Morgunblaðið - 22.02.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.02.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, verður í dag viðstödd minningarathöfn í borginni Christchurch en réttur áratugur er liðinn frá því jarðskjálfi, af stærðinni 6,3, reið yfir borgina með þeim afleiðingum að 185 létu lífið og fjöldi bygg- inga hrundi eða skemmdist svo mikið að þær varð að rífa. „Það er langur tími liðinn, 10 ár, en margir eiga enn um sárt að binda,“ sagði Gordon Cullen við AFP-fréttastofuna. Cullen lokaðist inni á fimmtu hæð í skrifstofubyggingu þegar jarð- skjálftinn reið yfir og tókst að komast út úr húsinu með því að klifra niður brunaslöngu. „Skjalaskápar duttu á hliðina, skrifborð köstuðust til og frá og fólk öskraði af skelfingu,“ sagði Cullen. „Við bundum bruna- slönguna í sófa, drógum hann að glugganum og ég klifraði síðan eftir slöngunni niður á bílastæðið fyrir neðan.“ Skrifstofubyggingar hrundu í skjálftanum, sprungur mynd- uðust á götum og auglýsingaskilti á verslunum duttu á gang- andi vegfarendur. Stór íbúðasvæði í úthverfum borgarinnar breyttust í eins konar mýri vegna ysjunnar sem varð þegar sandur hristist saman og vatn þrýstist upp á yfirborðið. Flest dauðsföll urðu í sex hæða hárri skrifstofubyggingu sem flattist saman í skjálftanum og í kjölfarið kviknaði í rústunum. Þar létu 115 manns lífið, þar á meðal 65 erlendur námsmenn, flestir frá Kína og Japan. Rannsókn leiddi síðar í ljós, að bygg- ingin var svo illa hönnuð að aldrei hefði átt að gefa út bygging- arleyfi fyrir hana. Í kjölfarið voru byggingarreglugerðir í Nýja- Sjálandi hertar til muna. Eftirskjálftar fundust í borginni næsta árið en þegar þeim linnti var hafist handa við endurreisn. Hún gekk þó hægt af ýmsum ástæðum, m.a. vegna skrifræðis og deilna um tryggingabætur, og auð svæði í miðborginni, þar sem áður stóðu hús, fylltust af illgresi og vatni. En nú er borgin smátt og smátt að hjarna við. Í miðborginni er loks byrjað að gera við gotneska dómkirkju, sem hefur verið lokuð og afgirt vegna skemmda sem urðu á henni í skjálftanum. Verslunarhverfin í miðborginni eru orðin lífleg á ný og víða eru hafnar framkvæmdir við nýjar byggingar, þar á meðal ráð- stefnumiðstöð og íþróttaleikvang. „Við erum komin vel á veg,“ segir Lianne Dalziel borgar- stjóri. „Það er enn langt á áfangastað en ég held að borgin sé komin yfir það versta.“ AFP Viðgerð Áratug eftir jarðskjálftann er viðgerð loks hafin á dómkirkjunni í Christchurch, sem skemmdist mikið. AFP Iðar af lífi Verslunargatan Manchester Street, þar sem fjöldi húsa hrundi í jarðskjálftanum, iðar nú af lífi á ný. AFP Endurbygging Knox-öldungakirkjan í Christchurch, sem skemmdist mikið í skjálftanum, hefur nú verið endurbyggð. Áratugur liðinn frá jarðskjálfta í Christchurch  Endurreisn komin vel á veg AFP Nýtt svipmót Redcliffs, úthverfi borgarinnar, hefur fengið nýjan svip en þar urðu miklar skemmdir í jarðskjálftanum. AFP Stytta á stall Stytta af John Robert Godley er komin á stall sinn á ný í miðborg Christchurch, 10 árum eftir skjálftann. Facebook hefur lokað á síðu herforingjastjórnarinnar í Mjanmar sem bar heitið „Sannar fréttir“. Var það gert vegna ásakana um að á síðunni væri hvatt til ofbeldis. Á facebooksíðunni sem herforingjastjórnin hélt úti var fullyrðingum um meint kosningasvindl Aung Suu Kyi, fyrrverandi leiðtoga landsins, haldið á lofti en her- inn hefur notað þær til þess að réttlæta aðgerðir sínar. Mikil ólga hefur ríkt í Mjanmar eftir valdarán sem herforingjastjórnin framkvæmdi síðastliðin mánaðamót og hefur Aung Suu Kyi verið í stofufangelsi síðan. Hörð mótmæli hafa brotist út síðan þá og hafa við- brögð hersins verið afdráttarlaus; fjöldi hefur verið handtekinn og nokkrir drepnir. Facebook hefur á liðnum árum lokað á hundruð síðna tengdra hernum í landinu en margar þeirra hafa snúist um róhingja-múslima, sem herinn hóf ofsóknir gegn árið 2017, með þeim afleiðingum að 750.000 róh- ingjar urðu að flýja yfir landamærin til Bangladess. Hafa þá Sameinuðu þjóðirnar lýst ofsóknunum sem þjóðarmorði. Facebook lokar síðu hersins AFP Mjanmar Facebook hefur gripið til þess að loka á facebooksíðu hersins í Mjanmar, Sannar fréttir.  Facebook lokar á „Sannar fréttir“, síðu hersins í Mjanmar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.