Morgunblaðið - 27.02.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 2021
Hér er ég líka með Safn til sögu Ís-
lands, sem er mikið spurt eftir af
grúskurum,“ segir Bjarni. Hann nefn-
ir líka Íslenzkt fornbréfasafn, Bænda-
rímu Haraldar á Jaðri í Svarfaðardal
frá 1936 og nýrri ljóðabækur á borð
við Fyrir Laugavegsgos eftir Dag Sig-
urðarson frá 1985. Slíkt er verðlagt á
um 20.000 krónur.
Kommúnismi og önnur antík
Kommúnisminn er einnig viðeig-
andi antíkvarningur á vettvangi
sem þessum. Bjarni er með til sölu
eintak af fyrstu þýðingu Komm-
únistaávarps Marx og Engels,
prentað á Akureyri 1924, og einnig
er hann með bók sem ber þann ein-
falda titil Lenínismi, og er auðvitað
eftir engan annan en sjálfan Jósef
Stalín, prentuð á Akureyri 1930, 120
síðna bók. Sú bók er þó ekki úreltari
en svo að þetta var skyldulesning
hjá Bjarna í kommúnistahreyfingu
sem hann tilheyrði á síðustu öld,
sem Ari Trausti Guðmundsson
leiddi.
Bjarni telur markaðinn með gamlar
bækur á Íslandi lifandi miðað við allt
og allt. „Við getum sagt að fólk sem er
áhugasamt um þessi efni sé vissulega
færra að tiltölu en áður fyrr en ekki
endilega færra að tölu,“ segir Bjarni.
Hann hefur trú á rekstrinum, sam-
anber það einfaldlega að hann sé enn
að stækka við sig. „Það eru auðvitað
áskoranir á öllum tímum en nú er
tómarúm hér í Reykjavík, þar sem
Lundabúðum fækkar allt í einu. Þá
göngum við inn í það og bjóðum eitt-
hvað annað. Við erum ekkert að velta
neinu stórfé og maður veit aldrei hvað
gerist í viðskiptum en það er ekkert
fararsnið á okkur. Menn hafa spáð
dauða bókarinnar mjög lengi en nú er
svo komið að margir þeirra sem fyrst-
ir spáðu dauða bókarinnar eru sjálfir
dánir. En bókin lifir enn.“
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Gamlar bækur og nýjar eru til sölu á
Bókakaffinu í Ármúla, sem Bjarni
Harðarson útgefandi hefur veg og
vanda af. Þetta er útibú númer tvö,
höfuðstöðvarnar eru enn á Selfossi
eins og þekkt er. Nú vill Bjarni leggja
enn meiri áherslu á gömlu bækurnar
eða í öllu falli gera þeim sérstaklega
hátt undir höfði á vettvangi höfuð-
borgarinnar. Hann hefur opnað betri
stofu fyrir betri bækur.
„Ég er búinn að vera að safna í
sarpinn í töluverðan tíma til að eiga
nógu mikið af fágætari bókum til að
koma þarna fyrir,“ segir Bjarni í sam-
tali við Morgunblaðið.
Magnkaup málið
Bjarni hefur verið umsvifamaður í
bókmenntalífinu um langt skeið og
kaupir helst heilu bókasöfnin af fólki
þegar hann metur þau þannig að í
þeim leynist verðmæti. „Menn hringja
síðan í mig og spyrja hvort ég vilji
ekki kaupa þessa eða þessa bók, því
hún sé svo merkileg. Ég tek undir, jú,
hún er það, en ég hef ekki tíma til að
kaupa hana. Ég tel það ekki hag-
stætt.“
Magnkaupin skila meiri árangri og
er afraksturinn sá að í Ármúla eru til
sölu bækur allt frá 18. öld, þó að fleiri
séu þær frá 19. öld og þeirri tutt-
ugustu. „Ég á eitthvað af Hólaprenti
og Hrappseyjarprenti og frá Viðey en
ég er ekki svo ríkur að eiga Skálholts-
prent eða annað af því alsjaldgæfasta.
Þeir dánir sem fyrstir
spáðu dauða bókarinnar
Lundabúðir út, bókabúðir inn Ferskar fornbækur
Morgunblaðið/Eggert
Sunnlenskt bókakaffi Jóhannes Ágústsson og Bjarni Harðarson bóksalar.
Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar nýlega skaltu láta verða að því.
Þangað er heillandi að koma, stórbrotið landslag, gott vegakerfi,
góður matur og rómuð gestrisni eyjaskeggja.
Glæsileg ferð eldri borgara til Færeyja og hringferð um Ísland dagana 21.-27. apríl.
Íslensk fararstjórn. Siglt er með nýuppgerðri Norrænu og gist á glænýju Hótel
Brandan 4* í Þórshöfn.
Glæsilega dagskrá sem hægt er að kynna sér nánar á www.hotelbokanir.is.
Innifalið í verði ferðarinnar er morgunverður alla daga, kvöldverður á leið til Færeyja og á Hotel
Brandan og veitingar á leið til Seyðisfjarðar. Íslensk fararstjórn allan tímann og akstur með
íslenskum bílstjóra.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri
borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með
tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
og á www.hotelbokanir.is
Niko ehf | Austurvegi 3 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
FÆREYJAR
ferð fyrir eldri borgarar með
nýrri Norrænu 21.-27. apríl 2021
Sóttvarnarlæknir hefur gefið út að bólusetningum
70 ára og eldri eigi að ljúka fyrir 1. apríl og hjá
næstu aldurshópum fljótlega eftir það.
Ekkert á því að vera til fyrirstöðu að ferðast til Færeyja
þar sem ástandið er ekki síður gott þar en á Íslandi.
Verð 194.500 kr. á mann (m.v. einbýli eða tvíbýli)
Dómstóll ÍSÍ felldi á fimmtudag úr
gildi úrskurð aganefndar Landssam-
bands hestamanna um að Fredrica
Fagerlund hefði brotið gegn lögum
félagsins.
Forsaga málsins er sú að á Skeiða-
leikum II sem haldnir voru í júní á
síðasta ári, af Skeiðafélaginu á Brá-
völlum, var keppt í þremur greinum;
250 metra skeiði, 150 metra skeiði og
100 metra flugskeiði. Fredrica hafði
skráð sig í tvær þessara greina, 250
metra skeið og 150 metra skeið, og
keppti sannarlega í þeim á mótinu á
Snæ frá Keldudal. Ekki voru gerðar
athugasemdir við þátttöku hennar
eða skráningu á mótinu.
Í nóvember síðastliðnum barst
henni póstur frá aganefnd Lands-
samtaka hestamanna þess efnis að
atvik er tengdist henni væri til skoð-
unar hjá nefndinni. Þar kom fram að
keppni á sama hesti í bæði 150 metra
skeiði og 250 metra skeiði stangaðist
á við lög sambandsins. Aganefnd
kvað svo upp úrskurð í desember
þess efnis að Fredrica hefði brotið
lög Landssambands hestamanna
með þátttöku sinni í tveimur grein-
um á sama hesti. Var árangur henn-
ar á Skeiðaleikunum um leið felldur
niður.
Kærði Fredrica úrskurðinn til
dómstóls ÍSÍ. Í málatilbúnaði sínum
viðurkennir hún að hún hafi gert
mistök með því að skrá sig í báðar
keppnir mótsins en segir að sér hafi
sömuleiðis ekki verið ljóst að slíkt
væri bannað. Regluna sem dæmt var
eftir í úrskurði aganefndar var ekki
að finna í reglum laga LH sem fjalla
um skeiðakappreiðar heldur einung-
is í viðauka reglnanna og laga.
Dómstóll ÍSÍ féllst á rökstuðning
Fredricu þar sem viðaukinn hafði
verið lítt kynntur. Einnig fann dóm-
stóllinn að því að ekki mætti finna
skýra heimild stjórnar LH til að
beina málum til aganefndar, sem
hún gerði, né að fella niður keppn-
isárangur án sérstakrar kæru, löngu
eftir að móti lauk.
Morgunblaðið/Eggert
Hestamannamót Dómstólnum fannst heimild stjórnarinnar ekki skýr.
Felldi úrskurð aga-
nefndar úr gildi
Hafði fellt niður árangur keppanda