Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 05.02.2021, Qupperneq 33
DÆGRADVÖL 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2021 „ÞETTA ER Í FYRSTA SKIPTI SEM ÉG FLÝG MEÐ ÖÐRUM.” „MÆTTUM VIÐ FÁ FRAKKANN ÞINN LÁNAÐAN? VIÐ ÆTLUM Á BANNAÐA MYND Í BÍÓ.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vona. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRÐU HUNDINN, ÉG ER EKKI HUNDUR EN ÉG NÝT ÞESS AÐ SPANGÓLA Á TUNGLIД „HVERNIG SKÝRIR ÞÚ ÞAÐ?” VOFF! VOFF! ÞÚ ERT KLIKK JI! ER HANN LEITARHUNDUR? HVERS VEGNA? ERTU BÚIN AÐ TÝNA EINHVERJU? að alltaf í sturtu og eiginlega bara alls staðar. Ég hef verið viðloðandi Karla- kórinn Esju með hléum í mörg ár sem er skemmtilegur hópur. Formlegt tónlistarnám var lítið sem ekkert en ég fór snemma að kenna sjálfum mér á nótur og hljóðfæri. Djassinn er í miklu uppáhaldi og hef ég reynt að sækja djasshátíðir erlendis og helstu djassklúbbana þegar tækifæri gefast. Einhverjir minnisstæðustu djass- tónleikar sem ég hef sótt eru án efa tónleikar Hiromi Uehara og fylgifiska hennar á Blue Note í New York árið 2014 en mögulega bestu tónleikar sem ég hef upplifað voru aftur á móti með Leonard Cohen heitnum í Madrid árið 2012. Þeir tónleikar og sú ferð með mínum bestu vinum var töfr- um líkust. Ég stefni á að gefa í hvað ferðalög varðar með fjölskyldunni um leið og þessi veira játar sig sigraða.“ Fjölskylda Unnusta Sindra er Fríða Sigríður Jóhannsdóttir, f. 28.12. 1982, iðn- aðarverkfræðingur og verkefna- stjóri í Hringbrautarverkefni hjá Landspítalanum. Þau eru búsett í 107 Reykjavík. Foreldrar Fríðu Sig- ríðar eru hjónin Jóhann Sigurjóns- son, f. 25.10. 1952, ráðgjafi í utanrík- isráðuneytinu og fyrrverandi forstjóri Hafrannsóknastofnunar, og Helga Bragadóttir, f. 5.1. 1954, arki- tekt hjá Kanon arkitektum, búsett í Reykjavík. Synir Sindra og Fríðu Sigríðar eru Jóhann Helgi, f. 30.11. 2015, og Sigurjón Magni, f. 1.11. 2018. Systkini Sindra eru 1) Ása Sigurð- ardóttir, f. 3.12. 1969, nemi í nátt- úrulækningum, búsett í Noregi; 2) Vigdís Sigurðardóttir, f. 4.7. 1972, búsett á Ítalíu; 3) Þorsteinn Tandri Helgason, f. 8.7. 1979, múrarameist- ari, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Ólafs Sindra eru Krist- ín Magnadóttir, f. 2.2. 1953, bókari, búsett í Reykjavík og Helgi Þor- steinsson, f. 3.9. 1946, d. 16.7. 2020, rennismiður, og stjúpmóðir er Birg- itta Thorsteinsson, f. 6.4. 1949, bú- sett í Svíþjóð. Ólafur Sindri Helgason Steinunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík Helgi Sigurðsson húsgagnasmiður í Reykjavík Vigdís Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík og á Selfossi Þorsteinn Ólafur Árnason verslunarmaður í Reykjavík Helgi Þorsteinsson rennismiður, bjó lengi í Svíþjóð Hallfríður Ólafsdóttir húsfreyja í Reykjavík Árni Þorsteinsson forstjóri í Reykjavík Kristín Helgadóttir húsfreyja á Álfatröðum í Hörðudal, Dalasýslu Hjörtur Ögmundsson hreppstjóri og bóndi á Álfatröðum Ása Hjartardóttir húsfreyja í Reykjavík Magni Guðmundsson doktor í hagfræði, bjó í Reykjavík Guðrún Einarsdóttir húsfreyja í Stykkishólmi Guðmundur Jónsson frá Narfeyri, útgerðarstjóri í Stykkishólmi Úr frændgarði Ólafs Sindra Helgasonar Kristín Magnadóttir bókari í Reykjavík Helgi R. Einarsson segir aðvandamálin finnist víða, kast- ar fram limru og kallar „Vonbiðil- inn“: Sem ég forðum sá ’ana allvel leist mér á ’ana. Nú vandinn er virðist mér, hvort ég fái’ að fá ’ana. Síðan bætir Helgi við, að á hinum endanum megi finna „Bakþanka öldungs“ og biður menn brosa mót hækkandi sól: Unaðsstundir margar myndi, ef minnið væri’ í lagi og kunnuglegan fiðring fyndi fljóðin ef ég sæi. Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur Arnfinnsson þetta fallega erindi og kallar „Næturhvíld“: Nóttin er hljóð og hlý hyldjúpan í brátt hennar faðm ég flý, fagna má því, svefninn mér sætur þá sígur á brár. Gleymskunnar guði hjá gróa mín sár. Þetta er eina af fyrstu limrunum sem ég lærði og er eftir Kristján Karlsson. Hún kom mér á bragðið: Tóta frá Tindriðastöðum var töluvert lesin í blöðum og ljóðum og vísum jafnvel leiðarvísum. En það lagaðist, sagði hún, með böð- um. Hér er önnur limra eftir Kristján og gefur hann þessa skýringu, sem nauðsynlegt er að hafa í huga: „„Gyðjan er hugsi, eftir Kristmann Guðmundsson. (Þögn). Mun eiga að vera Gyðjan er uxi“ – Úr tilkynn- ingum í útvarpi fyrir mörgum ár- um.“ „Nú hættum við hordómi og sluksi,“ mælti Hermundur, „gyðjan er uxi.“ Hann bíður um stund brýtur stól, lemur hund. Enn bíður hann. Gyðjan er hugsi. Allt er þegar þrennt er og enn er limra eftir Kristján: Af ástæðum ótilgreindum ef til vill flóknum leyndum hann gat ekki pissað það gjörði oss svo hissa að vér gátum ei heldur sem reyndum. Arnþór Árnason frá Garði orti: Lítið mína léttúð græt, lífinu er þannig varið. Ennþá finnst mér syndin sæt, sækir í gamla farið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Bakþankar öldungs og næturhvíld HLÍÐASMÁRI 19, 2.HÆÐ · 201 KÓPAVOGI · SÍMI 534 9600 Hljóðnemi í hlustinni notar hæfni eyrans til að safna upplýsingum sem heilinn þarf til að skilja hljóðin. Auðveldara að taka þátt í samræðum í virku hljóðumhverfi. Betri talgreining um leið og bakgrunnshávaði er lágmarkaður í háværu hljóðumhverfi. Fjarþjónusta. Fáðu heyrnartækin þín stillt án þess að mæta á staðinn. NÝ TÆKNI! NÝ BYLTINGARKENND HEYRNARTÆKI MEÐ ÞREMUR HLJÓÐNEMUM FAGLEG ÞJÓNUSTA HJÁ LÖGGILTUM HEYRNARFRÆÐINGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.