Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 26

Morgunblaðið - 22.02.2021, Side 26
KÖRFUBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Haukar jöfnuðu Keflavík og Val að stigum í efstu sætum úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik, Dominos- deildarinnar, þegar liðið fékk Fjölni í heimsókn í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í tíundu umferð deild- arinnar í gær. Leiknum lauk með tveggja stiga sigri Hauka, 85:83, en Haukar leiddu með 16 stigum í hálfleik, 52:36. Fjölniskonum tókst að minnka muninn og þær komust yfir, 76:75, í fjórða leikhluta en Hafnfirðingar reyndust sterkari á lokamínútunum. Alyeasha Lovett átti stórleik fyrir Hauka, skoraði 28 stig, tók fimm frá- köst og gaf fimm stoðsendingar, og þá skoruðu þær Lovísa Björt Hennings- dóttir og Þóra Jónsdóttir 13 stig hvor. Ariel Hearn var stigahæst Fjölnis- kvenna með 40 stig og sex fráköst. Stórsigur Vals í Borgarnesi Þá skoraði Kiana Johnson 32 stig fyrir Val þegar liðið heimsótti Skalla- grím í Borgarnes. Valskonur leiddu með 12 stigum í hálfleik, 44:32, en leiknum lauk með 91:65-stórsigri Vals. Keira Robinson skoraði 20 stig fyr- ir Skallagrím og Sanja Orozovic 18 en Skallagrímur, sem varð bikar- meistari í fyrsta sinn á síðustu leiktíð, ætlaði sér stóra hluti á leiktíðinni. Gengi liðsins hefur hins vegar verið afar dapurt og hefur það aðeins unnið fjóra leiki af fimm á tímabilinu. Þá vann KR sinn fyrsta leik á tíma- bilinu þegar liðið fékk Snæfell í heim- sókn í DHL-höllina í Vesturbæ. Leiknum lauk með fjögurra stiga sigri KR, 78:74, en Vesturbæingar leiddu með fimm stigum í hálfleik, 41:36. Annika Holopainen skoraði 33 stig og tók sextán fráköst fyrir KR-inga og þá átti Ashley McCutcheon einnig mjög góðan leik, skoraði 19 stig og gaf 12 stoðsendingar. Anna Soffía Lárusdóttir var stiga- hæst í liði Snæfells með 22 stig og Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 16 stig. Fjórði sigurleikur Hauka í röð  Valskonur fóru illa með Skallagrím  Fyrsti sigur KR kom gegn Snæfelli Morgunblaðið/Íris Barátta Það var hart tekist á í Vesturbænum í leik KR og Snæfells. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. FEBRÚAR 2021 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Austurberg: ÍR – Haukar......................... 18 Hleðsluhöllin: Selfoss – Grótta............ 19.30 Origo-höllin: Valur – Afturelding ....... 19.40 Í KVÖLD!  Kjartan Henry Finnbogason skor- aði sigurmark Esb- jerg gegn Fre- dericia í dönsku B-deildinni í knatt- spyrnu á laug- ardaginn en hann er nýkominn til fé- lagsins. Íslending- urinn var í byrj- unarliði Esbjerg í annað sinn og skoraði sigurmark leiks- ins í 1:0-sigri á 72. mínútu með skalla. Sex mínútum síðar var hann tekinn af velli og Andri Rúnar Bjarnason kom inn á. Þá er Ólafur Kristjánsson þjálfari liðsins sem er í öðru sæti, tveimur stig- um á eftir toppliði Viborg. Kjartan er dönsku B-deildinni vel kunnugur en hann hefur tvisvar áður leikið í henni. Í tvö fyrri skiptin hefur KR-ingurinn stað- ið uppi sem markakóngur deildarinnar, með 17 mörk í bæði skiptin. Fyrst með Horsens vorið 2016 og síðan aftur með Vejle fyrir tæpu ári, eða um sumarið 2020.  Aron Jóhannsson fer vel stað með Lech Poznan í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en hann skoraði sigurmark liðsins í 1:0-sigri á heimavelli gegn Slask Wroclaw í gær. Þetta var fyrsti leikur framherjans með liðinu en Aron, sem lék með Hammarby í Svíþjóð á síð-  Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Þórðarson var á skotskónum fyrir belg- íska B-deildarfélagið Lommel þegar lið- ið fékk Lierse í heimsókn. Kolbeinn, sem er á sínu öðru tímabili með Lom- mel, jafnaði metin fyrir sitt lið á 38. mínútu áður en Arno Verschueren tryggði Lommel sigur á 76. mínútu. Markið var það þriðja sem Kolbeinn skorar í belgísku B-deildinni og annað markið hans á tímabilinu. Lommel er í fjórða sæti deildarinnar með 31 stig, 19 stigum á eftir Union Saint-Gilloise sem situr í toppsætinu.  Bjarki Már Elísson skoraði fimm mörk fyrir Lemgo sem gerði 27:27- jafntefli gegn toppliði Flensburg í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær. Alex- ander Petersson er meiddur og var því Eitt ogannað Kjartan Henry Finnbogason ustu leiktíð, var í byrjunarliði Lech Poznan og skoraði sigurmarkið á 57. mínútu. Hann var tekinn af velli á 75. mínútu. Lech Poznan er í 10. sæti af 16 liðum með 22 stig eftir 18 leiki. Aron Jóhannsson Lengjubikar karla HK – Afturelding ..................................... 2:0 Víkingur Ó. – KA...................................... 0:5 FH – Víkingur R....................................... 1:6 KR – Fram ................................................ 8:2 Þór – Kórdrengir...................................... 1:3 Keflavík – Vestri....................................... 5:0 Selfoss – Grótta ........................................ 0:2 Leiknir R. – ÍBV....................................... 4:1 Fjölnir – Fylkir......................................... 1:4 England Liverpool – Everton ................................ 0:2  Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Everton á 59. mínútu og skoraði annað mark liðsins. Arsenal – Manchester City..................... 0:1  Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Burnley – WBA ........................................ 0:0  Jóhann Berg Guðmundsson var ekki í leikmannahópi Burnley vegna meiðsla. Southampton – Chelsea ........................... 1:1 Burnley– WBA ......................................... 0:0 Fulham – Sheffield United ...................... 1:0 West Ham – Tottenham .......................... 2:1 Aston Villa – Leicester ............................ 1:2 Manchester United– Newcastle ............. 3:1 Staðan: Manch. City 25 18 5 2 50:15 59 Manch. Utd 25 14 7 4 53:32 49 Leicester 25 15 4 6 44:27 49 West Ham 25 13 6 6 39:29 45 Chelsea 25 12 7 6 41:25 43 Liverpool 25 11 7 7 45:34 40 Everton 24 12 4 8 37:33 40 Aston Villa 23 11 3 9 37:26 36 Tottenham 24 10 6 8 37:27 36 Arsenal 25 10 4 11 31:26 34 Wolves 25 9 6 10 26:32 33 Leeds 24 10 2 12 40:43 32 Southampton 24 8 6 10 31:40 30 Crystal Palace 24 8 5 11 27:42 29 Burnley 25 7 7 11 18:30 28 Brighton 24 5 11 8 25:30 26 Newcastle 25 7 4 14 26:43 25 Fulham 25 4 10 11 21:32 22 WBA 25 2 8 15 19:55 14 Sheffield Utd 25 3 2 20 15:41 11 B-deild: Millwall – Wycombe ................................ 0:0  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður hjá Millwall á 85. mínútu. Þýskaland B-deild: St. Pauli – Darmstadt.............................. 3:2  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstadt. Ítalía Sassuolo – Bologna.................................. 1:1  Andri Fannar Baldursson kom inn á sem varamaður hjá Bologna á 81. mínútu. B-deild: Brescia – Cremonese .............................. 1:2  Birkir Bjarnason lék allan leikinn með Brescia, Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á sem varamaður á 82. mínútu. Rússland Bikarkeppnin, 16-liða úrslit: CSKA Moskva – Khabarovsk ................. 2:0  Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn með CSKA Moskvu. Arnór Sigurðs- son lék fyrstu 73. mínúturnar. Holland Venlo – AZ Alkmaar ............................... 1:4  Albert Guðmundsson lék allan leikinn með AZ Alkmaar. Grikkland PAOK – Lamia ......................................... 4:0  Sverrir Ingi Ingason var ekki í leik- mannahópi PAOK.  Theódór Elmar Bjarnason lék allan leik- inn með Lamia. Danmörk Bröndby – Vejle ....................................... 2:1  Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn með Bröndby. AGF – SönderjyskE................................. 2:0  Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 85. mínúturnar með AGF.  Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmanna- hóp SönderjyskE. Horsens – OB............................................ 0:0  Ágúst Eðvald Hlynsson kom inn á sem varamaður á 79. mínútu hjá Horsens.  Aron Elís Þrándarson kom inn á sem varamaður hjá OB á 78. mínútu, Sveinn Ar- on Guðjohnsen var ekki í hópnum. Svíþjóð Bikarkeppnin: Hammarby – Eskilstuna ......................... 4:1  Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Häcken – Dalkurd ................................... 2:0  Oskar Tor Sverrisson lék allan leikinn með Häcken, Valgeir Lunddal Friðriksson lék fyrstu 20 mínúturnar.  ENGLAND Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Manchester City verði Eng- landsmeistari í fótbolta þrátt fyrir að þrettán umferðir séu eftir af ensku úrvalsdeildinni. City vann sinn átjánda leik í röð í öllum keppnum er liðið lagði Arsenal 1:0 á útivelli í gær. Sigurinn var þrett- ándi í röð í ensku úrvalsdeildinni og virðast lærisveinar Guardiola vera óstöðvandi, en gengið hefur meira að segja komið spænska stjóranum á óvart. „Ég er hissa en heillaður. Á með- an öll önnur lið eru að tapa stigum höfum við verið mjög stöðugir í tvo mánuði og ég átti ekki von á því,“ sagði Guardiola við BBC eftir leik. Grannarnir í Manchester United eru enn tíu stigum fyrir aftan eftir sigur á Newcastle á Old Trafford, 3:1. Staðan var 1:1 í hálfleik en United var miklu betra liðið í seinni hálfleik og var sigurinn verðskuld- aður. Eins og oft áður skoraði Bruno Fernandes úr vítaspyrnu og þá lagði hann upp eitt mark sömuleiðis. Fernandes hefur skorað 15 mörk og lagt upp 10 til viðbótar á leiktíðinni, en sjaldgæft er að einn leikmaður hafi eins mikil áhrif á eitt lið í þeim gæðaflokki sem Manchester United er í. Eins og Manchester United þá er Leicester með 49 stig í þriðja sæti eftir 2:1-sigur á Aston Villa. Liðið hefur aðeins tapað einum leik í sex- tán síðustu leikjum í öllum keppn- um. Leicester var á svipuðum stað í deildinni á síðustu leiktíð og áttu því eflaust einhverjir von á að Leicester yrði í baráttunni um Evrópusæti. Mourinho í basli Það voru hins vegar fáir sem áttu von á að West Ham yrði í slíkri bar- áttu en liðið vann 2:1-sigur á Tott- enham og fór fyrir vikið upp í fjórða sæti. David Moyes er að gera gífur- lega góða hluti með West Ham eftir að margir höfðu afskrifað Skotann. West Ham hefur aðeins tapað ein- um leik af síðustu ellefu í deildinni. Tottenham er hins vegar í basli í ní- unda sæti með aðeins einn sigur í síðustu sex deildarleikjum. José Mourinho knattspyrnustjóri Totten- ham er þó handviss um að slæmt gengi sé ekki honum að kenna. „Mínar aðferðir eru með þeim bestu í heiminum,“ sagði Mourinho kokhraustur að vanda við Sky eftir leik. Á laugardag var Gylfi Þór Sig- urðsson áberandi í 2:0-sigri Everton á erkifjendunum í Liverpool á An- field, en sigurinn var sá fyrsti hjá Everton á vellinum í deildinni síðan 1999. Gylfi skoraði annað markið úr víti eftir að hafa komið inn á sem varamaður skömmu áður. Gylfi hef- ur nú skorað þrjú mörk á Anfield í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool er í miklu tjóni eftir fjögur töp á heima- velli í röð í deildinni og fjögur deild- artöp í röð, heima og heiman. Fyrr um daginn hikstaði Chelsea gegn Southampton og varð að gera sér að góðu eitt stig, 1:1. Chelsea, undir stjórn Thomas Tuchels, er í fimmta sæti, tveimur stigum frá Meistaradeildarsæti. Getur einhver stöðvað City?  Átján sigrar í röð  Gylfi skoraði AFP Óstöðvandi Manchester City vann enn og aftur í ensku úrvalsdeildinni gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.