Morgunblaðið - 26.02.2021, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
Haukar tilkynntu í gærkvöldi að
Sara Rún Hinriksdóttir, lykilmann-
eskja í landsliðinu, muni leika með
Haukum út tímabilið í Dominos-
deildinni í körfuknattleik. Sara Rún
hefur raðað niður körfunum á Bret-
landseyjum undanfarið og varð bikar-
meistari með Leicester. Í tilkynningu
frá Haukum segir að hún hafi ákveðið
að koma heim af persónulegum
ástæðum. Hjá Haukum hittir Sara fyrir
systur sína Bríeti Sif. Léku þær síðast
saman með Keflavík árið 2015.
Ómar Ingi Magnússon, landsliðs-
maður í handknattleik, átti enn einn
stórleikinn fyrir Magdeburg þegar liðið
vann Tusem Essen í þýsku 1. deildinni
34:28 í gær. Skoraði Ómar 11 mörk í
leiknum og var markahæstur. Gísli
Þorgeir Kristjánsson lét ekki heldur
sitt eftir liggja og skoraði fimm mörk
fyrir Magdeburg.
Grindvíkingar hafa fengið liðsauka
fyrir seinni hluta keppninnar í úrvals-
deild karla í körfuknattleik. Kazembe
Abif, 28 ára gamall bandarískur fram-
herji, er kominn til þeirra frá Helsinki
Seagulls í Finnlandi. Hann er tveir
metrar á hæð og hefur áður leikið í
Kanada, Danmörku og Þýskalandi.
Tryggvi Guðmundsson, marka-
hæsti leikmaður úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu frá upphafi, hefur verið
ráðinn þjálfari 4. deildar liðs Kor-
máks/Hvatar frá Hvammstanga og
Blönduósi. Eftir að Tryggvi lagði skóna
á hilluna var hann aðstoðarþjálfari hjá
ÍBV og hefur stýrt 3. deildar liðinu
Vængjum Júpíters í Grafarvogi.
Óvíst er að brasilíski markvörðurinn
Alisson Becker leiki næstu leiki enska
knattspyrnuliðsins Liverpool. Faðir
hans, José Becker, lést sviplega í
fyrradag í heimalandinu Brasilíu.
Eitt
ogannað
RÚMENÍA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
„Það eru viðbrigði að vera kominn
aftur til Evrópu, ef svo má segja, en
miðað við byrjunina er gott að vera
hérna í Cluj,“ segir Rúnar Már Sig-
urjónsson, landsliðsmaður í fótbolta,
sem fyrr í þessum mánuði gekk til
liðs við rúmensku meistarana CFR
Cluj eftir að hafa leikið í hálft annað
ár með Astana í Kasakstan. Hann er
þar með fyrsti Íslendingurinn sem
spilar með rúmensku liði.
„Ég kom hingað 6. febrúar, fór í
læknisskoðun og skrifaði undir
tveimur dögum síðar. Ég var að
koma úr fríi, hafði ekkert spilað síð-
an í nóvember og átti auk þess við
smá meiðsli að stríða, en hef æft á
fullu með liðinu að undanförnu. Mér
líður vel og ég er í góðu standi.
Það er engin alvarleg pressa á
mér að byrja strax að spila og lögð
er áhersla á að ég fái góðan tíma til
að koma mér inn í hlutina hérna.
Þegar þú flytur í nýtt land og skipt-
ir um lið breytist allt í þínu lífi og
þeir vilja að ég komi hægt og bít-
andi inn í þetta. Ég er alveg sáttur
við það þótt mér hafi vanalega geng-
ið vel að aðlagast í nýju landi og
nýju liði.
Næsti leikur er á mánudag, þeir
vilja ekki að ég spili hann, æfi frekar
vel með liðinu og spili mögulega
minn fyrsta leik um aðra helgi.“
Munur á umgjörðinni
Rúnar kveðst finna talsverðan
mun á Astana og CFR Cluj.
„Jú, þetta er mun stærra félag en
Astana og deildin hérna er betri.
CFR er félag sem hefur náð góðum
úrslitum í Evrópukeppni, hefur orð-
ið rúmenskur meistari síðustu þrjú
ár og féll út úr Evrópudeildinni í
vetur á vítaspyrnu á 90. mínútu í
síðasta leik. Þetta er mjög sterkt lið
og góður grunnur. Þegar nýr forseti
og nýr eigandi tóku við félaginu
2017 var gefið hressilega í og hér er
alltaf stefnt á að komast í Meist-
aradeildina, með Evrópudeildina til
vara.
Munurinn á CFR Cluj og Astana
er fyrst og fremst sá að öll umgjörð-
in hérna er miklu meiri. Í Astana
var settur mikill peningur í leik-
mennina en ekki í neitt annað.
