Morgunblaðið - 13.01.2021, Blaðsíða 17
kofunum hjá þér, svo víða þekk-
ingu hafðir þú á öllu. Öll börn og
unglingar dáðu þig og dýrkuðu,
hvort sem það voru ungir körfu-
boltastrákar eða systkinabörn
þín þá var umhyggja þín einstök í
þeirra garð. Takk fyrir allt, þú
varst einstakur afreksmaður,
ekki einungis í körfuboltanum og
viðskiptum, heldur einnig með
fjölskyldunni þinni og öllum þín-
um frábæru vinum. Hvíl í friði.
Þinn mágur,
Baldvin Ari.
Það er með miklum trega og
söknuði sem ég kveð minn kæra
vin Ágúst H. Guðmundsson, en er
um leið fullur þakklætis fyrir all-
ar þær góðu stundir, sem við höf-
um átt saman, minningar sem
eru meira virði en orð fá lýst og
eiga eftir að ylja manni um ókom-
in ár. Ágúst var drengur góður,
skynsamur, traustur, áræðinn,
gamansamur en umfram allt góð-
ur vinur. Afrek Ágústs og þeirra
hjóna eru mörg, góðir minnis-
varðar um framtakssemi og stór-
hug. Elsku Guðrún, Ásgerður
Jana, Júlíus Orri, Berglind Eva
og fjölskylda, hugur minn er hjá
ykkur og megi þið öðlast styrk á
þessum erfiðu tímum og guð vaki
yfir ykkur.
Sveinn Arnar Steinsson.
Í dag kveðjum við Gústa, góð-
an vin sem hefur kvatt okkur allt
of snemma. Kynni okkar hófust
fyrir um 35 árum þegar hann
flutti norður til Akureyrar og hóf
nám við Gagnfræðaskóla Akur-
eyrar og síðar VMA. Gústi var
hugmyndaríkur, athafnasamur
og mikill gleðigjafi. Mikið var
brallað á þessum árum og lentum
við í mörgum ævintýrum.
Með árunum skildi leiðir okkar
landfræðilega þegar hluti vin-
anna flutti suður og nokkrir til
útlanda. Þrátt fyrir fjarlægðina,
jafnvel heimsálfa á milli, ræktaði
Gústi alltaf vináttuna og var hann
í raun límið sem batt okkur sam-
an.
Þegar Gústi greindist með
hinn illvíga sjúkdóm MND fyrir
rúmum þremur árum styrktust
vinaböndin aftur. Við komum oft
saman síðustu árin og gerðum
margt skemmtilegt. Við fórum á
NBA-leik til að sjá lið hans, Bost-
on Celtics, spila, hittumst í sum-
arhúsi Gústa og Guðrúnar á
Siglufirði þar sem m.a. var álpast
í sjósund seint um kvöld. Oft hitt-
umst við heima hjá Gústa og Guð-
rúnu í kaffi, fórum í bíó saman og
í ferðir fram í fjörð til að fylgjast
með framkvæmdum við Tjarna-
virkjun. Tíminn sem við áttum
saman síðustu árin er ógleyman-
legur í alla staði.
Gústi hóf uppbyggingu á
Tjarnavirkjun með vini sínum
Heimi eftir að hann veiktist og
var það afrek hjá honum að ná að
klára byggingu virkjunarinnar.
Gústi náði miklum árangri á
mörgum sviðum og var gaman að
fylgjast með honum og var í raun
aðdáunarvert að sjá hversu já-
kvæður og baráttuglaður hann
var þrátt fyrir illvígan sjúkdóm.
Fjölskylda hans stóð þétt við
bakið á honum og vinir hans
gerðu það einnig. Við áttum sam-
an ótal skemmtilegar og dýrmæt-
ar stundir og fyrir það viljum við
þakka. Minningin um góðan
dreng lifir. Við vottum Guðrúnu,
börnum þeirra og öllum aðstand-
endum innilega samúð.
Heimir, Heiðar, Páll, Stefán,
Einar Pálmi og Sigvaldi.
Enginn slítur þau bönd,
sem hann er bundinn átthögum sínum.
