Morgunblaðið - 22.02.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 22.02.2021, Síða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 og þökk frá Vinstrihreyfingunni – grænu framboði fyrir hans góða framlag. Þegar Sigmundur og fjöl- skylda fluttust til Akureyrar varð náinn samgangur milli heimila okkar. Kynntumst við foreldrum þeirra Sigmundar og Ingibjarg- ar, enda saman á hátíðis- og tylli- dögum. Foreldrar Kristínar nutu þess að spjalla við Sigmund og mátu hann mikils. Við tókumst á við ýmis flókin viðfangsefni eins og gengur í stórum fjölskyldum. Leiðir þeirra Sigmundar og Ingi- bjargar skildi. Að leiðarlokum er margs að minnast. Sumarið 1975 dvöldumst við fjölskyldan hjá þeim um tíma á Gaustad, þá var haldið upp á þrítugsafmæli Sig- mundar og var mikið um dýrðir. Heimsóknir milli Oslóar og Gautaborgar og ótal ljúfar stund- ir. Ólafur og Sigmundur hafa lengst af verið vinnufélagar og/ eða í nánu samstarfi. Seinni kona Sigmundar er Ingiríður, frænka Kristínar. Þau nutu lífsins í gæfuríku hjónabandi í rúm tutt- ugu ár. Ingiríður sýndi mikið þrek í veikindum Sigmundar og börn og tengdabörn léttu undir af öllum mætti, allt þar til yfir lauk. Árið 2008 skipulögðum við ásamt Sigmundi og Ingiríði viku- ferð um NA-land með „Söng- hópnum 72“, ferðahópi þeirra bekkjarfélaga, sem farið hefur í mörg góð ferðalög. Þá sýndi Sig- mundur hópnum slóðir forfeðra sinna í Hróarstungunni og mjúki bassinn hans naut sín í söngnum. Það er sárt að sjá á bak honum, en þakklætið er ómælt fyrir vin- áttu og áhugaverða tíma sem fjöl- skylda okkar átti með honum. Við vottum Ingiríði, sonum Sig- mundar og stjúpdóttur hans, ásamt fjölskyldum þeirra og öll- um ástvinum hans, innilega sam- úð og óskum þeim gæfu og geng- is. Far þú í friði kæri vinur. Kristín Sigfúsdóttir, Ólafur H. Oddsson. Kveðja frá 6. X 1965 Haustið 1962 hófu átta strákar og 13 stelpur nám í 4. bekk X í stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík. Þessi ungmenni fóru síðan saman í gegnum þrjú ár í skólanum og tóku stúdentspróf vorið 1965. Hópurinn var í upphafi frekar ósamstæður, en bekkjarandinn batnaði eftir því sem á skóla- gönguna leið. Strákarnir þóttu einstaklega prúðir og lögðu sig fram við námið. Einn af þessum prúðu piltum var Sigmundur Sig- fússon. Sigmundur var mjög góð- ur námsmaður, fremur hlédræg- ur en með þægilega nærveru og skemmtilega kímnigáfu. Hann stundaði einnig tónlistarnám, lék á þverflautu og sótti tíma í Tón- listarskólanum. Sigmundur söng í kórum frá menntaskólaárunum, fyrst í Söngsveitinni Fílharmóníu og síðast í sönghópnum Hymno- diu á Akureyri. Eftir því sem hópurinn hristist betur saman urðu samveru- stundir, fyrir utan kennslustund- ir, fleiri. Eftir stúdentsprófið í júní 1965 tvístraðist þó hópurinn og hver fór sína leið. Sigmundur lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands 1972 og fékk almennt lækningaleyfi 1974. Hann stundaði framhaldsnám í geðlæknisfræði í Osló og fékk sérfræðileyfi í þeim fræðum 1980. Hann gegndi síðan ýmsum læknisstörfum, en 1984 flutti hann til Akureyrar, þar sem hann starfaði