Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 28

Morgunblaðið - 26.02.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í gær í Listasafni Íslands af mennta- og menningarmálaráð- herra, Lilju Alfreðsdóttur, en mark- miðið með þeim er að heiðra ís- lenska myndlistarmenn eða aðra myndlistarmenn sem búsettir eru á Íslandi og vekja athygli á því sem vel er gert jafnframt því að hvetja til nýrrar listsköpunar, eins og því er lýst í tilkynningu. Veittar voru tvær viðurkenningar og verðlaun í tveimur flokkum, þ.e. myndlist- armaður ársins, hvatningarverð- laun, heiðursviðurkenning fyrir út- gefið efni, sem er ný viðurkenning, og loks heiðursviðurkenning til handa listamanni. Myndlistartvíeykið Libia Castro og Ólafur Ólafsson hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin í ár fyrir verkið „Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnarskrá fyrir lýðveldið Ís- land“; heiðursverðlaun hlaut Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá; ritröð Listasafns Reykjavíkur hlaut við- urkenningu fyrir útgáfu og Una Björg Magnúsdóttir hlaut Hvatningarverðlaun ársins fyrir sýninguna Mannfjöldi hverfur spor- laust um stund í D-sal Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi. Myndlistarráð tekur ákvörðun um hverjir hljóta viðurkenningar en í ráðinu situr fulltrúi frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu, Lista- safni Íslands og Listfræðafélagi Ís- lands ásamt tveimur fulltrúum Sam- bands íslenskra myndlistarmanna. Áræðið og úthugsað Verk Libiu og Ólafs, „Í leit að töfrum – Tillaga að nýrri stjórnar- skrá fyrir lýðveldið Ísland“, var sýnt í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi og á götum úti við Stjórnarráðið og við Alþingishúsið 3. október í fyrra í samstarfi við tón- listar- og myndlistarhátíðina Cycle og Listahátíð í Reykjavík. Í umsögn dómnefndar segir að tvíeykið hafi sviðsett, í samvinnu við Töfrateym- ið, stóran myndlistarviðburð sem sé fjölradda tónlistar- og myndlistar- gjörningur við 114 greinar nýrrar stjórnarskrár Íslands sem kosið hafi verið um í október 2012. Ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram 20. október það ár og taldi meirihluti þeirra sem greiddu atkvæði að leggja ætti tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar frumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Segir í umsögninni að þar hafi farið „áræðið og úthugsað þátttökuverk sem varpi ljósi á mátt listarinnar og efni til umræðu um sjálfan grunn samfélagssáttmál- ans“. „Listin og töfrarnir geta leyst okkur úr álögum og hvatt okkur til þess að taka þátt. Tvíeykið vill heyra raddirnar, okkar allra sem lif- um í lýðræðislegu fjölmenning- arsamfélagi og skapa til þess list- rænan vettvang,“ segir þar og að verkið sé ákall um aðgerðir og vand- að tónlistar- og myndlistarverk sem snerti marga innan lista sem utan. Ákall eftir nýrri stjórnarskrá hef- ur verið áberandi til hin síðustu ár og spurningin „Hvar er nýja stjórn- arskráin?“ birst víða um borg. Ólaf- ur og Libia klæddust í gær flíkum með áletrunum svipaðs efnis. „Við viljum nýju stjórnarskrána í gagnið sem fyrst, takk“ stóð á stuttermabol Libiu og blaðamaður freistaði þess að fá svar frá Ólafi við spurningunni kunnu um hvar nýja stjórnarskráin væri. „Hún var skrifuð árið 2011 og samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012 og því máli hefur ekki ver- ið opinberlega lokið og þar af leið- andi er það opið. Það hefur ekki ver- ið rökstutt opinberlega af hverju ekki sé hægt að fara að ósk kjós- enda í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ svarar Ólafur sem afhenti mennta- og menningarmálaráðherra texta nýju stjórnarskrárinnar í gær þegar þau Libia tóku við verðlaununum. Ólafur segir að spurningin um hvar nýja stjórnarskráin sé end- urspegli þá þöggun og höfnun sem ríki um málið. Hann er spurður að því hvort boðskapur listarinnar sé þeim Libiu mikilvægari en fagur- fræðin og segir hann svo ekki vera. Þetta tvennt renni saman og lista- menn sæki í umfjöllunar- og yrkis- efni sem séu þeim mikilvæg og feg- urðin auðvitað afstæð. Libia segir að í myndlist sé ekki hægt að skilja fagurfræðina frá innihaldi verksins. „Fagurfræðin er líka farartækið og tungumálið sem verður til út frá hinni listrænu tilraun,“ bendir hún á. Þá byggi fagurfræðin líka á myndlistarsögunni, því sem á undan hefur komið. Siðferðileg álitamál Um heiðursviðurkenningarhafann Kristínu Jónsdóttur frá Munka- þverá segir í umsögn dómnefndar að með íhugulum verkum sínum hafi hún vakið okkur til umhugsunar um siðferðileg álitamál í fortíð og nútíð og beint sjónum okkar að tímanum, hverfulleikanum, viðkvæmri náttúru landsins og tjáningarríku tungumál- inu. Auk þess hafi Kristín fært menningarsögulega mikilvægan efnivið, í́slensku ullina, inn í sam- tímalistina og sýnt fram á hvílíkan fjársjóð þjóðin eigi í henni. Kristín hefur verið virkur félagi í Textílfél- aginu og var brautryðjandi hér á landi við gerð verka úr þæfðri ull. Kristín fæddist að Munkaþverá í Eyjafirði árið 1933 og segist hafa ákveðið að kenna sig við heimabæ- inn eftir að hún hélt sýningu og átt- aði sig á því að fólk ruglaði henni saman við alnöfnu hennar, þekkta myndlistarkonu. Kristín er enn að í listinni og segist nú vera að finna til og raða upp gömlum verkum og ákveða hvað gera eigi við þau. Vinnustofan sé orðin svo full af verkum að hún þurfi að vinna við borðstofuborðið. Í þakkarræðu sinni sagði Kristín frá því þegar hún til- kynnti foreldrum sínum að hún ætl- aði í myndlistarnám og átti þá eitt ár eftir í stúdentspróf. Foreldrunum leist heldur illa á þessa ákvörðun en Kristín segist aldrei hafa séð eftir því að hafa helgað sig myndlistinni. Heimur blekkinga heillar Una Björg Magnúsdóttir hlaut Hvatningarverðlaun ársins fyrir sýninguna Mannfjöldi hverfur spor- laust um stund í Listasafni Reykja- víkur, Hafnarhúsi. Una er fædd árið 1990, lauk BA-gráðu í myndlist við Listaháskóla Íslands 2014 og stund- aði síðar MA- nám í myndlist við École cantonale d’art de Lausanne í Sviss þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Í umsögn dómnefndar segir að sýningin Mannfjöldi hverfur sporlaust um stund setji fram heillandi en jafnframt afhjúpandi sjónarspil blekkinga er veki spennu og undrun í ófyrirsjáanlegri at- burðarás. „Í rýminu blasir við formfagur skápur eftir heilum vegg, en á móts við hann er stór mynd í gylltum ramma þar sem sveigður penni teiknar í átt að polli. Hann er hvort tveggja kunnuglegur og óþægilega óraunverulegur. Úr miðju langa skápsins rís hægt og rólega sjón- varpsskjár sem staðnæmist. Á hon- um kviknar óendanleg víðátta, flögrandi skýjahnoðrar fyrir framan alheiminn. Undir himinhvolfinu er magnþrungin kyrrð. Hendi