Móðir þín
fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út
í heiminn,
en þorpið fer með þér alla leið.
(Jón úr Vör)
Það var alltaf svo bjart yfir
Ágústi, hann var heilsteyptur
persónuleiki, fallegur að utan
sem innan.
Kynni okkar má rekja til upp-
vaxtaráranna á Patró, þessara
áhyggjulausu æskuára þegar allt
lífið er fram undan. Í gegnum ár-
in höfum við séð hversu vel
Ágústi farnaðist í því sem hann
tók sér fyrir hendur. Þegar við
hittumst, hvort sem það var á
förnum vegi, fyrir vestan eða á
þorrablóti brottfluttra Patreks-
firðinga, urðu alltaf fagnaðar-
fundir og strákurinn með tindr-
andi augun brosandi út að eyrum.
Þegar við fréttum af veikind-
um Ágústs og að til stæði að
hlaupa í hans nafni fyrir MND-
félagið í Reykjavíkurmaraþoninu
árið 2018 var aldrei spurning í
okkar huga um að taka þátt í því.
Þarna stóð vinur okkar úr þorp-
inu frammi fyrir einni stærstu
áskorun lífsins, að takast á við
ólæknandi sjúkdóm. Hann end-
urskipulagði lífið út frá breyttum
aðstæðum, skapaði minningar
fyrir sig og fjölskyldu sína.
Við vinkonurnar erum þakk-
látar fyrir tvö ógleymanleg ferða-
lög til Akureyrar þar sem við
heimsóttum þau hjónin Ágúst og
Guðrúnu sem tóku höfðinglega á
móti okkur. Ágúst sýndi okkur
framkvæmdirnar við Tjarnar-
virkjun og nutum við þess heið-
urs að vera viðstaddar vígslu
hennar tæpu ári síðar. Það er
dýrmætt að hafa fengið að fylgj-
ast með þeim krafti og viljastyrk
sem Ágúst sýndi síðustu ár og
sendum við fjölskyldu hans okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Ásta, Sigga, Nanna, Edith,
Guðrún og Rakel.
Kveðja
Hljóðum skrefum
vegaslóð á enda geng.
Heyri síðustu tóna
dagsins fjara út.
Stíg inn í svala
huliðsslæðu örlaganna.
Svalt húmið blikar
í þögninni.
Strýkur vanga
blær hins
óborna dags.
(VS)
Valgarður Stefánsson.
Ágúst vinur minn er fallinn frá
alltof snemma. Við kynntumst í
gegnum körfuboltann og eftir að
synir okkar hófu að etja kappi
saman urðu samtölin fleiri og vin-
áttan sterkari. Lið Þórs og
Stjörnunnar í árgangi 2001 voru
frá upphafi með yfirburði í ár-
ganginum og skiptust þau á að
vinna titlana sem í boði voru.
Ágúst hafði byggt upp sterka
liðsheild, grunngildin voru á
hreinu. Stefnt var að því að vinna
andstæðinginn en á drengilegan
hátt, þar sem borin var virðing
fyrir andstæðingnum og dómur-
um. Á mótum var hópurinn alltaf
saman á milli leikja, umgengni og
kurteisi skein af hópnum. Ágúst
var fyrirmyndin og fann maður
hversu mikla virðingu allir báru
fyrir honum og sást það best á
hversu vinmargur hann var í
körfuboltasamfélaginu. Ágúst
var yfirvegaður og hógvær, en
engu að síður mikill keppnismað-
ur. Hann sýndi strákunum okkar
þremur mikinn áhuga, vildi fá að
vita hvernig þeim gengi í sport-
inu og samgladdist þegar vel
gekk.
Þegar synir okkar urðu síðar
samherjar í unglingalandsliðinu
varð samband okkar sterkara og
samtölin fleiri. Við sátum oft á
hliðarlínunni og ræddum um leik-
inn. Í veikindum hans fannst mér
hann geta gleymt sér þegar við
komumst á flug með tal okkar um
körfubolta.
