Morgunblaðið - 02.01.2021, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021
Árið 2020 var sannkallað hörmungarár, rétt-
nefnt annus horribilis, þar sem kórónuveiran
grúfði yfir öllu. Staðfest er að um 1,8 milljónir
manna hafa látist af hennar völdum, tugmillj-
ónir veikst, og heimshagkerfið dróst saman
um a.m.k. 7% af hennar völdum. Það og
skuldasöfnun mun hafa áhrif um áratugaskeið.
Á Íslandi hafa 29 látist veikir af kórónuveir-
unni, um áhrif á atvinnulíf þarf ekki að fjölyrða
og ríkisfjármálin verulega veikluð eftir.
Það er bjartara yfir komandi ári, bólusetn-
ingar eru hafnar og víða er vonast eftir betri
tíð með blóm í haga. Samt skyldi enginn efa að
kórónuveiran verður áfram í forgrunni.
Á hinu pólitíska sviði heimsins eru að verða
ýmsar breytingar. Nýr (en 78 ára gamall)
Bandaríkjaforseti tekur við 20. janúar, Bretar
og Evrópusambandið þurfa að feta sig eftir
faraldur og Brexit, Merkel Þýskalandskansl-
ari á förum og Macron Frakklandsforseti
stendur höllum fæti heima fyrir. Í austri hefur
harðstjórinn Xi Jinping enn hert tökin.
Samt sem áður má vonast eftir umskiptum í
efnahagslífi heimsins á næstu árum, þótt það
fari hægt af stað 2021. Þar horfa menn m.a. til
þriðja áratugar liðinnar aldar, þegar aflvélar
atvinnulífsins fóru á fullan snúning eftir fyrri
heimsstyrjöld og spönsku veikina, sem lagði
um 50 milljónir manna í gröfina.
Nýja árið á Íslandi fer að miklu leyti í að
uppræta kórónuveiruna og að ná þeirri efna-
hagslegu viðspyrnu, sem nauðsynleg er eftir
kreppuna. Eins og fram kom hjá Bjarna Bene-
diktssyni fjármálaráðherra er stórfenglegur
hallarekstur ríkisins í plágunni byggður á veð-
máli um að ferðaþjónustan taki skjótt við sér
aftur, eins og raunar má sjá ýmsar vísbend-
ingar um. Þar liggur Íslendingum á og ríkis-
stjórninni alveg sérstaklega, enda alþingis-
kosningar boðaðar næsta haust.
Við blasir að þar verður fyrst og fremst kos-
ið um hvernig ríkisstjórninni tókst til í baráttu
við veiruna. Jú, stjórnarandstaðan mun reyna
að sprikla, þá sennilega helst um stjórnarskrá
og auðlindamál, en skákar varla veiru og við-
spyrnu. En þó að ríkisstjórn Katrínar Jakobs-
dóttur hafi tekist ágætlega upp á „þessum for-
dæmalausu tímum“ er ekki þar með sagt að
umræða um kórónuveiruna leggist öll með
henni. Hópsmitið á Landakoti er enn óuppgert
mál og það gæti reynst Svandísi Svavars-
dóttur heilbrigðisráðherra afar erfitt, tala nú
ekki um ef Alþingi skipar rannsóknarnefnd,
líkt og Píratar hafa stungið upp á. Þá er stutt í
umræðu um ráðherraábyrgð, Landsdóm og
það allt, sem hleypt gæti kosningabaráttunni
upp.
Annars er athyglisvert hve litlar fylgis-
sveiflur hafa verið á flokkunum á kjörtíma-
bilinu. Þær hafa helst birst í fylgisfalli vinstri-
grænna eftir ríkisstjórnarmyndun og hjá
Miðflokki í kringum Klaustur. Það er alls ekki
ósennilegt að miklar persónuvinsældir for-
sætisráðherra tosi upp fylgi flokks hennar á
kjördag og að staðan reynist mikið til svipuð
og í kosningunum 2017.
Af myndinni efst á síðunni sést vel sá stöð-
ugleiki, að ekki sé sagt stöðnun, sem kominn
er í stjórnmálin eftir ólgu eftirhrunsáranna.
Þar ganga allir flokkar til kosninga með sömu
forystu og síðast, nema Píratar, sem eru for-
ystulausir.
Það hefði þó ekki þurft að vera þannig,
margir telja t.d. að Lilja Alfreðsdóttir menn-
ingar- og menntamálaráðherra hafi gefið frá
sér formennsku í Framsókn. Vitanlega verða
einhverjar hrókeringar og þar sem prófkjör
eru viðhöfð getur ýmislegt gerst. Þannig er
Lilja Alfreðsdóttir vafalaust að hugsa sér til
hreyfings, því fylgi Framsóknarflokksins í
Reykjavík er í allra tæpasta lagi. Eins er hvísl-
að um það meðal sjálfstæðismanna í höfuð-
staðnum, að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra kunni að skora Guðlaug
Þór Þórðarson utanríkisráðherra á hólm um
efsta sætið. Það mun tæplega nokkru breyta
um skipan efstu sæta í kjördæmunum tveim-
ur, en kann fremur að vera táknræn birtingar-
mynd kynslóðaskila í flokksforystunni.
En um hvað verður kosið næsta haust? Jú,
um veiruna og ríkisstjórnina, en einnig lær-
dóma faraldursins og hvert menn vilja stefna
að honum loknum. Það getur reynst erfitt,
jafnvel óvinsælt, að vinda ofan af þeim gríðar-
lega auknu ríkisafskiptum, sem gripið var til í
neyð. Íslendingar hafa verið fljótir að ná sér
upp úr efnahagshremmingum, en þar mun
reyna mjög á aflvélar atvinnulífs og verð-
mætasköpun. Er líklegt að það takist ef náðar-
faðmur hins opinbera mun áfram umlykja allt
þjóðlífið? Þeirri spurningu þurfa kjósendur að
svara eftir rúma níu mánuði.
Forystumenn flokkanna í kosningasjónvarpinu 2017. Ekki lítur út fyrir annað en að nákvæmlega sama lið leiði flokkana í kosningabaráttunni næsta haust, nema hjá Pírötum sem ekki eiga forystu.
Rúv.
Joe Biden tekur við embætti Bandaríkja-
forseta, 78 ára og ferskur eftir því.
AFP
Angela Merkel Þýskalandskanslari kveður á
nýja árinu eftir tæp 16 ár í embætti.
AFP
Kemur bráðum betri tíð?
Fæstir geta víst kvatt árið 2020 nógu hratt, en 2021 verður áfram undirlagt af kórónuveirunni og eftirmálum hennar
ANDRÉS MAGNÚSSON
er fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu.
Nýja árið á Íslandi fer í að uppræta
kórónuveiruna og að ná þeirri efnahags-
legu viðspyrnu, sem nauðsynleg er eftir
kreppuna … en einnig lærdóma faraldursins og
hvert menn vilja stefna að honum loknum.
TÍMAMÓT: 2020 VAR HÖRMUNGARÁR, EN 2021 BIRTIR YFIR
’’
Hjá Boris Johnson forsætisráðherra Breta
getur leiðin aðeins legið upp á við.
AFP
Xi Jinping herðir tökin, en viðhlæjendum
hefur fækkað mjög og enn færra um vini.
AFP