Morgunblaðið - 02.01.2021, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 2.1. 2021
Tímamót. Orðið á ágætlega við um stöðu mála
hjá karlalandsliði Íslands í fótbolta nú í árslok
2020. Liðið missti af því með allra minnsta mun
að komast á þriðja stórmótið í röð þegar það
tapaði á dramatískan hátt fyrir Ungverjum í
Búdapest 12. nóvember og heldur nú inn í nýtt
ár með nýjan þjálfara við stjórnvölinn.
Arnar Þór Viðarsson er tekinn við starfi
landsliðsþjálfara af hinum sænska Erik Ham-
rén og er sá yngsti sem gegnir því síðan Eyjólf-
ur Sverrisson tók við liðinu aðeins 37 ára gam-
all í ársbyrjun 2006.
Arnar lauk einmitt landsliðsferlinum með því
að spila sinn 52. og síðasta landsleik undir
stjórn Eyjólfs seint á árinu 2007, gegn Liecht-
enstein. Það var líka kveðjuleikur Eyjólfs með
liðið en eins og Arnar tók hann við því eftir að
hafa fyrst stýrt 21-árs landsliðinu um tveggja
ára skeið.
Arnar er þó fimm árum eldri og jafnframt
reyndari en Eyjólfur var á sínum tíma og hefur
verið bæði aðal- og aðstoðarþjálfari hjá belg-
ísku félögunum Cercle Brugge og Lokeren frá
því hann lagði skóna á hilluna eftir tæplega
tuttugu ára meistaraflokksferil og sautján ár í
atvinnumennsku árið 2014.
Reyndir þótt óreyndir séu
Með Eið Smára Guðjohnsen sér við hlið mynda
þeir reyndasta landsliðsþjálfarateymi sem um
getur hérlendis, ef tekið er mið af reynslu
þeirra sem leikmanna. Samanlagt léku þeir
tæplega eitt þúsund deildaleiki með félags-
liðum sínum. Eiður er leikjahæstur allra Ís-
lendinga erlendis og Arnar er sá fimmti hæsti á
þeim vettvangi. Sú reynsla á að geta reynst
þeim ákaflega mikilvæg í starfi þótt þjálfarafer-
illinn sem slíkur sé ekki sérlega langur.
Þá hjálpar það eflaust að þeir Arnar og Eiður
eru jafnaldrar og spiluðu fyrst saman 15 ára
gamlir með drengjalandsliði Íslands árið 1993.
Þar náðu þeir einmitt þeim árangri saman að
komast í úrslitakeppni Evrópumótsins sem
fram fór á Írlandi vorið 1994. Saman spiluðu
þeir síðan fjölda A-landsleikja, voru samherjar
hjá Cercle Brugge tímabilið 2012-2013 og náðu
vel saman sem þjálfarar 21-árs landsliðsins sem
er komið í úrslitakeppni EM undir þeirra hand-
leiðslu.
Níu stig í húfi í fyrstu vikunni
Arnar og Eiður fá engan tíma til undirbúnings
fyrir stóru verkefnin sem við blasa, þeir fá enga
vináttuleiki í janúar eða önnur tækifæri til að
hitta næsta landsliðshóp, því landsliðið mun
ekki koma saman fyrr en nokkrum dögum fyrir
leik gegn stórveldinu Þýskalandi á útivelli 25.
mars. Það er fyrsti leikurinn í undankeppni
HM 2022 og næstu sex daga á eftir fylgja úti-
leikir gegn Armeníu og Liechtenstein. Það
verða því níu stig í húfi strax í fyrstu vikunni
sem þeir stjórna liðinu.
Landsliðsþjálfarar gera sér jafnan ferðir til
hinna ýmsu landa til að fylgjast með sínum
mönnum í leikjum og ræða við þá en á þessum
tímum kórónuveirunnar verður það flóknara en
áður og væntanlega mun undirbúningur Arn-
ars og Eiðs fyrir leikina þrjá snúast um að
fylgjast með mögulegum landsliðsmönnum úr
fjarlægð og vera í sambandi við þá eftir því sem
ástæða er til.
Verkefni landsliðsins á árinu 2021 er einfalt.
Tíu leikir í undankeppni heimsmeistaramótsins
þar sem íslenska liðið freistar þess að vinna sér
sæti í lokakeppninni í Katar en hún fer fram í
nóvember og desember árið 2022. Aðeins sigur-
liðið í riðlinum, þar sem andstæðingar eru áður-
nefndar þrjár þjóðir ásamt Norður-Makedóníu
og Rúmeníu, fer beint á HM en liðið í öðru sæti
fer í umspil sem fram fer í mars 2022.
Þá mun liðið leika tvo vináttuleiki í júnímán-
uði, í Færeyjum og Póllandi. Sem sagt tólf leik-
ir sem eru á dagskránni frá mars og fram í nóv-
ember. Ljóst er að HM-riðillinn hefði getað
orðið mun erfiðari og talsverðir möguleikar eru
fyrir hendi. Ef allt fer eftir bókinni frægu gætu
Ísland og Rúmenía barist um annað sætið í riðl-
inum, að því gefnu að fyrsta sætið sé frátekið
fyrir stórveldið Þýskaland.
