Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 18
Í
sabella, sem er 22 ára verkfræðinemi við
Háskóla Íslands, prjónar mest á sjálfa
sig en líka fólkið í kringum sig. Hún er
hluti af prjónasamfélaginu Ungir prjón-
ar á Instagram þar sem ungar hann-
yrðakonur sýna frá handavinnunni sinni.
Prjónaæði hefur gripið um sig í heimsfar-
aldrinum og ekki bara á Íslandi heldur líka í
Skandinavíu. Það sést greinilega á samfélags-
miðlum þar sem skandinavíska prjóna-
samfélagið blómstrar.
Ísabella Rós tók einmitt aftur upp prjónana
í fyrstu bylgjunni í vor og hefur varla lagt
prjónana frá sér síðan. Þá hafa margar peys-
ur af öllum stærðum og gerðum, vesti, pils
og hárbönd dottið af prjónunum hjá henni
og núna vinnur hún í að búa til sína fyrstu
uppskrift að peysu.
„Ég hef alltaf haft gaman af því að
sinna alls kyns handavinnu, en
amma mín kenndi mér að prjóna og
hekla þegar ég var mjög ung. Hún
er mín helsta fyrirmynd í allri
handavinnu og það er gott að geta
alltaf leitað til hennar hvort sem
ég þarf aðstoð, innblástur eða
hvatningu. Á seinni árum í
grunnskóla prjónaði ég og hekl-
aði mikið og fannst það ótrú-
lega skemmtilegt. Þegar ég fór
í menntaskóla minnkaði
handavinnan aðeins en í fyrri
bylgju Covid tók ég aftur upp
prjónana og hef ekki stoppað
síðan. Í dag er handavinna,
og þá sérstaklega prjón, mitt
helsta áhugamál en það er
klárlega mín leið til að bæði
slaka á og vera skapandi.“
Margt ungt fólk búið að
taka upp prjónana
„Mér finnst ótrúlega heillandi að hugsa til þess
að flestar, ef ekki allar, formæður mínar
kunnu að prjóna og það hafi verið gert hér á
landi í aldanna rás. Í dag eru það samt alls
ekki bara ömmur og mömmur sem eru að
prjóna, þrátt fyrir að þær séu eflaust margar,
heldur ótrúlega margir á mínum aldri. Með til-
komu samfélagsmiðla er töluvert einfaldara að
fá innblástur og deila fallegum myndum af
prjóninu sínu sem er ofboðslega hvetjandi.
Mjög margt yngra fólk hefur byrjað að prjóna
eða hekla aftur í Covid sem er ótrúlega
skemmtilegt og gaman að sjá hvernig prjóna-
samfélagið á Íslandi er sífellt að stækka á sam-
félagsmiðlum.“
Í haust fékk hún boð um að vera með í
Ekki lagt frá sér
prjónana síðan
í fyrstu bylgju
Amma Ísabellu Rósar Ingimundardóttur kenndi henni
fyrst að prjóna þegar hún var lítil stelpa. Síðan þá hefur
handavinna verið eitt af aðaláhugamálum Ísabellu og í
dag er hún farin að hanna sínar eigin uppskriftir.
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is
Einlitar peysur eru í tísku
um þessar mundir.
Hún vinnur nú að því að
hanna sína fyrstu uppskrift.
Ísabella tók prjón-
ana aftur upp í
fyrstu bylgjunni.
Hárbönd
og teygjur.
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021
LÍFSSTÍLL