Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
Vetur Fótboltakappar í kvenna- og karlaliðum meistaraflokks Tindastóls létu ekki hríðarbyl aftra sér á æfingu á Sauðárkróki nýverið. Nú leyfist íþróttafólki að æfa og keppa innanhúss.
Óli Arnar Brynjarsson
Ég ætla að fullyrða
eftirfarandi (og vona
að staðhæfingin sé
rétt): Enginn sitjandi
þingmaður tæki það í
mál að ríkið keypti
banka fyrir 150 millj-
arða eða jafnvel meira.
Þetta er svipuð fjár-
hæð og það kostar að
reka alla heilsugæslu á
landinu í fimm ár eða
reka öll hjúkrunar- og dvalarrými í
tæp þrjú ár. Enn fráleitara er að
þingmenn sameinist um að kaupa
tvo banka og verja til þess 350 millj-
örðum króna. Sú fjárhæð jafngildir
þriggja ára framlagi ríkisins til
sjúkrahúsa.
Með ofangreinda fullyrðingu í
huga vekur það nokkra furðu, svo
ekki sé meira sagt, að einhverjir hafi
eitthvað við það að athuga að losað
verði um eignarhald ríkisins á hluta-
bréfum í Íslandsbanka og bréfin
skráð.
Engin ríkisstjórn hefur haft það á
stefnuskrá að ríkið sé alltumlykjandi
á íslenskum fjármálamarkaði og
bindi hundruð milljarða króna í
áhættusömum rekstri. Ágreining-
urinn er um hvort nauðsynlegt sé að
ríkið haldi á ráðandi hlut í einum við-
skiptabanka eða ekki. Meira að
segja vinstri ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur hafði þá skýru
stefnu að selja allan eignarhlut rík-
isins í Íslandsbanka og hluta í
Landsbanka, þótt ríkið ætti að eiga
góðan meirihluta í síðarnefnda
bankanum. Þá var hlutdeild ríkisins
á fjármálamarkaði mun minni en nú
er. Ríkið átti 81% hlutafjár í Lands-
bankanum og 5% í Íslandsbanka,
auk 13% hlutar í Arion banka.
Ramminn frá 2012
Skömmu fyrir jól féllst Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra á
tillögu Bankasýslu rík-
isins um sölu á hlutum í
Íslandsbanka í al-
mennu útboði og að
skrá öll hlutabréf í
bankanum í kjölfarið á
skipulegan verð-
bréfamarkað á Íslandi.
Ráðherra hefur þegar
sent fjárlaganefnd og
efnahags- og við-
skiptanefnd Alþingis
greinargerð vegna söl-
unnar og óskað um-
sagna nefndanna en
auk þess hefur Seðlabankinn fengið
sama erindi. Allt er þetta í samræmi
við ákvæði laga sem samþykkt voru
á Alþingi árið 2012, að frumkvæði
þáverandi ríkisstjórnar og fjármála-
ráðherra, Oddnýjar Harðardóttur.
Í greinargerð með frumvarpinu
sem síðar varð að lögum um sölu á
eignarhlutum ríkisins í fjármálafyr-
irtækjum (nr. 155/2012) er bent á að
eignarhald ríkisins í fjármála-
fyrirtækjum sé ekki vegna mark-
vissrar stefnu um að „auka umsvif
ríkisins á fjármálamarkaði heldur er
um að ræða afleiðingar og viðbrögð
við hruni fjármálakerfisins“. Þá seg-
ir orðrétt:
„Með vísan til þessa eru ekki tald-
ar forsendur til þess að ríkið verði
langtímaeigandi eignarhluta í fjár-
málafyrirtækjum heldur losi um þá
með sölu, að undanskildum skil-
greindum lágmarkshlut í Lands-
bankanum hf. sem nú er í meiri-
hlutaeigu ríkisins. Lagt er til með
frumvarpinu að sett verði almenn
lög um sölu eignarhluta ríkisins í
fjármálafyrirtækjum sem innihaldi
fastmótaðan ramma utan um það
hvernig sölumeðferð eignarhlutanna
skuli háttað, í stað þess að sótt sé
sérstök lagaheimild í fjárlögum fyrir
sölu á hverjum og einum eignar-
hlut.“
Í langtímaáætlun ríkisstjórnar
Samfylkingar og VG í ríkisfjár-
málum 2012 til 2015 komu fram
„áform um umtalsverða tekjuöflun
af sölu ríkisins á eignarhlutum í fé-
lögum og fyrirtækjum, einkum sölu
ríkisins á eignarhlutum í fjármála-
fyrirtækjum“.
Grunnur að sterkri stöðu
Það var hins vegar ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks undir forsæti Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar, sem
tryggði með stöðugleikasamningum
við kröfuhafa föllnu bankanna að
Landsbanki og Íslandsbanki komust
að fullu í eigu ríkissjóðs. Allt frá
þeim tíma, líkt og í vinstri stjórninni,
hefur verið litið svo á að ríkið ætti
ekki að vera langtímaeigandi banka
(a.m.k. ekki meirihlutaeigandi). Með
því að losa um eignarhald ríkisins í
fjármálafyrirtækjum er í raun verið
að innleysa hluta af stöðugleika-
framlögum sem lögðu grunninn að
sterkri fjárhagsstöðu ríkissjóðs sem
aftur reyndist forsenda þess að
hægt hefur verið að takast á við
efnahagslega erfiðleika vegna
kórónuveirunnar.
Skammlíf samsteypustjórn Sjálf-
stæðisflokksins, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar tók fram í stjórn-
arsáttmála að til langs tíma litið sé
ekki „ákjósanlegt að ríkið fari með
meirihlutaeign í viðskiptabönkum“.
Þess vegna sé mikilvægt að minnka
hlut ríkisins „í varfærnum skrefum
og víðtækri sátt“. Áherslan var á
„opið og gagnsætt ferli þar sem gætt
verður að sem mestri dreifingu eign-
arhalds“. Og gefin voru fyrirheit um
almenningsvæðingu bankakerfisins.
Þetta var m.a. í samræmi við hug-
mynd sem Bjarni Benediktsson setti
fram í ræðu á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins árið 2015.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur er sleginn
svipaður tónn:
„Eignarhald ríkisins á fjármála-
fyrirtækjum er það umfangsmesta í
Evrópu og vill ríkisstjórnin leita
leiða til að draga úr því. Ljóst er þó
að ríkissjóður verður leiðandi fjár-
festir í að minnsta kosti einni kerf-
islega mikilvægri fjármálastofnun.“
Hvítbók um framtíðarsýn fyrir
fjármálakerfið á Íslandi var boðuð
og skyldi hún lögð fyrir Alþingi til
umfjöllunar áður en stefnumarkandi
ákvarðanir væru teknar um fjár-
málakerfið. Við þetta var staðið og
fóru fram ítarlegar umræður í þing-
sal í janúar 2019 auk umfjöllunar í
þingnefnd. Bjarni Benediktsson
sagði af því tilefni:
„Umgjörð um sölu er lögbundin
og að auki skal salan samrýmast eig-
endastefnunni. Þannig er skýrt
hvaða meginreglur skal halda í
heiðri við undirbúning og sölu, en
þær eru: Opið söluferli, gagnsæi,
hlutlægni og hagkvæmni. Þetta eru
þau leiðarljós sem ber að fylgja þeg-
ar kemur að því að losa um eignar-
hluti ríkisins í bönkunum.“
Ekki riðið feitum hesti
Ekki er um það deilt að umsvif
ríkisins á íslenskum fjármálamark-
aði eru gríðarleg, meiri en í öllum
löndum sem við berum okkur gjarn-
an saman við. Það er aðeins í Rúss-
landi, Kína, Norður-Kóreu, ríkjum í
Norður-Afríku og Suður-Ameríku
sem fyrirferð hins opinbera á fjár-
málamarkaði er svipuð eða meiri en
hér á landi
Í lok þriðja ársfjórðungs liðins árs
var bókfært eigið fé Íslandsbanka og
Landsbanka 431 milljarður og ætla
má að virði eignar ríkisins sé um 340
milljarðar. Með öðrum orðum; það
eru bundnir sameiginlegir fjármunir
landsmanna í tveimur fjármála-
fyrirtækjum sem nema að minnsta
kosti 12% af áætlaðri vergri lands-
framleiðslu á síðasta ári. Þessu til
viðbótar höfum við bundið tugi millj-
arða í lánasjóðum, þar á meðal
Íbúðalánasjóði (nú Húsnæðis- og
mannvirkjastofnun). Tap ríkisins af
starfsemi Íbúðalánasjóðs á síðustu
tíu árum slagar upp í verðmæti
bankanna tveggja.
Stöðugleikasamkomulag við
kröfuhafa, sem færði banka að fullu í
eigu ríkisins, var hvalreki. En utan
hans hefur ríkið ekki riðið sérlega
feitum hesti með eignarhaldi sínu og
þátttöku í áhættusömum rekstri
fjármálafyrirtækja og lánasjóða,
ólíkt því sem margir halda fram.
Skiptir engu hvort litið er til síðasta
áratugar eða lengra aftur í tímann.
Þá er fórnarkostnaðurinn við að
binda hundruð milljarða í fjár-
málakerfinu ekki meðtalinn, eða
hvaða neikvæðu áhrif eignarhald
ríkisins að stærstum hluta fjár-
málakerfisins hefur á samkeppni.
Áætlun um að selja hluta af eign
ríkisins í Íslandsbanka í almennu út-
boði og skrá hlutabréfin á markað,
er varfærin. Á sama tíma og ríkis-
sjóður safnar skuldum er skyn-
samlegt að losa um eignir, ekki síst
þær sem ríkið hefur aldrei ætlað að
eiga til lengri tíma. Í umhverfi lágra
vaxta er það einnig skynsamlegt að
bjóða eignir til sölu. Fjárfestar –
ekki síst lífeyrissjóðir – þurfa á fleiri
kostum að halda til að ávaxta fjár-
muni. En eins og með skattalækk-
anir þá eru þeir til sem aldrei telja
að tíminn sé réttur til að hrinda góð-
um hugmyndum í framkvæmd. Þeir
segjast ekki mótfallnir hugmyndinni
sem slíkri, en aðstæður eru bara
ekki réttar, tíminn ekki réttur eða
aðferðafræðin (jafnvel þeirra eigin)
röng.
Eftir Óla Björn
Kárason »Engin ríkisstjórn
hefur haft það á
stefnuskrá að ríkið sé
alltumlykjandi á fjár-
málamarkaði og bindi
hundruð milljarða í
áhættusömum rekstri.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Ekki riðið sérlega feitum hesti