Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
Vefuppboð nr. 528
Sigurjón Ólafsson
uppboði lýkur á morgun, 3. mars
Louisa Matthíasdóttir
Forsýning á verkunum hjá
Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is
PERLUR
í íslenskri myndlist
Á uppboð.is
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta gengur mjög hratt og vel hjá
okkur. Flæðið er mjög gott. Um
leið og við fáum bóluefni erum við
snögg að koma því í fólk. Það væri
gott að fá aðeins meira efni því þá
gengi þetta enn hraðar,“ segir
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Heilsugæslan mun í dag og á
morgun bjóða öllum íbúum höfuð-
borgarsvæðisins sem fæddir eru ár-
ið 1939 eða fyrr upp á bólusetningu
gegn kórónuveirunni. Að sögn
Ragnheiðar eru um það bil 3.500
manns í þessum hópi. Fólk í þess-
um hópi hefur fengið boð í bólu-
setningu með SMS-skilaboðum en
Ragnheiður hvetur þá sem tilheyra
hópnum en hafa ekki fengið boð að
mæta í Laugardalshöll í dag eða á
morgun frá 9-15. Hafa þarf skilríki
meðferðis.
Samkvæmt upplýsingum frá sótt-
varnalækni verða um 8.900 einstak-
lingar bólusettir hér á landi í vik-
unni um allt land. Alls fara 4.600
skammtar af bóluefni Pfizer til
fólks í aldurshópnum 80 ára og
eldri og 4.300 starfsmenn hjúkr-
unar- og dvalarheimila verða bólu-
settir með bóluefni frá AstraZe-
neca.
Í gær var bólusetning hafin hjá
8.483 Íslendingum að því er fram
kom á covid.is en 12.600 höfðu verið
fullbólusettir.
Ragnheiður segir aðspurð að hún
viti ekki nákvæmlega hvenær byrj-
að verður að bólusetja fólk í hópi 70
ára og eldri. „Samkvæmt bólusetn-
ingardagatalinu ættum við að ná
því bráðlega en ég veit ekki hvenær
nákvæmlega. Vonandi verður það á
næstunni. Svo fara að detta inn
hópar af fólki með langvinnan
heilsuvanda.“
Tæplega níu þúsund
bólusettir í vikunni
Eiga von á fjölmenni í Laugardalshöll
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning Um 3.500 manns 80
ára og eldri mæta í Laugardalshöll.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
dómsmálaráðherra kom á fund
stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis í gær og svaraði spurning-
um um samskipti sín og lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu á að-
fangadag. Var það gert að beiðni
Andrésar Inga Jónssonar, þing-
manns Pírata, en undir hádegi í dag
á Halla Bergþóra Björnsdóttir lög-
reglustjóri að koma fyrir nefndina.
„Fundurinn leiddi það í ljós, sem
við vorum að leita eftir, en skildi eftir
einhverjar spurningar, sem við fáum
kannski svör við hjá lögreglustjóra á
morgun,“ segir Andrés Ingi í samtali
við Morgunblaðið. „Ráðherrann var
ekkert að víkja sér undan spurning-
um, kom bara hreint til dyranna. Það
er mikilvægt fyrir ráðherra að vera í
góðu sambandi við forstöðumenn
undirstofnana, en það má spyrja
hvort hvort hún hefði þarna ekki átt
að fela öðrum að leita þeirra svara.“
Óli Björn Kárason, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, er einnig í
nefndinni og þykir ljóst að ráðherra
hafi aðeins sinnt skyldum sínum. „Ef
menn ætla að gera það tortryggilegt
og hafa slík símtöl að tilefni til þess
að kalla ráðherra á fund stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar, þá mun
nefndin ekki gera mikið annað.“
Uppákoma á aðfangadag
Tilefni þessara spurninga voru
símtöl dómsmálaráðherra við lög-
reglustjórann á aðfangadagsmorg-
un, þar sem hún spurðist fyrir um
verklagsreglur lögreglunnar við svo-
nefndar færslur „úr dagbók lögregl-
unnar“, sem birtar eru fjölmiðlum.
Fyrr um morguninn hafði birst þar
óvenjuleg færsla um að „háttvirtur
ráðherra“ hafi verið í fjölmennu
samkvæmi í Ásmundarsal á Þorláks-
messu þrátt fyrir samkomubann.
Ráðherrann reyndist vera Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra, en
eigendur Ásmundarsalar mótmæltu
því hins vegar að um samkvæmi
hefði verið að ræða, þar hefði verið
hefðbundin sölusýning og því hafnað
að reglur um fjöldatakmarkanir eða
opnunartíma sölusýningar á Þor-
láksmessu hefðu verið brotnar.
Rannsókn lögreglu hófst milli jóla
og nýárs, en lauk ekki fyrr en í fyrri
viku og var vísað til ákærusviðs. Al-
mennt hefur sektarboðum verið
beitt vegna brota á sóttvarnalögum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sölusýning Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sést hér fala mynd á ár-
vissri sölusýningu í Ásmundarsal á Þorláksmessu fyrir jólin 2019.
Svaraði spurn-
ingum um símtöl
Dómsmálaráðherra fyrir þingnefnd
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Börn í Fossvogsskóla sem áður hafa
fundið fyrir einkennum vegna myglu
eru enn næm fyrir myglugró. Myg-
lugró finnst enn í skólanum þrátt
fyrir aðgerðir borgaryfirvalda til
þess að útrýma henni. Þetta stað-
festir sveppafræðingur Náttúru-
fræðistofnunar Íslands við Morgun-
blaðið.
