Morgunblaðið - 22.02.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 22.02.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Lýðræðið byggist á virkri þátt- töku og fólk verður að láta sig mál varða. Tortryggni gagnvart stjórnmálum er slæm, grefur und- an heilbrigðri pólitískri rökræðu og þar með því að leitað sé mála- miðlana svo samfélagið þróist eðli- lega,“ segir Kristrún Frostadóttir hagfræðingur. Hún er ný á vett- vangi stjórnmálanna, en á dög- unum var til lykta leitt að hún skipi efsta sætið á framboðslista Sam- fylkingar í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningum í haust. Sjálf kveðst hún jafnan hafa verið samfélagslega þenkjandi og haft sterkar skoðanir á þjóðmálum. Að hefja virka þátttöku í þjóðmál- unum hafi á margan hátt komið af sjálfu sér. „Samhjálp er í mörgu tilliti hluti af hinni sósíaldemókratísku stefnu sem Samfylkingin fylgir. Slíkt gengur í engu gegn til dæmis atvinnufrelsi. Þvert á móti. Ég vil lifa og starfa í samfélagi þar sem félagslegur stöðugleiki ríkir. Slíkt felur í sér frelsi. Norrænu þjóð- irnar, þar sem sósíaldemókratískir flokkar hafa verið leiðandi, eru með þeim hamingjusömustu í heimi. Að sama skapi er fólk ekki raunverulega frjálst nema það njóti ákveðinna grunngæða. Þessi viðurkenning á verðmæti sam- félagsins í stefnu jafnaðarmanna höfðar mjög til mín.“ Önnur kreppa ungrar kynslóðar Mikilvægt er, segir Kristrún, að í stjórnmálunum sé horft til að- stæðna ungs fólks, sem er að skapa sér framtíð við um margt erfiðar aðstæður. Þar bendir Kristrún á að sín kynslóð – fólk um þrítugt – sé nú að fara í gegnum aðra risastóru efnahagskreppuna á skömmum tíma. „Ef ungt fólk missir af tæki- færinu til að koma sér strax inn á vinnumarkaðinn eftir nám getur slíkt haft langvarandi áhrif á tekjumöguleika. Við verðum að halda utan um þennan hóp þegar við komum út úr kreppunni og hjálpa fólki að fóta sig aftur á vinnumarkaði. Við þurfum að horfa til þess að auka stuðning sem fyrst við barnafjölskyldur og fylgj- ast vel með húsnæðismarkaði. Skapa þar stöðugleika og vera óhrædd við að hugsa umgjörðina um markaðinn upp á nýtt,“ til- tekur Kristrún. Sem dæmi þá setji fáir sig í dag upp á móti inngripum opinberra aðila á gjaldeyrismark- aði til að vinna gegn skörpum gengisbreytingum sem komi illa við almenning. „Ekkert er því til fyrirstöðu að við leitum nýrra leiða til að mýkja verðsveiflur á húsnæð- ismarkaði,“ segir hún. Þá sé mik- ilvægt við núverandi aðstæður í efnahagslífinu að ríkið haldi fjár- festingum áfram. Hagkerfi 21. aldar byggist mikið á mannauði „Lærdómur síðustu kreppu var takmörkuð fjárfesting í efnis- legum innviðum, sem við höfum enn ekki náð okkur upp úr. Sam- tök iðnaðarins birtu fyrir nokkrum dögum skýrslu um skuldastöðu okkar gagnvart innviðum í land- inu. Nú eru allir í stjórnmálum búnir að átta sig á því að það verð- ur alltaf dýrara á endanum að fresta viðhaldi á mannvirkjum,“ segir Kristrún „Hagkerfi 21. aldarinnar byggist mikið á mannauði. Við verðum að miða viðbrögð okkar við þann veruleika. Við fjárfestum fyrir milljarða króna ár hvert í menntun fólks og velferð þess á yngri stigum. Þeirri fjárfestingu megum við ekki sólunda með því að sinna ekki mannauðnum. Hag- vöxtur er skapaður af fólki sem þarf að komast upprétt úr því áfalli sem kórónuveiran hefur skapað.