Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íþróttavöruverslunin Sport 24 Out-
let verður opnuð á Smáratorgi á
laugardag. Með því verða Sport 24-
verslanirnar á Íslandi fjórar.
Ævar Sveinsson, stofnandi og eig-
andi verslunarinnar, segir hana
njóta góðs af samstarfi við dönsku
Sport 24-keðjuna. Það tryggi aðgang
að samkaupum sem skili íslenskum
neytendum lægra verði. Danska
keðjan hafi 186 Sport 24-verslanir í
Danmörku og þar með talið 44 Sport
24 Outlet-verslanir.
Fyrir voru þrjár Sport 24-versl-
anir á Íslandi en þær eru í Miðhrauni
í Garðabæ, í Reykjanesbæ og á
Akureyri en síðastnefnda verslunin
er rekin með sérleyfissamningi.
Nærri þrjátíu ára reynsla
Ævar hóf störf hjá heildsölunni
Austurbakka árið 1994 en hún seldi
meðal annars vörur frá Nike.
„Það eru ekki margir sem hafa
haft meira úthald í þessu,“ segir
Ævar um fyrstu skrefin.
Árið 1999 stofnaði hann svo heild-
sölu með íþróttavörur sem þróaðist
út í heildsöluna Dansport árið 2003.
Það var svo um haustið 2018 að
Ævar opnaði Sport 24-verslun í
Sundaborg í Reykjavík.
„Við komum úr heildsölugeiranum
og vorum að dreifa vörum í aðrar
verslanir á Íslandi. Svo þegar versl-
unum Intersport var lokað [sumarið
2017] myndaðist svigrúm á mark-
aðnum. Við höfðum verið í samstarfi
við eitt af félögunum sem Sport 24
eiga í Danmörku og ákváðum að
grípa tækifærið. Við vildum þó hafa
vaðið fyrir neðan okkur og prófa alla
ferlana hjá Sport 24 áður en við fær-
um út í stærri fjárfestingar.
Um ári síðar opnuðum við svo 800
fermetra verslun í Miðhrauni með
öllu því nýjasta og flottasta frá Adi-
das, Nike og fleiri framleiðendum.“
Keyptu verslun í Keflavík
Næsta skref var að kaupa íþrótta-
verslunina K-sport í Keflavík í mars
2020, í upphafi kórónuveirufarald-
ursins, og varð hún Sport 24-verslun.
„Síðan tókum við þá ákvörðun að
breyta Sport 24-versluninni í
Sundaborg í Sport 24 Outlet verslun
og var hún í rekstri fram í janúar er
henni var lokað,“ segir Ævar.
En verslunin á Akureyri er sem
áður segir rekin með sérleyfissamn-
ingi, nánar tiltekið við Dansport.
Nýja verslunin á Smáratorgi
verður stærri útgáfa af slíkri Outlet-
verslun og með meira vöruúrvali.
Að sögn Ævars er Sport 24 lang-
stærsti söluaðili á íþróttafatnaði í
Danmörku en fyrirtækið reki keðjur
undir ýmsum nöfnum. Með sam-
starfinu við fyrirtækið geti Dans-
port gert hagstæðari innkaup með
aðgangi að víðara innkaupaneti.
Outlet-verslunin á Smáratorgi
verði afsláttarverslun sem verði
stöðugt með tilboðsverð í gangi.
Sport 24 í Danmörku er með net-
verslunina Sport24.dk.
Önnuðu ekki eftirspurn
Spurður hvort til greina komi að
opna netverslun segir Ævar að
Sport 24 á Íslandi hafi opnað
netverslun í október síðastliðnum.
„Eftirspurnin var slík að við áttum
ekki vörur til að afgreiða allar pant-
anir. Nóvember var ótrúlegur mán-
uður í netverslun. Við urðum að taka
ákvörðun um hvort við ætluðum að
þjónusta viðskiptavini á netinu eða í
verslunum og völdum síðarnefnda
kostinn í bili. Við ætlum að opna net-
verslunina aftur og erum raunar
byrjuð að panta vörur,“ segir Ævar.
Hann segir söluna hjá Sport 24
hafa aukist í faraldrinum. Ein skýr-
ingin sé að fólk hafi ekki komist í
verslunarferðir til útlanda og margir
þannig uppgötvað íslensku verslan-
irnar. „Við höfum fengið til okkar
fólk sem hefur haft á orði að vörurn-
ar séu á svipuðu verði og í Banda-
ríkjunum,“ segir Ævar.
Þessi aukna sala hafi skilað því að
veltan fór í tæpan milljarð 2020. Með
því séu Sport 24-verslanirnar orðnar
með stærri söluaðilum á íþrótta-
vörum á Íslandi. Spurður um breyt-
ingar á markaðnum síðan hann hóf
störf hjá Austurbakka 1994 segir
Ævar að nú sé íþróttafatnaður orð-
inn hversdagsfatnaður. „Fyrir 10-15
árum var til dæmis ekki horft á 60
ára og eldri sem kaupendahóp en
hann er gríðarlega sterkur kaup-
endahópur í dag,“ segir Ævar.
Sport 24-verslanirnar veltu
tæpum milljarði árið 2020
Ný verslun á Smáratorgi Fyrirtækið orðið eitt það stærsta á markaðnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á Smáratorgi Frá vinstri: Hjónin Ævar Sveinsson og Berglind Þóra Stein-
arsdóttir, eigendur Sport 24, og Júlíus Óskar Ólafsson framkvæmdastjóri.
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Thomas Möller, fulltrúi Viðreisnar í
stjórn Póstsins, segir að gjaldskrár-
breyting Póstsins, sem gerir ráð fyr-
ir sama verði í pakkasendingum und-
ir 10 kg úti á land, eins og er á
höfuðborgarsvæðinu, sé andstæð
stefnu Viðreisnar enda skaði gjald-
skrárbreytingin augljóslega sam-
keppnisstöðu einkarekinna fyrir-
tækja á landsbyggðinni.
Eins og fram kom í samtali Morg-
unblaðsins við Andrés Magnússon,
framkvæmdastjóra Samtaka versl-
unar og þjónustu, grefur gjaldskrá
Íslandspósts undan samkeppni
vegna undirverðlagningar póstsend-
inga út á land, en samtökin gæta
m.a. hagsmuna flutningafyrirtækja.
Í dæmi sem Andrés nefndi í
blaðinu kostaði aðeins 800 krónur að
senda helluborð frá Reykjavík til
Víkur í Mýrdal enda er það undir 10
kílóum. Á höfuðborgarsvæðinu sé
hins vegar algengt að það kosti
a.m.k. fimm þúsund krónur að fá raf-
tæki send heim, að sögn Andrésar.
Styrkir höfuðborgarsvæði
Að auki sagði Andrés að niður-
greiðslurnar styrktu samkeppnis-
stöðu verslana á höfuðborgarsvæð-
inu á kostnað verslana úti á landi,
sem veiki rekstrarforsendur þeirra
síðarnefndu. Benti Andrés á máli
sínu til stuðnings að þrátt fyrir met-
fjölda pantana hjá netverslunum í
nóvember sl. hefði einkafyrirtækjum
á flutningamarkaði gengið illa að fá
viðskipti úti á landi.
Samkvæmt lögum ber Póstinum
að sinna alþjónustu á sendingum
undir 10 kg, en á sama tíma að vera
með sama verð um allt land. Varð
þetta til þess að verð á landsbyggð-
inni var lækkað niður í það sem það
var á höfuðborgarsvæðinu og þar
með langt undir samkeppnisverð hjá
samkeppnisaðilum. Það þýðir að um
ólöglegt undirboð er að ræða að mati
SVÞ.
„Gjaldskrárbreyting Póstsins er
andstæð stefnu Viðreisnar enda er-
um við talsmenn einkaframtaks og
samkeppni. Þá styður Viðreisn eig-
endastefnu ríkisins sem segir að rík-
isfyrirtæki ættu að styðja við og efla
samkeppni og að ríkið ætti að draga
úr starfsemi þar sem næg sam-
keppni sé fyrir á markaðnum,“ segir
Thomas Möller.