Ekki útlit fyrir miklar breytingar
Arnar sagði strax á kynningarfundinum að
kynslóðaskipti væru í raun ekki til í fótbolt-
anum og alltaf yrði stillt upp sterkasta mögu-
lega liði á hverjum tíma. Með því gaf hann til
kynna að ekki yrði mikilla breytinga að vænta
þegar hann velur sinn fyrsta landsliðshóp í
marsmánuði. Þar verða eflaust valdir flestir
þeirra sem skipuðu liðið í haust og endanlegt
liðsval mun ráðast af meiðslum og leikformi.
Mikið hefur verið rætt og ritað um að lands-
liðskjarninn sem náð hefur þessum magnaða
árangri á undanförnum árum og spilað á tveim-
ur stórmótum sé að komast á aldur. Núverandi
landslið er byggt að talsverðu leyti á 21-árs
landsliðinu sem komst í lokakeppni EM fyrir
tíu árum, og einmitt núna er samskonar hópur
að ganga í gegnum það sama og tekur þátt í
lokakeppni EM í lok mars, á sama tíma og A-
landsliðið verður á áðurnefndu ferðalagi um
Þýskaland, Armeníu og Liechtenstein. Þar af
leiðandi er viðbúið að ekki verði margir á þeim
aldri í fyrsta A-landsliðshópi Arnars, enda yrðu
yngri leikmennirnir tæplega teknir inn til að
sitja á varamannabekknum í þremur leikjum á
meðan þeir gætu verið að spila úrslitaleiki á
EM í sínum aldursflokki.
Heltast einhverjir úr lestinni?
Enn hefur enginn landsliðsmannanna lýst því
formlega yfir að dagar hans með íslenska
landsliðinu séu endanlega taldir. Kári Árnason
hefur þó sagt að varla verði mikil eftirspurn eft-
ir 39 ára gömlum leikmanni úr Pepsi Max-deild
karla á næsta ári og þeir Hannes Þór Halldórs-
son og Birkir Már Sævarsson, sem verða 37 ára
á árinu, verða eins og hann í lítilli leikæfingu í
marsmánuði eftir að hafa spilað síðast deilda-
leiki í byrjun október. Mikilvægi Kára fyrir lið-
ið hefur engum dulist undanfarin ár. Hann hef-
ur verið mikill leiðtogi í varnarleiknum og
skarð hans er vandfyllt, enda þótt nokkrir ís-
lenskir miðverðir séu komnir með talsverða
reynslu af því að hlaupa í skarðið fyrir hann og
Ragnar Sigurðsson af og til á undanförnum ár-
um.
Emil Hallfreðsson er jafnaldri Hannesar og
Birkis en hann var ekki valinn í landsliðið í
haust og spilar í C-deild á Ítalíu. Endurkoma
hjá honum er því ekki sérlega líkleg. Ragnar
Sigurðsson verður 35 ára á árinu og Ari Freyr
Skúlason 34 ára. Birkir Bjarnason verður 33
ára og þeir Gylfi Þór Sigurðsson, Alfreð Finn-
bogason og Aron Einar Gunnarsson verða 32
ára á árinu 2021. Það mun ráðast af leikformi
og metnaði þessara leikmanna hversu lengi
þeir endast í landsliðinu, ekki af fæðingardegi
og ári.
Endurnýjunin í landsliðshópnum verður allt-
af einhver á milli ára, hvort sem hún verður svo
róttæk að hægt verði að kalla hana kynslóða-
skipti eða ekki. Einfaldast og eðlilegast er þeg-
ar hún á sér stað svo hægt og rólega að enginn
veitir því sérstaka eftirtekt.
Leiðtoginn Aron Einar Gunnarsson hefur farið fyrir íslenska landsliðinu um árabil.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen gerðu það gott með 21-árs landsliðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Annríki verður hjá íslenska karlalandsliðinu á næstunni. Það spilar tólf landsleiki á árinu 2021.
Morgunblaðið/Eggert
Stefnan er sett á Katar 2022
Leikform og metnaður ráða því hversu lengi reyndustu leikmenn landsliðsins endast en ekki fæðingardagur og ár. Kyn-
slóðaskipti eru ekki til, segir nýr landsliðsþjálfari, Arnar Þór Viðarsson, sem mætir Þýskalandi í fyrsta leiknum
VÍÐIR SIGURÐSSON
hefur verið fréttastjóri íþróttafrétta á Morgunblaðinu
og mbl.is frá 2008 og starfað hjá Árvakri frá 2000.
Áður var hann íþróttafréttamaður hjá DV, Þjóðvilj-
anum og Dagblaðinu.
Ef allt fer eftir bókinni frægu gætu
Ísland og Rúmenía barist um annað
sætið í riðlinum, að því gefnu að fyrsta
sætið sé frátekið fyrir stórveldið Þýskaland.
TÍMAMÓT: UMFANGSMIKIÐ ÁR FRAM UNDAN HJÁ NÝJUM LANDSLIÐSÞJÁLFARA KARLA Í FÓTBOLTA
’’