Morgunblaðið - 02.03.2021, Blaðsíða 12
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Landsframleiðsla á Íslandi dróst
saman um 6,6% í fyrra, samkvæmt
bráðabirgðatölum Hagstofunnar,
sem er minni samdráttur en greining-
ardeildir bankanna spáðu.
Óvissan var mikil og hafði staðan
hverju sinni því áhrif á spárnar (sjá
graf). Til dæmis var Seðlabankinn
bjartsýnastur í ágúst – spáði þá 7%
samdrætti – en þá hafði ferðaþjón-
ustan tímabundið náð sér á strik.
Að sama skapi var spáð hvað mest-
um samdrætti á fyrri hluta ársins en
þá var óvissa um framvinduna og
mótvægisaðgerðir hvað mest.
Meðal annars lögðu Viðskiptaráð
og Samtök atvinnulífsins fram þrjár
sviðsmyndir um 8%, 13% og 18%
samdrátt landsframleiðslunnar og
var miðspáin talin líklegust.
Besta sviðsmyndin ræst
Konráð S. Guðjónsson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs,
sagði við Morgunblaðið 18. júlí sl. að
líkur hefðu þá aukist á að samdráttur-
inn yrði nær 8% en 13%. Líkur á
harkalegri lendingu hefðu minnkað.
Konráð sagði við Morgunblaðið í
gær að miðað við útlitið í fyrrasumar
sé nokkuð vel sloppið að horfa fram
6,6% samdrátt. „Það má segja að
besta sviðsmyndin hafi ræst sem er
afar ánægjulegt,“ segir Konráð og
nefnir þrennt til skýringar.
„Í fyrsta lagi hafa heimilin verið
dugleg við að halda uppi verslun af
meiri krafti en ég held að nokkur hafi
spáð fyrir um. Þrátt fyrir ýmsar tak-
markanir [á ferðalögum og samkom-
um] hafa þau fundið fjármunum sín-
um farveg og með því haldið hjólum
atvinnulífsins gangandi.
Í öðru lagi hafa aðgerðir stjórn-
valda og Seðlabankans haft mikið að
segja. Ríkið hefur tekið á sig talsverð-
an halla og gert ýmsar ráðstafanir og
svo hafa stýrivaxtalækkanir stutt eft-
irspurn og ýtt undir neyslu.
Í þriðja lagi hefur fjárfesting haldið
betur velli en hún vegur ansi þungt í
landsframleiðslunni.
Eitt af því sem kom á óvart var að
íbúðafjárfesting skyldi standa í stað
milli ára, þótt íbúðum á fyrstu bygg-
ingarstigum hafi fækkað. Líklega
koma þar til vaxtalækkanir og endur-
greiðslur vegna framkvæmda en
hvort tveggja ýtti undir fjárfestingu.
Þrátt fyrir að það hafi farið betur
en á horfðist erum við í djúpri kreppu
og það verður risastórt verkefni
næstu mánuði að vinna bug á atvinnu-
leysinu. Þessar nýju tölur gefa manni
aukna von um að hagkerfið sé vel í
stakk búið að takast á við það.“
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
forstöðumaður efnahagssviðs Sam-
taka atvinnulífsins, segir tölur Hag-
stofunnar koma ánægjulega á óvart.
Þá ekki síst í því ljósi að hagvaxtar-
tölur ársins 2019 hafi verið endur-
skoðaðar til hækkunar.
Meiri einkaneysla
Meginskýringarnar á að lands-
framleiðslan dróst ekki meira saman
séu meiri einkaneysla og fjárfesting.
„Þrátt fyrir að hið opinbera hafi
boðað sérstakt átak [í fjárfestingum]
var það fremur atvinnuvegafjárfest-
ing og fjárfesting í íbúðarhúsnæði
sem kom ánægjulega á óvart. Reynd-
ar var það fyrst og fremst fjárfesting í
íbúðarhúsnæði sem var verið að
leggja lokahönd á sem skýrði minni
samdrátt í íbúðafjárfestingu en spáð
var.
Við höfum enn nokkrar áhyggjur af
því að íbúðafjárfesting verði ekki
nógu kröftug næstu misseri sem er
áhugavert í ljósi þess að það hefur
verið talsverður eftirspurnarþrýst-
ingur. Þannig að ef við viljum forðast
miklar hækkanir á íbúðarhúsnæði
væri gott að sjá enn meiri íbúðafjár-
festingu og þá á fyrri byggingar-
stigum en ekki aðeins þegar verið er
að ljúka við húsnæðið.“
Spurð hversu langvinn áhrif kór-
ónukreppan muni hafa á hagkerfið
segir Anna Hrefna að það séu einkum
utanríkisviðskiptin, og þá fyrst og
fremst ferðaþjónustan, sem hafi
dregið niður landsframleiðsluna.
Viðspyrnan á þessu ári velti því
fyrst og fremst á því hversu hratt tak-
ist að koma ferðaþjónustunni í gang.
Sama gildi um að ná niður atvinnu-
leysi. Varðandi áhrifin á aðrar at-
vinnugreinar segir Anna Hrefna að
vonandi verði þau ekki langvinn.
Stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerð-
ir til að koma í veg fyrir það.
