Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Að minnsta kosti 2.200 jarðskjálftar mældust á Reykjanesskaga frá því á miðnætti aðfaranótt mánudags og til miðnættis í gær. Þeir hafa líklegast verið töluvert fleiri, enda ljóst af orð- um vakthafandi jarðfræðings á Veð- urstofunni í gærkvöldi að skjálfta- hrinan í kringum Fagradalsfjall er ekki farin að sýna nein merki þess að vera í rénun. Þetta heldur bara áfram, sagði jarðfræðingur á vakt við Morgunblaðið í gær. Óljóst er hvort búast megi við fleiri stórum skjálftum á borð við þá stærstu sem urðu í gær. Annar þeirra varð klukkan 1.31 að- faranótt mánudags og var upp á 4,9. Hinn var stærri og reið yfir klukkan 16.35 í gær. Kristín Jónsdóttir náttúruvár- sérfræðingur hjá Veðurstofunni sagði í samtali við mbl.is í gær að færslur á yfirborði jarðar bentu helst til þess að kvikugangur væri hafinn undir jarðskjálftasvæðinu. Hún tók þó fram að vel gæti verið að hrinan renni sitt skeið á enda án þess að eld- virkni verði vart. Slíkt hafi oft gerst. Upplýsingamiðlun gagnrýnd Vefur Veðurstofunnar hefur ekki staðist álagið sem jarðskjálftavirkni kallar fram. Í fyrrakvöld lá hann niðri í klukkustund eftir að skjálfti af stærðinni 3,8 gekk yfir. Í tilkynningu frá stofnuninni sagði að vefurinn hafi ekki staðist þær kröfur sem stofn- unin sjálf gerir. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði, gagn- rýndi Veðurstofuna á mbl.is í gær fyrir að halda aðeins úti Twitter- aðgangi á ensku en ekki líka íslensku. snorrim@mbl.is Engin merki um að jarð- skjálftavirkni sé í rénun Morgunblaðið/Eggert Sprungur Jarðeðlisfræðingar skoða sprungur í vegi við Grindavík.  Eldgos talið líklegra en áður Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Náttúruhamfaratrygging Íslands (NTÍ) hafði í gær fengið 15 tilkynn- ingar um tjón vegna jarðskjálftanna undanfarna daga. Framkvæmda- stjórinn telur ekki líklegt að neitt þeirra fari yfir eigin áhættu húseig- enda. Sérfræðingur stofnunarinnar metur áhrif stærsta skjálftans í síð- ustu viku svipuð og stærsta skjálft- ans í október en þá náði tjón á einu húsi yfir sjálfsábyrgð húseiganda. Jarðskjálftahrinan sem nú stend- ur yfir hófst á miðvikudaginn í síð- ustu viku. Í gærmorgun höfðu Nátt- úruhamfaratryggingu Íslands borist tilkynningar um 15 tjón á hús- eignum og innbúi eða öðru lausafé. Það virðast allt minni háttar tjón sem ekki eru líkleg til að ná yfir eig- in áhættu eigenda, að sögn Huldu Ragnheiðar Árnadóttur, fram- kvæmdastjóra NTÍ. Eigin áhætta er 400 þúsund krónur á hverri fasteign og 200 þúsund á lausafé sem þýðir að stofnunin greiðir ekki tjón innan þeirra marka. Þá þarf fólk að vera með innbús- eða heimilistryggingu til að njóta tryggingaverndar Nátt- úruhamfaratryggingar vegna jarð- skjálfa og annarra náttúruhamfara. Hulda hvetur fólk til að meta sjálft hvort líklegt sé að tjónið fari yfir eigin áhættu áður en það til- kynnir tjón, til þess að draga úr óþarfa álagi og umsýslu vegna til- kynninga sem ekki muni leiða til greiðslu bóta. Svipuð áhrif og í október Náttúruhamfaratrygging er í samvinnu við Rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftaverk- fræði sem staðsett er á Selfossi og heldur úti hröðunarmælum í bygg- ingum á helstu jarðskjálftasvæðum, meðal annars á Reykjanesskag- anum og Suðurlandi. Jón Örvar Bjarnason, sérfræðingur í tjóna- og áhættumati hjá NTÍ, segir að með þeim upplýsingum sé hægt að áætla hversu mikil álag jarðskjálftar hafi valdið á mannvirki. Stóri jarðskjálftinn sem var vest- ur af Krýsuvík 20. október og mæld- ist 5,6 að stærð olli tjóni á einu húsi umfram eigin áhættu eigenda. Hús- ið var nálægt upptökum skjálftans. Stóri skjálftinn sl. miðvikudag var heldur stærri, eða 5,7, en í svipaðri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Jón Örvar segir að orkan í jarð- skjálftunum tveimur og áhrif á hús- byggingar séu metin svipuð. Því hafi starfsfólk NTÍ ekki áhyggjur af því að teljandi tjón hafi orðið það sem af er í yfirstandandi jarð- skjálftahrinu. Jón Örvar segir að það eigi ekki að valda skemmdum á húsum þótt margir nokkuð öflugir jarðskjálftar ríði yfir, eins og áberandi hefur ver- ið í yfirstandandi hrinu. Ef hins veg- ar jarðskjálfti valdi skemmdum á burðarvirki húss geti annar eins eða fleiri skjálftar aukið skemmdirnar. 