Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021
60 ára Snæbjörn er
Reykvíkingur, ólst upp
í Vesturbænum en býr
í Erluhólum. Hann er
einn eigenda Green
Iceberg Iceland sem
vinnur að hönnun og
þróun kælibúnaðar
fyrir sjávarútveg og matvælaiðnað.
Maki: Úlfhildur Elísdóttir, f. 1962, bók-
ari hjá Garra.
Börn: Guðrún, f. 1980, Guðni Steinar,
f. 1982, Elísa, f. 1986, Hrafnhildur, f.
1991, og Stefán Örn, f. 1993. Barna-
börnin eru orðin fimm.
Foreldrar: Guðni Steinar Gústafsson,
f. 1940, fv. endurskoðandi og einn
stofnenda KPMG, og Guðrún Snæ-
björnsdóttir, f. 1941, fv. stjórnunarritari
hjá Stöð 2. Þau eru búsett í Mosfells-
bæ.
Snæbjörn Tryggvi
Guðnason
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt í samskiptum við sterkar
persónur, og það finnst þér sérlega spenn-
andi. Gerðu það upp við þig með hverjum
þú vilt deila tíma þínum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það væri ekki vitlaust að blanda geði
við nýtt fólk og víkka sjóndeildarhringinn.
Leyfðu öðrum að njóta gleðinnar með þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Taktu hlutunum eins og þeir eru
sagðir og reyndu ekki að kryfja þá til
mergjar. Einhver gæti tekið upp á því að
gera þér óvæntan greiða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er margt sem hvílir á þér og
þér finnst erfitt að einbeita þér að hlut-
unum. Fyrsta skrefið í að bjarga heiminum
er að hugsa vel um sjálfan sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ágæt aðferð til að eyða yfirnógri orku
er að búa til lista yfir allt sem þig langar til
að afreka. Heimurinn ferst ekki þótt eitt-
hvað þurfi að sitja á hakanum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það má margt af samstarfi við aðra
læra og sérstaklega þá list að sameina
skoðanir svo takast megi að hrinda málum
í framkvæmd. Ef þú heldur kynningu í dag,
verður hún alger smellur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt eftir að koma samstarfs-
mönnum þínum á óvart með hugkvæmn-
inni. Mörg vandamál munu hverfa ef þú
einbeitir þér að stöðunni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekkert við því að gera
þótt þú fáir ekki öllu ráðið um sérstakt
verkefni. Láttu ekki hugfallast.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn hentar vel til að
safna upplýsingum sem geta nýst þér í
vinnunni. Breyting á vanagangi dagsins er
einmitt það sem þú þarfnast.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að verja sjálfan þig bet-
ur og hætta að hafa svona miklar áhyggjur
af fólki sem þér finnst einblína á þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Í einörðum samræðum kunna
að koma upp mál sem ekki er þægilegt að
ræða en verður samt að leysa. Sýndu and-
stæðingunum virðingu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er löngu tímabært að þið sýnið
ástvinum ykkar hvern hug þið berið til
þeirra. Hafðu hugfast að allt á sér sinn
stað og sína stund.
þetta verið í heilbrigðistækni-
fyrirtækjum en samt aðeins víðar.
Ég var t.d. einn af stofnendum Auð-
ar sem síðar breyttist í Virðingu.
Það var náttúrlega allt annar geiri,
en það var fróðlegt.“
Edda sat í stjórn Lyfjafræðinga-
félags Íslands (LFÍ) 1977-1991, þar
af varaformaður 1983-1987 og for-
maður 1987-1991. Hún var forseti
norræns þings lyfjafræðinga í
Reykjavík 1994, varamaður í Út-
flutningsráði Íslands 2005-2011, sat
í stjórn Íslandsstofu 2013-2016, Við-
skiptaráðs Íslands 2012-2016, Euro-
pean Generic Medicines Associa-
tion, nú Medicines for Europe,
2006-2014, þar af forseti 2011-2013.
G
uðbjörg Edda Eggerts-
dóttir fæddist 13. jan-
úar 1951 á Landspít-
alanum en ólst upp í
Hafnarfirði. „Ég hef
alltaf búið þar, fyrir utan þegar ég
var erlendis, og allt mitt fólk sömu-
leiðis. Ég átti fyrst heima á Skers-
eyrarvegi í Vesturbænum, en var
sex ára þegar fjölskyldan fluttist í
Arnarhraunið og þar var ég þar til
ég gifti mig.“
Edda gekk í Barnaskóla Hafnar-
fjarðar 1957-1964, tók landspróf frá
Kvennaskólanum í Reykjavík 1967
og lauk stúdentsprófi af náttúru-
fræðideild frá Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1971. Hún lauk miðprófi
í lyfjafræði frá Háskóla Íslands
1973, kandídatsprófi í lyfjafræði,
M.Sc. Pharm, frá Danmarks
Farmaceutiske Höjskole, nú Copen-
hagen University, 1976.