Fyrir rúmu ári þurfti hann að
leggjast á spítala fyrir sunnan og
þegar ég heimsótti hann var fyrst
grátið, en síðan náðum við löngu
samtali um körfuboltann eins og
svo oft áður.
Við Auður heimsóttum Ágúst
og Guðrúnu sl. sumar. Ágúst
tjáði sig í gegnum tölvuna og ég
fann hversu erfitt það var fyrir
hann, svörin voru stutt og hann
vildi segja miklu meira. Í júlí fór-
um við aftur norður þegar Ágúst
opnaði stoltur virkjunina sína,
gleðileg stund en samt erfið. Við
erum þakklát fyrir að hafa átt
þessar stundir með Ágústi, fjöl-
skyldu hans og vinum.
Ég kveð góðan vin sem fór allt-
of snemma og við Auður og strák-
arnir sendum Guðrúnu, Júlíusi
Orra, Jönu, Berglindi og fjöl-
skyldu innilegar samúðarkveðjur.
Jón Kr. Gíslason.
Vinur minn hann Gústi hefur
nú kvatt okkur eftir erfiða baráttu
við MND-sjúkdóminn síðastliðin
ár. Við Gústi vorum jafnaldrar og
kynntumst í gegnum körfuboltann
á unglingsárum, fyrst sem mót-
herjar og síðar sem samherjar.
Við lékum saman með Þór á ár-
unum 1989 til 1991 og á þeim árum
myndaðist órjúfanleg vinátta sem
óx og dafnaði með árunum.
Ég á margar skemmtilegar og
ógleymanlegar minningar um
Gústa sem tengjast m.a. keppnis-
ferðalögum úr körfuboltanum,
sumarfríum innan- og utanlands
með fjölskyldum okkar, bátsferð-
um um Eyjafjörð svo fátt eitt sé
nefnt. Það var mjög gaman að
vera með Gústa, hvort sem það
var við leik eða störf, enda var
maðurinn einstaklega skemmti-
legur, alltaf fjör og mikið hlegið.
Ég þykist vita að á engan sé
hallað þegar fullyrt er að enginn
hafi lagt meira af mörkum til
körfuboltans á Akureyri en Gústi.
Hann lék með yngri flokkum og
meistaraflokki félagins um árabil,
að leikmannsferli loknum sneri
hann sér að þjálfun. Í þjálfuninni
fann hann sig einstaklega vel og
náði framúrskarandi árangri með
bæði yngri flokka og meistara-
flokk Þórs. Undir hans stjórn
unnu yngri flokkar félagsins
fjölda Íslands- og bikarmeistara-
titla og hann á einnig besta árang-
ur sem meistaraflokkur karla hef-
ur náð til þessa. Auk þess að sinna
þjálfuninni af alúð var hann prím-
usmótor í öllu starfi deildarinnar
um áratuga skeið. Þeir eru ófáir
leikmennirnir sem hafa hlotið leið-
sagnar Gústa, bæði innan og utan
vallar. Samband hans við leik-
menn sína var einstakt og margir
eiga honum margt að þakka, enda
var hann alltaf boðinn og búinn að
rétta þeim hjálparhönd sem á
þurftu að halda. Fyrir Gústa voru
allir jafnir og honum leiddist
sýndarmennska og sjálfsupphefð.
Hann var ótrúlega vinmargur og
mikill vinur vina sinna.
Gústi hafði lengi gengið með
það í maganum að reisa virkjun og
fór ég í ófáar ferðir með honum
um Eyjafjörðinn til þess að skoða
mögulega virkjunarkosti. Hann
lét síðan verða af því að hefja
virkjunarframkvæmdir á Tjörn-
um í Eyjafjarðarsveit. Þrátt fyrir
veikindin tókst honum að ljúka
ætlunarverki sínu og Tjarnar-
virkjun var tekin í notkun á síð-
asta ári.
Það var aðdáunarvert að fylgj-
ast með því hvernig hann tókst á
við veikindi sín, uppgjöf var ekki
til í hans orðabók, gamansemin
var aldrei langt undan og hann
kom ótrúlegustu hlutum í verk.