síðan sem yfir- læknir geðdeildar Fjórðungs- sjúkrahússins. Þar nyrðra og einnig á Austurlandi hefur hann unnið merkt og gott starf, sem lengi mun verða í minnum haft af sjúklingum hans og öðrum. Samverustundir okkar bekkj- arfélaganna urðu stopular, en stundum gafst þó tilefni og tæki- færi til þess að hittast, til dæmis þegar haldið var upp á stúdents- afmæli og þá kom Sigmundur gjarnan frá Akureyri til að hitta okkur gömlu félagana. Þegar kom að 50 ára stúdentsafmæli 2015 skemmti hópurinn sér svo vel að bekkjarfélagarnir úr 6. X ákváðu að hittast mánaðarlega eftir það. Sigmundur slóst í hóp- inn þegar færi gafst. Í ágúst 2018 fór hópurinn sam- an í ferð með séra Gunnari Krist- jánssyni, bekkjarfélaga okkar, á slóðir Marteins Luthers í Þýska- landi. Þetta var í alla staði dásamleg ferð, fróðleg og skemmtileg og Sigmundur var með í förinni. Sjúkdómur hans hafði þá þegar látið á sér kræla, en hefti hann ekki til muna og all- ir skemmtu sér og nutu samver- unnar. Þar var mikið spjallað, skrafað og hlegið. Við hittum Sig- mund nokkrum sinnum eftir ferðalagið. Hann gat stundum sameinað læknisferðir og sam- veru með okkur gömlu bekkjar- félögunum. Minningin um góðan vin og samferðamann yljar okkur öll- um. Við sendum fjölskyldu Sig- mundar innilegar samúðarkveðj- ur. F.h. 6. X 1965, Sigrún Helgadóttir og Birna Þ. Ólafsdóttir. Í dag er kvaddur einn virtasti geðlæknir hér á landi, Sigmund- ur Sigfússon forstöðulæknir. Hann hafði verið heilsugóður og vinnuþjarkur alla ævi, en fékk fyrir tveimur árum illvígan vöðvalömunarsjúkdóm, sem nú hefur lagt hann að velli. Hann tókst á við sjúkdóminn af óvið- jafnanlegu æðruleysi. Sama má segja um eiginkonu hans, sem hlúði að honum í heimahúsi til hinstu stundar. Þau hjón voru einstaklega samhent í baráttunni við veikindi hans, svo að við heim- ilisvinir urðum oft orðlausir af undrun og aðdáun. Sigmundur var vel þekktur og vinsæll. Sigmundur var gæddur fágæt- um hæfileikum. Hann átti mjög auðvelt með að umgangast alls konar fólk af sömu virðingu og nærgætni. Hann gat brugðið fyr- ir sig vísindalegri nákvæmni, þegar svo bar undir, en hann var einnig vel að sér í heimi listanna, m.a. söngmaður með afbrigðum. Þungavigtarmenn meðal lækna og stjórnmálamanna veittu þessum hógværa hæfi- leikamanni eftirtekt. Það var fljótt sóst eftir honum til opin- berra ábyrgðarstarfa. Hann valdi hins vegar hefðbundin læknisstörf. Lengst verður hans eflaust minnst fyrir glæstan feril á Akureyri. Þetta hófst 1984, þegar hann kom norður, til að byggja upp bráðageðdeild sjúkrahússins. Hann sýndi óvenjulega framsýni og fyrir- hyggju um starfsemina, sem varð seinna þekkt um land allt og nefnd Akureyrarmódelið. Aðals- merki þess var heildarsýn og vandlega skipulagðar tengingar við alla þætti velferðarkerfis bæði í nágrenninu og öðrum landshlutum. Víkjum nú sögunni 37 ár aftur í tímann. Vorið 1984 skiptust á skin og skúrir í spítalamálum Ak- ureyrar og nágrennis. Brynjar Valdimarsson, yfirlæknir Krist- neshælis/Kristnesspítala, varð bráðkvaddur í maí og undirritað- ur settur í stöðu hans til eins árs, meðan