Morgunblaðið - 05.02.2021, Side 32

Morgunblaðið - 05.02.2021, Side 32
32 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 60 ára Einar er Akur- eyringur og býr í Inn- bænum. Hann er vél- virki frá Skipasmíða- stöðinni á Akureyri og ullarrekstrarfræðingur frá Huddersfield Poly- tehnic. Einar er versl- unarstjóri hjá N1 á Akureyri. Hann er ann- álaður KA-maður og hefur tekið tíu Vasagöngur í röð, þá síðustu í fyrra, og mörg utanvegahlaup, m.a. 250 km hlaup. Börn: Gísli, f. 1982, Erla, f. 1985, og Einar Ólafur, f. 1993. Barnabörn eru Askur, f. 2010, sonur Gísla, og óskírð, f. 30.1. 2021, dóttir Erlu. Foreldrar: Gísli Eyland, f. 1926, d. 2018, stöðvarstjóri Pósts og síma á Akureyri, og Dóróthea Júlía Eyland, f. 1929, fyrrverandi skrifstofukona, búsett á Akureyri. Einar Eyland Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þér finnst eins og einhverjir vilji leggja stein í götu þína. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skiptir máli. 20. apríl - 20. maí  Naut Maður getur lesið sér til um fjármál til þess að firra sig vandræðum og fylgt ráðum leiðbeinanda hvað varðar ný atvinnutæki- færi. Þú færð óvænta heimsókn í kvöld. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Sambönd lenda í prófraun. Gerðu eitthvað nýtt og spennandi og reyndu þann- ig að gæða líf þitt ævintýraljóma. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Breyting á hugsunarhætti gerir þér kleift að ná skjótari árangri í einkalífi og fjár- málum. Lífgaðu upp á vinnustað þinn og sýndu samstarfsmönnum samkennd þannig að þeir viti hug þinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þessa dagana kemur í ljós hversu mik- ið þú kannt að meta fallega hluti. Láttu draumana rætast. Reyndu að velja þá úr sem þurfa á hjálp þinni að halda. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Hafðu varann á og gættu þess að persónulegar upplýsingar um þig komist ekki á allra vitorð í dag. Leggðu þitt af mörk- um til að bæta umhverfi þitt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt þér leiðist lognið til lengdar skaltu ekki grípa til einhverra örþrifaráða. Hertu upp hugann því nú hefurðu allt að vinna og engu að tapa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Rifrildi við maka og fjölskyldu eru líkleg í dag. Leitaðu orsaka þeirra hjá sjálfum þér og greiddu svo úr hlutunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú mátt ekki hafa svo miklar áhyggjur af framtíðinni að þú getir ekki tek- ist á við nútíðina. Ef þú hinkrar í einn eða tvo daga fara hlutirnir eins og þú vilt að þeir fari. 22. des. - 19. janúar Steingeit Búðu þig undir hið óvænta. Láttu aðra ekki draga úr þér kjarkinn til að sinna áhugamáli þínu af ákefð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Á degi sem þessum er gott að staldra við og líta fram á veg. Leitaðu leiða til að bæta aðstæður fjölskyldu þinnar með einhverjum hætti. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur unnið vel að undanförnu og mátt vera ánægður með sjálfan þig. Farðu varlega og sýndu fólkinu í kringum þig sér- staka þolinmæði. Ó lafur Sindri Helgason fæddist 5. febrúar 1981 í Reykjavík og ólst að mestu upp í Hólahverf- inu í Efra-Breiðholti en flestum sumrum varði hann hjá föður sínum og stjúpmóður í Svíþjóð. Hann gekk í Hólabrekkuskóla með viðkomu í Vesturbæjarskóla og lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykja- vík. Sindri stundaði nám í eðlisfræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk BSc-gráðu í greininni við Háskóla Ís- lands og síðar meistaragráðu í hag- fræði við sama háskóla. Síðar hefur hann stundað framhaldsnám við Uni- versity of London á sviði fjármála og efnahagsstefnu og sótt fjölmörg starfstengd, sérhæfð námskeið. „Ég hef ávallt haft mikinn áhuga á tölfræði og gerð líkana til þess að reyna að skilja þau kerfi sem við lifum og hrærumst í og þá krafta sem eru að verki. Því lá hagfræðin í raun nokkuð beint við eftir eðlisfræðina. Ég hef einkum helgað mig störfum í opinbera geiranum enda er þar að finna mjög áhugaverð störf fyrir hag- fræðinga að mínu mati. Þar gefst manni tækifæri á að koma að stefnu- mörkun í mikilvægum málum sem snerta okkur öll.“ Á árunum fyrir hrun og fram til 2012 starfaði Sindri sem ráðgjafi og sérfræðingur í viðskiptagreind og gagnagreiningum, síðast hjá Actavis Group, en árið 2012 hóf hann störf hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu á skrifstofu opinberra fjármála við fjár- lagagerð og greiningar á ríkisfjár- málum. Þaðan fór hann svo yfir í Seðlabankann. „Ég tók við starfi í rannsóknar- og spádeild bankans á sviði hagfræði og peningastefnu, en hugur minn hafði alltaf leitað meira til rannsókna. Þar tók ég við þróun á DSGE-líkani bankans en slík líkön eru eitt helsta verkfæri seðlabanka við greiningar á peningastefnu og spágerð og í raun þjóðhagfræði al- mennt. Hjá Seðlabankanum starfaði ég í rúm fjögur ár við rannsóknir og líkanaþróun þar sem mér gafst tæki- færi á að fara erlendis í stuttar heim- sóknir og fræðast um DSGE-líkön af mörgum helstu sérfræðingum grein- arinnar, m.a. hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum og sænska seðlabankanum. Þetta var lærdómsríkur og skemmti- legur tími en árið 2017 söðlaði ég um og tók við starfi deildarstjóra áhættu- matsdeildar á fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Þar sá ég um fjárhagslegar áhættugreiningar, þró- un aðferða við mat á því sem getur haft veruleg áhrif á fjárhag borgar- innar og fyrirtækja hennar og kom að stefnumótun um áhættustýringu.“ Á miðju ári 2019 var Sindri svo ráð- inn til að taka við hagdeild Íbúðalána- sjóðs sem yfirhagfræðingur og hefur sinnt því starfi síðan en stofnunin hef- ur breytt um nafn eftir sameiningu og heitir nú Húsnæðis- og mannvirkja- stofnun. „Þar sinni ég rannsóknum og greiningum á húsnæðismarkaði ásamt því að miðla upplýsingum til al- mennings um þróun á mörkuðum og tölfræði um húsnæðismál.“ Að sögn Sindra eru áhugamálin fjölmörg og hann er mikill fjöl- skyldumaður. „Bestu stundirnar eru þegar ég fæ góðan tíma til að vera með fjölskyldunni í afslöppuðu um- hverfi og leika við strákana mína en fyrir utan það finnst mér í raun skemmtilegast að lesa og grúska. Ég er afar fróðleiksfús og er yfirleitt með nokkrar bækur í lestri hverju sinni, þá aðallega eitthvað hagfræðitengt eða sagnfræði, einnig nokkur rann- sóknarverkefni. Tungumál og ferða- lög heilla mig líka mikið en frönsku- áhuga fékk ég í beinan legg frá móðurafa mínum sem talaði málið reiprennandi en hann er líklegast mín helsta fyrirmynd. Að auki er ég for- fallinn rauðvínsáhugamaður og hef mér til gamans fjárfest í mörgum eð- alvínum í gegnum tíðina. Tónlist hefur alltaf spilað stórt hlut- verk í mínu lífi og glamra ég á gít- arinn þegar færi gefst og syng auðvit- Ólafur Sindri Helgason, yfirhagfræðingur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar – 40 ára Fjölskyldan Fríða Sigríður, Sigurjón Magni, Jóhann Helgi og Sindri. Reynir að skilja kerfin sem við lifum og hrærumst í Feðgarnir Úti að leika. Afmælisbarnið Sindri í Marokkó. 50 ára Valdi er Reyk- víkingur og býr í Graf- arvogi. Hann er með BA-gráðu í grafíklist frá Listaháskóla Ís- lands og MA-gráðu í „architecture & de- sign“ frá Háskólanum í Álaborg. Valdi vinnur við arkitektúr, ferða- mennsku og í kvikmyndaiðnaðinum. Hann situr í stjórn Hjálparsveitar skáta í Kópa- vogi. Maki: Guðrún Ægisdóttir, f. 1972, land- fræðingur og skrifstofustjóri hjá Carbon Recycling International. Börn: Snævar, f. 2007, og Auður Helga, f. 2008. Foreldrar: Helga Steffensen, f. 1934, brúðuleikari, búsett í Reykjavík, og Hörður Eiríksson, f. 1928, d. 2009, flugvélstjóri. Valdimar Harðarson Steffensen Til hamingju með daginn Hafnarfjörður Edda Kristín Magnúsdóttir fædd- ist 6. september 2020 kl. 8.43. Hún vó 3.940 g og var 53,5 cm löng. Foreldrar hennar eru Magnús Torfi Ólafsson og Ólafía Erlendsdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.