiðafirði um miðjan ágúst 2019. Hins vegar hvetur rannsóknarnefnd samgönguslysa flugmenn til þess að taka ávallt tilhlýðilegt tillit til að- stæðna. Um borð í flugvélinni voru flugmaður og einn farþegi og meidd- ust þeir ekki í óhappinu. Vélin er af gerðinni Piper PA-18-150. Krefjandi aðstæður Vindur var austnorðaustan 20-24 hnútar og í lokaskýrslu flugsviðs RNSA kemur fram að það sé mat RNSA að í flugtaki hafi flugvélin leit- að út af flugbrautinni vegna vind- áhrifa. Flugbrautin í Svefneyjum sé það mjó á kafla, um 8-9 metrar, að hún gefi ekki mikið svigrúm fyrir flugtak í hliðarvindi. RNSA telur að veður hafi verið þannig að krefjandi aðstæður hafi verið til flugtaks í Svefneyjum á þessum tíma en það hefði mátt sjá fyrir ef ítarlegri veð- urupplýsinga hefði verið aflað fyrir flug þangað. Í skýrslunni kemur fram að í flug- taksbruni hafi flugvélin leitað til vinstri og út af grasbrautinni þar sem hún féll í fjöruborðið og hafnaði á hvolfi um 80 metra frá brautarenda að suðvestanverðu. Við rannsóknina kom fram að ekkert athugavert var við stjórnveli flugvélarinnar í flugtak- inu og störfuðu þeir eðlilega. Brotlenti á Skálafellsöxl Rannsóknarnefndin hefur einnig gefið út lokaskýrslu vegna brotlend- ingar eftir snertilendingu á Skála- fellsöxl í september 2019, eins og greint hefur verið frá á mbl.is. Flug- maðurinn, sem var einn um borð, náði að komast út úr flakinu, en slasaðist töluvert. Eftir að flugvélin skall í jörð- ina kviknaði eldur í henni og brann hún upp að mestum hluta. Vélin var einnig af gerðinni Piper PA-18-150 að því er fram kemur í skýrslunni. Flugmaður var að kanna aðstæður til lendingar á vegarslóða þegar hann missti stjórn á flugvélinni með þeim afleiðingum að hún brotlenti. Í niður- stöðum RNSA segir: „Það er mat RNSA að þegar flugvélinni var flogið eftir Skálafellsöxl hafi sterkur vind- strengur lyft vinstri væng flugvélar- innar skyndilega um það leyti þegar flugvélin nálgaðist klettabrún fjalls- ins vinstra megin við flugstefnuna. Við það hafi flugmaðurinn misst stjórn á flugvélinni, með þeim afleið- ingum að hún skall í jörðina. Með- verkandi þáttur er að flogið var hægt og nærri klettabrún.“ RNSA beinir því til Samgöngu- stofu að beita sér í forvörnum og fræðslu er varðar flug við fjöll eða í fjalllendi. Jafnframt beinir RNSA því til flugmanna að gæta varúðar ef flog- ið er nálægt fjöllum eða fjallsbrúnum og ígrunda vel veðuraðstæður á flug- leiðum sínum. Ljósmynd/RNSA Svefneyjar Flugvélin á hvolfi í fjöruborðinu eftir óhappið í ágúst 2019. Vindurinn hafði áhrif í Svefneyj- um og á Skálafelli  Skýrslur RNSA um tvö flugslys Flugsvið rannsóknarnefndar samgönguslysa skráði 23 mál á árinu 2020 af þeim atvikum sem tilkynnt voru. Fjögur þeirra voru skráð sem flugslys og tíu sem alvarleg flugatvik/ flugumferðaratvik. Ekkert banaslys varð á árinu 2020. Til samanburðar voru 48 mál skráð á árinu 2019 þar sem átta þeirra voru skráð sem flugslys og 23 sem alvar- leg flugatvik/flugumferð- aratvik. Tvö banaslys urðu í flugi 2019. Færri mál skráð 2020 FLUGSVIÐ RNSA Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin auglýsir í dag