„Ef við hefðum séð fleiri gjaldþrot
fyrirtækja hefði það aukið líkurnar á
því að áhrifin myndu vara lengur.“
Samdráttur í kreppunni
reyndist minni en spáð var
Spáð var allt að 18% samdrætti landsframleiðsu Samdrátturinn var 6,6%
Spár um samdrátt landsframleiðslu árið 2020
Sviðsmyndir um áhrif kórónuveirufaraldursins
Þjóðhagsspá Seðlabankans Þjóðhagsspá Landsbankans
Þjóðhagsspá Íslandsbanka Hagspá Arion banka
*Sviðsmyndagreining Viðskiptaráðs og Samtaka
atvinnulífsins í maí 2020 – þrjár sviðsmyndir 2020:
Talsvert högg Mikið högg Mjög þungt högg
Heimildir: Viðskiptaráð, Peningamál, Landsbanki nn, Íslandsbanki, Arion banki
maí júní ágúst september október nóvember febrúarmaí
Spár birtar á árinu 2020 2021
-8%
-8,7%-9,2%
-8,2%
-7%
-8,6% -8,5%
-7,5%
-8,5%
-7,7%
-8
%
-1
3%
-1
8%
Greining*
Konráð S.
Guðjónsson
Anna Hrefna
Ingimundardóttir
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Þór Steinarsson
thor@mbl.is
Félagsbústaðir keyptu 127 íbúðir á
árinu 2020 og ætla að kaupa 125
íbúðir á þessu ári og því næsta. Alls
102 íbúðir af þeim 127 sem keyptar
voru á síðasta ári voru nýjar, eða um
80%, og flestar í Árbæ eða alls 48.
„Við reynum að dreifa þessu sem
jafnast um borgina. En það er auð-
vitað svolítið háð framboði. Við höf-
um líka verið að kaupa mikið í ný-
byggingum en það tekur sömuleiðis
mið af því hvar byggingareitir eru,“
segir Sigrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Félagsbústaða.
Keyptu í mörgum hverfum
Auk íbúðanna í Árbæ var ein
keypt í Breiðholti, 12 í Grafarholti,
átta í Grafarvogi, 25 í Háaleitis- og
Bústaðahverfi, 24 í Laugardal, ein í
miðbænum og átta í Vesturbæ.
Hagnaður Félagsbústaða nam
samkvæmt ársreikningi 1.443 millj-
ónum króna en hann var allur til
kominn vegna hækkunar á virði
eigna. Rekstrartekjur ársins 2020
námu 4.661 milljón. Virði fjárfesting-
areigna nam 99 milljörðum og eigið
fé var 48,8 milljarðar í lok árs. Vaxta-
berandi skuldir
námu 47,7 millj-
örðum króna.
Sem stendur
eiga Félagsbú-
staðir um 3.000
leigueiningar en
markmiðið er að
fjölga þeim um
250 á næstu
tveimur árum.
„Stefnan er að í
kringum 5% af íbúðarhúsnæði í
borginni sé félagslegt leiguhúsnæði
og við erum nálægt því. Þegar við
tölum um félagslegt leiguhúsnæði þá
erum við líka að tala um íbúðir fyrir
fatlaða og aldraða,“ útskýrir Sigrún.
Félagsbústaðir kaupa aðallega 2-3
herbergja íbúðir en lítið framboð er
af þeim að sögn Sigrúnar. Þá kemur
sér vel að í úthlutunarskilmálum lóða
er gert ráð fyrir því félagið eigi
kauprétt á 5% af því sem byggt er.
Nýta ekki alltaf kaupréttinn
„Við nýtum okkur kaupréttinn í
mörgum tilvikum en ekki alveg allt-
af. Svo höfum við gert samninga við
Bjarg, íbúðafélag ASÍ og BSRB. Við
kaupum um 20% af því sem þeir
byggja,“ segir Sigrún einnig.
Félagsbústaðir
keyptu 127 íbúðir
Átta af hverjum tíu voru nýjar í fyrra
Sigrún
Árnadóttir
Stærðir: 18–24
Verð 10.995
Margir litir
Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin.
Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur
stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira
öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá.
í fyrstu skónum frá Biomecanics
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR
www.skornirthinir.is
ÖRUGG SKREF
ÚT Í LÍFIÐ
SMÁRALIND
www.skornir.is
2. mars 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.16
Sterlingspund 175.64
Kanadadalur 99.73
Dönsk króna 20.562
Norsk króna 14.699
Sænsk króna 15.079
Svissn. franki 139.17
Japanskt jen 1.1868
SDR 181.68
Evra 152.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 187.689
Hrávöruverð
Gull 1765.1 ($/únsa)
Ál 2202.5 ($/tonn) LME
Hráolía 66.89 ($/fatið) Brent
● Arion banki
hækkaði um 2,92%
í Kauphöll Íslands í
gær í 1.509 millj-
óna króna við-
skiptum. Þá hækk-
uðu bréf Marels
um 0,79% í 400
milljóna við-
skiptum. 420 millj-
óna króna velta var með bréf VÍS og
hækkuðu þau um 0,65%.
Mest lækkuðu bréf Regins um
2,5% í 6 milljóna króna viðskiptum og
þá lækkuðu bréf Brims um 2,16% í 122
milljóna króna viðskiptum. Bréf Ice-
landair stóðu í stað í 48 milljóna við-
skiptum.
Í yfirliti yfir umsvif fjárfesta í Kaup-
höll í febrúarmánuði kemur fram að úr-
valsvísitalan hafi hækkað um 9,7% í
mánuðinum. Heildarviðskipti í mán-
uðinum námu 89,2 milljörðum króna
eða 4.458 milljónum á dag. Er það
mesta velta á hlutabréfamarkaði frá
árinu 2008. Nam aukningin frá fyrri
mánuði 6,2%. Hins vegar nemur aukn-
ingin frá febrúar 2020 27,9%. Heild-
arfjöldi viðskipta í febrúar var 10.085
og fjölgaði um 130% frá febrúar 2020.
Langflest þeirra voru með bréf Ice-
landair eða 4.338 og þarnæst með bréf
Arion banka eða 1.518.
Hræringar á vettvangi
Kauphallarinnar
STUTT