15 tilkynningar um tjón eftir skjálftahrinuna  Tjón af jarðskjálftum til þessa al- mennt innan eigin áhættu húseigenda Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Reykjanes Oft hrynur grjót úr fjallshlíðum í jarðskjálftum. Jarðskjálftar » Jarðskjálftahrinan sem nú stendur yfir hófst að morgni miðvikudags í síðustu viku. » Óvenjumargir öflugir jarð- skjálftar hafa komið og margir þeirra fundist á höfuðborgar- svæðinu og nálægum lands- hlutum, auk Reykjaness. » Slíkar hrinur geta staðið lengi en jarðvísindamenn segj- ast ekki sjá nein skýr merki um eldsumbrot. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, sagði að hraunflæðisspá eldfjalla- fræði- og náttúruvárhóps HÍ miðist við að mestar líkur á eldgosi séu þar sem jarðskjálftavirknin er mest. „Ef þessi virkni færist inn í önnur kerfi, eins og til dæmis Krýsuvík, þá geta forsendur breyst og líklegasta staðsetning eldgoss færst þangað,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði vitað að gígar og sprungur gusu fyrir ofan Hvassa- hraun á sínum tíma. Þaðan rann hraun niður að sjó þar sem Vell- irnir í Hafnarfirði eru nú. „Hvassa- hraun er því ekkert „stikkfrí“ í þessu samhengi,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði menn þurfa að gera sér grein fyrir því að Reykjanesskag- inn byggðist upp í eldgosum. Þess vegna er hann ofansjávar. Það á því ekki að koma á óvart ef þar verður eldgosavirkni því svæðið er enn eldvirkt. „Einhvern tíma kemur að því að það gýs þarna, en það þarf ekki að vera gos á leiðinni núna,“ sagði Þorvaldur. Þegar næst gýs á Reykjanesskaga verður það líkleg- ast hraungos. Því getur fylgt gjóskumyndun og einhver sprengi- virkni í gígum sem líklega verður þó í veikari kantinum miðað við fyrri eldgos á Reykjanesskaga. „Við finnum engin merki um stór sprengigos á Reykjanesskaga. Þar hafa orðið gjóskumyndandi gos en þau eru yfirleitt mjög staðbundin. Eitt eldgos sem varð þarna á 13. öld sendi frá sér gjósku í einhverj- um mæli. Miðaldalagið sem frá því kom er einhverjir sentimetrar þar sem það er þykkast í byggð. Nú erum við fyrst og fremst að horfa til hraunflæðis ef það gýs og ég held að það verði helstu áhrifin af eldgosi á Reykjanesskaga,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði að slíku gosi geti fylgt eitthvert gjóskufall en ólíklegt er að það muni leggja byggðarlög í rúst. „Ef það kemur til eldgoss ein- hvers staðar á Reykjanesskaga munum við geta reiknað út viðbragðstímann. Við þurfum að vera upplýst um hvað þarna getur gerst og eins að vera viðbúin því að takast á við það, ef það gerist,“ sagði Þorvaldur. „Eld- gos á Reykjanes- skaga þýðir ekki nein endalok. Menn munu halda áfram að búa á Reykjanes- skaganum.“ Grunnkort/Loftmyndir ehf. Hraunfl æðilíkan *Útreikningar miða við að gjósi með 500 m millibili innan líklegustu svæða samkvæmt eldsuppkomuspá. Líta ber á þessa greiningu sem spá og hjálp í að skilja hvað getur gerst ef til elds kemur. Heimild: Eldfjallafræði- og náttúruvárhópur Háskóla Íslands Hraunfl æðilíkan Eldvirk svæði, Reykjanes, Krýsuvík og Brennisteinsfjöll Möguleg stað- setning fl ugvallar í Hvassahrauni Hraunfl æðilíkan – ef af gosi verður við Trölladyngju* Reykjanesskagi Eldvirkt svæði KEFLAVÍK NJARÐVÍK VOGAR SANDGERÐI HAFNIR GRINDAVÍK HAFNARFJÖRÐUR Straumsvík Bláfjöll Reykjanes- virkjun Svartsengi Kefl avíkur- fl ugvöllur Kúa- gerði Kleifarvatn Þorbjörn Krýsuvík Fagradalsfjall Trölladyngja Keilir REYKJAVÍK GARÐUR Reykjanes Krýsuvík Brenni- steinsfjöll Heimildir: Journal of Volcanology and Geothermal Research. Flugvallarkostir á höfuðborgarsvæðinu – Sameiginleg athugun ríkis, Reykjavíkurborgar og Icelandair Group Eldstöðvar gusu ofan við Hvassahraun  Reykjanesskaginn er enn eldvirkur, segir prófessor „Það er öruggt að einhvern daginn verður eldgos á skag- anum enda er hann byggður upp af ungu gosbergi og að stórum hluta hraunum sem mynduðust eftir að jökla leysti (þ.e. á síðustu 12.000 árum) og sum þeirra á sögu- legum tíma,“ skrifar Þorvald- ur Þórðarson á Facebook-síðu eldfjallafræði- og nátt- úruvárhóps HÍ. Hann segir að meðalstærð hrauna frá sprungugosum á Reykja- nesskaga þeki að með- altali 10 km2 og hafi flætt um 5 km frá upptökum. Stærstu þekktu hraunin þekja yfir 60 km2 og flæddu 15-20 km. Hraun frá hraun- skjöldum hafa flætt allt að 30 km frá upptökum eld- gossins. Einhvern daginn gýs SAGAN Þorvaldur Þórðarson Skjálftahrina á Reykjanesskaga

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.