eða næstu daga útboð á þverun Þorska- fjarðar í Reykhólasveit. Er þetta fyrsta framkvæmdin við endurbæt- ur á Vestfjarðavegi, kafla sem kenndur er við Teigsskóg, vegna þess að áætlað er að hluti hans muni fara þar í gegn í framtíðinni. Mun leiðin styttast um rúma níu kílómetra við þessa framkvæmd. Auglýst á EES-svæðinu Verkið er það stórt að það þarf að auglýsa á Evrópska efnahagssvæð- inu. Vegagerðin hefur kynnt auglýs- inguna á þeim vettvangi og bíður staðfestingar. Strax og hún berst verður verkið boðið út. Verkið felst í þverun Þorskafjarð- ar, rétt sunnan við raflínuna sem þar liggur yfir. Byggð verður 260 metra löng brú auk fyllingar. Veg- urinn verður um 2,7 km langur og liggur frá Kinnastöðum að Þóris- stöðum. Nyrðri endinn tengist við gamla veginn þar sem hann liggur upp Hjallaháls. Vegagerðin hefur framkvæmda- leyfi fyrir lagningu vegar frá Þóris- stöðum og út með Þorskafirði og yf- ir Djúpafjörð og Gufufjörð, yfir á Skálanes, en sá hluti vegarins bíður vegna þess að ekki hefur samist við landeigendur í Teigsskógi um að láta land undir veginn. Enn ganga bréf á milli Vegagerð- arinnar og landeigenda vegna þess. Þegar þar að kemur færist vegurinn af Hjallahálsi og Klettshálsi og ekki þarf að fara inn fyrir firðina. Sigurþór Guðmundsson, deildar- stjóri hjá Vegagerðinni, segir gert ráð fyrir að framkvæmdir við þver- un Þorskafjarðar geti hafist í byrjun apríl í vor og að vegurinn verði tilbúinn vorið 2024. Segir hann að verkið taki lengri tíma en ella vegna þess að fergja þurfi botn fjarðarins og láta veginn síga áður en hægt verður að ganga frá honum í rétta hæð. Fjörðurinn er frekar grunnur en þó fer talsvert efni í fyllingu og grjótvörn. Efni fæst í skeringum beggja vegna fjarðarins og úr námu sem þar er nálægt. Gengur vel í Gufufirði Borgarverk vinnur að mun minna verki á Skálanesi og í Gufufirði, á hinum enda hins umdeilda kafla. Þar er um að ræða 6,6 km kafla frá slitlagsenda á Skálanesi að Gufu- dalsá í Gufufirði. Nýtist sú fram- kvæmd að fullu á meðan gamla leið- in er farin en aðeins fyrsti hlutinn, 1,2 km, mun nýtast sem hluti af Vestfjarðavegi þegar leiðin fer á nýja veginn yfir firðina. Meira er því lagt í síðarnefnda hluta vegarins. Sigurþór segir að verkið gangi vel og sé nokkurn veginn á áætlun. Verkinu á að ljúka í júní og þá verð- ur allur kaflinn kominn með bundið slitlag. Vestfjarðavegur stytt- ist um níu kílómetra  Framkvæmdir við þverun Þorskafjarðar hefjast í vor Bundið slitlag frá Skálanesi að Gufudalsá og þverun ásamt brú yfi r Þorskafjörð Dj úp ifj ör ðu r Gufu- fjörður Þor ska fjör ður Þo rs ka fjö rð ur B erufjörður Skálanes Teigs skóg ur Hja llah áls Gufudalssveit Melanes Ódrjúgs- háls Fyrirhugaður Vestfjarðavegur um Teigsskóg (leið Þ-H) Núverandi Vestfjarðavegur Vestfjarðavegur um Gufudalssveit Loftmyndir ehf. Útboð: þverun Þorskafjarðar, 2,5 km og 260 m brú Bundið slitlag á 5,4 km kafl a frá Melanesi að Gufudalsá Breikkun og bundið slitlag á 1,2 km kafl a frá Skálanesi að Melanesi Núverandi vegir Fyrirhugaður vegur um Teig sskóg Framkvæmdasvæði og útboð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.