Morgunblaðið - 22.02.2021, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
EIN STÓR
FJÖLSKYLDA
Hver einasti meðlimur Colgate-fjölskyldunnar
finnur tannbursta, tannkrem og aðrar tannhirðu-
vörur við sitt hæfi.Velkomin í fjölskylduna!
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Traust á Seðlabanka Íslands hefur
aukist mjög ört á síðustu árum sam-
kvæmt mælingu Gallup. Traust til
Seðlabankans mjakaðist upp árin
eftir bankahrunið, en það tók stökk
upp á við í fyrra og tekur aftur stórt
stökk upp á við í ár. Í fyrra um 14
prósentustig og núna fer það upp um
17 prósentustig þegar 62% segjast
bera mikið traust til Seðlabankans.
„Ég get ekki verið annað en glað-
ur með það,“ segir dr. Ásgeir Jóns-
son seðlabankastjóri í samtali við
Morgunblaðið. „Við hækkuðum mik-
ið í fyrra og hækkum svo enn frekar
nú, erum komin í námunda við lög-
regluna í trausti almennings.“ Hann
kveðst vona að þetta sé til marks um
að fjármálakerfið sé að ná fyrri tiltrú
og rekur það meðal annars til þess að
gagnrýni hafi verið svarað með sam-
einingu bankans og Fjármálaeftir-
litsins, þannig að nú hafi aðeins einn
aðili yfirsýn og ábyrgð á fjármála-
stöðugleika. „Það er því gleðilegt að
þessi nýi sameinaði Seðlabanki njóti
þessa trausts.“
Ásgeir nefnir að fleiri þættir komi
til, þar á meðal viðbrögð bankans við
heimsfaraldrinum, en árangurinn
hafi verið framar vonum. „En traust-
ið var farið að aukast duglega áður,
svo ég held að þetta sé samfelld og
ánægjuleg þróun fyrir bankann,“
segir seðlabankastjóri. Hann bætir
við að þessi niðurstaða endurspegli
víðtækara traust. „Ég vona að þetta
sýni að við höfum öðlast aukna trú á
gjaldmiðilinn okkar, enda eitt helsta
hlutverk bankans að standa vörð um
krónuna. Við höfum séð það að við
getum notað gjaldmiðilinn, að við
getum brugðist við óvæntum að-
stæðum og náð svipuðum árangri og
aðrar og stærri þjóðir.“
Traust á Seðla-
banka eykst mikið
Hefur nær tvöfaldast á tveimur árum
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Traustvekjandi Traust á bankanum jókst eftir að Ásgeir Jónsson tók við.
Hilmar Freyr Birgisson bar sigur
úr býtum í lengstu hundasleða-
keppni sem haldin hefur verið á Ís-
landi, en hún fór fram á Húsavík á
föstudag og laugardag. Hlaupaleið-
in var 150 km í heild, og var farin í
þremur leggjum með nokkurra
klukkustunda hvíld á milli.
Á móti Hilmari Frey keppti Erna
Soffía Árnadóttir, en hún ákvað að
hætta keppni eftir rétt rúman
þriðjung hlaupsins. „Svona hlaup
tekur á,“ segir Hilmar Freyr við
blaðamann Morgunblaðsins, að-
spurður um þrekvirkið. „En hund-
arnir eru vel þjálfaðir svo þetta var
ekkert sérstaklega erfitt fyrir þá.“
Góð færð hafi hjálpað mikið, en
hlaupið tók hálfan annan sólar-
hring í heildina. Farið var á föstu-
dagsmorgni og Hilmar kom ekki í
mark fyrr en snemma á laug-
ardagskvöldinu. Hann segir stefnt
á að hlaupið verði haldið árlega.
„Og vonandi verða keppnirnar
fleiri en þessi eina.“
Hilmar Freyr, sem er Húsvík-
ingur, býr á Dratthalastöðum á
Austurlandi með Alexöndru Karls-
dóttur kærustu sinni, en þar rækta
þau sleðahunda. 20 hundar búa á
heimilinu, og er von á þremur í við-
bót á næstunni, en Hilmar Freyr
segist stefna á að bjóða ferðamönn-
um upp á hundasleðaferðir þegar
þeir fara að tínast aftur til lands-
ins. „Við bíðum bara þangað til
veirufaraldrinum lýkur, og þá för-
um við á fullt.“ jonn@mbl.is
Vel þjálfaðir sleðahundar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sleðahundar Hilmar Freyr vann hundasleðakeppnina á Húsavík.
Hlupu 150 km leið á hálfum öðrum sólarhring og sigruðu
Alls voru 11.695 starfsmenn starf-
andi hjá Reykjavíkurborg og dótt-
urfélögum hinn 31. desember árið
2020. Flestir vinna hjá Reykjavík-
urborg en af dótturfyrirtækjum
borgarinnar er Orkuveita Reykja-
víkur umfangsmest hvað varðar
starfsmannafjölda.
Kemur þetta fram í svari mann-
auðs- og starfsumhverfissviðs við
fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokksins um upplýsingar yfir
starfsmannafjölda A- og B-hluta fyr-
irtækja, sem lagt var fram hinn 15.
febrúar á fundi borgarráðs.
Óskað var eftir nákvæmum upp-
lýsingum yfir starfsmannafjölda og
stöðugildi hjá A-hluta annars vegar
og B-hluta hins vegar.
Í desember störfuðu hjá Reykja-
víkurborg (A-hluta) 10.348 manns,
og gegnir sá fjöldi 7.714 stöðugild-
um. Hjá dótturfyrirtækjum borg-
arinnar starfa alls 1.347, þar af flest-
ir hjá Orkuveitu Reykjavíkur, 610.
Næstflestir starfa hjá Strætó bs.
(269) og þar á eftir slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins. veronika@mbl.is
11.965 starfsmenn á
snærum borgarinnar
OR umfangsmesta dótturfyrirtækið
Morgunblaðið/Hari
Borgin Alls eru 11.965 starfsmenn
hjá Reykjavíkurborg.