Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 22

Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 2021 England Wolves – Everton..................................... 1:2  Gylfi Þór Sigurðsson var fyrirliði Ever- ton og lék í 75 mínútur. Burnley – Manchester United................ 0:1  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley. Sheffield United – Newcastle ................. 1:0 Staðan: Manch. Utd 17 11 3 3 34:24 36 Liverpool 17 9 6 2 37:21 33 Leicester 17 10 2 5 31:21 32 Everton 17 10 2 5 28:21 32 Tottenham 16 8 5 3 29:15 29 Manch. City 15 8 5 2 24:13 29 Southampton 17 8 5 4 26:19 29 Aston Villa 15 8 2 5 29:16 26 Chelsea 17 7 5 5 32:21 26 West Ham 17 7 5 5 24:21 26 Arsenal 17 7 2 8 20:19 23 Leeds 17 7 2 8 30:33 23 Crystal Palace 17 6 4 7 22:29 22 Wolves 18 6 4 8 19:26 22 Newcastle 17 5 4 8 18:27 19 Burnley 16 4 4 8 9:21 16 Brighton 17 2 8 7 21:28 14 Fulham 15 2 5 8 13:23 11 WBA 17 1 5 11 11:39 8 Sheffield Utd 18 1 2 15 9:29 5 B-deild: Bournemouth – Millwall ......................... 1:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður á 78. mínútu hjá Millwall. Luton – QPR............................................. 0:2 Staða efstu liða: Norwich 23 14 5 4 31:20 47 Swansea 23 12 7 4 27:13 43 Bournemouth 23 11 9 3 38:19 42 Brentford 22 11 8 3 36:21 41 Reading 23 12 4 7 34:28 40 Watford 22 10 7 5 25:17 37 Middlesbrough 22 10 6 6 28:18 36 Stoke 23 9 8 6 26:22 35 Barnsley 23 10 4 9 27:29 34 Bristol City 22 10 3 9 23:24 33 Blackburn 23 9 5 9 38:27 32 Preston 23 10 2 11 30:31 32 Belgía Oostende – Eupen.................................... 1:1  Ari Freyr Skúlason kom inn á sem vara- maður á 71. mínútu hjá Oostende. Staða efstu liða: Club Brugge 42, Genk 38, Charleroi 33, Leuven 32, Anderlecht 32, Antwerpen 31, Beerschot 29, Oostende 29, Kortrijk 29. Spánn Granada – Osasuna .................................. 2:0 Atlético Madrid – Sevilla ......................... 2:0 Staðan: Atlético Madrid 16 13 2 1 31:6 41 Real Madrid 18 11 4 3 30:15 37 Barcelona 18 10 4 4 37:17 34 Villarreal 18 8 8 2 26:17 32 Real Sociedad 19 8 6 5 29:16 30 Sevilla 17 9 3 5 21:15 30 Granada 18 8 3 7 21:29 27 Celta Vigo 18 6 5 7 22:28 23 Cádiz 18 6 5 7 15:22 23 Real Betis 18 7 2 9 22:31 23 Levante 17 5 6 6 23:24 21 Athletic Bilbao 18 6 3 9 21:22 21 Getafe 17 5 5 7 15:18 20 Valencia 18 4 7 7 24:25 19 Eibar 18 4 7 7 15:18 19 Alavés 18 4 6 8 16:23 18 Real Valladolid 18 4 6 8 16:25 18 Elche 16 3 7 6 14:21 16 Osasuna 18 3 6 9 15:27 15 Huesca 18 1 9 8 14:28 12  Evrópudeildin Olimpia Mílanó – Valencia ................. 95:80  Martin Hermannsson skoraði tvö stig fyrir Valencia og stal boltanum tvívegis á þeim rúmu fimm mínútum sem hann lék.  Valencia er í 10. sæti af 18 liðum í deild- inni með 10 sigra í 19 leikjum. NBA-deildin Charlotte – New York........................ 109:88 Cleveland – Memphis......................... 91:101 Orlando – Milwaukee ......................... 99:121 Washington – Phoenix ..................... 128:107 Atlanta – Philadelphia ....................... 112:94 Portland – Toronto........................... 112:111 Sacramento – Indiana ...................... 127:122 Dallas – New Orleans ....................... frestað Efstu lið í Austurdeild: Boston 7/3, Milwaukee 7/4, Philadelphia 7/4, Indiana 6/4, Orlando 6/5, Charlotte 6/5, Atlanta 5/5, Miami 4/4, New York 5/6. Efstu lið í Vesturdeild: LA Lakers 8/3, LA Clippers 7/4, Phoenix 7/4, Utah 6/4, Portland 6/4, Golden State 6/4, Dallas 5/4, Oklahoma City 574, San Antonio 5/5, Denver 5/5.   KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin: Dalhús: Fjölnir – Haukar .................... 18.15 Smárinn: Breiðablik – Keflavík........... 19.15 Stykkishólmur: Snæfell – KR ............. 19.15 Origo-höll: Valur – Skallagrímur ........ 20.15 Í KVÖLD! HM 2021 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óhætt er að segja að útbreiðsla kór- ónuveirunnar hafi haft gríðarleg áhrif á heimsmeistaramót karla í handknattleik sem hefst í Kaíró, höf- uðborg Egyptalands, í dag. Tvær þjóðir neyddust í gær til þess að draga lið sín úr keppni á mótinu. Fyrst voru það Tékkar sem voru með alls sautján smit í sínum hópi þegar liðið átti að leggja af stað til Egyptalands. Norður-Makedónía kemur í þeirra stað, tekur sæti Tékka í G-riðli og mætir Svíum í fyrstu umferðinni strax á morgun. Hin tvö liðin í þeim riðli eru einmitt Egyptaland og Síle sem hefja heimsmeistaramótið með opnunarleik í Kaíró í dag klukkan 17 að íslenskum tíma. Í gærkvöld tilkynntu síðan Banda- ríkjamenn að þeir kæmust ekki með sitt lið á HM eftir að átján smit komu upp í hópnum þar sem liðið dvaldi við æfingar í Danmörku. Þeir freistuðu þess að reyna að senda tólf leikmenn til Kaíró í dag en urðu að gefast upp og hætta við að taka þátt í móti sem hefði verið þeirra fyrsta í tuttugu ár. Sviss var varaþjóð númer tvö og var boðið sæti bandaríska liðsins í gærkvöld. Þar með gæti Sviss orðið einn af mótherjum Íslands í milliriðl- inum í Egyptalandi. Erlingur næstur á listanum Þá var lið Grænhöfðaeyja, sem keppir á HM í fyrsta sinn, í vand- ræðum í gær en eftir að sjö smit komu upp í leikmannahópnum þar sem liðið dvaldi í æfingabúðum í Portúgal var staða þess tvísýn í gær- kvöld. Fari svo að Grænhöfðaeyingar komist ekki til Egyptalands, eða Sviss afþakki sætið, er komið að Er- lingi Richardssyni og hans læri- sveinum í landsliði Hollands sem var í þriðja sætinu á biðlistanum fyrir keppnina. Brasilíumenn hafa líka verið í basli og eru mættir til Egyptalands án lykilmanns og þjálfara sem eru með veiruna. Svíþjóð, Túnis, Ungverja- land og Pólland hafa ennfremur öll glímt við smit í sínum leikmannahóp- um undanfarna daga. Stærsta mót sögunnar Þetta kórónuveiruvesen hefur að vonum dregið athyglina frá mótinu sjálfu sem er það 27. í röðinni og það þriðja sem haldið er í Afríku. Egypt- ar voru áður mótshaldarar árið 1999 og árið 2005 var það haldið í Túnis. Þá er um að ræða umfangsmesta heimsmeistaramót sögunnar í íþrótt- inni því í fyrsta skipti eru þátt- tökuþjóðirnar 32 talsins en þær hafa verið 24 allt frá því HM var haldið á Íslandi árið 1995. Meirihluti leikja á mótinu fer fram í Kaíró en því er líka dreift um ná- grannaborgirnar. Ein þeirra er splunkuný verðandi höfuðborg landsins sem hefur ekki fengið nafn ennþá og gengur því bara undir nafninu „Nýja höfuðborgin“. Þar leikur Ísland leiki sína í F-riðlinum, gegn Portúgal, Alsír og Marokkó, en fer síðan ef allt gengur eðlilega til annarrar nýlegrar borgar, sem ber það frumlega nafn „6. október“. Þar er milliriðillinn leikinn og mótherjar væntanlega Frakkland, Noregur og annaðhvort Austurríki eða Sviss. Komist Ísland í átta liða úrslit leikur liðið í nýju höfuðborginni eða í Borg El Arab og íslenska liðið þyrfti að komast í undanúrslit til að spila í Kaíró sjálfri. Breytt keppnisfyrirkomulag Fjölgun liða um átta kallar á breytt keppnisfyrirkomulag. Núna leika liðin í átta fjögurra liða riðlum þar sem þrjú efstu liðin í hverjum þeirra komast áfram í milliriðil en neðsta liðið fer í keppni um sæti 25 til 32, eða í svokallaðan Forseta- bikar. Nú verða 24 lið í milliriðlum í stað tólf áður. Þar er því