Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 24
„Átak knattspyrnmannsins Marcusar Rashford, sem snýst um að stuðla að auknum lestri ungs fólks, getur í þessu sam-
hengi virkað sem hvatning um að tengja saman lestur og íþróttir,“ segja greinarhöfundar.
AFP
Það er töff að lesa. Bækur erutöff,“ tísti enski knattspyrnu-maðurinn Marcus Rashford
nú nýverið, við góðar undirtektir.
Rashford, sem er 23 ára gamall leik-
maður Manchester United og enska
landsliðsins, sem og einn verðmæt-
asti knattspyrnumaður heims, hefur
að undanförnu verið áberandi í bar-
áttu sinni fyrir betri heimi, meðal
annars því að vekja athygli á stöðu
heimilislausra og að stuðla að því að
nemendum í Bretlandi bjóðist ókeyp-
is skólamáltíðir. Nú hefur Rashford
sett lestur barna og ungmenna á odd-
inn og hefur hann meðal annars
stofnað bókaklúbb í því skyni að auka
aðgengi ungs fólks að áhugaverðum
bókum og hvetja það til lesturs.
Vandamálið er ærið
Eins og áður hefur komið fram á
þessum síðum þá er staða læsis meðal
ungra íslenskra pilta sérstakt
áhyggjuefni. Þrátt fyrir þau fjöl-
mörgu lestrarátök sem ráðist hefur
verið í hér á landi á undanförnum ár-
um þá kunna um 40% pilta ekki að
lesa eftir annan bekk, og hefur þeim
sem ekki hafa náð tökum á lestri á
þeim aldri fjölgað um 7% frá árinu
2002. Samkvæmt síðustu Pisa-
könnun kemur enn fremur fram að
um þriðjungur íslenskra pilta getur
ekki skilið þann texta sem þeir eiga
að lesa í skólanum. Vandamálið er
ærið.
Við höfum hvatt til þess hér á þess-
um síðum að mikilvægt sé að nálgast
vandamál pilta, til að mynda þegar
kemur að lestri, með fjölbreyttum
hætti og frá ýmsum hliðum. Grund-
vallaratriði í þessum efnum er að
kveikja áhuga á lestri hjá þeim sem
lesa ekki, með því að finna lesefni sem
er á áhugasviði þeirra. Eitt helsta
áhugamál ungra pilta eru íþróttir og
talar átak Marcusar Rashford því
beint inn í þennan hóp barna og ung-
menna.
Hvetur til lesturs
gegnum íþróttir
Það sem er sérstaklega áhugavert við
átak hins unga Rashfords er að hann
skorar þær viðteknu hugmyndir
menntaelítunnar á hólm að bóklestur
og íþróttir fari ekki saman. Þvert á
móti þá gefur átak Rashfords í skyn
að það sé einmitt heppileg leið til að
auka bóklestur ungs fólks að hvetja
til bóklesturs í gegnum íþróttirnar. Í
kringum 90% barna hér á landi taka
þátt í skipulögðu íþróttastarfi á ein-
hverjum tímapunkti í sinni æsku, og
ná íþróttirnar því nánast til allra. Og
það sem meira er, þá sækja iðkendur
íþrótta í íþróttstarf af fúsum og
frjálsum vilja, í sínum frítíma, og eru
iðkendur því gjarnan mjög móttæki-
legir fyrir þeim skilaboðum sem þeir
fá í gegnum íþróttastarfið. Orð og
áherslur þjálfarans eru eitthvað sem
fara á eftir.
Átak knattspyrnmannsins Marcus-
ar Rashford, sem snýst um að stuðla
að auknum lestri ungs fólks, getur í
þessu samhengi virkað sem hvatning
til að tengja saman lestur og íþróttir.
Íþróttirnar geta verið heppileg leið til
þess að stuðla að auknum lestri, skap-
andi skrifum og öðrum hugeflandi
verkefnum ungu kynslóðarinnar. Slík
samtenging íþrótta og lesturs er enn
fremur í fullu samræmi við hið sögu-
lega kjörorð íþrótta: „Heilbrigð sál í
hraustum líkama“ (Mens sana in cor-
pore sano), sem höfð voru að leiðar-
ljósi í Cambridge, Eton og Oxford
þar sem grunnur að nútímaíþróttum
var lagður á seinni hluta 19. aldar.
Lestur frekar en tölvuleikir?
Íþróttafélög hér á landi eru nú, sum
hver, farin að bjóða börnum og ung-
mennum upp á spilun tölvuleikja inn-
an sinna raða. Mörgum finnst skjóta
skökku við að íþróttirnar séu að
hvetja til enn frekari tölvuleikjaspil-
unar ungs fólks, sem nóg er af fyrir.
Ef íþróttunum er á annað borð ætlað
að hjálpa börnum og ungmennum að
styrkjast, hvort sem er á sál eða lík-
ama, ættu íþróttirnar þá ekki öllu
frekar að gera átak í lestri? Lestrar-
færni er jú lykillinn að velferð unga
fólksins okkar. Lesturinn allt í senn
stækkar sjóndeildarhring, eykur víð-
sýni, skilning, þekkingu, bætir svefn,
dregur úr streitu og kvíða og gefur
lesandanum kærkomið færi á að
gleyma stað og stund, ná ró og friði,
mitt í amstri hversdagslífsins.
