Morgunblaðið - 22.02.2021, Síða 6
VIÐTAL
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Íslenska miðasölufyrirtækið Tix
hefur stækkað ört að undanförnu.
Forsvarsmenn fyrirtækisins
ákváðu að nýta sér kórónuveiru-
faraldurinn til að leita nýrra tæki-
færa og víkka út starfsemi þess í
Evrópu. Er nú svo komið að Tix er
með starfsfólk í sex löndum og sel-
ur miða í sjö löndum. Nýjustu lönd-
in eru Holland og Belgía. Búast má
við því að Bretland bætist í hópinn
á árinu.
Sindri Már Finnbogason, stofn-
andi Tix, og Björn Steinar Árnason
meðeigandi segja að vöxturinn hafi
verið ævintýralegur. Fyrir ári voru
starfsmenn Tix 13 en eru nú 22. Tix
seldi um þrjár milljónir miða árið
2019. Áhrif kórónuveirunnar þýddu
að umsvif þess drógust mikið sam-
an í fyrra en Sindri segir aðspurður
að eftir að nýir viðskiptavinir hafa
bæst við megi gera ráð fyrir að Tix
selji um fimm milljónir miða á ári
þegar eðlilegt ástand kemst á að
nýju. Miðafjöldi á Íslandi verður
því tæplega 20% af heildar-
miðafjölda sem Tix selur.
Fundu gat á markaðinum
Sindri segir að þegar kórónu-
veiran skall á hafi hann haft miklar
áhyggjur í upphafi. Forsvarsmenn
Tix hafi sótt um þá styrki og hluta-
bótaleiðir sem í boði voru hér á
landi, í Danmörku, Svíþjóð og Nor-
egi. Þegar komið var fram í ágúst
og ljóst virtist að veiran væri ekk-
ert að fara hafi fyrst hvarflað að
honum að skynsamlegt gæti verið
að blása til sóknar.
„Ég skoðaði markaðina í Bret-
landi, Hollandi og Belgíu og fannst
sá hollenski sérstaklega áhugaverð-
ur. Ég hélt tvær kynningar fyrir
leikhús og fékk mjög góð viðbrögð.
Svo vildi þannig til að amerískt
miðasölufyrirtæki ákvað að hætta
starfsemi sinni í Hollandi og Belgíu
og við það myndaðist gat á mark-
aðinum. Ég flaug strax út og réð
fólk sem hafði starfað hjá fyrir-
tækinu,“ segir Sindri sem fundaði
stanslaust með áhugasömum við-
skiptavinum í viku eftir að út var
komið. „Ég kynntist öllum sem
þurfti að kynnast og á mjög stutt-
um tíma vissu allir á hollenska
markaðnum hvað Tix var. Viðbrögð
kúnnanna voru þau að miðasölu-
kerfi Tix væri betra en öll önnur
kerfi á markaðinum í dag svo við
vissum að við myndum ná miklum
árangri hér.“
Safna nýjum viðskiptavinum
Tix er nú með þrjá starfsmenn í
Hollandi auk Sindra sem býst við að
dvelja þar sjálfur fram á sumar.
Þegar hefur verið samið við fimm
menningarhús í Hollandi og Belgíu
um miðasölu og fleiri eru í farvatn-
inu. Sindri kveðst búast við að brátt
selji fyrirtækið fleiri miða í þessum
tveimur löndum en á Íslandi í venju-
legu árferði. Þá er Tix einnig komið
með starfsmann í Bretlandi og legg-
ur drög að miðasölu þar í landi.
Auk þess að hefja miðasölu í Hol-
landi og Belgíu og horfa til Bret-
lands hefur Tix bætt við sig fjölda
viðskiptavina á Norðurlöndunum að
sögn Sindra. Hann segir að mörg
menningarhús og leikhús hafi nýtt
Covid-tímann til breytinga í rekstr-
inum.
„Það eina jákvæða við Covid-tím-
ann fyrir menningarhúsin er að það
hefur verið hægt að endurhugsa í
hvað peningum er eytt, hvaða
lausnir er verið að nota og kanna
hvort betri hugbúnaður sé í boði,“
segir hann.
Það hafi jafnframt auðveldað Tix
að vaxa að stjórnendur menningar-
húsa voru opnir fyrir fundum og
kynningum. „Fólk var alveg til í að
taka klukkutíma til hliðar fyrir net-
fund með okkur.“
Sindri og Björn segja að Tix sé á
góðum stað í dag og hyggja ekki á
frekari landvinninga. „Það eru
fleiri tækifæri á öðrum mörkuðum
en ég held að þetta sé nóg í bili. Við
gætum eflaust sótt fjármagn og
ráðið inn fullt af fólki en okkur
langar það ekki. Nú höldum við
bara áfram þessi hópur og skoðum
þau verkefni sem bjóðast,“ segja
þeir.