Foreldrar barna í Fossvogsskóla
eru margir hverjir langþreyttir á því
sem þeir segja vera vanhæfni
Reykjavíkurborgar til þess að takast
á við vandann. Formaður skóla- og
frístundaráðs segir að árangur hafi
náðst í þeim aðgerðum sem ráðist
var í en viðurkennir að vonbrigði séu
að enn finnist myglugró í Fossvogs-
skóla.
Þrátt fyrir að ekki finnist eiginleg
mygla í Fossvogsskóla lengur, held-
ur aðeins myglugró, er enn um að
ræða skaðlegt efni sem getur valdið
einkennum hjá þeim sem hafa veikst
vegna myglu.
„Þetta er ekki mygla heldur myg-
lugró,“ segir Helgi Grímsson, sviðs-
stjóri skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar. „Munurinn á
því er eins og munurinn á blómi og
fræi. Engin sýnataka hefur staðfest
myglu frá því seinasta sumar.“
Þar vísar Helgi í niðurstöður
Náttúrufræðistofnunar Íslands, sem
tiltækar voru í desember í fyrra, en
ekki kynntar foreldrum fyrr en í
febrúar. Þetta hafa foreldrarnir
gagnrýnt en Helgi segir að mikil-
vægt sé að tryggja að búið sé að fara
yfir slíkar upplýsingar, sem koma
frá sérfræðingum, áður en þær eru
kynntar formlega.
Þola ekki snertingu
Karl Óskar Þráinsson, formaður
foreldrafélags Fossvogsskóla, segir
að foreldrar séu langþreyttir á mál-
inu. Viðbrögð og framferði borgaryf-
irvalda einkennist af vanhæfni og
áhyggjuefni sé að stærsta sveitarfé-
lag landsins ráði ekki við vandann í
Fossvogsskóla.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir
sveppafræðingur er sú sem unnið
hefur með sýni fyrir Náttúrufræði-
stofnun Íslands, þar sem hún starf-
ar. Guðríður staðfestir að myglugró
geti verið skaðleg þeim sem áður
hafa fundið einkenni vegna myglu.
„Fyrir þessi börn sem eru næm og
hafa orðið veik af því að vera í mygl-
uðum aðstæðum, þau þola í raun og
veru enga snertingu við sveppakyns
efni, hvort sem það er dautt eða lif-
andi,“ segir Guðríður.
Efnin sem enn finnast í
Fossvogsskóla eru skaðleg
Börnin í Fossvogsskóla eru enn næm fyrir myglugró
Morgunblaðið/Eggert
Skólinn Myglugró finnst enn í skól-
anum en ekki eiginleg mygla.
Háskólayfirfærsla Kvikmyndaskóla
Íslands (KVÍ) er í vinnslu, sam-
kvæmt tilkynningu frá skólanum.
Skólinn hóf starfsemi á vorönn sem
háskóli í viðurkenningarferli eftir að
hafa allt síðasta ár unnið að skipu-
lagsbreytingum og gagnavinnslu
vegna yfirfærslunnar.
„Skólinn fylgir ferli sem hófst með
nýjum þjónustusamningi sem gerður
var við skólann í júlí 2019. Þar komu
fram áform Kvikmyndaskólans um
háskólayfirfærslu. Í janúar 2020 var
síðan lögð inn formleg umsókn til
ráðuneytis,“ segir í tilkynningu KVÍ.
Þar segir jafnframt að samkvæmt
fréttaflutningi Ríkisútvarpsins og
Listaháskóla Íslands megi skilja að
val hafi átt sér stað við þá ákvörðun
mennta- og menningarmálaráðu-
neytisins að heimila undirbúning
samningagerðar við Listaháskólann
um stofnun kvikmyndadeildar við
skólann.
„Þetta er kynnt eins og úthlutun
hafi átt sér stað eftir keppni. Þetta er
misskilningur. Í tilkynningum sem
mennta- og menningarmálaráðu-
neytið sendi frá sér til fjölmiðla, kem-
ur skýrt fram að áform Listaháskól-
ans hafi engin áhrif á framgang
umsóknar Kvikmyndaskólans sem
nú er í vinnslu í ráðuneytinu,“ segir í
tilkynningunni.
Samkvæmt háskólalögum ber ráð-
herra að fá umsögn þriggja óháðra
sérfræðinga áður en
háskólaviðurkenning er veitt.
Kvikmyndaskólinn hefur verið tilbú-
inn að taka á móti sérfræðingahópi
síðan í september 2020. Áætlanir og
óskir Kvikmyndaskólans til ráðu-
neytis er að sérfræðingarnir ljúki
vinnu sinni ekki síðar en í júní næst-
komandi, þannig að formleg við-
urkenning geti legið fyrir eigi síðar
en í upphafi haustannar. Ferillinn
hefur þá tekið 24 mánuði í ráðuneyt-
inu.“
Aukinna fjárveitinga vegna yf-
irfærslunnar er ekki óskað.
Áform LHÍ hafi engin áhrif
Háskólayfirfærsla Kvikmyndaskóla Íslands enn í vinnslu