Ávinningurinn af auknum lestri í
kringum íþróttirnar er ekki einungis
lestursins vegna heldur getur lestur-
inn einnig hjálpað íþróttakrökkunum
að læra af bókum og læra af þeim
bestu. Það er til fullt af afreksfólki í
íþróttum hér á Íslandi og úti um allan
heim sem hefur frá mörgu að segja.
Afreksfólki sem á það sameiginlegt
að hafa tekist á við alls kyns áskor-
anir, unnið stóra sigra en að sama
skapi lent í alls kyns mótlæti á leið-
inni.
Sumir hafa ekki verið taldir nógu
góðir og ekki komist í liðið, aðrir
glímt við kvíða, skort á sjálfstrausti,
lent í slæmum meiðslum og svo fram-
vegis. En allt hefur þetta afreksfólk
sögu að segja. Sögu sem hægt er að
læra af. Að vita hvað aðrir hafa geng-
ið í gegnum til að ná árangri getur
hvatt ungviðið til dáða, og getur einn-
ig styrkt og hjálpað iðkendum þegar
þeir sjálfir lenda í mótlæti og and-
streymi á sinni vegferð síðar meir.
Af nógu að taka
Væri ekki upplagt ef íþróttafélög og
þjálfarar myndu gera átak í því að
hvetja iðkendur sína til að lesa, bæði
sér til gagns og gamans? Af nógu er
að taka. Til dæmis væri hægt að láta
iðkendur lesa sögurnar um Víti í
Vestmannaeyjum, Ungfrú fótbolta og
Orra óstöðvandi; fjölbreyttar sögur
Þorgríms Þráinssonar; bækur Arons
Einars knattspyrnukappa eða Katr-
ínar Tönju krossfimistjörnu; bækur
Illuga Jökulssonar um knattspyrnu-
stjörnurnar; bækur um hugarfar, já-
kvæða sálfræði eða eitthvað slíkt; eða
bækur um einstök afrek eins og þeg-
ar Vilborg Arna gekk á Suðurpólinn
eða ferð íslensku Everest-faranna.
Nú eða hvetja ungviðið til að lesa
uppbyggilega pistla á vefsíðum eins
og: www.synumkarakter.is og
www.klefinn.is. Marcus Rashford var
orðinn 17 ára þegar hann byrjaði að
lesa bækur og talar hann um að það
hafi algjörlega breytt heimsýn sinni
og hugarfari. Það er því aldrei of
seint að byrja að lesa.
Að lesa bækur er mikilvægt fyrir
lesskilning barna og ungmenna. Að
skrifa texta er einnig mikilvæg leið til
að auka lesskilning. Þannig má einnig
hvetja börn og ungmenni í íþróttum
til að skrifa um íþróttina sína, um
íþróttahetjuna sína, eða skrifa hug-
leiðingar um liðsheild eða sjálfs-
traust, halda dagbók eða eitthvað
slíkt. Slík verkefni þjálfa ekki ein-
ungis lestur og lesskilning iðkenda,
heldur þjálfa þau einnig færni í skap-
andi skrifum og greinandi hugsun, og
getur slík færni komið sér vel á
íþróttavellinum sem og utan hans.
Okkar að nýta tækifærið
Við viljum því hvetja til þess að íþrótt-
irnar og skólarnir endurveki þetta
samband íþrótta og lesturs, til að
mynda með því að setja á laggirnar
bókaklúbba þar sem iðkendur íþrótta-
félaganna eru hvattir til þess að lesa, fá
aðgang að bókum og vinna verkefni út
frá lestrinum og draga lærdóm af hon-
um í tengslum við íþróttirnar. Slík
samvinna íþróttanna og skólans getur
reynst iðkendum ómetanleg á leið
þeirra að betri líðan og bættum ár-
angri í íþróttunum, á sama tíma og
aukinn lestur barna og ungmenna get-
ur almennt reynst samfélaginu öllu
happadrjúgur til lengri tíma litið. Því
þegar öllu er á botninn hvolft má sjá að
lestur og iðkun íþrótta eru einstaklega
heppileg blanda við að stuðla að heil-
brigðum sálum í hraustum líkömum.
Marcus Rashford er búinn að leika
á mann og annan, senda okkur bolt-
ann, og við erum skyndilega komin í
gott færi. Nú er það okkar að nýta
tækifærið. Það er í höndum okkar
fullorðna fólksins að vinna saman,
með öllum mögulegum ráðum, að því
að mynda umgjörð og aðstæður sem
hjálpa ungdómnum að ná tökum á
lestrinum. Sameiginlegt átak aðila
eins og íþrótta og skóla getur reynst
unga fólkinu okkar ómetanlegt í þeim
efnum.
Bóklestur og íþróttir eiga einstaklega vel saman
Vísindi og samfélga
Hermundur Sigmundsson hs@nu.is
Viðar Halldórsson
Hermundur er prófessor við Háskólann
í Reykjavík og Norska tækni- og vís-
indaháskólann í Þrándheimi og Viðar er
prófessor við Háskóla Íslands.
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2021
MENNTUN
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum