Morgunblaðið - 02.01.2021, Síða 2
Tennisleikarinn Naomi
Osaka rifjar upp þegar
fréttaþula sagði að Le-
Bron James ætti að
þegja og dripla frekar
en að skipta sér af
pólítik. Í huga Osaka
eiga íþróttamenn ekk-
ert síður að leggja sitt
til málanna en aðrir
borgarar og jafnvel
frekar. „Ég ætla ekki
að þegja og dripla,“
skrifar Osaka. 55
Íþróttamenn,
látið í ykkur
heyra!
Roberto Schmidt/Agence France-Presse – Getty Images
46-47Innlent skop
Nadía Tolokonnikóva, stofnandi hljómsveitarinnar Pussy Riot,
fjallar um baráttu sína gegn alræði og aðför rússneskra stjórn-
valda gegn stjórnarandstæðingum í Rússlandi. Hún skrifar að
kórónuveiran hafi afhjúpað bresti í pólitískri forustu heimsins
og fengið okkur til að spyrja spurninga um misréttið sem við
öll búum við í efnahags-, kynþátta- og kynjamálum. 24
Bryan Denton/The New York Times
Ár róttækrar, pólitískrar
hugkvæmni
2 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021
Morgunblaðið/Eggert
Innlendar og erlendar
fréttamyndir
Andrea Mantovani/The New York Times
38-41
Útgáfufélag Árvakur hf. Morgunblaðið,
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal
Höfundar Imran Amed, Andrés Magnússon, José Andrés, Árni Matthíasson, Ásdís Ásgeirsdóttir, Ásgeir Sverrisson, Amy Bern-
stein, Birna Anna Björnsdóttir, Roger Cohen, Fabien Cousteau, Vanessa Friedman, C.L. Gaber, GDRN, Goddur, Hye-Young Pyun,
Kai-Fu Lee, Linda Boström Knausgård, Stefán Einar Stefánsson, Joseph E. Stiglitz, Margrét Lára Viðarsdóttir, Naomi Osaka, Sig-
urður Guðmundsson, Susan Sarandon, Svanhildur Hólm Valsdóttir, Tricia Tisak, Nadía Tolokonnikóva, Víðir Sigurðsson, William
Wegman, Vivienne Westwood og Þorsteinn Guðmundsson.
Þýðingar Karl Blöndal. Forsíðumynd Árni Sæberg. Brim í Reynisfjöru.
Kórónuveirufaraldurinn yfirskyggði allt
annað á árinu. Stór hluti heimsins var
settur í handbremsu, viðburðum var
frestað, ferðalög lögðust nánast niður
og frelsi almennings var takmarkað.
Ljóst er að veiran mun einnig setja svip
sinn á árið sem nú gengur í garð og fólk
spyr sig hvenær heimurinn losni úr
viðjum hennar. Í Tímamótum er fjallað
um málefni líðandi stundar af þekkingu
og yfirsýn. Tímamót eru sérblað
Morgunblaðsins í samvinnu við
The New York Times.
Kosningarnar í Bandaríkjunum mörkuðu tímamót að mati
Rogers Cohens. Lýðræðisríki bregðist hægt við, oft með erf-
iðismunum og því fylgi í eðli sínu subbugangur, en þau séu
líka þrjósk þegar þeim er ögrað. „Þau vita að tilskipanir ein-
ræðisherrans eru ósamrýmanlegar sókninni eftir mannlegri
reisn og frelsi,“ skrifar Cohen. 16
Angela Weiss/Agence France-Presse Getty Images
Afturhvarf til velsæmis
Suðurkóreski rithöfundurinn Hye-Young Pyun lýsir hremm-
ingum föður síns þegar að honum var þrengt með aðgerð-
um og höftum vegna kórónuveirunnar. 18
Ina Jang
Faðir minn flúði þegar
skellt var í lás í Seoul
Það eru bjartari tímar framundan eftir erfitt ár, skrifar Ásdís
Ásgeirsdóttir. 2020 hafi ekki verið óskaár hjá neinum, en þó
hafi lífið haldið áfram dag fyrir dag, sumir fundið ástina, aðrir
gift sig og lítil börn fæðst. „Þeim verða sagðar sögur í fram-
tíðinni; af fæðingarárinu þeirra sem var svo fordæmalaust,“
skrifar Ásdís. 6
Morgunblaðið/Ásdís
Árið sem var alls konar
„Ef allt fokkast upp á nýja árinu þá get ég huggað mig við það
að ég get alltaf bakað brauð og slegið þar með tvær flugur í
einu höggi: Slegið á óþarfa taugaveiklun í sjálfum mér og
slegið um mig með brauðgerðinni og sagt við aðra, hefur þú
bakað brauð í dag?“ skrifar Þorsteinn Guðmundsson. 66
Ljósmynd/Þorsteinn
Morgunbollur eru svarið
Glæpasagan á nú velgengni að fagna sem aldrei fyrr. Árni
Matthíasson fjallar um ástæður vinsælda glæpasagna,
mörgum þyki lítið til þeirra koma, en þeir líti framhjá því að
sumar þeirra séu raunsönn spegilmynd samfélagsins eða,
svo vísað sé í Hamlet, sé sjónleiksins eðli og ætlunarverk að
„sýna náttúrunni sjálfa hana eins og í skuggsjá“. 68
Ekki bara glæpasaga
Morgunblaðið/Eggert