Hérna er fjárfest vel í öllu í kringum
liðið.“
Spennandi úrslitakeppni
Rúnar þekkti aðeins til CFR Cluj
eftir að hafa mætt liðinu tvívegis í
undankeppni Meistaradeildarinnar
sumarið 2019, rétt eftir að hann kom
til Astana.
„Já, okkur tókst að vinna heima-
leikinn í Astana 1:0 en þeir unnu
seinni leikinn í Cluj, 3:1, og sýndu
svo um veturinn hversu sterkir þeir
væru. Liðið féll ekki út í Evr-
ópudeildinni fyrr en eftir tvo jafn-
teflisleiki gegn Sevilla í 32 liða úr-
slitum og það segir sitt.
Viðbrigðin eru líka talsverð fyrir
Rúnar að koma frá Kasakstan þar
sem leiknir eru 22 deildaleikir á
tímabilinu og til Rúmeníu þar sem
liðin spila 40 leiki í deildinni.
„Já, það er nóg af leikjum hérna,
sem er bara gaman, og það er líka
ein af ástæðunum fyrir því að for-
ráðamenn Cluj vilja ekki ýta mér
inn í liðið of snemma. Þeir vilja að
ég sé í mínu besta formi þegar kem-
ur að úrslitakeppninni. Við eigum
sex leiki eftir af sjálfri deildinni en
eftir þrjátíu leiki tekur við tíu leikja
úrslitakeppni þar sem sex efstu liðin
spila tvöfalda umferð. Það verður
virkilega gaman, tíu leikir við bestu
liðin og áhuginn er gríðarlegur.
Rúmenía er gamalt fótbolta-
stórveldi, hér eru allir leikir sýndir
ókeypis í sjónvarpi, á þremur stöðv-
um, og það er mikið talað um gömlu
hetjurnar og fótboltasögu þjóð-
arinnar. Þeim hefur ekki gengið vel
síðustu ár en landsliðið þeirra er
fínt. Fjórir til fimm leikmanna Cluj
hafa verið í landsliðinu undanfarið
og þar sem við mætum þeim tvisvar
í undankeppni HM í haust eigum við
eflaust eftir að ræða það talsvert,“
sagði Rúnar en lið hans er í mikilli
baráttu við FCSB (áður Steaua) og
Universitatea Craiova um meist-
aratitilinn. Þessi þrjú lið skera sig
úr í rúmensku 1. deildinni, Liga 1,
eins og deildin heitir þar í landi.
Læstur inni í Kasakstan með
fjölskylduna á Íslandi
Rúnar kveðst feginn að árið 2020
sé að baki enda hafi það verið sér-
stök upplifun að vera nánast læstur
inni í Kasakstan í marga mánuði
með fjölskylduna, sambýliskonu og
dóttur, heima á Íslandi allan tímann.
„Dvölin í Kasakstan var algjör-
lega tvískipt, fyrir og eftir Covid.
Fyrstu sex mánuðirnir eftir að ég
kom þangað sumarið 2019 voru al-
gjörlega geggjaðir. Við urðum
meistarar og spiluðum í Evrópu-
deildinni. Á meðan lífið var eðlilegt
var mjög gott að vera þar. En eftir
að við höfðum verið í æfingabúðum í
Evrópu í janúar og febrúar var
landinu lokað í mars. Ég var einn í
íbúðinni í fjóra til fimm mánuði,
fram í ágúst, því fjölskyldan var
heima á Íslandi og átti aldrei mögu-
leika á að komast inn í landið. Ef
maður fór út úr húsi kom lögreglan
og rak mann aftur inn. Þegar deild-
in fór aftur af stað voru allir leik-
irnir spilaðir í Almaty, stærstu borg
landsins, og þá tók við fjögurra
mánaða hóteldvöl. Það var eins og
löng æfingaferð þar sem maður sá
sömu andlitin og fékk sama matinn
dag eftir dag.
Svo var allur peningur búinn hjá
Astana, bæði vegna kórónuveir-
unnar og þar sem aðalstyrktarað-
ilinn yfirgaf félagið. Nú er ríkið í
raun að borga laun leikmanna og
forsetinn ákvað að hætta að eyða
peningum í erlenda leikmenn og
byggja á heimamönnum. Þegar ég
fór til Cluj voru 12-13 útlendingar
farnir frá félaginu og sex til sjö á
förum. Ég var heppinn að Cluj
skyldi koma inn í myndina á réttum
tíma, gat gert góðan starfsloka-
samning við Astana og fékk fínan
samning hér til tveggja ára.“
Bíð spenntur eftir þeim
Rúnar segir að daglegt líf í Cluj
sé þokkalegt en áhrifa veirunnar
gæti þar eins og annars staðar.
