Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is • Wrong Turn - The Foundation • The Little Things • The Witches • Wonder Woman 1984 Aðrar myndir í sýningu: SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H FRÁBÆR MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. frumsýnd 5. mars – forsala hafın sýnd með íslensKu, ensKu og pólsKu talı TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þegar ég var í námi í Skot-landi tók ég eftir því að fólksem var ekki frá Norð- urlöndunum sá – og heyrði – tón- listina þaðan í gegnum rósrauð gleraugu. Samnemendur mínir sumir lyftust hreinlega í sætunum þegar þeir spurðu mig í út djass- senuna og fleira. Allt hlaut þetta að vera melankólískt, töfrum sleg- ið, rökkurbundið og ægifagurt. Er það ekki, Arnar? Ekki skemma draumsýnina okkar! Vinur minn sendi mér grein fyrir stuttu sem birtist í hinu ágæta blaði The Guardian. Út- gangspunkturinn er ný plata War- druna, norsk sveit sem er eins og blautur draumur téðra samnem- enda. Fyrstu þrjár plöturnar byggjast þannig á rúnum og alda- gamlar norrænar hefðir, trúar- brögð og fleira er undir hennar mælikeri. Gömul hljóðfæri eru nýtt til þess atarna auk geitahorna, kyndla og skinntromma. Tónlistin er þjóðlagakennd að einhverju leyti, drungaleg og með nokkurs konar ættbálkasniði – trommu- sláttur og hrópandi kór á meðal einkenna. Höfundur Guardian- greinarinnar leggur það til að svona æfingar séu að komast nær meginstraumnum og ég held að hann hafi ýmislegt fyrir sér þar. Velgengni Vikings, en þar sér Ein- ar Selvik, driffjöðrin í Wardruna, Rökkurbundna norðrið heillar m.a. um tónlist, sé m.a. til marks um það. Í greininni eru listamenn eins og Myrkur og Heilung nefnd- ir. Síðarnefnda sveitin er jafnvel ýktari en Wardruna, söngkonan með hreindýrshorn og mannabein og -blóð uppi á sviði. Tónleikarnir líkari þúsund ára gömlum blótum, hvar fólk hummar háværlega í eins lags transi. Spjót og loðfeldir uppi á sviði og maður bíður hreinlega eftir því að loðfíll gangi inn á það. Og fólk elskar þetta – nema hvað! Blaðamaður The Guardian ýkir þetta allt saman upp, nema hvað, en ég spýtti kaffinu nánast út úr mér þegar Einar tiltekur að hann hafi aldrei lagt sig eftir því að endurskapa tónlist frá fyrri tím- um. Hvort hann var farinn úr vík- ingagallanum eða ekki þegar hann kom með þetta ódauðlega komm- ent veit ég ekki um. En að gríni slepptu. Kollegi minn kær, Kristinn Schram þjóð- fræðingur, tefldi fyrir margt löngu fram hugtakinu „borealism“ („norð urljósahyggja“?), sem tengist hug- taki Edward Said um „oriental- ism“ („austurlandahyggja“). Hug- myndin tekur yfir þá hneigð þeirra sem standa utan við norrænu lönd- in til að framleiða þekkingu sem styrkir yfirráð þeirra yfir svæðinu ef svo má segja, í gegnum fræði, menningu og orðræðu. Við erum „hin“, pínu skrítin og skemmtileg. Þannig myndast ákveðið sam- band. Gestsaugað er ekki glöggt í þessu tilfelli, það „vill“ sjá og heyra ákveðna hluti. Og í mörgum tilfellum færum við þeim það sem þau vilja. Þetta samband getur verið kauðslegt og skaðandi, t.d. þegar hljómsveitir eru orðnar hálf- teiknimyndalegar, stíga inn í ímyndaðan heim fremur en að það sé verið að vinna úr raunheimum (sem eru alltaf aðeins leiðinlegri en þeir skáldlegu). En stundum er þetta náttúrulegra, getum við sagt. Við eigum tónlistarfólk sem hefur unnið tiltölulega beint upp úr arf- inum, sjá t.d. Sigur Rós (Hrafna- galdur Óðins) og Þursana þó að Egill og félagar hafi aldrei látið gott leikhús úr höndum sleppa. Svo erum við með tónlistarkonur eins og Sóley og Heklu t.d. sem hafa ímyndarlega unnið með dimm og rökkurskotin minni, leyft melankólíunni norðlægu að taka sér bólfestu á vissan hátt í list sinni. Að ekki sé minnst á Skálm- öld, sem býr samt yfir heilnæmum skammti af kímnigáfu gagnvart þessu öllu saman, ólíkt Einari vini okkar. Ég held að ekkert af þessu eigi eftir að klifra upp Billboard- listann. En þessar vísanir allar eru íbúum á norðurhveli oft furðu tam- ar. Sjá t.d. aðra plötu Of Monsters And Men, Beneath the Skin, sem ber með sér vel útsettan norrænan rökkurblæ. Hann er þarna. Og engin íslensk plata hefur farið hærra á bandaríska Billboard- listanum. Þannig að kannski er eitthvað í orðum þessa breska koll- ega míns eftir allt saman. » Sú síðarnefnda erjafnvel ýktari en Wardruna, söngkonan með hreindýrshorn og mannabein og -blóð uppi á sviði. Tónlist frá norðurhveli er einatt tengd við dul- úð, myrkur og vetrar- stemmur og hefur löngum seitt til sín aðdáendur frá syðri bólum. En er eitthvað til í þessu eða er þetta einskær rómantík? Drottningin Eivör Pálsdóttir vinnur með norræn minni. Drungi Sóley lék sér að rökkur- stemningum á fyrstu stuttskífunni. Barið á bein Heil- ung fara alla leið með norrænu arfleifðina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.