Edda var faglegur forstöðumaður
lyfjaheildsölunnar Farmasía hf.
1976-1980, lyfjakynnir fyrir inn-
lenda framleiðslu Pharmaco hf.
1980-1982, markaðsstjóri hjá Delta
hf. 1983-1999 og aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Delta 1999-2001. Hún
var jafnframt faglegur forstöðu-
maður fyrirtækisins og forstöðu-
maður útflutnings- og þróunarsviðs.
Edda var aðstoðarforstjóri Delta og
framkvæmdastjóri útflutningssviðs
2001-2002, framkvæmdastjóri sölu
til þriðja aðila hjá Actavis Group hf.
2002-2008, aðstoðarforstjóri Actavis
Group hf. 2008- 2010 og forstjóri
Actavis á Íslandi 2010-2014. „Ég
var hjá Actavis nánast allan minn
starfsferil og óx upp með fyrir-
tækinu,“ segir Edda, en Delta tók
upp nafnið Actavis eftir að hafa
sameinast Pharmaco og auk þess
keypt fyrirtæki víða erlendis svo
þörf var á nýju nafni.
„Eftir að ég hætti hjá Actavis þá
hef ég lagt það fyrir mig að fjár-
festa, sérstaklega í sprota-
fyrirtækjum, og svo hef ég líka tek-
ið sæti í nokkrum stjórnum. Ég var
þegar komin í stjórn Össurar og
Auðar Capital áður en ég hætti hjá
Actavis, en það má segja að ég hafi
síðan lagt þetta fyrir mig og sit enn
í þónokkrum stjórnum. Mest hefur
Hún sat í stjórn Auðar Capital hf.,
síðar Virðingar, 2007-2017, Össurar
hf. frá 2013, Florealis ehf. frá 2014,
Orf Líftækni hf. frá 2015, Brunni
Vaxtarsjóði frá 2015, Mentis Cura
ehf. og Mentis Cura AS 2015-2019,
Vistor hf. frá 2015, Saga Medica, nú
Saga Natura ehf., frá 2016 og Cori-
pharma Holding ehf. frá 2018. Edda
hefur setið stjórn í Íslensku óp-
erunnar frá 2016 og stjórn Vísinda-
sjóðs Krabbameinsfélags Íslands
frá 2015.
Edda hlaut heiðursmerki Lyfja-
fræðingafélags Íslands 1995 og var
sæmd riddarakrossi hinnar íslensku
fálkaorðu 1.1. 2012. Hún hlaut ald-
arviðurkenningu Verkfræðinga-
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, lyfjafræðingur og fjárfestir – 70 ára
Fjölskyldan Eggert, Edda, Haraldur Sveinn og Eyj-
ólfur á Nýja-Sjálandi 2014, en Eggert bjó þar að
mestu frá 2012 og þar til núna í desember.
Úr forstjórastóli í fjárfestingar
40 ára Áslaug er
Reykvíkingur en býr á
Kársnesbraut í Kópa-
vogi. Hún er BA frá
Listaháskólanum og
MFA frá School of
Visual Arts í New York.
Áslaug er listamaður
og kynningarfulltrúi hjá Hafnarborg og er
núna með myndlistarsýningu á NORR11
á Hverfisgötu..
Maki: Finnur Hákonarson, f. 1975, upp-
töku- og hljóðmaður.
Börn: Elísabet Agla Nicholasdóttir, f.
2009, og Margrét Unnur Finnsdóttir, f.
2019. Stjúpbörn eru Ísa Dóra og Jónatan
Þengill Finnsbörn.
Foreldrar: Friðjón Örn Friðjónsson, f.
1956, hæstaréttarlögmaður og Margrét
Sigurðardóttir, f. 1957, kennari í Landa-
kotsskóla. Þau eru búsett í Reykjavík.
Áslaug Íris Katrín
Friðjónsdóttir
Til hamingju með daginn
Stórfjölskyldan Á jóladegi árið 2019 á Nýja-Sjálandi.
Hjónin Edda og Eyjólfur við
Iguazu-fossana í Argentínu 2018.
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVIÐSKIPTA
Viðskiptapúlsinn er hlaðvarpsþáttur um viðskipti og
efnahagsmál. Þar setjast blaðamenn ViðskiptaMoggans niður
ásamt góðum gestum og ræða stærstu viðskiptafréttir vikunnar
hverju sinni og hvað um er að vera í íslensku viðskiptalífi.
Þættirnir fara í loftið á miðvikudögum í kjölfar útgáfu ViðskiptaMoggans og eru
í samstarfi við Arion banka. Hlaðvarpið má nálgast á iTunes, Spotify og á öðrum
hlaðvarpsrásum. Þættirnir eru einnig aðgengilegir á mbl.is
VIÐSKIPTAPÚLSINN
VIÐSKIPTAPÚLSINN
NÝTTU
TÍMANN OG
FYLGSTU MEÐ