beðið var eftir ákvörðun stjórnar Ríkisspítala um framtíð Kristnesspítala. Í sama mánuði spurðist það hingað norður, að Sigmundur Sigfússon, geðlæknir í Reykjavík, væri að sækja form- lega um stöðu yfirlæknis á nýrri bráðageðdeild FSA, sem var komin á teikniborðið hjá arkí- tektum í Reykjavík. Læknar FSA og fleiri fögnuðu heils hugar og alveg sérstaklega fagfólk í geðheilbrigðisþjónustunni. Sam- starf okkar Sigmundar hófst haustið 1984. Hann varð strax stundakennari við heilbrigðis- deild hins nýstofnaða háskóla á Akureyri. Hann settist í stjórn læknaráðs FSA. Þetta sýndi til fulls, að hér var kominn óumdeild- ur þungavigtarmaður í raðir lækna FSA, aðeins fertugur að aldri. Læknisstarfið hafði for- gang, eins og algengt er í okkar stétt. Við unnum saman nær óslit- ið í 27 ár, 1984-2011, og bar aldrei skugga á, enda var hann þeirrar gerðar sem yfirmaður, að á betra varð ekki kosið. Við ræddum oft og lengi um allt milli himins og jarðar, þegar hlé varð á skyldustörfum. Stjórnmál bar tiltölulega sjaldan á góma. Ég held, að hann og Þorsteinn Valdi- marsson skáld hafi verið rólynd- ustu róttæklingar, sem ég kynnt- ist á allri ævi minni. Hans verður lengi saknað sem starfsbróður, ritrýnanda og fjölvitrings. Fjöl- skyldu hans votta ég innilegustu samúð mína. Missir hennar er mikill. Brynjólfur Ingvarsson. Á erfiðri kveðjustund, er mað- ur vildi geta gert minningu góðs vinar verðug skil og honum sam- boðin, eru viðeigandi orð vand- fundin. Meta verður viljann fyrir verkið. Sigmundur Sigfússon tók starf sitt sem geðlæknir alvarlega. Af- staða hans til umhverfisins og til skjólstæðinganna mótaðist af til- finningalegum skilningi og innsæi. Jafnframt einkenndist viðhorf hans til verksviðsins sem og framganga af skarpri heildar- sýn og brennandi áhuga á bættu skipulagi geðheilbrigðisþjónust- unnar og forvörnum í víðri merk- ingu. Sigmundi var vel ljóst hve félagsleg vandamál af margvís- legu tagi áttu iðulega mikinn, ef ekki mestan þátt í alvarlegum geðheilsubresti og öðru heilsu- tjóni sem og niðurbroti velfarnað- ar almennt. Að þeim þáttum yrði að beita sér af samtakamætti. Alla tíð lagði hann mikla áherslu á þverfaglegt samstarf heilbrigðis- starfsfólks bæði inn á við og út á við og þá ekki síst við félagsþjón- ustuna, en einnig aðila mennta- kerfis og réttarkerfis og fleiri, er svo bar undir. Hann beitti sér fyr- ir geðlæknisþjónustu í strjálbýl- inu og sýndi þar gott fordæmi í verki. Þá vann hann mikilsvert og óeigingjarnt starf á sviði áfalla- hjálpar. Hér er stiklað á stóru um hugsjónir Sigmundar. Í fáum orð- um sagt var hann ótvíræður frum- kvöðull samfélagsgeðlækninga hérlendis, sem er afar brýnt mál. Sigmundur var unnandi menn- ingar og lista og náttúru landsins. Mannkostamaður í bestu merk- ingu. Hjálpsemi og ósérhlífni voru hans aðalsmerki. Vinátta hans og góðvild gleymist ekki. Vinum hans öllum og aðstandendum votta ég einlæga samúð. Magnús Skúlason. Þó að dökkni og dofni sjón um sinn, sjálf mun minning þín áfram lýsa leiðir vorsins og í hjarta hýsa, huga sem þér ber vinur minn. Dýrast gæða í veröld verður vinarþel