Morgunblaðið - 13.01.2021, Side 28
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu ann-
að kvöld, fimmtudagskvöld, verður fluttur flautu-
konsert eftir finnska tónskáldið Kaiju Saariaho en verk-
ið er innblásið af fuglasöng. Einleikari er Áshildur
Haraldsdóttir. Einnig hljómar hin tilfinningaþrungna
fjórða sinfónía Roberts Schumanns. Hljómsveitarstjóri
er Daníel Bjarnason en hann hlaut nýverið ásamt
hljómsveitinni tilnefningu til hinna virtu Grammy-
verðlauna. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir án
hlés og í samræmi við sóttvarnalög er sætaframboð
takmarkað við 100 manns í hvert sóttvarnahólf.
Áshildur leikur flautukonsert eftir
Saariaho undir stjórn Daníels
Heimsmeistaramót karla í handknattleik hefst í
Egyptalandi í dag með viðureign heimamanna og Síle-
búa. Það er hins vegar kórónuveiran sem hefur verið í
aðalhlutverki á síðasta sólarhringnum fyrir mót því í
gær þurftu bæði Tékkland og Bandaríkin að draga lið
sín úr keppni vegna fjölda smita í sínum röðum. Fleiri
lið eru í vandræðum. Norður-Makedóníu og Sviss var
boðið að taka sæti þeirra á mótinu. »23
Kórónuveiran í aðalhlutverki þegar
HM er að hefjast í Egyptalandi
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Pípulagningameistarinn Böðvar
Markan hefur tengst pípulögnum frá
barnæsku, starfað við iðnina í 35 ár
og þar af rekið fyrirtæki sitt B.
Markan ehf. í um 20 ár, stofnaði
fyrirtækið 2001. „Ég hef alltaf verið
með um 10 manns í vinnu og rekst-
urinn gengið vel,“ segir hann.
Böðvar ólst upp í Vesturbæ
Reykjavíkur. Í næsta húsi, Sörla-
skjóli 70, bjó Guðmundur Ásgeirsson
pípulagningameistari og hann kom
honum á bragðið frekar en Hörður
Markan, faðir hans og pípulagn-
ingameistari, og Hörður yngri, sem
vann einnig lengst af sem pípulagn-
ingamaður. „Það rann greinilega
snittolía í blóðinu í Skjólunum,“ rifjar
Böðvar upp. „Ég er örverpi, pabbi
var 52 ára þegar ég fæddist og dó
1987, þegar ég var 19 ára, en þá hafði
ég þegar fengið nasasjón af pípu-
lögnum eftir að hafa aðstoðað Guð-
mund lengi. Hann kom mér af stað
frekar en pabbi og Hörður bróðir, en
svo breyttist það þegar ég vann sem
verkamaður við lagnir við hliðina á
Herði bróður og félögum á Hótel
Sögu 1986.“
Hann leggur áherslu á að vinnan
fyrir Guðmund hafi ekki verið neitt
hálfkák. „Ég féll alveg fyrir þessu og
byrjaði fljótlega að taka að mér vinnu
fyrir fólk auk þess sem ég breytti öll-
um ofnum heima í Sörlaskjólinu þeg-
ar ég sá að þeir voru vitlaust smíð-
aðir. Rúllaði með þá í kerru út í
Örfirisey, lét sjóða nýjar múffur á þá
og breytti eirlögninni.“
Tengir gamla og nýja tíma
Böðvar lærði handtökin hjá Guð-
mundi. „Hann kenndi mér að lóða og
slaglóða eirlagnir og þegar ég fór í
byggingarvinnu kynntist ég Marinó
Jóhannessyni, verðandi meistara
mínum, og var kominn á samning rétt
eftir að pabbi dó.“ Hann upplýsir að
hann hafi keypt snittvélina af Guð-
mundi. „Eitt sinn vildi maður kaupa
hana af mér og ég var nánast búinn
að rúlla henni út þegar ég sagði hon-
um að ég gæti ekki selt vélina, því
hún spilaði svo mikla rullu í lífi mínu.“
Eftir að Böðvar útskrifaðist sem
meistari 1994 starfaði hann sem ein-
yrki þar til hann stofnaði fyrirtækið.
„Hörður bróðir vann hjá mér og fyrir
mig sem undirverktaki þar til hann
féll frá langt um aldur fram 1999.“
Bræðurnir voru líka í fótbolta í KR,
Hörður í sigursælu liði í meistara-
flokki og Böðvar m.a. Íslandsmeistari
í 3. flokki. „Þegar ég var í 6. flokki var
hann í „Old boys“, en ég fór reyndar
stundum með honum í fótbolta á
laugardögum.“
Foreldrar Böðvars dóu með
skömmu millibili og hann segist hafa
verið heppinn að geta notað pípulagn-
irnar til þess að vinna sig út úr sorg-
inni. „Vinnan gefur mér mikið, ég er
alltaf á fullu og naut þess að hafa góða
menn mér til aðstoðar og styðjast við.
Ragnar heitinn Gunnarsson, mágur
minn, skrifaði upp á fyrir mig og þeg-
ar verið var að taka út verkin vildi ég
bara fá tíu. Átta kom ekki til greina.
Ég vildi ekki bregðast þessum mönn-
um.“ Hann áréttar að handtökin sem
hann lærði í æsku komi sér vel, ekki
síst vegna mikilla breytinga sem hafi
orðið í lagnaefni og öðru. „Ég nýti
mér tæknina og þekki líka alla þessa
gömlu hluti, sem kemur sér vel við
endurnýjun og viðgerðir enda er
slagorðið okkar „vinnum í lausnum“.
Morgunblaðið/Eggert
Stoltur Böðvar Markan pípulagningameistari við gömlu snittvélina, sem hann keypti af Guðmundi í Skjólunum.
Snittolían í Skjólunum
Böðvar Markan hefur unnið í lausnum í pípulögnum í 35 ár
... stærsti
uppskriftarvefur
landsins!
MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 13. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
ÍÞRÓTTIR MENNING