Stjórnin ekki samþykkt
Samkvæmt samþykktum Póstsins
ber stjórn félagsins að samþykkja
gjaldskrárbreytingar, en komið hef-
ur fram í umfjöllun Viðskiptablaðs-
ins um málið að ekki sé að sjá af
fundargerðum stjórnar að stjórnin
hafi samþykkt gjaldskrána.
Morgunblaðið hafði samband við
aðra stjórnarmenn í Póstinum, en
þeir vísuðu á Bjarna Jónsson stjórn-
arformann, sem ekki svaraði spurn-
ingum blaðsins í gær.
Andstæð stefnu flokksins
Thomas Möller segir gjaldskrárbreytingu Póstsins aug-
ljóslega skaða samkeppnisstöðu fyrirtækja á landsbyggðinni
Morgunblaðið/Hari
Samkeppni Samtök verslunar og þjónustu segja að Pósturinn grafi undan
samkeppni vegna undirverðlagningar póstsendinga út á land.
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Amerísk heimilistæki
rafvorur.isRAFVÖRUR ehf
Þvottavélar
og þurrkarar
sem taka
10-17 kg
Erlendir ferðaheildsalar hafa vax-
andi trú á Íslandi og íslenskri ferða-
þjónustu samkvæmt nýrri könnun.
Frá þessu er sagt í frétt á vef Ís-
landsstofu.
Í könnuninni er mæld svokölluð
meðmælatryggð en hugtakið metur
samspil þeirra sem mæla með
ferðalögum til Íslands og þeirra
sem gera það ekki. „Meðmæla-
tryggð áfangastaðarins hefur aldr-
ei mælst hærri en nú,“ segir í frétt-
inni. Könnunin er gerð tvisvar á
ári.
Öryggi hefur áhrif
Einnig kemur fram að þættir eins
og öryggi, viðbrögð stjórnvalda við
Covid-19-heimsfaraldrinum, lág
tíðni smita og sjálfbærni hafa áhrif.
„Niðurstöður könnunarinnar
gefa góð fyrirheit um endur-
uppbyggingu greinarinnar þegar
faraldrinum lýkur. Við verðum þó
að vera raunsæ og væntingar um
bókanir í upphafi árs eru töluvert
neikvæðari en við höfum séð í fyrri
könnunum,“ segir Sigríður Dögg
Guðmundsdóttir, fagstjóri ferða-
þjónustu hjá Íslandsstofu, í frétt-
inni.
„Það er ljóst að við þurfum að
sýna þolinmæði. Það er þó áhuga-
vert að sjá að meirihluti þátttak-
enda í könnuninni telur að bókanir
á ferðum til Íslands taki við sér
strax á fyrri hluta ársins og verði
orðnar álíka margar á næsta ári og
þær voru áður en landamærin lok-
uðust.“
Nærmarkaðir fyrstir
Könnunin bendir til þess að nær-
markaðir, Norðurlönd, Mið- og
Suður-Evrópa og Bretland verði
fyrstir til að taka við sér sem er í
samræmi við áætlanir Íslandsstofu,
samkvæmt fréttinni. „Þessar nið-
urstöður eru í takt við áherslur í
markaðsverkefninu Saman í sókn.
Við fylgjumst að sjálfsögðu vel með
þróuninni á okkar helstu markaðs-
svæðum og lögum aðgerðir að
breytingum sem kunna að verða,“
segir Sigríður Dögg að lokum.
Túristar Bókanir munu taka við sér.
Vaxandi trú
ferðaheild-
sala á Íslandi
5. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.94
Sterlingspund 177.09
Kanadadalur 101.56
Dönsk króna 20.988
Norsk króna 15.078
Sænsk króna 15.409
Svissn. franki 144.51
Japanskt jen 1.2368
SDR 186.46
Evra 156.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.1238
Hrávöruverð
Gull 1834.7 ($/únsa)
Ál 1958.0 ($/tonn) LME
Hráolía 57.85 ($/fatið) Brent