Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Daníel Þorsteinsson safnar nú fyrir
sjöundu plötu TRPTYCH en svo
nefnist tónlistarverkefni hans sem
hófst árið 2016. Daníel var áður í
hljómsveitunum Sometime og Maus
en tónlist TRPTYCH er af öðrum
toga og skilgreind sem elektrónískt
teknó. Fyrri plötur hans hafa aðeins
komið út rafrænt á netinu en nú vill
Daníel breyta til.
„Núna er komið að sjöundu plöt-
unni og hún er á öðru plani, hún
mun bera nafnið Spawn Apart og á
skilið að verða eitthvað meira en
rafmagn á internetinu,“ skrifar
Daníel í tölvupósti og að hann safni
nú fyrir útgáfunni, veglegum vínyl
og hljómjöfnun, á hópfjármögn-
unarsíðunni Karolinafund. Daníel er
einnig búinn að hanna stutt- og
langermaboli fyrir þá sem styrkja
hann á meðan á söfnun stendur.
Daníel er höfundur allra laga og
flytjandi en einnig kemur við sögu
Roger O’Donnell, hljómborðsleikari
The Cure, sem vann með Maus á
Lof mér að falla að þínu eyra árið
1997. Tvær vinkonur Daníels ljá
plötunni svo raddir sínar, þær
Natasha Zeytseva og Rebekah
Dhar.
„Eftir mikla vinnu í
tónlistarsköpun og grafískri hönnun
í tengslum við plötuna er hún orðin
eitt af mínum bestu listaverkum og
finnst mér hún eiga það skilið að
verða áþreifanleg. Því ef rafmagnið
færi af í dag þá hef ég enga sönnun
á því að TRPTYCH hafi nokkurn
tímann verið til,“ skrifar Daníel og
bætir við broskalli.
Ekki eins að gefa út stafrænt
Daníel segir í samtali við blaða-
mann að hann sé orðinn afar
ánægður með afraksturinn, tónlist-
ina sem verði á sjöundu plötunni.
Afköstin hafa verið mikil hjá
TRPTYCH og nefnir hann að þrjár
plötur hafi komið út á einu og hálfu
ári. „En það er bara ekki það sama
að gefa út digital, rafmagn á int-
ernetinu, og að gefa út í föstu formi.
Tilfinningin er bara allt önnur,“
segir Daníel um ástæðu þess að
hann vill nú gefa út plötu í gam-
aldags og upphaflegu formi, þ.e. á
vínyl. Hann segist hafa lagt mjög
mikið bæði í tónlistina og sjónræna
hlutann og þar með talið umslagið
sem sjá má hér fyrir ofan.
Daníel segist nánast hafa verið
hættur að tromma þegar hann var
fenginn til liðs við Maus. Hann er
sjálflærður trymbill og finnst tónlist
vera æðsta listformið. „Maður sér
tveggja mánaða börn dilla sér við
tónlist, þetta er svo frumstætt, eitt-
hvað svo „tribal“ og það er bara
ekki fyrir mig að læra það og láta
móta sig. Ég vil að þetta komi al-
gjörlega frá mér þótt ég sé auðvitað
undir ýmsum áhrifum, frá tónlist,
kvikmyndum og fleiru.“
Hvað áhrifavalda varðar nefnir
Daníel svartmálm og líka raftónlist-
armanninn Richie Hawtin sem hef-
ur verið iðinn við kolann allt frá lok-
um níunda áratugarins.
„Gott fyrir mann“
Daníel segist kunna vel að meta
hversu tímalaust teknóið sé. „Þú
getur sett eitthvað teknólag á sem
kom út ’91 og það hefði getað komið
út í gær eða eftir 50 ár. Það er svo
tímalaust og teknó er fyrir mér
bara tónlist framtíðarinnar. Það
tengist líka svo mörgu sem fólk er
að gera, þetta er bara hugleiðsla
eða jóga,“ segir Daníel. „Maður
sónar inn í þetta og þetta er svo
gott fyrir mann.“
Hvað aðkomu Rogers O’Donnell
varðar, hljómborðsleikara hinnar
merku hljómsveitar The Cure, segir
Daníel að hann hafi unnið með
Maus árið 1997, sem fyrr segir. „Við
tölum mikið saman og höfum oft tal-
að um að gaman væri að gera eitt-
hvað saman. Svo spurði ég hann
bara hvort hann væri ekki til í
þetta, sendi honum nokkur lög og
hann var að fíla þetta,“ segir Daníel.
