Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2021, Side 29
Hann er með vindinn í fangið í lífinu, blessaður karlinn, fyrir utan dóttur- hvarfið er hann atvinnulaus og sam- bandið sem hann er í stendur á brauðfótum enda Nelly ekki þessi dæmigerða fyrirmyndarfyrirvinna. Þá virðist hann vera meira upp á kvenhöndina en mönnum er hollt þegar þeir eru að mynda sig við að vera í föstum samböndum. Litríkur vinahópur Vinahópurinn í bæjarblokkunum í Lundúnum er býsna litríkur; þar má finna klæðskipting sem býr að miklu jafnaðargeði, hundtryggan fíkni- efnasala sem lítur upp til Nellys og myndi gera allt fyrir hann og svo dæmdan kynferðisglæpamann sem á von á sínu fyrsta barni, dóttur, með ástkonu sinni. Ástkonan er á hinn bóginn með böggum hildar fyr- ir þær sakir að hún var aðeins þrett- án ára þegar þau byrjuðu saman, hann 22 ára. Umræða sem aug- ljóslega hefur verið frestað en þarf nú nauðsynlega að fara fram. Hvað ef maðurinn fer að sýna dóttur sinni óvenjulegan áhuga? Getur hún treyst honum? Hafði ást hans á henni sjálfri ekkert með barnagirnd að gera? Ýmsu er ósvarað og Nelly reglulega fenginn til að slökkva elda. Svo er það barnsmóðirin, henni er augljóslega enn þá hlýtt til Nellys enda þótt hún hafi kynnst vel stæð- um manni og búi við allsnægtir í stóru einbýli fjarri angist og brauð- striti bæjarblokkanna. Við allt þetta bætist unglings- stúlka sem Nelly finnur við leitina að dóttur sinni og bjargar úr klóm níð- inga. Örlög hennar hafa verið grimm og hann óttast að aðstæður dóttur hans séu síst skárri. Svo finnst einn níðingurinn myrtur og hvorki stúlk- an né Nelly hafa fjarvistarsönnun. Jæja, látum það duga. Það eina sem er verra en að segja of lítið er að segja of mikið. Þið getið sjálf leitað uppi Save Me Too, eins og sería 2 kallast, ef áhugi hefur vaknað. Önnur dóttir hverfur Nelly Rowe er ekki eini maðurinn í æðisgenginni leit að týndri dóttur sinni í sjónvarpi um þessar mundir. Um jólin sá ég danska þætti í sarpi Ríkissjónvarpsins sem heita DNA. Söguhetjan þar er lögreglumað- urinn Rolf Larsen sem verður fyrir þeirri ógæfu að barnung dóttir hans hverfur um borð í ferju meðan hann rétt lítur af henni á dekkinu til þess að kalla á Eyjólf, eins og hendir menn gjarnan í haugasjó. Lögreglan rannsakar málið og telur stúlkuna af en Rolf er á öðru máli. Hann er ekki í minnsta vafa um að henni hafi verið rænt. Hefst þá leitin og sögunni vindur að mestu fram nokkrum ár- um síðar, þegar Rolf er skilinn við barnsmóður sína, fluttur út á land og aðeins skugginn af sjálfum sér. Ekk- ert kemst að nema að finna dótt- urina. Ýmis ljón eru á veginum og Rolf ítrekað hvattur til að láta gott heita, meðal annars af barnsmóður sinni sem er þess sinnis að frekari leit leiði bara til enn meiri sársauka. Til að bæta gráu ofan á svart þá er hún komin með nýjan mann og á von á barni með honum. Rolf var sjálfur að rannsaka hvarf á ungri stúlku þegar ógæfan sótti hann heim og heldur áfram að skoða það mál meðfram öðrum störfum í þeirri veiku von að það tengist með einhverjum hætti hvarfi dóttur hans. Færist allur í aukana þegar hann kemst fyrir tilviljun að því að pottur virðist vera brotinn í DNA- gagnagrunni lögreglunnar í Kaup- mannahöfn. Þar á hann vini sem hann fær til að líta betur á málið. Og skyndilega fer boltinn að rúlla. Leikar berast til Frakklands og dönsku lögreglunni berst liðsauki þaðan í formi hinnar reynslumiklu rannsóknarlögreglukonu Claire Bobain sem vill að Rolf hætti einka- rannsóknum og haldi sig við efnið. Teygir anga sína til Póllands Málið teygir líka anga sína til Pól- lands, þar sem hliðarsaga er sögð af ungri stúlku, Julitu, sem missir unn- usta sinn í bílslysi meðan hún er ólétt af þeirra fyrsta barni. Hún vill eiga barnið og halda því enda þung- unarrof ekki vel séð í Póllandi. Kerf- ið hefur þó aðrar hugmyndir og skjólið sem hún telur sig hafa fundið í nálægu nunnuklaustri er ef til vill ekki svo mikið skjól. Þessar tvær sögur hljóta á end- anum að skarast, eða hvað? Og fái Rolf svar er hann þá tilbúinn að sætta sig við niðurstöðuna? Nelly Rowe í úlpunni góðu ásamt barnsmóður sinni, Claire McGory, í Save Me Too. Sky Vision 17.1. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 RESOURCE SENIOR ACTIVE MÁLTÍÐ Í FLÖSKU Senior Activ drykkirnir frá Nestlé eru sérstaklega orku- og próteinríkir næringardrykkir sem eru sérhannaðir fyrir eldra fólk. fastus.is/naering Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is VEIKINDI Ástralska leikkonan Nicole Kidman viðurkennir að það hafi tekið verulega á, bæði andlega og líkamlega, að leika í spennuþáttunum The Undo- ing, sem Stöð 2 sýndi fyrir skemmstu. Þar leikur hún eiginkonu manns sem grunaður er um morð. „Ég lagðist í rúmið í heila viku vegna þess að ónæmiskerfið þekkir ekki muninn á veruleikanum og leiklist meðan á þessu stendur,“ sagði Kidman í hlaðvarpsþætti Marcs Marons vestur í Banda- ríkjunum. Lagðist í rúmið í miðjum tökum BÓKSALA 6.-12. JANÚAR Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Lífsbiblían Alda Karen Hjaltalín og Silja Björk Björnsdóttir 2 Yfir höfin Isabel Allende 3 Ungfrú Ísland Auður Ava Ólafsdóttir 4 Ný tölfræði fyrir framhaldsskóla Björn Einar Árnason 5 Bókmenntir í nýju landi Ármann Jakobsson 6 Almanak fyrir Ísland 2021 7 Ormurinn langi Bragi Halldórsson 8 Borðum betur Rafn Franklín Johnson Hrafnsson 9 Grunnteikning 2 10 Brúðarkjóllinn Pierre Lemaitre 1 Syngdu með Láru og Ljónsa Birgitta Haukdal 2 Dagbók Kidda klaufa 13 – snjóstríðið Jeff Kinney 3 Öflugir strákar Bjarni Fritzson 4 Dísa ljósálfur G.T. Rotman 5 Freyju saga – múrinn Sif Sigmarsdóttir 6 Depill – hvaða hljóð er þetta? Eric Hill 7 E.T. 8 Draugaslóð Kristín Helga Gunnarsdóttir 9 Benjamín dúfa Friðrik Erlingsson 10 Binna B. Bjarna – flöskuskeytið Sally Rippin Allar bækur Barnabækur Ég er í afar skemmtilegum les- hring sem kallar sig „Blaðsíð- urnar“ og hef notið þess að ræða um bækur í þessum ágæta félagsskap. Það er gaman að lesa góðar bækur en enn þá skemmtilegra að taka þátt í um- ræðum um þær, en ólíkt því sem margir halda þá er lestur félagsleg athöfn. Enginn les eða upplifir bækur á sama hátt og annar. Því er svo gaman þegar einhver kemur með aðra sýn og varpar ljósi á eitthvað sem maður tók ekki eftir sjálfur. Bókin sem heillaði mig mest á síðasta ári var Sum- arbók Tove Jansson sem segir frá Soffíu og ömmu gömlu sem bæði verndar hana, leikur við hana og spjallar um allt milli himins og jarðar, en mest um náttúruna t.d. hvernig það er að vera maðkur og hvað gerist þegar hann er höggvinn í tvennt með skóflu. Amman fylgist með Soffíu þegar hún gerir mistök og sér hana læra og þroskast. Ljúf og falleg bók. Bókin sem hafði mest áhrif á mig var Dyrnar eftir Magda Szabo í frá- bærri þýðingu Guðrúnar Hannes- dóttur. Þar segir af Emerönsu, sterkri, stoltri konu sem „þvær ekki þvottinn af hverjum sem er“, konu sem þeir sem vilja ráða í þjónustu sína þurfa að senda inn umsókn til hennar. Það gera ein- mitt rithöfundahjón og hún fer að vinna fyrir þau sem húshjálp. Smám saman verður líf hennar samtvinnað þeirra og lesandinn fær að vita meira um ævi og líf hennar á bak við luktar dyrnar. Áhrifamikil bók um stórar til- finningar. Þá hlakka ég einna mest til að lesa síðustu söguna í bóka- flokknum „Seven sisters“ eftir Lucinda Riley sem fjallar enn sem komið er um sex systur sem Pa Salt tekur í fóstur. Þegar hann deyr skilur hann eftir vís- bendingar um uppruna þeirra og þær fara hver af annarri að leita ættingja sinna og bakgrunns, til Rio, Nýja- Sjálands, Frakklands og fleiri landa. Þeirri leit eru gerð skil í einni bók fyrir hverja þeirra. En spurningin er hvort sjöunda systirin er til og af hverju var hún þá ekki alin upp með hin- um? Svarið verður væntanlega í sjöundu bókinni sem ætlað er að koma út vorið 2021. HRAFNHILDUR HREINSD. ER AÐ LESA „Þvær ekki þvottinn af hverjum sem er“ Hrafnhildur Hreinsdóttir er upplýsinga- fræðingur. AFP Nicole Kidman jafnaði sig að lokum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.