Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Ath. Grímuskylda er á uppboðum Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Berjarimi 22, Reykjavík, fnr. 203-9947, þingl. eig. Arnar Þór Helga- son, gerðarbeiðendur Reykjavíkurborg, Landsbankinn hf., TM hf. og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., þriðjudaginn 9. febrúar nk. kl. 10:00. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu 4. febrúar 2021 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Zumba Gold kl. 10.30, pláss fyrir fleiri. BINGÓ kl. 13.30-14.30, spjaldið kostar 250 kr. Kaffi kl.14.30. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafnframt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýs- ingar og skráning í síma 411-2701 og 411-2702. Allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16. Stólajóga með Hönnu kl. 9. Opin vinnustofa kl. 9-15. Bókabíllinn kem- ur við Árskóga 6-8 kl. 16.30-17.15. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffi- sala kl. 14.15-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa í síma 411-2600. Boðinn Sundlaugin er opin frá kl. 13.30-16. Línudans kl. 15. Grímu- skylda er í Boðanum og tveggja metra reglan í gildi. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Myndlist með Margréti Z. kl. 9.30. Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Gönguferð um hverfið kl. 10.30 ef færð og veður í lagi. Opið kaffihús kl. 14.30. Vegna sóttvarnaregla biðjum við ykkur að skrá ykkur fyrirfram í alla viðburði hjá okkur í síma 535-2760. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opið frá kl. 8.10-16. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai chi kl. 9-10. Hreyfiþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10. 10-10.40. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30- 15.30. Þátttökuskráning í síma 411-2790 og á skrifstofu. Grímuskylda og fjöldatakmörk miðast við 20 manns. Virðum allar sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og 9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13. Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11. Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa- vinna, opin vinnustofa 9-16. Útvarpsleikfimi kl. 9.45. Bíósýning kl. 13. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum, þrír styrkleikar og gengið inni í Egilshöll. Hannyrðahópur kl. 12.30 skráning liggur frammi í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöð- um kl. 13 í dag, grímuskylda í Borgum og á Korpúlfsstöðum og allar sóttvarnir í hávegum hafðar. 20 manns hámark í hverju rými. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Söngur og gleði kl. 10.45 í salnum á Skólabraut. Virðum 2ja metra regluna, grímunotkun og aðrar almennar sóttvarnir. Vantar þig fagmann? FINNA.is með morgun- nu ✝ Guðný Sigurð-ardóttir fædd- ist í Reykjavík 23. september 1943. Hún lést á heimili sínu í Reykjavík 22. janúar 2021. For- eldrar hennar voru hjónin Sigurður Guðmundsson ljós- myndari, f. 14. ágúst 1900 í Reykjavík, d. 24. desember 1986, og Elínborg Ása Guðbjarnadóttir, f. 5. febrúar 1908 á Flateyri, d. 31. desember 1984. Alsystir Guðnýjar er Sig- ríður, f. 1945. Eiginmaður henn- ar er Hilmar Hjartarson. Þau eiga þrjú börn. Hálfsystir Guð- nýjar var Svanlaug Sigurðar- dóttir, f. 1929, d. 1995. Eig- inmaður hennar var Pétur Hreiðar Sigurjónsson, f. 1926, d. 1994. Þau eignuðust átta börn. Guðný giftist árið 1963 Peter Russel, f. 1938. Þau skildu. Syn- ir þeirra: 1) Bent, f. 1964, sam- býliskona hans er Helga Ingi- björg Reynisdóttir, f. 1963. 2) Rúnar, f. 1965, eiginkona hans er Tuti Ruslaini, f. 1979. Synir hans með fyrri konu sinni Þóru Karlsdóttur, f. 1962, eru; Ari, Logi, f. 1991, og Ylfa Þöll, f. 1993. Dóttir Ylfu, Sonja Björt, f. 2014. 