Fyrst og fremst var Gústi mik-
ill fjölskyldumaður, hann var svo
lánsamur að kynnast henni Guð-
rúnu sinni og eignast með henni
þrjú frábær börn sem hann var
óendanlega stoltur af.
Gústi var kallaður frá okkur allt
of snemma og fráfall hans skilur
eftir stórt skarð. Fyrir mér var
hann fyrst og fremst góður vinur
sem ég á alltaf eftir að sakna. Ég,
Margrét Sunna og dætur okkar
sendum Guðrúnu, Ásgerði Jönu,
Júlíusi Orra, Berglindi Evu og
öðrum ættingjum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Takk fyrir allt liðið og hvíldu í
friði elsku vinur.
Jón Örn.
Fleiri minningargreinar
um Ágúst H. Guðmunds-
son bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
✝ Þorlákur IngiSigmarsson
fæddist á Land-
spítalanum 20.
september 1999.
Hann lést 27. des-
ember 2020. For-
eldrar hans eru
Sesselja Hreins-
dóttir, f. 24. janúar
1975, og Sigmar
Örn Sigþórsson, f.
26. desember 1973.
Systur Þorláks eru Ástrós
Elma, f. 30. september 1993, og
Þorbjörg Lilja, f. 21. ágúst
2001.
Þorlákur bjó fyrstu fjögur ár
ævi sinnar í Mjólkárvirkjun í
Arnarfirði. Fjögurra ára gam-
Eftir grunnskólagöngu lauk
Þorlákur nokkrum önnum í
Flensborg en fór síðan á vinnu-
markaðinn og sinnti þar ýms-
um störfum. Þar af á leikskól-
anum Arnarbergi þar sem
hæfileikar hans komu skýrt
fram enda með eindæmum ein-
lægur og hlýr einstaklingur og
átti starfið því vel við hann.
Þorlákur var vinmargur og
laðaði að sér fólk úr öllum átt-
um. Hann átti auðvelt með að
eignast vini og hafði ríka sam-
kennd með öðrum. Þorlákur
var einstakur og tilfinninga-
ríkur ungur maður, sem talaði
opinskátt um tilfinningar sínar
og baráttu við andleg veikindi.
Útför Þorláks fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju 13. janúar
2020 og hefst athöfnin klukkan
13.
Streymi frá útför:
https://www.sonik.is/thorlakur
Virkan hlekk má finna á:
https://www.mbl.is/andlat
all flytur hann
ásamt fjölskyldu til
Hafnafjarðar þar
sem hann eyðir
stærstum hluta ævi
sinnar. Þorlákur
gekk í Lækjar-
skóla og byrjaði
snemma að æfa
fótbolta en það
áhugamál fylgdi
honum ævilangt.
Þorlákur spilaði
upp alla yngri flokka hjá FH
og var mikill FH-ingur. Í seinni
tíð spilaði Þorlákur með Hauk-
um og síðustu árin með Ísbirn-
inum þar sem hann var fyr-
irliði. Þorlákur var alla tíð
mikill Liverpool-maður.
Þú varst allur alheimurinn, en
jafnvel rauðar rósir fölna eins og
bjartir dagar kvölda blómið
mitt.
Elska þig að eilífu elsku kút-
urinn minn.
Þín
mamma.
Elsku ljúfi drengurinn minn,
Amma geymir fallega bjarta
brosið þitt í hjarta sér.
Leiddu mína litlu hendi,
ljúfi Jesús, þér ég sendi
bæn frá mínu brjósti, sjáðu,
blíði Jesús, að mér gáðu.
Hafðu gát á hjarta mínu
halt mér fast í spori þínu,
að ég fari aldrei frá þér,
alltaf, Jesús, vertu hjá mér.
Um þig alltaf sál mín syngi
sérhvern dag, þó eitthvað þyngi.
Gef ég verði góða barnið,
geisli þinn á kalda hjarnið.
(Ásmundur Eiríksson)
Ástarkveðja
Þín amma
Ingibjörg.
Þorlákur Ingi var einstakur
karakter sem var vinur vina
sinna og talaði ávallt um hversu
mikið hann elskaði fjölskyldu
sína.
