Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 2

Morgunblaðið - 02.03.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika Sími 555 3100 www.donna.is Heildsöludreifing Type II 3ja laga medical andlitsgríma FFP3 Respirator Comfort andlitsgríma með ventli FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlíf móðufrí C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Íslendingar bera höfuð og herðar yfir aðra Evrópubúa í notkun snjall- úra og annarra nettengdra tækja sem menn bera á sér á borð við heilsuúr, armbönd og snjallgleraugu samkvæmt samanburði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Í nýjum samanburði Eurostat á notkun nettengdra snjalltækja á árinu 2020 í 26 löndum Evrópu segir að 72% Íslendinga á aldrinum 16 til 74 ára beri snjallúr eða sambæri- legan búnað sem tengja má við netið. Næstu þjóðir í röðinni eru vart hálf- drættingar á við Íslendinga. 35% Tékka og 34% Norðmanna á þessum aldri eru sögð nota heilsuúr. Meðal- talið í löndum Evrópusambandsins er 19%. Fram kemur m.a. að 7% Grikkja, 13% Pólverja, 22% Þjóð- verja og 33% Finna voru með net- tengd snjallúr, armbönd eða önnur nettengd tæki á sér á þessu tímabili sem samanburðurinn tekur til. Tæki og leikföng tengd netinu Notkunin er mun útbreiddari meðal fólks á aldrinum 25-54 ára en eldri aldurshópa þar sem 23% íbúa ESB-landa á þessum aldri nota snjallúr að meðaltali. Eurostat birtir einnig yfirlit yfir hversu algeng notkun annarra net- tengdra snjalltækja var á síðasta ári. Að meðaltali notuðu 11% íbúa ESB- landa nettengd forrit eða öpp sem bjóða upp á raddstýringu eða spjall- menni á seinasta ári en hlutfallið var 24% á Íslandi og 19% í Noregi skv. töflum Eurostat. 10% í löndum ESB eru með nettengda húshitunarstýr- ingu og lýsingu, 12% á Íslandi en 17% í Noregi. Að meðaltali nota 5% íbúa ESB-landa ýmsan fjarstýrðan og tengdan heimilisbúnað og tæki á borð við nettengdar ryksugur, ís- skápa og kaffivélar en hlutfallið er sagt vera 20% á Íslandi. 2% íbúa ESB-landa eiga nettengd leikföng en hlutfallið er sagt 14% á Íslandi. omfr@mbl.is Hlutfall 16-74 ára sem nota snjallúr* 72 35 34 33 31 26 25 25 24 24 23 22 21 19 19 18 17 16 14 14 13 12 10 10 9 8 7 Ís la nd Té kk la nd N or eg ur Fi nn la nd Ei st la nd Sl óv en ía Lú xe m bo rg Sl óv ak ía D an m ör k Sv íþ jó ð Sp án n Þý sk al an d Ír la nd ES B- m eð al ta l Po rt úg al H ol la nd Au st ur rík i M al ta Kr óa tía Le tt la nd Pó lla nd Li th áe n B úl ga ría U ng ve rja la nd Ký pu r Rú m en ía G rik kl an d Árið 2020 í nokkrum Evrópulöndum (%) Heimild: Eurostat Ísland 72% ESB-meðaltal 19% 72% 19% Ísland trónir á toppn- um í notkun snjallúra  Eurostat birtir yfirlit yfir notkun nettengdra snjalltækja Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hefur þurft að sauma að frelsi fólks til að ná utan um far- aldurinn. Að safna saman þessum upplýsingum er að einhverju leyti birtingarmynd þess,“ segir Pétur Georg Markan, samskiptastjóri Biskupsstofu. Eftir að slakað var á samkomu- takmörkunum í síðustu viku mega nú 200 koma saman við kirkju- athafnir. Hins vegar hefur sú breyting verið gerð að nú þarf að skrá þátttakendur á alla viðburði í kirkjum þar sem fleiri koma sam- an en 50. Pétur segir að þessi ráð- stöfun sé gerð í samráði við land- læknisembættið. Á stórum íþrótta- og menningarviðburðum er selt inn í númeruð sæti og þannig hald- ið utan um upplýsingar um gesti. Kirkjunnar fólk þarf að hins vegar að skrá niður nafn, kennitölu og símanúmer kirkjugesta. Börn fædd árið 2005 og yngri eru ekki inni í fjöldatölum. „Þetta er gert til að auðvelda smitrakningu ef slíkt kemur upp. Við höfum verið mjög skýr með það að við geymum þessi gögn í tvær vikur og eyðum þeim svo,“ segir Pétur. Hann segir að engar kvartanir hafi borist Biskupsstofu vegna þessa fyrirkomulags um síð- ustu helgi. „Við erum mjög með- vituð um persónuverndarsjónarmið í þessu tilliti. Þessar ráðstafanir gera meðal annars það að verkum að hægt er að halda 200 manna út- farir sem er mikil breyting frá því sem var og við uplifum strax mik- inn létti á aðstandendum. Það hef- ur verið afar þungur tími fyrir að- standendur sem geta ekki kvatt ástvini nema í mjög afmörkuðum hópi nánustu ættingja. Nú er að rofa til og fleiri geta komið saman með áðurnefndum ráðstöfunum.“ Í bréfi Agnesar M. Sigurðar- dóttur biskups til presta, djákna, organista, sóknarnefnda og útfar- arstjóra vegna þessa kemur fram að þessi ráðstöfun sé í samræmi við áherslur rakningarteymis al- mannavarna. Biskup kveðst hins vegar telja umrædda skráningu vel framkvæmanlega. Fulltrúi safn- aðarins taki á móti fólki og aðstoði við skrán- inguna. Ekki þurfi að skrá fólk í tiltekið sæti eða tiltekinn bekk. Þá ítrekar biskup að allir gæti að persónu- legum sótt- vörnum. Þurfa að halda skrá um kirkjugesti  Rýmkun á reglum um samkomuhald hefur í för með sér að halda þarf skrá um kirkjugesti í stærri athöfnum  Upplýsingar geymdar í tvær vikur  Auðveldar rakningu ef kórónuveirusmit koma upp Ferming Margir fagna því að nú mega 200 koma saman við kirkjuathafnir, svo sem fermingar. „Nú fara fermingar í hönd og þar eins og í almennum mess- um er undir venjulegum kring- umstæðum altarissakramentið haft um hönd. Eftir að hafa kynnt mér málið tel ég að við getum opnað fyrir þann mögu- leika að taka aftur upp altaris- göngur,“ segir í bréfi Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups Ís- lands, til presta og kirkjunnar fólks. „Framkvæmdin yrði þann- ig að prestar og aðrir sem koma að athöfninni skulu spritta hendur sínar áður en altaris- ganga hefst. Prestur notar töng til að taka upp brauðið og lætur það „detta“ í lófa þess sem neytir. Víninu yrði hellt í sérbik- ara sem sá sem neytir tekur og drekkur úr. Að öðru leyti skal gæta að eigin sóttvörnum og hafa spritt á altarinu,“ ritar biskups og hvetur til áframhaldandi árvekni á vettvangi kirkjunnar í glím- unni við veiruna. Gengið verði til altaris á ný FERMINGAR FRAM UNDAN Agnes M. Sigurðardóttir Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir segir ekki útlit fyrir að forgangs- röðun í bólusetningar við Covid-19 breytist frá því sem er nú. Þá segir hann að margir hópar telji sig þurfa að vera í forgangi hvað bólu- setningu gegn Covid-19 varðar. Líkt og fram kom í Morg- unblaðinu í gær hefur Icelandair fengið synjun hjá embætti land- læknis og heilbrigðisráðuneytinu við ósk um bólusetningu framlínu- starfsfólks í flugi. Þórólfur segir að margir þurfi að fara út fyrir land- steinana og beiti sömu rökum og flugliðar þegar þeir óska forgangs í bólusetningar. „Ef við förum að taka allt þetta fólk fram fyrir þá eru einhverjir aðrir sem fara neðar og við erum að reyna núna að klára þessa elstu hópa, fólk sem við vitum að fer hvað verst út úr sýkingunni, þannig að það geta ekki allir verið í forgangi. Við þurfum að reyna að for- gangsraða þessu og ég held að við förum ekki að breyta neinu á þessu stigi,“ segir Þórólfur. Aðspurður segir hann að sá hópur starfsfólks sem hefur ver- ið bólusettur í flugstöð Leifs Eiríks- sonar séu þeir sem eru í nánu sam- neyti við alla farþega sem koma til landsins, til dæmis tollverðir og lögreglumenn á vellinum. gunnhildursif@mbl.is Ekki útlit fyrir að forgangsröðun breytist Þórólfur Guðnason Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.