Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
FERSKT OG GOTT PASTA
TILBÚIÐ Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM!
Venesúela er ekki eina ríki Mið-og Suður-Ameríku sem orðið
hefur sósíalismanum að bráð. Kúba
er sjálfsagt þekktasta dæmið en
Nikaragva er annað dæmi og
slæmt. Sigurður
Már Jónsson blaða-
maður gerir ástand-
ið þar að umtalsefni
í pistli á mbl.is og
bendir á að óöld hafi
ríkt þar um árabil.
Efnahagur landsins
hafi versnað til
muna og ríkið sé nú
meðan þeirra fátækustu í Mið-
Ameríku og mannréttindi eigi mjög
undir högg að sækja.
Sigurður Már skrifar: „Sósíal-istastjórnin sem ræður nú ríkj-
um í Nikaragva hefur sýnt hið rétta
eðli sósíalismans. Óstjórn, harð-
ræði, spilling og ofsóknir gagnvart
pólitískum andstæðingum eru nú
daglegt brauð. Fólkið þjáist og eng-
ar breytingar sjáanlegar enda búið
að taka hin lýðræðislegu ferli úr
sambandi.“
Og hann heldur áfram: „Eins oggerist oft hjá sósíalískum
stjórnum hefur eignarrétturinn
verið tekinn smám saman úr sam-
bandi og þannig hefur nánast öll er-
lend fjárfesting horfið. Formlega
segjast stjórnvöld áhugasöm um er-
lendar fjárfestingar en skortur á
gagnsæi og fyrirsjáanleika dregur
úr áhuga hugsanlegra fjárfesta.
Um leið hefur stjórnin hert tök sín
á hæstarétti landsins sem er orðin
pólitísk framlenging af ríkisstjórn
Daniels Ortega.“
Hér á landi eru þeir til semdaðra við sósíalisma, ýmist
beint eða óbeint. Þeir mættu gjarn-
an líta til þess „árangurs“ sem þessi
stefna hefur skilað þar sem hún
hefur verið reynd, hvort sem er nú
um stundir eða fyrir nokkrum ára-
tugum.
Sigurður Már
Jónsson
Sósíalisminn
heltekur Nikaragva
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Við erum gríðarlega ánægð með
þennan dag. Hann er nógu langt í
burtu til þess að maður á ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af Covid en
við náum samt að halda þessu innan
ársins,“ segir Ísleifur B. Þórhalls-
son, tónleikahaldari hjá Senu.
Tilkynnt var í gær að tónleikum
ítalska tenórsins Andrea Bocelli sem
áttu að fara fram í Kórnum í apríl
hefði verið frestað til laugardagsins
27. nóvember. Miðar gilda sjálfkrafa
á nýju dagsetninguna en hægt er að
óska eftir endurgreiðslu á næstu
tveimur vikum ef hún hentar ekki.
Fleiri viðburðum hefur verið
frestað vegna samkomutakmarkana
af völdum kórónuveirunnar. Þannig
var tilkynnt á dögunum að tónleikum
hljómsveitarinnar Skunk Anansie,
sem áttu að vera 5. júní, hefur verið
frestað til 6. nóvember. Þeir áttu
upphaflega að vera í október á síð-
asta ári.
Ísleifur segir að til skoðunar sé að
færa uppistand Trevors Noahs sem
á að vera í maí. Hið sama gildi um
tónleika Khalids sem áformaðir eru
14. júlí. „Fólk hefur tekið vel í þessar
tilfærslur og er duglegt að halda í
miðana sína. Það vill fara á þessa við-
burði og því er fáum miðum skilað.
Fyrir vikið er enn þá lítið af miðum í
boði en eitthvað þó.“ hdm@mbl.is
Stórum viðburðum frestað á ný
Andrea Bocelli og Skunk Anansie í
nóvember Frekari frestanir í skoðun
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Frestað Ítalski tenórinn Andrea
Bocelli er væntanlegur í nóvember.
Erla Wigelund, kaup-
maður í Verðlistanum
í Reykjavík, lést á
Hrafnistu Laugarási í
Reykjavík 22. febrúar
síðastliðinn, 92 ára að
aldri.
Erla fæddist í
Grindavík 31. desem-
ber 1928, dóttir
hjónanna Vilborgar
Dagbjartsdóttur hús-
freyju og Peters
Wigelund skipasmiðs.
Fljótlega eftir fæð-
ingu Erlu flutti fjöl-
skyldan til Keflavíkur
og síðar til Reykjavíkur.
Erla var í Barnaskóla Keflavík-
ur, í barnaskóla í Reykjavík og
lauk gagnfræðaprófi frá Ingimars-
skóla við Lindargötu. Erla starf-
aði um skeið á lögfræðistofu í
Reykjavík og sinnti síðan versl-
unarstörfum í snyrtivöruversl-
uninni Oculus í Austurstræti. Um
þær mundir sótti hún nám við
Leiklistarskóla Ævars R. Kvaran
en þar kynntist hún lífsförunaut
sínum, Kristjáni Kristjánssyni
tónlistarmanni. Kristján var
hljómsveitarstjóri frægustu dans-
og dægurlagahljómsveitar lands-
ins á þeim árum, KK-sextettsins.
Erla og Kristján stofnuðu og
starfræktu verðlista sem í upphafi
var pöntunarlisti
sem fólki gafst kost-
ur á að panta upp úr
og fá sent í pósi. Þau
hjónin tóku síðan
upp á því að ferðast
um landið og selja
fatnað til fólks á
landsbyggðinni.
Bernskudraumur
Erlu rættist svo
þegar þau hjónin
opnuðu verslunina
Verðlistann við
Laugalæk í Reykja-
vík árið 1965. Erla
stóð vaktina í Verð-
listanum í 52 ár eða allt til ársins
2014.
Erla var fyrsti formaður lions-
klúbbsins Engeyjar. Hún sinnti
ýmsum trúnaðarstörfum í þágu
félagsins og var gerð að heiðurs-
félaga árið 1990. Erla var einnig
ötull talsmaður Kaupmanna-
samtaka Íslands og var sæmd
viðurkenningu samtakanna. Árið
2012 hlaut hún svo þakkar-
viðurkenningu Félags kvenna í
atvinnurekstri fyrir ævistarf sitt
og fyrir að vera konum í atvinnu-
lífinu hvatning og fyrirmynd.
Eiginmaður Erlu var Kristján
Kristjánsson, hann lést 2008. Þau
eignuðust þrjú börn, Þorbjörgu,
Pétur og Sigrúnu Júlíu.
Andlát
Erla Wigelund