“ Skuldsetning í lagi Kristrún segist ekki hafa neinar áhyggjur af skuldasöfnun ríkissjóðs nú á tímum verunnar. „Ef rétt er á spöðunum haldið munu þessir fjármunir sem nú eru teknir að láni halda aftur af gífur- legum kostnaði sem annars myndi falla til á komandi árum og þyngja ríkisreksturinn. Við munum vaxa út úr þessu ástandi ef við beinum fjármagni á þá staði sem vernda framleiðslugetu hagkerfisins og þar er fólk í fararbroddi,“ tiltekur Kristrún og segir að þannig verði unnið á skuldaaukningunni. „Það væri glapræði að veðja ekki á fólk- ið í landinu í þessu ástandi og verja fyrri fjárfestingu okkar. Ef unnið verður of hratt á skuldastöðunni gæti slíkt bitnað á vaxtargetu hag- kerfsins í mörg ár. Þessi skiln- ingur á gangverki efnahagskerf- isins hefur rutt sér til rúms meðal helstu efnahagssérfræðinga heimsins síðustu ár. Hérlendis er efnahagsumræðan í stjórnmálum hins vegar oft byggð á úreltum kenningum.“ Fimm flokka ríkisstjórn gæti verið farsæl Í umræðum síðustu missera hefur Logi Einarsson formaður Samfylkingar oft lýst vilja til að eftir næstu kosningar verði mynd- uð ríkisstjórn vinstra megin við miðju. Sinn flokkur eigi ekki sam- leið með Sjálfstæðisflokki og Mið- flokki. Um þetta segir Kristrún að Samfylkingin hafi alla burði til þess að vera kjölfestuflokkur í ís- lenskum stjórnmálum. Eigi því ekki að þurfa á Sjálfstæðisflokki að halda til að mynda ríkisstjórn. „Samfylkingin hefur verið í meirihluta í borginni lengi með Dag B. Eggertsson í forystu frá 2014 og hefur það samstarf verið farsælt og stöðugt. Ég sé enga ástæðu fyrir því að samstarf fjög- urra flokka í ríkisstjórn geti ekki verið með sama hætti farsælt ef grænar og félagslegar áherslur Samfylkingarinnar fá að njóta sín eins og þær hafa gert í Reykjavík.“ Tortryggni grefur undan pólitískri rökræðu, segir Kristrún Frostadóttir, frambjóðandi Samfylkingar Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samfélag Hagvöxtur er skapaður af fólki sem þarf að komast upprétt úr því áfalli sem kórónuveiran hefur skapað, segir Kristrún um þau mál sem hún telur að stjórnmálamenn þurfi nú að veita sérstaka athygli. Glapræði að veðja ekki á fólkið  Kristrún Frostadóttir fædd- ist 1988 og ólst upp í Reykja- vík. Er B.Sc. í hagfræði frá Há- skóla Íslands, MA í hagfræði frá Boston-háskóla og MA í al- þjóðafræðum frá Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hefur starfað við ýmsar efnahagsgreiningar í Bandaríkjunum, London og hér heima, m.a. hjá Morgan Stanl- ey og Kviku banka.  Kristrún er gift Einari B. Ingvarssyni viðskiptafræðingi og eiga þau eina tveggja ára dóttur. Hver er hún? Alls brautskráðust 467 kandídatar úr grunn- og framhaldsnámi í Há- skóla Íslands og 76 nemendur frá Háskólanum á Bifröst síðastliðinn laugardag. Úr HÍ brautskráðust 203 úr grunnnámi og 264 úr framhaldsnámi en frá Bifröst 32 úr grunnnámi og 44 úr framhaldsnámi. Útskriftarverðlaun í grunnnámi við Háskólann á Bifröst hlutu Helga Sigurlína Halldórsdóttir við- skiptadeild og Þórhildur Elínardótt- ir Magnúsdóttir félagsvísinda- og lagadeild, en hún er jafnframt yngsti nemandi sem lokið hefur grunnnámi við skólann, fædd árið 2000. Ljósmynd/Háskólinn á Bifröst Verðlaun Margrét Jónsdóttir Njarðvík færir Þorgerði Sól Ívars- dóttur rós að lokinni útskrift. Hundruð brautskráð  HÍ og Bifröst Tilboð í veiðirétt í Ytri-Rangá og vesturbakka Hólsár voru opnuð í veiðihúsinu við Ytri-Rangá á laug- ardag og bárust alls tólf tilboð. Hreggnasi var með hæsta tilboðið, ríflega 143 milljónir í leigu fyrir Ytri-Rangá og rúmar 20 milljónir fyrir vesturbakka Hólsár. Tilboðið er til fimm ára og hljóðar upp á 715 milljónir fyrir sjálfa Ytri- Rangá og þar að auki rúmar tuttugu milljónir fyrir vesturbakka Hólsár. Tilboðið er því hátt í 800 milljónir króna. Um er að ræða eitt umfangs- mesta laxveiðisvæði landsins, sem telur samtals 22 stangir. Ljósmynd/Eggert Skúlason Veiðiréttur Mikill áhugi var á út- boði veiðiréttar í Ytri-Rangá. Hreggnasi bauð hæst  Tilboð í veiðirétt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.