Morgunblaðið - 22.02.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021
„KANN AÐ VALDA SVIMA, SKERÐINGU Á
SJÓNSVIÐI OG EYRNASUÐI.” „þetta er nýja … „ofurnálin.””
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að dansa eins og
enginn sé að horfa.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ELÍN, ÉG GÆTI HORFT Í ÞÍN
ÆGIFÖGRU AUGU Í ALLT KVÖLD
ER ÞETTA ÖNNUR LEIÐ TIL
AÐ TJÁ MÉR AÐ ÞÚ ÆTLIR
EKKI AÐ TALA VIÐ MIG?
HRÓLFUR, HJÁLPAÐU MÉR AÐ
VELJA ILMKERTI! MIG LANGAR Í
LOFNARBLÓM!
EN ÞIG?
ÞEF
NUS
ÉG ER AÐ LEITA AÐ EINU
MEÐ BEIKONILMI!
leg lífsreynsla að kynnast konum alls
staðar að úr heiminum, að sækja
þær heim og fá í heimsókn.“
Fjölskylda
Eiginmaður Hildar er Karl Karls-
son, f. 17.11. 1928, vélfræðingur.
„Fyrstu hjúskaparárin voru á Þórs-
götu 17 þar sem ég ólst upp, en 1957
fluttum við í raðhús sem við byggð-
um í Kópavogi á Skólatröð 11. Frá
því í janúar 1984 höfum við verið bú-
sett í Garðabæ.“ Foreldrar Karls
voru hjónin Karl Finnbogason, f.
1875, d. 1952, skólastjóri á Seyðis-
firði og Vilhelmína Ingimundar-
dóttir, f. 1890, d. 1956, húsfreyja.
Börn Hildar og Karls eru Hafdís
Þóra, f. 1954, viðskipta- og tölvunar-
fræðingur; Vilhjálmur Karl, f. 1955,
vélfræðingur og iðnfræðingur, og
Hálfdan, f. 1959, viðskiptafræðingur
MBA. Þau eru öll vel gift og búa á
höfuðborgarsvæðinu. Ömmubörnin
eru sjö, fædd 1978-1998, og lang-
ömmubörnin eru 11 á aldrinum átta
mánaða til 18 ára.
Systkini Hildar eru Hadda Hálf-
danardóttir, f. 12.6. 1935, búsett í
Kópavogi; Jakob Hálfdanarson, f.
1.1. 1942, tæknifræðingur, búsettur í
Reykjavík, og dr. Jón Hálfdanarson,
f. 19.5. 1947, eðlisfræðingur, búsett-
ur í Reykjavík.
Foreldrar Hildar voru hjónin
Þórný Jónsdóttir, f. 27.4. 1904, d.
7.12. 1955, kaupmaður í versluninni
Kjöti og fiski og húsfreyja, og Hálf-
dan Eiríksson, f. 24.6. 1901, d. 28.5.
1981, kaupmaður í Kjöti og fiski í
Reykjavík og síðar starfsmaður hjá
Skattstofu Reykjavíkur.
Hildur
Hálfdanardóttir
Guðríður Eiríksdóttir
húsfreyja í Kollstaðagerði, f. á Hafursá.
Fórst í snjóflóðinu á Seyðisfirði 1885
Sigurður Guttormsson
bóndi í Kollstaðagerði á
Völlum, S-Múl.
Halldóra Sigurðardóttir
húsfreyja á Þverá, í Reykjavík og Hafnarfirði
Jón „Þveræingur“ Jónsson
bóndi á Þverá og bókhaldari í Reykjavík
Þórný Jónsdóttir
húsfreyja og stofnaði og byggði
upp með manni sínum verslunina
„Kjöt og fiskur“
Herdís Ásmundsdóttir
húsfreyja á Þverá, frá Stóru-
Völlum í Bárðardal
Jón Jóakimsson
bóndi á Þverá í Laxárdal, S-Þing.
Petrína Kristína Pétursdóttir
Jónssonar Þorsteinssonar ættföður
Reykjahlíðarættarinnar, húsfreyja á Grímsstöðum
Jakob Hálfdanarson
bóndi á Grímsstöðum í
Mývatnssveit og einn aðalstofnandi
Kaupfélags Þingeyinga
Jakobína Jakobsdóttir
kennari og einstæð móðir eftir
skilnað, lengst á Eyrarbakka
Eiríkur Þorbergsson
ljósmyndari og snikkari á Húsavík,
flutti til Vesturheims 1910
Sigríður Andrésdóttir
húsfreyja í Syðri-Tungu,
frá Bakka á Tjörnesi
Þorbergur Eiríksson
bóndi í Syðri-Tungu á Tjörnesi
Úr frændgarði Hildar Hálfdanardóttur
Hálfdan Eiríksson
kaupmaður og eigandi
verslunarinnar „Kjöt og
fiskur“ í Reykjavík
Ég hef verið að fletta bókum föð-ur míns. Þar var „Ég læt allt
fjúka“ eftir Ólaf Davíðsson, en
Finnur Sigmundsson lands-
bókavörður bjó til prentunar. Hann
gaf föður mínum bókina með þess-
ari áritun (LHB er skammstöfun
fyrir Lárus H. Blöndal):
L H B fyrir utan spé
Ólaf D. ég læt í té.
Lof sé g. Mitt fósturfé
fær þar hlé hjá valmenne.
Bókin er skemmtileg og fróðleg.
Þar fer Ólafur með tvær stökur eft-
ir Guðlaug Guðmundsson, sem síð-
ast sat prestur á Stað í Steingríms-
firði, en hann hafði ort við skál:
Drekkum bræður, bræðra skál,
burtu hrindum kvíða;
hressum okkar hrelldu sál,
hröð er stund að líða.
Engri neitum unaðsrós,
anda meðan hrærum,
enginn veit hvort lífsins ljós
lýsir vorum hærum.
Ólafur segir að þessar vísur séu
ekki svo bölvaðar og bætir við: „Ég
ætla að kríta hér vísu eftir Þorstein
Skúlason, er hann gjörði á ungum
aldri“:
Ég vil eiga úr og kvon,
og að hvortveggju hlúa,
svo fái ég séð hve fagran son
ég fljótur er til að búa.
Björn Ingólfsson segir á Boðn-
armiði: „Fyrir daga plasts voru
málningarfötur úr blikki og þóttu
góðar til ýmislegs brúks þegar búið
var að tæma þær. Ingi málari rétti
nágranna sínum eina slíka og sagði
að hún kostaði vísu. Hún kom:
Hvar sem Ingi um foldu fer
flatir honum liggjum vér.
Fyrir skjólu þakka ég þér
þó að lítils virði er.
Höfundurinn var greinilega á
undan sinni samtíð af því að þetta
var löngu áður en viðtengingar-
hátturinn fór að bögglast fyrir
mönnum.“
Þessi upprifjun gaf Sigurlínu
Hermannsdóttur tilefni til að
skrifa: „Við horfum upp á hægfara
dauða viðtengingarháttar. Æ oftar
heyrast setningar eins og: Ég held
að hann kemur, eða: Ég vona að þú
ert ánægð.“
Vísa í viðtengingarhætti
Efalaust það einhvern kætti
sem ýmsum fyndist málið bætti
ef hindra þessa þróun mætti
og þyrma viðtengingarhætti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Stökur frá Höfn og vísa
í viðtengingarhætti