Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Page 24
„Átak knattspyrnmannsins Marcusar Rashford, sem snýst um að stuðla að auknum lestri ungs fólks, getur í þessu sam- hengi virkað sem hvatning um að tengja saman lestur og íþróttir,“ segja greinarhöfundar. AFP Það er töff að lesa. Bækur erutöff,“ tísti enski knattspyrnu-maðurinn Marcus Rashford nú nýverið, við góðar undirtektir. Rashford, sem er 23 ára gamall leik- maður Manchester United og enska landsliðsins, sem og einn verðmæt- asti knattspyrnumaður heims, hefur að undanförnu verið áberandi í bar- áttu sinni fyrir betri heimi, meðal annars því að vekja athygli á stöðu heimilislausra og að stuðla að því að nemendum í Bretlandi bjóðist ókeyp- is skólamáltíðir. Nú hefur Rashford sett lestur barna og ungmenna á odd- inn og hefur hann meðal annars stofnað bókaklúbb í því skyni að auka aðgengi ungs fólks að áhugaverðum bókum og hvetja það til lesturs. Vandamálið er ærið Eins og áður hefur komið fram á þessum síðum þá er staða læsis meðal ungra íslenskra pilta sérstakt áhyggjuefni. Þrátt fyrir þau fjöl- mörgu lestrarátök sem ráðist hefur verið í hér á landi á undanförnum ár- um þá kunna um 40% pilta ekki að lesa eftir annan bekk, og hefur þeim sem ekki hafa náð tökum á lestri á þeim aldri fjölgað um 7% frá árinu 2002. Samkvæmt síðustu Pisa- könnun kemur enn fremur fram að um þriðjungur íslenskra pilta getur ekki skilið þann texta sem þeir eiga að lesa í skólanum. Vandamálið er ærið. Við höfum hvatt til þess hér á þess- um síðum að mikilvægt sé að nálgast vandamál pilta, til að mynda þegar kemur að lestri, með fjölbreyttum hætti og frá ýmsum hliðum. Grund- vallaratriði í þessum efnum er að kveikja áhuga á lestri hjá þeim sem lesa ekki, með því að finna lesefni sem er á áhugasviði þeirra. Eitt helsta áhugamál ungra pilta eru íþróttir og talar átak Marcusar Rashford því beint inn í þennan hóp barna og ung- menna. Hvetur til lesturs gegnum íþróttir Það sem er sérstaklega áhugavert við átak hins unga Rashfords er að hann skorar þær viðteknu hugmyndir menntaelítunnar á hólm að bóklestur og íþróttir fari ekki saman. Þvert á móti þá gefur átak Rashfords í skyn að það sé einmitt heppileg leið til að auka bóklestur ungs fólks að hvetja til bóklesturs í gegnum íþróttirnar. Í kringum 90% barna hér á landi taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi á ein- hverjum tímapunkti í sinni æsku, og ná íþróttirnar því nánast til allra. Og það sem meira er, þá sækja iðkendur íþrótta í íþróttstarf af fúsum og frjálsum vilja, í sínum frítíma, og eru iðkendur því gjarnan mjög móttæki- legir fyrir þeim skilaboðum sem þeir fá í gegnum íþróttastarfið. Orð og áherslur þjálfarans eru eitthvað sem fara á eftir. Átak knattspyrnmannsins Marcus- ar Rashford, sem snýst um að stuðla að auknum lestri ungs fólks, getur í þessu samhengi virkað sem hvatning til að tengja saman lestur og íþróttir. Íþróttirnar geta verið heppileg leið til þess að stuðla að auknum lestri, skap- andi skrifum og öðrum hugeflandi verkefnum ungu kynslóðarinnar. Slík samtenging íþrótta og lesturs er enn fremur í fullu samræmi við hið sögu- lega kjörorð íþrótta: „Heilbrigð sál í hraustum líkama“ (Mens sana in cor- pore sano), sem höfð voru að leiðar- ljósi í Cambridge, Eton og Oxford þar sem grunnur að nútímaíþróttum var lagður á seinni hluta 19. aldar. Lestur frekar en tölvuleikir? Íþróttafélög hér á landi eru nú, sum hver, farin að bjóða börnum og ung- mennum upp á spilun tölvuleikja inn- an sinna raða. Mörgum finnst skjóta skökku við að íþróttirnar séu að hvetja til enn frekari tölvuleikjaspil- unar ungs fólks, sem nóg er af fyrir. Ef íþróttunum er á annað borð ætlað að hjálpa börnum og ungmennum að styrkjast, hvort sem er á sál eða lík- ama, ættu íþróttirnar þá ekki öllu frekar að gera átak í lestri? Lestrar- færni er jú lykillinn að velferð unga fólksins okkar. Lesturinn allt í senn stækkar sjóndeildarhring, eykur víð- sýni, skilning, þekkingu, bætir svefn, dregur úr streitu og kvíða og gefur lesandanum kærkomið færi á að gleyma stað og stund, ná ró og friði, mitt í amstri hversdagslífsins. Ávinningurinn