Alltaf brosandi og hlæjandi
sem allir í kringum hann smit-
uðust af.
Þorlákur var með stórt hjarta
og tók öllum opnum örmum,
mikill íþróttamaður og enn þá
meiri Liverpool-maður.
Söknuðurinn er mikill en
minning um einstakan vin lifir í
hjörtum okkar.
Bjarni Snær, Steinar Ingi,
Viðar Elí og Egill Steinar.
Elsku hjartans ástin mín og
frænkuprinsinn minn.
Hjartahlýi drengurinn minn.
Þú varst svo góðhjartaður og
máttir ekkert illt sjá.
Þú varst viðkvæm sál en samt
svo harður. Þú hafðir mikið
keppnisskap og gafst ekki svo
auðveldlega upp. Þú fæddist inn
í stóran stelpuhóp og það var
stundum ekkert auðvelt að vera
eini strákurinn en dáður varstu
og dýrkaður.
Þú varst svo ánægður þegar
litlu frændur þínir bættust í
systkinahópinn og þú varst alla
tíð mikil barnagæla og löðuðust
börn auðveldlega að þér.
Þið systkinabörnin voruð náin
og mikill kærleikur ríkir ykkar á
milli. Það er mikið skarð, sorg
og söknuður við fráfall þitt.
Hlýja faðmlagið og fallega
brosið þitt verður alltaf í hjört-
um okkar ásamt öllum fallegu
minningunum sem ylja okkur og
gefa okkur styrk í sorginni.
Elsku hjartans ástin mín, fal-
legi og ljúfi frænkuprinsinn
minn.
Margs er að minnast, margs
er að sakna.
Minning þín er ljós í lífi okk-
ar.
Við elskum þig og við munum
aldrei gleyma þér. Alltaf saknað,
aldrei gleymdur.
Blessuð sé minning þín, elsku
ástin mín.
Guð blessi minningu þína og
varðveiti.
Guð gefi þér ljós og frið.
Elsku ástin mín, guð veri með
þér hjartað mitt.
Hver minning er dýrmæt
perla.
Hvíl þú í kærleik og friði.
Lifðu í ljósinu engilinn minn.
Ljúf minning þín lifir.
Góða nótt elsku hjartans ástin
mín.
Ástarkveðja.
Þín
Gunnhildur frænka.
Elsku yndislegi frændi okkar,
orð fá því ekki lýst hvað þín er
sárt saknað.
Þú varst sumar um vetur,
dagsins ljós og sólsetur.
Fegursta blóm, nú heimurinn grætur
þú varst sólin um miðjar nætur.
(JJS)
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Ástarkveðja, þínar frænkur,
Guðrún Snæbjörg,
Jóhanna Jörgensen,
Lísbet Ó. Jörgensen og
Þórdís Hafrún.
Þorlákur Ingi
Sigmarsson
HINSTA KVEÐJA
Við elskum þig að eilífu
elsku bróðir okkar.
Þínar systur,
Lilja og Ástrós.
Engum líkur og sannur
vinur. Minning þín mun lifa
að eilífu elsku vinur.
Sigurður Tómas
Hjartarson.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
HEIÐDÍS NORÐFJÖRÐ
rithöfundur,
andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hlíð fimmtudaginn 7. janúar.
Útförin fer fram 21. janúar og verður streymt.
Gunnar Jóhannsson
Gunnar Gunnars. Norðfjörð Gréta Matthíasdóttir
Jón Norðfjörð Ragnheiður Svavarsdóttir
Jóhann V. Norðfjörð Linda Björk Rögnvaldsdóttir
börn og barnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
BRYNDÍSAR JÓNSDÓTTUR,
Suðurlandsbraut 62,
sem lengst af bjó á Laugarásvegi 61,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Landspítalans á 11-G
og líknardeild 6-D fyrir einstaka umönnun og góða þjónustu.
Sigríður Snæbjörnsdóttir Sigurður Guðmundsson
Jónas Snæbjörnsson Þórdís Magnúsdóttir
Herdís Snæbjörnsdóttir
og fjölskyldur
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningargreinar