Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 54

Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021 Ég er matreiðslumeistari sem trúir á að fæða fjöldann, ekki aðeins hina fáu. Þannig að þegar sóttkví var kynnt til sögunnar í Bandaríkj- unum fyrr á árinu sem var að líða fór teymið mitt hjá World Central Kitchen, neti mat- reiðslumeistara og góðgerðarstofnana víða um heim, að leita að stöðum þar sem hægt væri að fæða þann mikla fjölda sem hafði orðið fyrir skakkaföllum vegna faraldursins og nið- ursveiflunnar af hans völdum. Það þurfti ekki snilling til að sjá hvar skór- inn kreppti að. Þau samfélög sem líða mest vegna Covid-19 eru þau sem þjást mest vegna fátæktar og efnahagslegs óréttlætis – þar má nefna heimaslóðir Navahó-þjóðarinnar í vest- urhluta Bandaríkjanna sem eru stærri en tíu ríki í landinu okkar en gleymast oft þegar við segjum sögu Bandaríkjanna. Navahóar kalla landið Dinétah – sem þýðir bókstaflega „meðal fólksins“ – og um miðjan maí var faraldurinn ekki aðeins kominn til þeirra heldur var smittíðnin sú hæsta í land- inu. Það mátti ekki bara rekja þetta til óheppni frekar en aðra heita smitreiti kórónuveir- unnar. Þriðjungur heimila í heimkynnum Navahóa er ekki með rennandi vatn og tæp- lega helmingur fjölskyldna er við eða undir fá- tæktarmörkum. Hjálparteymi frá okkur fór til Fort Defiance í Arizona-ríki og aðstoðaði við að undirbúa rúmlega 1.500 fjölskyldumatarskammta á viku. Í hópnum voru stúdentar frá staðnum. Einn þeirra er Sophia Ynzunza, sem er að læra sálfræði við Arizona-háskóla. Hún áttaði sig fljótt á því að starfið snerist um meira en bara að fá borgað. „Þetta snýst um að gefa fólkinu mínu svo að það þjáist ekki lengur,“ sagði hún. „Matur er náttúra í augum míns fólks. Áður fyrr ræktuðum við kornið okkar. Matur er ást. Til þess að lifa af þarf maður að borða.“ Diskur með mat er meira en uppskrift. Á krepputímum er hann til marks um að ein- hverjum stendur ekki á sama. Á venjulegri tímum færir hann fjölskyldu og vini saman. Það sem er á diskinum getur gert okkur hraustari eða gert okkur veik. Kokkurinn var ekki einn um að móta kostinn á diskinum, þar eiga pólitík og viðskipti sinn þátt. Faraldursárið var okkur áminning um svo margt sem við höfðum gleymt eða leitt hjá okkur. En þar munum við einnig finna leiðina fram á við þannig að einn dag getum við fætt Bandaríkin með jafnrétti að leiðarljósi. Með því að snúa aftur til rótanna held ég að við get- um varðað leið til betri framtíðar fyrir okkur og samfélög okkar. Þegar sóttkví breytti því hvernig við lifum lífi okkar hrundi fæðuhagkerfið. Veit- ingastöðum og hótelum var lokað og fæðukeðj- an rofnaði. Stórverslanir börðust við að koma á heimsendingum og bændur fóru að eyðileggja uppskeru og lóga dýrum. Mörg hundruð þús- und óklakin egg, milljónir mjólkurlítra, millj- ónir kílóa af kartöflum – allt fór þetta í súginn. Brestirnir í stefnu okkar í fæðumálum voru augljósir sérfræðingum löngu áður en við viss- um af kórónuveirunni. Faraldurinn varð til þess að þessir misbrestir blöstu við restinni af heiminum. Á æðstu stigum bandaríska stjórnkerfisins – í því sem lýtur að því að bregðast við hamför- um, þjóðaröryggi, efnahagsstefnu, heilsu al- mennings og landbúnaði – fer enginn einn embættismaður með málaflokkinn með sam- ræmdum hætti. Það er ekki bara að forgangsatriðin séu röng; það er einfaldlega engin áhersla lögð á mat. Við fjárfestum meira í og látum okkur meira varða orkuna sem knýr bílana okkar og trukkana en orkuna sem knýr líkama okkar. Þegar faraldurinn skall á setti bandaríska landbúnaðarráðuneytið 16 milljarða dollara (tvær billjónir króna) til hliðar í neyðaraðstoð fyrir bændur, sem voru að farga uppskerunni sinni, en notaði aðeins þrjá milljarða dollara (379 milljarða króna) í að kaupa af þeim fersk- meti, mjólkurvörur og kjöt og dreifa þeim til að metta svanga munna. Veitingastöðum sem fyrir faraldurinn höfðu verið með 12 milljónir manna í vinnu var lokað með opinberri til- skipun, en þeir fengu enga hjálp. Flugfélög í Bandaríkjunum, sem eru með 700 þúsund manns í vinnu, fengu 25 milljarða dollara (3,1 billjón króna) og héldu áfram að fljúga. Samkvæmt upplýsingum frá bandarísku hagstofunni var staðan þannig seint í júlí að 30 milljónir fullorðinna Bandaríkjamanna – einn af hverjum níu nágrönnum okkar – fengu ekki nóg að borða. Langar biðraðir mynduðust fyr- ir utan staði þar sem veittar voru matargjafir, og okkar eigin eldhús og stóðu í marga klukku- tíma. En þingið í sínu basli gat ekki einu sinni komið sér saman um að hækka útlát í mat- armiða um 15%, sem þó hefði aðeins orðið til að 80 sent (101 króna) bættust við hámarks- upphæðina 5,48 dollara (692 krónur) handa fjögurra manna fjölskyldu. Það er ekki minna vit í neinu af þessu en er í okkar hefðbundnu stefnu í fæðumálum. Við borgum milljónir til að niðurgreiða bændur, sem rækta vörur í ruslfæðið okkar – korn, sojabaunir, hveiti, hrísgrjón, dúrru, mjólk og kjöt – á meðan skólamáltíðaverkefnið borgar aðeins 3,68 dollara (465 krónur) fyrir málsverð á barn fyrir ókeypis hádegismat í öllum Bandaríkjunum. Sannleikurinn er sá að sultur og heilsa okk- ar eru orðin pólitískt viðfangsefni, ekki heilsu- farslegt. Og við vitum hvernig á að leysa úr því sem á bjátar í fæðumálum. Okkur vantar for- ustuna. Á komandi ári getum við bætt úr því hvernig við eldum fyrir og fæðum Bandaríkin. Á þess- ari lykilstundu fyrir land okkar og heiminn getum við búið okkur heilbrigðari framtíð, sem stendur alheimsáföll betur af sér. Fyrir brot af kostnaðinum við að bjarga heilu iðnaðargreinunum er hægt að betr- umbæta eldhús í skólum á vegum hins op- inbera og borga hinn raunverulega kostnað við fría og næringarríka skólamáltíð. Á neyð- artímum verða skólarnir samfélagseldhús; það eru enn matareyðimerkur í þessu landi, en það eru fáar skólaeyðimerkur. Við getum stórbætt heilsu þeirra fjölskyldna sem eru í viðkvæm- ustu stöðunni með því að bæta matarframboð í verslunum og skólastofum. Frekar en að treysta á gjafir einkaaðila til góðgerðarstofnana getum við notað opinbera sjóði til að koma kaffihúsum og veitingastöðum aftur á lappirnar á meðan almannavarnastofn- unin FEMA borgar fyrir raunverulegar matar- áætlanir. Við getum beint niðurgreiðslum til smærri bóndabæja og bænda sem selja hollari mat til nálægra markaða. Rúmri öld eftir að Upton Sinclair ljóstraði upp um ömurlegar aðstæður í kjötpökkunarverksmiðjum í Chi- cago getum við bætt líf okkar mikilvægustu verkamanna, ekki bara úti á akrinum, heldur í þessum sömu verksmiðjum í dag. Fyrst og fremst getum við forgangsraðað og straumlínulagað stefnuna í matvælamálum með því að koma á fót nýjum ráðherra matvæla og landbúnaðar, sem ætti sæti í öryggisráðinu og hefði það verkefni að bæta næringu þjóðar- innar. Við vitum að lélegt mataræði leiðir til lé- legrar heilsu þannig að á meðan við bíðum eftir nýjum bóluefnum og meðferðum við kórónu- veirunni er besta leiðin til að bæta heilsu okkra að auka gæði næringar. Við þurfum ekki bara að undirbúa okkur undir batann heldur næsta faraldur og þær hörmungarógnir sem við blasa vegna loftslagskreppunnar. Með því að gera það getum við læknað miklu meira en hungur. Í miðjum faraldrinum var teymið mitt í mið- hluta Kaliforníu að útbúa málsverði fyrir fé- laga í stéttarfélagi landbúnaðarverkamanna sem tína uppskeruna. „Við leggjum svo hart að okkur til að fólk hafi mat á borðum. Og samt erum það við sem eigum ekki mat ofan í okkur sjálf,“ sagði Carolina Elston, sem tínir bláber og vínber til átu. „Að fá mat er viðurkenning á því hvað við erfiðum í vinnunni og leggjum af mörkum til velferðar í landinu.“ Matur er fljótlegasta leiðin til að endurreisa samfélagskennd okkar. Við getum komið fólki aftur í vinnu við að búa hann til og bera fram og bætt líf okkar með því að berjast gegn hungri. Okkur vantar von um betri heim árið 2021 og ekkert er betra fyrir vonir og vænt- ingar en tilhugsunin um að deila matnum, og okkar er að brauðfæða þjóð. ©2020 The New York Times Company og José André. Á vegum The New York Times Licensing Group. Artie Yazzie er 39 ára gamall lífrænn bóndi og hefur yfirumsjón með Teesto-samfélagsgarðinum í þeim hluta byggða Navahóa, sem eru í Arizona. Hann fjármagnar verkefnið að hluta með 2% skatti, sem Navahóar leggja á óholl matvæli á borð við gosdrykki. John Burcham/The New York Times Fólk bíður í röð eftir mat við kirkju í Silver Spring í Maryland í ágúst. Fleiri vilja nú að- stoð, en framlög hafa dregist saman. Cheriss May/The New York Times Við þurfum fæðumálaráðherra Búi ekki allir við mataröryggi munu Bandaríkin aldrei ná sér að fullu af faraldrinum. JOSÉ ANDRÉS er matreiðslumeistari og stofnandi World Central Kitchen. Brestirnir í stefnu okkar í fæðumálum voru augljósir sérfræðingum löngu áður en við viss- um af kórónuveirunni. Faraldurinn varð til þess að þessir misbrestir blöstu við restinni af heiminum. TÍMAMÓT: KÓRÓNUVEIRUFARALDURINN HEFUR HRJÁÐ MATVÆLAIÐNAÐ SEM ÞEGAR VAR Í VANDA ’’

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.