leikið í fjórum sex liða riðlum og tvö efstu liðin í hverjum riðli komast í átta liða úrslit keppninnar sem fara fram 27. jan- úar. Sterkur milliriðill Danir mæta til leiks sem heims- meistarar en þeir unnu Norðmenn í úrslitaleiknum í Herning fyrir tveimur árum, 31:22, og hrepptu þar með sinn fyrsta heimsmeistaratitil. Frakkar fengu bronsið eftir sigur á Þjóðverjum. Þetta segir sitt um hve sterkur milliriðill íslenska liðsins verður en þar myndi liðið mæta bæði silfur- og bronsliði síðasta heimsmeistaramóts og þyrfti að skáka a.m.k. öðru þeirra til að komast í átta liða úrslitin. HM af stað í dag í skugga veirunnar  Bandaríkin og Tékkland drógu sig út AFP Kunningjar Elvar Örn Jónsson í baráttu við Frakka á HM 2019. Frakkar verða væntanlega aftur andstæðingar íslenska liðsins í Egyptalandi. Martin Hermannsson skoraði tvö stig og stal boltanum tvívegis fyrir Valencia þegar liðið heimsótti Olimpia Mílanó í Evrópudeildinni í körfuknattleik í gær. Leiknum lauk með 95:80-sigri Olimpia Mílanó en Martin lék í rúmlega fimm mínútur með Valencia sem var 18 stigum undir í hálfleik. Valencia tókst aldr- ei að ógna forskoti ítalska liðsins í síðari hálfleik og þar við sat. Val- encia er með tíu sigra og tíu töp í tí- unda sæti Evrópudeildarinnar en átta efstu lið deildarinnar komast í úrslitakeppnina. Náðu sér ekki á strik á Ítalíu Ljósmynd/@YarisahaBasket Tap Martin og félagar eru í tíunda sæti Evrópudeildarinnar. Bandaríkjakonan Mikaela Shiffrin kom fyrst í mark í heimsbikarnum í svigi á Hermann Maier-brautinni í Flachau í Austurríki í gær. Þetta var fyrsti sigur Shiffrin í svigi á heimsbikarmóti í þrettán mánuði og þá var þetta í hundraðasta skipt- ið sem hún kemst á verðlaunapall í heimsbikarnum. Hún varð þar með áttundi skíðamaðurinn sem afrekar það frá því að fyrst var keppt í heimsbikarnum fyrir 54 árum. Shiffrin tók sér hlé frá keppni á síð- asta ári eftir andlát föður síns en hún er einungis 25 ára gömul. Sögulegt hjá Shiffrin í Flachau AFP Einbeitt Shiffrin vann sinn fyrsta sig- ur í heimsbikarnum í þrettán mánuði. Manchester United er komið í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir sigur gegn Burn- ley á Turf Moor í deildinni í gær. Það var Paul Pogba sem skoraði sig- urmark leiksins á 71. mínútu með lúmsku skoti utan teigs eftir send- ingu frá Marcus Rashford. „Við sýndum það frá fyrstu mín- útu að við vorum komnir hingað til þess að sækja þrjú stig og það tókst. Þetta var góð frammistaða hjá öllu liðinu en það er nóg eftir af tímabilinu og núna er mikilvægt fyr- ir okkur að halda haus,“ sagði Pogba í samtali við Sky Sports í leikslok. Þetta er í fyrsta sinn síðan sir Alex Ferguson var með liðið sem það kemst í efsta sæti ensku úrvals- deildarinnar en Ferguson lét af störfum eftir tímabilið 2013. Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley í leiknum en þetta var fyrsti byrjunarliðsleikur Jóhanns í deildinni síðan 23. nóv- ember. Jóhann hefur verið afar óheppinn með meiðsli undanfarin tvö tímabil en hann lék allan leikinn á hægri kantinum hjá Burnley. Þá var Gylfi Þór Sigurðsson fyrir- liði Everton sem vann sinn fjórða deildarsigur í fimm leikjum gegn Wolves á Molineux-vellinum í Wolv- erhampton. Leiknum lauk með 2:1- sigri Everton en íslenski landsliðs- maðurinn hefur verið fastamaður í liði Everton síðan í byrjun desember og staðið sig afar vel. bjarnih@mbl.is AFP Sigurmark Paul Pogba fagnar marki sínu á Turf Moor í Burnley í gær. Paul Pogba skaut United á toppinn  Fjórði sigur Everton í fimm leikjum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.