er veifað og fingrum smellt fyrir framan ský- in og þau hverfa, skjárinn er dauður og fer að síga hægt niður í skápinn. Yfirborð skápsins er plastkennt og á honum er kæruleysislegt far eftir kaffibolla og lyklakippu jafn óþægi- lega óraunveruleg og penninn á myndinni. Allt er nákvæmlega á sín- um stað í tómarúminu sem andar og skapar eftirvæntingu um að skjár- inn rísi að nýju. Heimur blekkinga heillar jafnvel þótt hann sé afhjúp- aður,“ segir í umsögninni en titill sýningarinnar er fenginn að láni frá sjónhverfingarmanninum David Copperfield sem lét fólk hverfa sporlaust á sviði í Las Vegas. Einstakt og mikill heiður Una hefur áður hlotið verðlaun fyrir listsköpun sína, á meðan hún var í námi í Sviss og hún er spurð að því hvernig tilfinning það sé að hljóta Hvatningarverðlaun Íslensku myndlistarverðlaunanna. Hún seg- ist fyllast mikilli auðmýkt. „Það eru svo margir frábærir myndlist- armenn á Íslandi og það er einstakt og mikill heiður að fá að standa með þessum listamönnum,“ segir Una. Titill sýningar hennar í D-sal í fyrra er sóttur í sjónhverfingar Davids Copperfield, sem fyrr segir, og hún er spurð að því hvort hún hafi sérstakan áhuga á töfrabrögð- um. „Já ... af því það eru alltaf tvær hliðar á performansinum og báðar eru jafnáhugaverðar,“ svarar hún. Þessar tvær hliðar komi fram í listsköpun hennar, meðvitað og ómeðvitað. En hvað er næst á dagskrá? Er sýning á dagskránni? „Vonandi samsýning í Aþenu. Kling og Bang er að skipuleggja að senda 18 ís- lenska myndlistarmenn til Aþenu að vinna þar,“ svarar Una. Hvers vegna til Aþenu? „Af því að í Aþenu er álíka öflugt myndlistarsamfélag og hér, rekið af myndlistarmönnum af þrautseigju og hugsjón þar sem myndlistin skiptir mestu máli,“ svarar Una. Hún segir að lokum mikilvægt að fram komi að þótt íslenskt samfélag sé lítið sé myndlistarsamfélagið öfl- ugt en mætti gera sér betur ljóst að hér hafi byggst upp fjölmenning. „Við verðum að horfa til allra og endurspegla það og ég held að myndlist sé akkúrat fagið til þess,“ segir hún. Metnaðarfull útgáfa Myndlistarráð veitti ritröð Lista- safns Reykjavíkur viðurkenningu fyrir útgáfu sem fylgir yfirlitssýn- ingum á Kjarvalsstöðum á verkum myndlistarmanna á miðjum ferli. „Þegar hafa verið haldnar fjórar yf- irlitssýningar í þessari sýningaröð og hefur hverri sýningu fylgt bók sem jafnframt er sýningarskrá. Metnaður er lagður í útgáfuna, sem er bæði á íslensku og ensku. Í hverri bók er að finna myndir af verkum listamannsins ásamt vönd- uðum greinum fræðafólks og lista- mannsins sjálfs – sem dýpkar skiln- ing á höfundaverki listamannsins,“ segir í tilkynningu og að í skrifum Listasafns Reykjavíkur segi að sýn- ingarnar séu hluti af viðleitni safns- ins til að skrá og greina íslenska listasögu í gegnum veglegar sýn- ingar og útgáfu. „Safnið hefur valið listamenn sem á heilsteyptum ferli sínum hafa skilað markverðu fram- lagi til þróunar íslenskrar mynd- listar,“ segir þar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viðurkenning Frá vinstri Libia Castro, Ólafur Ólafsson, Kristín Jónsdóttir og Una Björg Magnúsdóttir. Tvíeyki myndlistarmaður ársins  Ólafur og Libia hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá hlaut heiðursviðurkenningu og Una Björg hvatningarverðlaun  Ný viðurkenning veitt fyrir útgáfu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.