hlýtt og tryggðin sanna, sem brautir elsku byggir milli manna, úr besta silki vegur sá er gerður. Birtir í lofti grænkar grund gleði færir flautan hljómi hreinum, úr heimi söngva hljómar sáttalag. Fögur merlar morgunstund magnar líf er fylgir vegi beinum, í átt til þess sem alltaf á sér dag. Jón Hlöðver Áskelsson. Gamall vinur minn, Sigmundur Sigfússon geðlæknir, er látinn. Sigmundur var traustur, ráðagóð- ur og kær vinur með góðan húm- or. Hann var sá fyrsti sem gegndi stöðu aðstoðarlandlæknis. Síðar unnum við mikið saman. Milli okkar Sigmundar skapaðist góður vinskapur og vorum við með svip- uð áhugamál. Sigmundur bjó á Akureyri og veitti geðdeild sjúkrahússins þar forstöðu. Sig- mundur var góður læknir, vel les- inn í fræðunum og framfarasinn- aður í hugsun. Samstarf okkar var mjög gott og vináttan kær. Ég kveð góðan og kæran vin og sendi Ingu og sonum Sigmundar mínar hlýjustu samúðarkveðjur. Ólafur Ólafsson, fyrrv. landlæknir. Lystigarðurinn á Akureyri kemur í hugann þegar við minn- umst Sigmundar Sigfússonar, forstöðulæknis geðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri um ára- tugaskeið. Nú hverfur hann á vit nýrra gróðurvinja í kjölfar illvígra veikinda sem hann axlaði af al- kunnu æðruleysi. Ást Sigmundar á náttúrunni og mönnum og dýrum, og þeim sem þjakaðir voru af andlegri áþján, einkenndi líf hans og störf. Hann tók sér sjaldan frí frá störfum, var alltaf til staðar innan um staflana af fræðibókum, fræðigreinum og sjúkragögnum. En talaði gjarnan um stundirnar sem hann átti þeg- ar hann gekk ásamt samtarfsfólki í gegnum Lystigarðinn frá sjúkrahúsinu yfir á dagdeild geð- deildar á Skólastíg 7, á vikulega meðferðarfundi þar, stundir sem gáfu honum hugarsvölun frá erli daganna. Og það var í Lystigarð- inum sem hann sjötugur bauð okkur samstarfsfólkinu, fyrr og síðar, til afmælisfagnaðar í gró- andanum. Leiðir okkar Sigmundar lágu upphaflega saman í gegnum störf mín fyrir svæðisstjórn málefna fatlaðra og síðar við uppbyggingu fyrsta sambýlis fyrir geðfatlaða á Akureyri. Í framhaldi af því unn- um við að uppbyggingu dagdeild- arþjónustu fyrir skjólstæðinga geðdeildar sjúkrahússins og starfaði ég sem forstöðusálfræð- ingur á endurhæfingar-og með- ferðarsviði í tæp níu ár undir hans stjórn. Samstarfið var traust, far- sælt og gjöfult. Sigmundur hafði fágæta innsýn í fjölbreytileika mannlífsins og skilning á því að ekki hentar sama meðferðar- stefna öllum heldur ber að kapp- kosta að sníða meðferð að þörfum hvers og eins. Greiningar einar og sér dugi ekki. Samstarf okkar hélt áfram um mörg ár eftir að ég tók að kenna meira og hóf störf á eig- in stofu. Sigmundur kom að mörgum rannsóknarverkefnum eftir að Háskólinn á Akureyri hóf störf haustið 1987 og sat árum saman í vísindasiðanefnd. Hann var víð- lesinn og vel máli farinn og sendi ekki gögn frá sér nema vel unnin. Hann kom m.a. að tímamótarann- sóknum á Austfjörðum um geð- heilsu ungra karla en þangað átti hann ættir sem og í gróðursælan Eyjafjörð. Hann fór reglulegar ferðir austur allt fram til þess að hann veiktist til þess að sinna