Þeir sem vilja hlusta á fyrri út-
gáfur TRPTYCH geta gert það á
vefslóðinni trptych.com/releases.
Teknóið er tímalaust
Daníel Þorsteinsson stefnir að útgáfu hljómplötu á föstu
formi undir nafni TRPTYCH Tónlist framtíðarinnar
Glæsileg Daníel hefur lagt mikið í
hönnun vínylplötunnar.
TRPTYCH Daníel
Þorsteinsson.
Bítillinn Paul McCartney mun
varpa ljósi á ævi sína út frá laga-
textum í bók sem er væntanleg í
tveimur bindum og rituð af írska
Pulitzer-verðlaunahöfundinum
Paul Muldoon. Bókin verður titluð
The Lyrics eða Textarnir og verður
kafað djúpt í hugarheim bítilsins,
að því er segir í frétt á vef The
Guardian. Muldoon skrifar bókina
út frá samtölum við McCartney og
er bókinni lýst sem portretti sam-
settu úr textum 154 dægurlaga.
Bókin kemur út 2. nóvember og
verður frásögnin ekki í tímaröð, að
sögn útgefanda, Allen Lane.
Meðal laga sem rætt verður um í
bókinni eru fyrstu lög McCartney
sem hann samdi þegar hann var 14
ára. Mun McCartney segja frá fólki,
stöðum og viðburðum sem veittu
honum innblástur við textasmíðina
og áliti sínu á textunum nú.
Muldoon segist hafa komist að
því í samtölum sínum við bítilinn að
hann sé mikill hugsuður.
Merkismaður Viðskiptavinur plötuversl-
unar virðir fyrir sér plötu Paul McCartney,
McCartney III, sem kom út í fyrra.
900 bls. bók um
texta McCartney
AFP
Píanóleikarinn og tónskáldið
Hjörtur Ingvi Jóhannsson heldur
tónleika í Mengi í kvöld undir yfir-
skriftinni 24 myndir, sem felur í
sér bæði tónleika- og útgáfuröð.
„Öll músík verður til á staðnum og
engir tveir tónleikar eru eins; 24
myndir eru ferðalag um 24 tón-
tegundir, mismundandi stíla og til-
finningar,“ segir Hjörtur í tilkynn-
ingu. Þar kemur fram að Hjörtur
hafi á síðastliðnu ári einnig gefið
út fyrstu sex lögin í lagabálkinum
24 myndir/24 pictures sem inni-
heldur 24 lög. Tónleikar kvöldsins
hefjast kl. 21, en húsið opnar kl.
20.30. Hægt er að bóka sæti með
því að senda tölvupóst á booking-
@mengi.net.
Tónskáld Hjörtur Ingvi Jóhannsson.
Hjörtur með 24
myndir í Mengi
Tveir viðburðir eru í boði í Hann-
esarholti um helgina. Í dag, laugar-
dag, kl. 14 leika Mathias Halvorsen
píanóleikari, Ragnar Jónsson selló-
leikari og Hulda Jónsdóttir fiðlu-
leikari verk eftir Grazynu Bace-
wicz, Claude Debussy og Ludwig
van Beethoven.
Á morgun, sunnudag, kl. 14 stýra
mæðgurnar og kórstjórarnir Þór-
unn Björnsdóttir og Þóra Marteins-
dóttir samsöngstund undir yfir-
skriftinni Syngjum saman. „Þær
hafa báðar gert það að ævistarfi
sínu að rækta sönghefðina meðal
íslenskra ungmenna, og eiga
samanlagða um fimmtíu ára
reynslu af kórastarfi, lengst af á
Kársnesi,“ segir í tilkynningu frá
Hannesarholti og rifjað upp að
Syngjum saman hafi hafist undir
stjórn Þórunnar vorið 2013.
Mæðgur Þórunn Björnsdóttir og Þóra Mar-
teinsdóttir eru báðar starfandi kórstjórar.
Tveir tónlistar-
viðburðir í boði
Bókamarkaður Félags íslenskra
bókaútgefenda (Fíbút) var í vikunni
opnaður í stúkubyggingunni á Laug-
ardalsvelli. Í fyrsta sinn í um 70 ára
sögu markaðarins er boðið upp á
sérstaka léttlestrarbókadeild. Þeir
6.300 titlar sem á markaðnum eru
skiptast þannig að um 30% þeirra
eru barnabækur, 35% skáldverk og
35% fræðibækur, handbækur og
ævisögur. Sú nýbreytni er einnig
tekin upp í ár að öllum glæpasögum,
hvort heldur eru íslenskar, þýddar, í
kilju, innbundnar eða hljóðbækur, er
raðað saman upp og fylla samtals 16
metra enda um 600 titla að ræða. Að
sögn skipuleggjenda Bókamarkað-
arins hafa glæpasögur og barna-
bækur verið vinsælastar hjá gestum
markaðarins á síðustu árum.
Einkennandi fyrir markað ársins
er nýr flokkur sem nefnist „Síðustu
eintökin“. „Nýi flokkurinn kemur til
vegna tiltektar nokkurra útgefenda
á lagerum sínum á Covid-ári þar
sem fundust eintök af bókum sem
allir héldu að væru löngu upp-
seldar,“ segir Bryndís Loftsdóttir,
hjá Fíbút. Segir hún útivistar- og
gönguleiðabækur hafa verið vinsæl-
ar á Covid-tímum, en það sama megi
einnig segja um bækur um matjurtir
og pottaplöntur. Til samanburðar
nefnir hún að í kjölfar bankahruns-
ins á sínum tíma voru það hins vegar
hannyrða- og matreiðslubækur sem
mest juku við sig í sölu. Bókamark-
aðurinn stendur til 14. mars og er
opinn alla daga milli kl. 10 og 21.
Morgunblaðið/Eggert
Lestrarhestar Í fyrsta sinn í sögu Bókamarkaðsins er í ár boðið upp á sérstaka léttlestrarbókadeild.
16 metrar af glæpasögum
Einkasýning Eddu Jónsdóttur,
Hægra/vinstra, verður opnuð í
Ásmundarsal í dag, laugardag, kl.
12 og stendur opnunin yfir til kl. 17
en á Mokka verða sýnd eldri grafík-
verk eftir Eddu og ber sú sýning tit-
ilinn Vinstra/hægra. Sýningar-
stjórar eru Anna Júlía Friðbjörns-
dóttir, Auður Jörundsdóttir og
Hildigunnur Birgisdóttir og skrifa
þær m.a. um Eddu að hún þjóni
sköpunarþörfinni sem aldrei fyrr og
hafi vart undan í framleiðslu á allt
að því þráhyggjukenndum verkum
sem unnin séu á pappír, úr leir eða
postulíni. „Undirritaðar stóðu
frammi fyrir því verkefni að velja úr
ógrynni verka Eddu sem hafa orðið
til síðasta áratuginn, heilu flokk-
unum af gersem-
um sem óðs
manns æði væri
að gera skil. Fyrr
en varði voru
tvær sýningar
óumflýjanlegar, í
Ásmundarsal og
á Mokka, sýning-
arstaðir sem
hæfa verkunum
einhvern veginn svo fullkomlega
vel,“ skrifa sýningarstjórarnir.
Hægra / vinstra og Vinstra /
hægra eru fyrstu einkasýningar
Eddu frá árinu 1994 og segir í til-
kynningu að vel sé við hæfi að sýn-
ingin skiptist á milli sýningarstað-
anna Ásmundarsals, þar sem Edda
tók sín fyrstu skref í myndlistarnámi
undir handleiðslu Hrings Jóhanns-
sonar, og Mokka þar sem ófá hita-
mál hafa verið rædd yfir kaffibolla.
Hægra/vinstra og
Vinstra/hægra
Edda Jónsdóttir
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær
var ákveðið að veita styrki til
kaupa á minnisvarða um Hans
Jónatan og gerðar afsteypu af
styttunni „Afrekshugur“ eftir
Nínu Sæmundsson. Sveitarstjórn
Múlaþings fær þriggja milljóna
króna styrk til kaupa á verkinu
„Frelsi“ eftir Sigurð Guðmundsson
sem sett verður upp á Djúpavogi
og er minnisvarði um Hans Jón-
atan, bónda og verslunarmann
sem fæddist sem þræll í nýlendu
Dana í Vestur-Indíum árið 1784,
strauk til Íslands frá Kaupmanna-
höfn 1802 og
lifði hér sem
frjáls maður á
Djúpavogi.
Þá verður
áhugamanna-
félaginu Afreks-
hug heim veittur
fjögurra millj-
óna króna styrk-
ur til gerðar af-
steypu af
styttunni „Afrekshugur“ eftir
Nínu Sæmundsson og er ætlunin
að finna höggmyndinni stað á
Hvolsvelli.
Frumgerð verksins stendur yfir
anddyri Waldorf Astoria-hótelsins
í New York.
Styrkja „Frelsi“ og
„Afrekshug“
Sigurður
Guðmundsson