2. Solveig Björk Svein- björnsdóttir, f. 1967. Dóttir hennar og Aðalsteins Leifs- sonar, f. 1967, Helena, f. 1990. Guðný ólst upp í foreldrahús- um í húsinu Sólbakka, sem stóð við Laugalæk í Reykjavík. Hún gekk í Laugarnesskóla og lauk síðar námi við Gagnfræðaskóla verknáms við Brautarholt. Hún útskrifaðist frá Húsmæðraskól- anum á Blönduósi vorið 1961. Hún flutti til Kaupmannahafnar með fyrsta eiginmanni sínum. Eftir skilnað flutti hún til Reykjavíkur, en síðar til Grund- arfjarðar 1972, þar sem hún starfaði við fiskvinnslu hjá Sæ- fangi. Guðný flutti aftur til Reykjavíkur 1995 og hóf störf við heimilishjálp. Haustið 1998 sótti hún námskeið til Danmerk- ur í umönnun daufblindra. Starfaði næstu árin sem að- stoðamaður Jakobínu Þórmóðs- dóttur, sem var daufblind og hreyfihömluð, til 2002, þegar Jakobína lést. Guðný útskrif- aðist í fyrsta hópi félagsliða 2004. Hún starfaði ásamt eig- inmanni sínum í Félagi harm- onikuunnenda í Reykjavík. Guðný verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins í dag klukan 15. Útförinni verður streymt: https://tinyurl.com/kirkjaohada Virkan hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat Daði og Ottó Rún- arssynir, f. 1990. 3) Frank, f. 1966. Syn- ir hans með Sinead Gillespie, f. 1967. Kristófer Gillespie, f. 1990, sem á einn son, Jake Edmund Gillespie, f. 2020, og Pétur Gillespie, f. 1992. Guðný giftist 1971 Ólafi Arnari Ólafssyni, f. 1940, þau skildu. Synir þeirra; 4) Ólafur Björn, f. 1973. Eiginkona hans er Jolanta Glaz, f. 1975. Þeirra dætur, Viktoría Ása, f. 2003, nemi í Keflavík og María Júlía, f. 2010. 5) Þorsteinn Bjarki, f. 1974. Eig- inkona hans Tatiana Malai, f. 1979. Þeirra dætur Elín María, f. 2008, og Linda Rós, f. 2014. Guðný giftist 1997 Friðjóni Hall- grímssyni, f. 1946. Hans dóttir er Helga Kristín, f. 1972. Eig- inmaður hennar er Michael Kline, f. 1965. Sonur Helgu Kristínar, Gabríel Noor, f. 2007. Fósturdætur Friðjóns frá fyrra hjónabandi. 1. Rannveig Þöll Þórsdóttir, f. 1964. Eiginmaður hennar Ólafur Sveinbjörnsson, f. 1961. Þeirra börn. Anton Elsku systir mín er látin. Ég bjóst við að eiga meiri tíma með henni. Við systur áttum góða æsku á Sólbakka við Laugalæk sem þá var hálfgerð sveit. Laugalækur- inn rann meðfram húsinu og stór garður sem var ævintýraheimur okkar systra. Það var gest- kvæmt á heimilinu og við fengum að vera með í lífi og störfum for- eldra okkar. Fjölskyldan var ná- in og okkur fannst gaman að um- gangast börn Hallýjar systur okkar sem átti átta börn sem voru ávallt velkomin. Þau komu við þegar þau fóru í Laugardals- laug og þá bakaði mamma lumm- ur. Oft var mikið hlegið því hún hafði aldrei undan. Foreldrar okkar höfðu unun af því að ferðast. Við fórum í löng ferðalög, til dæmis til Akureyrar, sem á þeim tíma var þriggja daga leiðangur með botnlaust A- tjald og steinolíuprímus. Þá var sungið í bílnum og aldrei verið að flýta sér. Pabbi okkar var ljós- myndari og því fórum við oft á fallega og fjarlæga staði. Við átt- uðum okkur á því seinna hversu mikil forréttindi þetta voru og höfum oft rifjað upp þessi ferða- lög. Guðný var sérlega minnug á ýmis atriði úr bernsku. Þegar hún var um tvítugt fór hún til Danmerkur í lýðháskóla. Þar kynntist hún Dananum Pet- er og eignuðust þau synina Bent, Rúnar og Frank á þremur árum. Þetta var krefjandi tími hjá henni, við skrifuðumst á um áskoranir lífsins. Guðný flutti á Sólbakka þegar hún kom heim með strákana og það var ynd- islegt að fá að vera með í þeirra lífi. Guðný giftist Óla Storm, eins og hann er kallaður, og