skjólstæðingum. Sigmundur lét sér umhugað um andlega velferð barna og ung- menna og lagði áherslu á mikil- vægi fyrstu tengsla, og saman unnum við að merku þróunar- verkefni Heilsugæslustöðvarinn- ar á Akureyri um bætt tengsl móður og barns, í umsjón Karól- ínu Stefánsdóttur fjölskylduráð- gjafa og Hjálmars Freysteinsson- ar heimilislæknis. Það er gæfa að hafa átt Sigmund að sem bæði yf- irmann og vin og njóta leiðsagnar hans í meðferðarstarfi, kennslu og rannsóknum, s.s. á sviði svefns og drauma; meðvitaður um óræð svið vitundar og tilvistar. Tónlistin var Sigmundi kær og söng hann m.a. í Hymnódíukórn- um. Megi hann svífa á vængjum söngsins til nýrra heimkynna og hafa heila þökk fyrir allt. Ingu, börnum, barnabörnum og fjölskyldu votta ég dýpstu samúð. Kom ljúfa nótt, sigra sorg og harm, svæf mig við þinn barm, svæf – draumsins frið og gef mér grið. Góða nótt. (Jón frá Ljárskógum). Björg Bjarnadóttir. Ég kynntist Sigmundi fyrst fyrir alvöru þegar ég hóf störf á geðdeildinni á Akureyri árið 2007. Hann var þá forstöðulæknir og hafði verið einn af máttarstólpum geðlækninga á Norðurlandi í meira en tuttugu ár. Sigmundur sagði mér fljótlega að hann aðhylltist „laissez-faire“- stjórnunarstíl. Þessi nálgun hent- aði honum vel því hann átti greini- lega auðvelt með að treysta fólki og efaðist ekki um að það kynni sitt fag. Þeir sem unnu undir hans stjórn höfðu því almennt mikið frelsi í sínum störfum. Eins og óhjákvæmilegt er hjá mönnum í ábyrgðarstöðum kom fyrir að sótt var hart að honum en sýndi þá iðulega ótrúlega skapstillingu og rósemi. Hæglátt fas og hlýtt viðmót mætti einnig skjólstæðingum hans sem kunnu að meta að geta talað við hann á jafningagrund- velli og finna að það var hlustað án alls hroka. Mörgum sinnti hann árum og jafnvel áratugum saman en ekki var óalgengt að hann hefði hjálpað fleiri en einni kynslóð sömu fjölskyldu. Trú hans á fólki átti ekki síst við um hans skjól- stæðinga. Sama hvað hafði gerst, þá var alltaf von um bata og betra líf og ósjaldan að fólk, sem glímdi við mikil veikindi, leitaði til hans persónulega og keyrði jafnvel landshorna á milli til að hitta hann. Sigmundur gat svo sannarlega litið sáttur yfir farinn veg. Hann flutti frá Reykjavík árið 1984 til Akureyrar og lék lykilhlutverk í að tryggja framtíð geðdeildarinn- ar á Akureyri, var um tíma yfir- læknir á Sogni og voru falin ótal trúnaðarstörf um ævina við hinar ýmsu stofnanir og embætti. Það voru því merk tímamót í sögu geð- lækninga á Norðurlandi þegar hann hætti störfum við Sjúkra- húsið á Akureyri árið 2016 eftir 32 ára starf. Það var heiður að fá að kynnast Sigmundi og starfa við hans hlið. Hans verður minnst með hlýhug og þakklæti af hans kollegum. Karl Reynir Einarsson, formaður Geðlækna- félags Íslands. Ég kveð góðan vin, félaga og lækni minn með þakklæti, ást og virðingu. Fundum okkar bar sennilega fyrst saman veturinn 1965-66 á æfingum hjá dr. Róberti Abra- ham Ottóssyni í Fílharmóníu- söngsveitinni fyrir frumflutning á 9. sinfóníu Beethovens. Uppskera þessara æfinga var ævintýraleg og stórkostleg fyrir okkur öll, en verkið var