Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 36

Morgunblaðið - 05.02.2021, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 SÉRBLAÐ SMARTLANDS BLAÐIÐ Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fjallað verður um tískuna 2021 í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, heilsu, dekur o.fl. Tónverkið „Landvættirnar fjórar“ eftir Guðmund Stein Gunnarsson verður frumflutt á morgun, 6. febr- úar, og aftur 7. og 10. febrúar af kammersveitinni Steinöldu í Mengi við Óðinsgötu. „Tónverkið hefur verið lengi í smíðum og tengist höfuðskepnunum fjórum í sínum ýmsu birtingarmyndum, einkum og sér í lagi landvættunum en einnig líkamsvessunum fjórum, erkitýpum Jung o.s.frv. Ritdeilur prests og van- trúarmanns um uppruna landvætt- anna beindu athygli tónskáldsins að því hversu margir vildu í rauninni gera tilkall til landvættanna og skil- greina þá eftir sínu höfði þó svo merking þeirra, uppruni og tilvist sé leyndardómur,“ segir í tilkynningu. Verkið er yfir klukkustund að lengd og í 12 þáttum fyrir sex hljóðfæra- leikara. Megnið af tónlistarfólkinu í kammersveitinni hefur starfað áður með Guðmundi í tónlistarhópum á borð við Ferstein, Fengjastrút, Caput og Kammersveitina Elju og að þessu sinni er kammersveitin Steinalda skipuð Andrési Þorvarð- arsyni, Ásthildi Ákadóttur, Óskari Magnússyni, Páli Ivan frá Eiðum, Steinunni Völu Pálsdóttur og Þór- unni Björnsdóttur. „Um er að ræða einstakan viðburð sem er nokkuð sér á báti – fólki er boðið inn í einstakan heim þar sem er mikil nánd við áheyrendur. Er þetta umfangsmikil tilraunatónsmíð eða verður þetta lagasafn með ein- hverju því aðgengilegasta sem höf- undurinn hefur ritað? Verkið er nokkurs konar seiður sem teygir anga sína í höfuðáttirnar fjórar og mun enduróma í ýmsum lands- hlutum (fylgist með!),“ segir einnig í tilkynningu og að verkefnið hafi not- ið stuðnings úr Tónlistarsjóði menntamálaráðuneytis, átakssjóði sama tónlistarsjóðs og úr Starfs- launasjóði listamanna. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Tónskáld Guðmundur S. Gunnarsson, höfundur Landvættanna fjögurra. Nýtt tónverk eftir Guðmund frumflutt Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á nýrri plötu tónskáldsins Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur, Kom vinur, sem bandaríska útgáfan Sono Luminus gefur út, eru tvö kórverk eftir Maríu samin við ljóð eftir Vil- borgu Dagbjartsdóttur skáld sem varð níræð á liðnu ári. Verkin tvö, „Kom vinur“ og „Maríuljóð“, eru flutt af Schola Cantorum undir stjórn Harðar Áskelssonar en upp- tökunum, sem fóru fram í Hall- grímskirkju í haust sem leið, stýrði Kjartan Sveinsson. Mörg fyrri verka Maríu hafa áður verið gefin út í útgáfum á vegum Sono Luminus. Þar má nefna „Oceans“ sem samið var fyrir og flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Daníels Bjarnasonar á plötunni Concurrence sem á dög- unum hlaut tilnefningu til Grammy- verðlauna. Auk þess að vera mikil- virk við tónsmíðar sínar hefur María Huld um langt árabil starfað með hljómsveitinni Amiinu. María Huld segir rætur þessara tveggja kórverka liggja til þess tíma er hún var staðartónskáld Sumar- tónleika í Skálholti 2017. „Ég fékk þá það verkefni að semja kórverk fyrir Hljómeyki og byrjaði á að leita að heppilegum texta að semja við. Ég las fyrst ljóðasafn Vilborgar og valdi að semja verk við ljóð hennar „Kom vinur“. Ég breytti því svo að- eins fyrir þessa útgáfu núna en þetta er samt sama verkið,“ segir hún. „Mér fannst margt í vinnuferlinu við að semja kórverkið vera heillandi og það kveikti í mér að halda áfram svo ég samdi við annað ljóð Vilborgar, „Maríuljóð“. Ég naut þess í senn að kafa í innihald ljóðanna og vinna með innri ryþma þeirra. Mér fannst þetta bæði gam- an og gefandi og það myndaðist tenging við orðin sem mér þótti vænt um – og það er líklega ástæða þess að ég gef lögin út núna svona tvö ein. Mig langaði með útgáfunni að skila einhverju til baka til Vil- borgar og hylla hana. Hún átti stór- afmæli á síðasta ári og mig langaði að þakka henni fyrir innblásturinn.“ Ýtir undir hughrif Í kórverkunum er í senn höfugur og blíður andi. Þegar María Huld er spurð um aðferð sína við að semja fyrir kór, þá segist hún ekki hafa mætt ljóðum Vilborgar með neinum fyrirframgefnum hugmyndum. „Ég reyndi að láta textann stjórna mér og ráða ferðinni. Mér fannst ég vera auðmjúkur þjónn ljóðanna. Strax við lestur „Kom vinur“ hreifst ég af andrýminu í því hvern- ig línurnar eru settar upp og ég fylgdi því í tónlistinni; reyndi að gefa í tónlistinni gott rými fyrir hugsunina í þessum stóru og oft mögnuðu línum. Mig langaði að ýta undir þau hughrif sem ég fann fyrir í ljóðlínunum, og vera með einhvers konar músíkalskt stækkunargler á ljóðið. „Maríuljóð“ er örlítið öðruvísi, í því tilfelli fannst mér vera mikil heiðríkja og hálfgerð lotning barns fyrir undrum náttúrunnar og heims- ins. Og mig langaði að draga þá stemningu fram.“ Þegar María Huld er spurð að því hver sé meginmunurinn á því að semja verk fyrir annars vegar hljóð- færasamsetningu og hins vegar kór, þá segir hún að í tilfelli þessara kór- laga finnist henni hún hafa verið í „einhvers konar þjónustuhlutverki. Mér finnst eins og ég væri næstum því að spila dúett með ljóðskáldinu. Og það var falleg samvinna sem dró fókusinn frá einstaklings-egóinu í eitthvað kollektíft.“ Hún bætir við að hér á landi sé mikil og ríkuleg kórahefð en þegar tónskáld hafi samið kórlög hafi þau iðulega verið eins og utan við ramma annarra verka sem þau hafa samið. „Svo er annað þessara laga minna samið við Maríuljóð en hér hafa ófá gullfalleg lög verið samin við Mar- íukvæði. Til dæmis af Þorkeli Sigur- björnssyni og Atla Heimi. Þeir sömdu þau samtímis og þeir sömdu allt annars konar tónlist fyrir hljóð- færi.“ Með „fullkomnunaráráttu“ María Huld hrósar mjög sam- starfinu við Schola Cantorum og Hörð Áskelsson. „Það eru forréttindi að eiga hér á landi kór af þessum gæðum. Þar er svo gaman að finna að kórinn og stjórnandinn skilja og skynja hugs- anirnar að baki í verkunum og það þarf ekkert að orða það. Allt situr rétt og galdrarnir eru leystir úr læðingi við flutninginn. Það var magnað að fá að vinna með þeim – og það þurfti bara eina tveggja tíma upptökusessjón eftir nokkrar æfing- ar og allir voru á sömu blaðsíðu.“ María Huld söng sjálf í kór í menntaskóla, hjá Jóni Stefánssyni, og segist búa að því þegar hún nú semur sína kórtónlist því nokkur at- riði verði að hafa í huga við að semja fyrir kór, til þess að það hljómi vel. „Til dæmis að hafa gott bil á milli radda, ekki of mikil stökk og vita hvar raddirnar hljómi best. Það er svo miklu auðveldara að syngja verk sem liggja vel fyrir raddirnar, þá flæðir vel og er hægt að leysa tón- listina úr læðingi.“ Þegar hún er spurð um einkenni sín sem tónskálds, segist María Huld hafa sterka fagurfræðilega til- finningu, til að mynda fyrir hlut- föllum. „Og ég held að hún skíni eins í gegn í kórtónlistinni og hljóm- sveitartónlist. Mér finnst eitthvað þurfa að ganga upp, í hlutföllum sem og í orku eða tónhæð, allt vera á réttum stað. Ætli ég geti ekki viðurkennt að ég þjáist af rosalegri fullkomnunaráráttu,“ segir hún og hlær. Er það ekki jákvætt? „Örugglega ef horft er á útkom- una en getur verið erfitt í ferlinu,“ svarar hún. „Þótt þessi kórlög séu til að mynda lítil í sniðum þá meitl- aði ég þau og slípaði lengi, var með fínasta sandpappírinn á þeim þang- að til allt var komið á réttan stað. Þetta eru því stór lítil lög.“ Að lokum minnist María Huld á mikilvægi þess að geta komið nýrri tónlist á framfæri við heiminn fyrir tilstilli útgáfu eins og Sono Lum- inus. „Í fyrsta lagi lifnar verk ekki fyrr en búið er að flytja það og svo má segja að það lifi ekki fyrr en það hefur verið hljóðritað og gefið út. Þá skiptir máli og hjálpar að hafa svona góða dreifingu erlendis. Mér fannst líka mikilvægt að hafa þýðingu á ljóðum Vilborgar með í útgáfunni, svo erlendir hlustendur geti áttað sig á inntakinu í þessum fallegu ljóðum,“ segir María Huld. Ljósmynd/Lilja Birgisdóttir Tónskáldið María Huld fylgist hér með upptökunum á verkum sínum í Hallgrímskirkju. „Allt situr rétt og galdr- arnir eru leystir úr læðingi við flutninginn“ – þannig lýsir hún söng Schola Cantorum sem flytur verkin hennar. Eins og að spila dúett með skáldinu  Tvö kórlög Maríu Huldar Markan Sigfúsdóttur við ljóð eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur hafa verið gefin út af Sono Luminus  Flutt af Schola Cantorum  „Fannst ég vera auðmjúkur þjónn ljóðanna“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.