„Í heildina er mikið af smitum í
landinu en þeim hefur þó fækkað
töluvert. Hérna er flest lokað enn þá
en nú bíð ég spenntur eftir fjöl-
skyldunni. Þær koma hingað al-
komnar um miðjan mars og ég get
varla beðið, enda hafa þær verið
meira og minna heima á Íslandi í
næstum hálft annað ár.“
Ísland mætir Þýskalandi, Arme-
níu og Liechtenstein í fyrstu leikj-
unum í undankeppni HM dagana 25.
til 31. mars. Rúnar var í byrjunarliði
Íslands í fjórum af síðustu sex leikj-
um ársins 2020 og vonast að sjálf-
sögðu eftir því að vera valinn
„Já, þetta er spennandi eins og
alltaf en það er langt síðan ég spilaði
og ég veit ekki hvað Arnar Þór Við-
arsson þjálfari er að spá hvað mig
varðar. Hann hefur verið í sambandi
við mig og auðvitað vonast ég til
þess að vera í hópnum. Mér líður vel
og ef allt er eðlilegt gæti ég spilað
eina þrjá leiki með Cluj áður en
kemur að landsleikjunum. Það er
bara geggjað að mæta Þýskalandi í
fyrsta leik og væri fínt að byrja
keppnina á stigi þar. Þetta verður
mikil törn í byrjun, þrír leikir auk
ferðalaga á sjö dögum og slíkt hent-
ar okkar liði ekki sérstaklega vel en
vonandi haldast allir heilir. Við þurf-
um gjörsamlega á öllum okkar
mannskap að halda,“ sagði Rúnar
Már Sigurjónsson.
„Vilja gefa mér tíma“
Rúnar Már Sigurjónsson er fluttur frá Astana til Cluj Talsverð viðbrigði
Dvölin í Kasakstan eins og svart og hvítt fyrir og eftir kórónuveiruna
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Landsliðið Rúnar Már Sigurjónsson í úrslitaleiknum gegn Ungverjum í
Búdapest í nóvember. Hann vonast til að vera með í næsta verkefni.
Aron Pálmarsson leikmaður Barce-
lona kemur á ný inn í landsliðshóp
karla í handknattleik fyrir leikinn
gegn Ísrael í undankeppni EM sem
fram fer ytra 11. mars. Óskar
Ólafsson, leikmaður Drammen, sem
ekki hefur spilað landsleik, kemur
einnig inn í hópinn. Sex leikmenn
sem voru á HM í janúar eru ekki
með, Kristján Örn Kristjánsson, Al-
exander Petersson, Janus Daði
Smárason, Björgvin Páll Gúst-
avsson, Kári Kristján Kristjánsson
og Magnús Óli Magnússon. Hóp-
urinn í heild er á mbl.is/handbolti.
Aron og Óskar
í landsliðinu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fyrirliði Aron Pálmarsson fer með
landsliðinu til Ísraels.
Handknattleiksmaðurinn Valþór
Atli Guðrúnarson sem leikur með
Þór á Akureyri hefur ákveðið að
leggja skóna á hilluna. Hann fór úr
axlarlið í leik Þórs og KA á dög-
unum og þarf fyrir vikið að fara í
sína fjórðu aðgerð á öxl en hefur
auk þess slitið krossband í hné einu
sinni. Valþór, sem verður þrítugur í
mars, sagði við netmiðilinn Akur-
eyri.net í gær að eflaust hefðu flest-
ir verið hættir eftir öll þessi meiðsli
og ljóst sé að þetta sé endapunkt-
urinn hjá honum í handboltanum.
Valþór hættur í
handboltanum
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Hættur Valþór Atli Guðrúnarson
leikur ekki meira með Þór.
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Vallaskóli: Selfoss – Vestri .................. 19.15
Álftanes: Álftanes – Breiðablik ........... 19.15
Hveragerði: Hamar – Skallagrímur ... 19.15
Flúðir: Hrunamenn – Sindri................ 19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Ísafjörður: Hörður – Kría......................... 19
Hleðsluhöll: Selfoss U – Fram U ........ 19.30
Origo-höll: Valur – Vængir Júpíters... 19.30
Kórinn: HK – Fjölnir ........................... 19.30
Ásvellir: Haukar U – Víkingur................. 20
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Víkin: Víkingur – HK U............................ 19
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Würth-völlur: Fylkir – Þróttur R ............ 19
Víkingsv.: Víkingur R. – Kórdrengir....... 19
Varmá: Afturelding – Grindavík.............. 19
Framvöllur: Fram – FH ........................... 19
Í KVÖLD!
Evrópudeildin
Zenit Pétursborg – Valencia ............. 62:91
Martin Hermannsson skoraði 2 stig fyrir
Valencia, átti 3 stoðsendingar og tók 3 frá-
köst á 19 mínútum.
NBA-deildin
Indiana – Golden State .................... 107:111
Atlanta – Boston............................... 127:112
Cleveland – Houston .......................... 112:96
Miami – Toronto ............................... 116:108
Chicago – Minnesota ............... (frl.) 133:126
New Orleans – Detroit..................... 128:118
Oklahoma City – San Antonio ........... 120:99
Phoenix – Charlotte ......................... 121:124
Utah – LA Lakers .............................. 114:89