fluttust þau til Grundarfjarðar. Hún varð vinmörg, vann og naut lífsins, var virk í því góða samfélagi Grundarfirði. Þar eignaðist hún yngstu synina tvo, Óla og Bjarka. Alla tíð höfum við notið þess að fylgjast með börnum hvor annarrar, og barnabörnum, og taka þátt í stórum stundum lífsins. Guðný stóð alltaf með sínu fólki en líka þeim er minna máttu sín og tók málstað þeirra. Hún hafði líka sterkar skoðanir á þjóðmálum og lét heyra ef henni mislíkaði. Í Reykjavík starfaði hún við umönnun fatlaðra og var ótrúlega fljót að tileinka sér sam- skiptaleiðir skjólstæðinga sinna. Leiðir okkar systra tengdust ánægjulega saman þegar Guðný hóf samband með miklum vini okkar hjóna honum Friðjóni. Þá hittumst við í gegnum harmonikustarf og eyddum sumrum saman í útilegum. Guðný elskaði að ferðast um okkar fagra land og naut þess að vera í stemningu og innan um fólk. Guðný og Friðjón giftu sig í Þrastaskógi á harmonikumóti og var það ógleymanleg stund fyrir okkur öll sem þar vorum. Þau áttu sameiginleg áhugamál; ætt- fræði, tónlist og ferðalög. Á ferð- um um landið sat hún með landa- kortið, fylgdist með örnefnum og Friðjón ók. Í útilegum var oft sameiginlegt grill og þá var Guðný sósumeistarinn, því hún gerði bestu sósurnar. Við höfum átt margar góðar stundir í þess- um ferðum og eigum þaðan dýr- mætar minningar. Áramótakveðja systur minnar til mín var: „Gleðilegt útileguár, elsku systir.“ Við munum stefna að því, með Guðnýju í anda. Ég votta okkar góða vini Frið- jóni, sonum Guðnýjar, mökum, barnabörnum og öðrum aðstand- endum mína dýpstu samúð. Þín systir, Sigríður (Sirrý). Við í Félagi harmonikuunn- enda munum fyrst eftir Guðnýju fyrir nærri 30 árum. Hún kom með systur sinni og mági, þeim Sirrý og Hilmari, í harmoniku- útilegu í Þrastaskógi. Hún féll fljótt inn í hópinn og hafði ein- staklega gaman af að syngja, ræða málin og segja sögur. Hún kunni mikið af dægurlagatextum og söng oft manna hæst og hló og skemmti sér og öðrum. Þau Friðjón kynntust í Þrastaskógi og brúðkaup þeirra fór þar fram nokkrum árum síðar. Séra Pétur í Óháða söfnuðinum gaf þau sam- an og þetta var einstaklega fynd- ið og skemmtilegt brúðkaup al- veg í anda þeirra Guðnýjar og Friðjóns. Hún aðstoðaði kaffi- konurnar við kaffisölu á skemmtifundum félagsins á ár- um áður. Kaffikonurnar höfðu gefið fána á 10 ára afmæli félags- ins en svo fóru þær líka í ánægjulegar skemmtiferðir til Írlands og Guðný fór með til Skotlands og út að borða fyrir þann sjóð sem safnaðist við hlut kaffikvenna af kaffisölunni. Landsmótin og harmonikuútileg- urnar og haustfundir Sambands íslenskra harmonikuunnenda eru svo mörgum í minni og þar voru að sjálfsögðu Friðjón og Guðný. Útileguútbúnaður breyttist mik- ið á þessum árum en þau voru fyrst í Votmúlatjaldinu og síðar Esterellu-vagninum og svo hjól- hýsinu. Núna svífur hún um í Sumarlandinu. Við kveðjum Guðnýju með hlýju og þakklæti og vottum Friðjóni heiðursfélaga okkar, Sirrý og öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, Elísabet Halldóra Einarsdóttir formaður. Guðný Sigurðardóttir ✝ Jón ValgarðurJóhannesson fæddist á Hóli í Höfðahverfi 29. júlí 1933. Hann lést á dvalarheimilinu Hlíð 23. janúar 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigrún Guðfinna Guðjóns- dóttir, f. 1905, d. 1989, og Jóhannes Jónsson, f. 1904, d. 1999. Systk- ini Jóns eru Árni, f. 1929, d. 2018, Sigríður, f. 1932, d. 2014, Sveinn, f. 1937, Halldór, f. 1939, d. 2002, Þórsteinn Arnar, f. 1941, Anna, f. 1944, og Tómas, f. 1953. Jón kvæntist árið 1959 Guð- obsson. 4) Valgerður Anna, f. 1966, gift Rúnari Ísleifssyni, synir þeirra eru Eyþór og Ívar, dóttir Rúnars er Sigurlaug. Langafabörnin eru sextán. Jón ólst upp í foreldrahúsum á Hóli og gekk í grunnskólann á Grenivík og síðan í Héraðs- skólann á Laugum. Jón og Guðný tóku síðan við búi for- eldra hennar á Espihóli árið 1960. Útför Jóns fer fram frá Grundarkirkju 5. febrúar 2021 kl. 13.30. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu ættingjar og vinir við- staddir en athöfninni verður streymt á facebooksíðunni Jarðarfarir í Grundarkirkju – beinar útsendingar. Stytt slóð: tinyurl.com/1scthq4i Virkan hlekk á slóð má nálg- ast á: https://www.mbl.is/andlat nýju Kristinsdóttur frá Espihóli í Eyja- fjarðarsveit, f. 1941, d. 2015. Börn þeirra eru: 1) Sig- rún Eydís, f. 1960, gift Guðmundi Bjarnari Guð- mundssyni, synir þeirra eru Jón Þór, Guðni Bjarnar, Andri og Heimir. 2) Kristinn Viðar, f. 1962, kvæntur Ástu Guðrúnu Sveinsdóttur, synir þeirra eru Ágúst Freyr og Egill Már, dótt- ir Ástu er Sandra Dögg Páls- dóttir. 3) Jóhannes Ævar, f. 1965, kvæntur Sigurlaugu Björnsdóttur, sonur Sig- urlaugar er Björn Már Jak- Þegar við minnumst pabba kemur fyrst upp í hugann rólyndi, traust og væntumþykja. Pabbi var ekki maður margra orða, en hann sagði það sem þurfti að segja og hafði sitt fram með hægðinni. Hann var afkastamikill þrátt fyrir rólyndið, var alltaf að og úthaldið var oft með ólíkindum, jafnvel þegar hann var kominn á efri ár. Þau mamma voru um margt ólík. Hún ákveðin, skipulögð og hamhleypa til verka, pabbi rólynd- ið uppmálað, haggaðist ekki hvað sem á gekk. Þessi blanda virkaði vel, þau voru samstillt og byggðu upp jörðina í sameiningu. Þau áttu sameiginleg áhugamál, nutu þess að ferðast innanlands og utan og fengu sem betur fer nokkur góð ár eftir að þau hættu búskaparstrit- inu til þess að sinna ferðalögum og félagslífi. Eftir að mamma féll frá hélt pabbi áfram að rækta líkama og sál, meðal annars með því að taka þátt í félagslífi í sveitinni og sækja fundi og viðburði í reglu Oddfel- low, en þau höfðu bæði verið þar virkir félagar um nokkurra ára skeið. Pabbi mætti í sund á hverj- um virkum morgni ásamt hópi af sveitungum, allt þar til heilsan brast. Sundið var honum mikils virði og kaffispjallið eftir sundið ekki síður. Pabbi var mikill fjölskyldumað- ur og ræktaði vel sambandið við ættingjana, hópurinn hans er orð- inn fjölmennur, en hann fylgdist vel með lífi og starfi okkar allra og hafði sérstaklega gaman af uppá- tækjum og tilsvörum yngstu fjöl- skyldumeðlimanna. Pabbi var víðsýnn og til í að prófa flest, hann vildi þó gjarnan halda í hefðir og var lítið gefinn fyrir pakka- og skyndimat, en þeim mun hrifnari af íslenskum þjóðlegum mat. Hann hélt súrmeti að barna- og barnabarnabörnun- um og náði góðum árangri í að venja sum þeirra á súra sviðafæt- ur, svið og súrt slátur. Fátt gladdi hann meira en þegar ungdómur- inn hámaði í sig þessar kræsingar. Pabbi naut þess að vera úti í náttúrunni, sérstaklega voru haustin hans tími, að fara í berja- mó var hans uppáhaldsiðja, það voru ófáir lítrarnir sem hann tíndi og nutum við afurðanna í ríkum mæli, enda naut hann þess ekki síður að gauka berjafötu að ætt- ingjunum en að njóta þeirra sjálf- ur. Við erum þakklát fyrir að börn- in okkar og barnabörn fengu tæki- færi til að njóta samvista við for- eldra okkar, þau voru ætíð aufúsugestir á Espihóli, alltaf tími til að gera það sem afar og ömmur gera best; hlusta, spjalla, leika og fræða. Að leiðarlokum viljum við þakka starfsfólki lyflækninga- deildar SAK og dvalarheimilisins Hlíðar fyrir einstaka umönnun pabba síðustu mánuði. Hvíl í friði elsku pabbi! Sigrún, Kristinn, Jóhannes og Valgerður. Jón V. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.