flutt fimm sinnum fyrir fullu húsi í Háskólabíói. Sigmund- ur söng alla ævi, síðast með Hymnodiu á Akureyri. Sigmundur var hæglátur og þurfti yfirleitt ekki að tala hátt til að á hann væri hlustað. Hann var róttækur í skoðunum og ég minn- ist þess frá háskólaárunum að eiga traustan bandamann í bram- bolti mínu í stúdentapólitík. Sig- mundur var stofnfélagi í Verð- andi, óflokksbundnu félagi vinstrimanna í HÍ. Á síðari árum naut ég þess að hitta hann hjá VG. En nánustu kynni okkar urðu þegar hann varð minn geðlæknir og ég veit að ég tala fyrir munn margra skjólstæðinga Sigmund- ar, að hann var einstakur læknir. Mig grunar að hann hafi aldrei lært á klukku og ekki átt úr. Slík tæki komu ekki við sögu þegar Sigmundur var í viðtali. Enda er ég hræddur um að vinnudagurinn hafi oft orðið óskaplega langur, þótt hann tæki ekki eftir því sjálf- ur, en kannski frekar strákarnir og Ingurnar hans. Kyrrðin sem var ævinlega yfir Sigmundi, einstakur hæfileiki til að hlusta, ekki bara á sögð orð heldur það sem reynt var að segja, einkenndi þennan samtals- meistara. Hann reyndi að skilja hvern og einn, sýndi hlýju, sam- kennd og að honum stóð ekki á sama. Virðing umfram allt var það sem kórónaði samskipti hans við sjúklinga. Ef ég átti leið um Akureyri reyndi ég ávallt að hitta á Sig- mund Hann hélt áfram að sinna fólki meðan heilsa leyfði. Jafnvel þegar hann var orðinn rúmliggj- andi og öndun og tal erfitt leitaði ég til hans. Sigmundur hélt and- legri skerpu sinni til dauðadags. Ég átti vinafólk á Seyðisfirði sem missti son sinn ungan í sjálfs- vígi. Það gekk hrina sjálfsvíga um Austfirði. Þá var kallað á Sig- mund sem brást fljótt og vel við og í áratugi sinnti hann geðlækn- ingum á Austfjörðum til viðbótar öðrum skyldum sínum. Á þeim árum sem ég glímdi við strembin geðhvörf, 1980-1985, var Sigmundur sá sem var til staðar þegar mest þurfti við. Síðasta verkið sem hann vann var að koma í vitjun í fangaklefa á Húsa- vík þar sem ég var geymdur, heilsugæslulæknir á staðnum. Það þurfti að þrábiðja hann að fara í þessa ferð, hann vissi til hvers ætlast var af honum, að ganga frá vottorði til að nauðung- arvista undirritaðan á geðdeild fyrir sunnan. Þetta verk gat hann unnið af sama kærleik og virðingu sem ávallt ríkti okkar í millum. SJÁ SÍÐU 20 Elsku yndislega mamma, tengdamóðir og amma, GUNNHILDUR FRIÐÞJÓFSDÓTTIR, lést á Landspítalanum sunnudaginn 14. febrúar. Útför fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. febrúar klukkan 15. Soffía Tinna Gunnhildardóttir Einar Gíslason og barnabörn Yndislega móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSGERÐUR ÁSMUNDSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Eyjabakka 14, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir miðvikudaginn 10. febrúar. Útför fer fram í kyrrþey. Kristín Hreinsdóttir Sigurður Viðar Jónasson Guðrún Hreinsdóttir Friðbjörn Óskarsson Margrét Guðfinna Hreinsd. Hrefna Hreinsdóttir Stefán Axelsson Ásmundur Sveinsson Þorgerður Guðmundsdóttir Þorbjörn Gerðar Þorbjörnss. Dögg Ingimundardóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.