Tilbúin þegar allt fer í gang
Aðspurðir segja þeir að eini
kostnaðurinn sem hafi þurft að
leggja út í við þessa auknu útrás sé
launakostnaður. Umgjörð fyrir-
tækisins sé í raun afar lítil. Tix hafi
staðið vel í byrjun árs 2020 og úr-
ræði stjórnvalda hér á landi sem og
í nágrannalöndunum nýst vel.
Miklu hafi skipt að hafa tekju-
streymi í nokkrum löndum; þegar
lítil innkoma var á einum stað var
hún stundum betri annars staðar.
„Lokunarstyrkir í Skandinavíu
hafa hjálpað mikið. Sömuleiðis
frestun á greiðslu skatta og ríkis-
ábyrgðarlán. Við höfum nýtt tím-
ann til að safna eins miklu af kúnn-
um og við gátum og verðum tilbúin
þegar allt fer í gang aftur,“ segir
Sindri.
Tix selur nú miða í sjö löndum
Miðasala hefur hrunið síðasta árið vegna kórónuveirunnar en íslenska miðasölufyrirtækið Tix hefur
aukið umsvif sín til muna Sáu gat á markaðnum í Hollandi Aðeins 20% sölunnar verða á Íslandi
Ljósmynd/John Berge
Útrás Björn Steinar Árnason og Sindri Már Finnbogason fyrir framan tónleikahús í Drammen í Noregi.
Mikill vöxtur Tix
» Tix.is var stofnað 1. október
2014. Fyrirtækið er langstærst
í miðasölu á Íslandi.
» Í dag selur Tix miða í yfir 50
menningarhúsum og leik-
húsum í sjö löndum; Íslandi,
Noregi, Danmörku, Svíþjóð,
Færeyjum, Hollandi og Belgíu.
Búast má við því að Bretland
bætist fljótlega í þann hóp.
» Alls vinna 22 manns hjá Tix í
sex löndum.
» Búast má við því að Tix selji
fimm milljónir miða á ári þegar
áhrifa kórónuveirunnar hættir
að gæta. Þá verður íslenski
miðasölumarkaðurinn aðeins
20% af innkomu fyrirtækisins.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
Nokkuð dró úr áfengisneyslu Ís-
lendinga í fyrra frá árunum á undan,
sem kemur mörgum eflaust á óvart í
ljósi kórónuveirufaraldursins sem
kom upp það ár og reið yfir heims-
byggðina.
Þetta er niðurstaða könnunar sem
Gallup gerði fyrir embætti land-
læknis og var birt í Talnabrunni,
sem er fréttabréf embættisins. Þar
kemur fram að hlutfallslega dró úr
áhættudrykkju milli áranna 2019 og
2020 hjá báðum kynjum og í nær öll-
um aldurshópum, en áhættudrykkja
er reiknuð út frá tíðni áfengisneyslu,
fjölda drykkja og tíðni ölv-
unardrykkju, og er mismunandi
milli kynja.
Fleiri karlar drekka sig ölvaða
Hlutfall karla sem féll undir þá
skilgreiningu að stunda áhættu-
drykkju fór úr 27% árið 2019 í 24% í
fyrra, og hlutfall kvenna úr 23% í
20% yfir sama tímabil. Þá sýna nið-
urstöður að hlutfallslega hafi dregið
úr ölvun (þ.e. neyslu á fimm eða
fleiri áfengum drykkjum á einum
degi) á milli ára. Sögðust 34% karla
að jafnaði drekka sig ölvaða einu
sinni í mánuði eða oftar árið 2019, en
hlutfallið var 29% 2020. Konur fóru
úr 19% í 17% á milli ára hvað þennan
þátt varðar.
Ef þetta hlutfall er heimfært upp
á þjóðina alla má gera ráð fyrir því
að minnsta kosti 35 þúsund karl-
menn og 20 þúsund konur, 18 ára og
eldri, hafi orðið ölvuð einu sinni í
mánuði eða oftar á síðastliðnu ári.
jonn@mbl.is
Minni áfengis-
neysla í fyrra
Þjóðin drakk minna í faraldrinum
Skál Fjöldatakmarkanirnar settu
svip sinn á skemmtanalífið í fyrra.