af auknum lestri í kringum íþróttirnar er ekki einungis lestursins vegna heldur getur lestur- inn einnig hjálpað íþróttakrökkunum að læra af bókum og læra af þeim bestu. Það er til fullt af afreksfólki í íþróttum hér á Íslandi og úti um allan heim sem hefur frá mörgu að segja. Afreksfólki sem á það sameiginlegt að hafa tekist á við alls kyns áskor- anir, unnið stóra sigra en að sama skapi lent í alls kyns mótlæti á leið- inni. Sumir hafa ekki verið taldir nógu góðir og ekki komist í liðið, aðrir glímt við kvíða, skort á sjálfstrausti, lent í slæmum meiðslum og svo fram- vegis. En allt hefur þetta afreksfólk sögu að segja. Sögu sem hægt er að læra af. Að vita hvað aðrir hafa geng- ið í gegnum til að ná árangri getur hvatt ungviðið til dáða, og getur einn- ig styrkt og hjálpað iðkendum þegar þeir sjálfir lenda í mótlæti og and- streymi á sinni vegferð síðar meir. Af nógu að taka Væri ekki upplagt ef íþróttafélög og þjálfarar myndu gera átak í því að hvetja iðkendur sína til að lesa, bæði sér til gagns og gamans? Af nógu er að taka. Til dæmis væri hægt að láta iðkendur lesa sögurnar um Víti í Vestmannaeyjum, Ungfrú fótbolta og Orra óstöðvandi; fjölbreyttar sögur Þorgríms Þráinssonar; bækur Arons Einars knattspyrnukappa eða Katr- ínar Tönju krossfimistjörnu; bækur Illuga Jökulssonar um knattspyrnu- stjörnurnar; bækur um hugarfar, já- kvæða sálfræði eða eitthvað slíkt; eða bækur um einstök afrek eins og þeg- ar Vilborg Arna gekk á Suðurpólinn eða ferð íslensku Everest-faranna. Nú eða hvetja ungviðið til að lesa uppbyggilega pistla á vefsíðum eins og: www.synumkarakter.is og www.klefinn.is. Marcus Rashford var orðinn 17 ára þegar hann byrjaði að lesa bækur og talar hann um að það hafi algjörlega breytt heimsýn sinni og hugarfari. Það er því aldrei of seint að byrja að lesa. Að lesa bækur er mikilvægt fyrir lesskilning barna og ungmenna. Að skrifa texta er einnig mikilvæg leið til að auka lesskilning. Þannig má einnig hvetja börn og ungmenni í íþróttum til að skrifa um íþróttina sína, um íþróttahetjuna sína, eða skrifa hug- leiðingar um liðsheild eða sjálfs- traust, halda dagbók eða eitthvað slíkt. Slík verkefni þjálfa ekki ein- ungis lestur og lesskilning iðkenda, heldur þjálfa þau einnig færni í skap- andi skrifum og greinandi hugsun, og getur slík færni komið sér vel á íþróttavellinum sem og utan hans. Okkar að nýta tækifærið Við viljum því hvetja til þess að íþrótt- irnar og skólarnir endurveki þetta samband íþrótta og lesturs, til að mynda með því að setja á laggirnar bókaklúbba þar sem iðkendur íþrótta- félaganna eru hvattir til þess að lesa, fá aðgang að bókum og vinna verkefni út frá lestrinum og draga lærdóm af hon- um í tengslum við íþróttirnar. Slík samvinna íþróttanna og skólans getur reynst iðkendum ómetanleg á leið þeirra að betri líðan og bættum ár- angri í íþróttunum, á sama tíma og aukinn lestur barna og ungmenna get- ur almennt reynst samfélaginu öllu happadrjúgur til lengri tíma litið. Því þegar öllu er á botninn hvolft má sjá að lestur og iðkun íþrótta eru einstaklega heppileg blanda við að stuðla að heil- brigðum sálum í hraustum líkömum. Marcus Rashford er búinn að leika á mann og annan, senda okkur bolt- ann, og við erum skyndilega komin í gott færi. Nú er það okkar að nýta tækifærið. Það er í höndum okkar fullorðna fólksins að vinna saman, með öllum mögulegum ráðum, að því að mynda umgjörð og aðstæður sem hjálpa ungdómnum að ná tökum á lestrinum. Sameiginlegt átak aðila eins og íþrótta og skóla getur reynst unga fólkinu okkar ómetanlegt í þeim efnum. Bóklestur og íþróttir eiga einstaklega vel saman Vísindi og samfélga Hermundur Sigmundsson hs@nu.is Viðar Halldórsson Hermundur er prófessor við Háskólann í Reykjavík og Norska tækni- og vís- indaháskólann í Þrándheimi og Viðar er prófessor við Háskóla Íslands. 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021 MENNTUN fyrir heimilið Sendum um land allt Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri 75 cm á breidd Verð frá 139.000 kr. Loksins fáanlegir aftur, í mörgum litum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.