Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 13

Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta 544 5151tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Sérhæfð þjónusta fyrir Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK af vinnulið einkabifreiða Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Þjónustuaðilar IB Selfossi Sarkozy fékk þriggja ára dóm  Tvö ár skilorðsbundin  Gert að afplána eitt ár í stofufangelsi  Sarkozy hyggst áfrýja dómnum  Tveir samverkamenn hans einnig dæmdir í fangelsi Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Nicolas Sarkozy, fyrrverandi Frakk- landsforseti, var í gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir spillingu, en dómstóll í París komst að þeirri nið- urstöðu að Sarkozy hefði reynt að hafa áhrif á störf dómara meðan hann gegndi embætti. Tvö ár af dómnum eru skilorðsbundin en verjandi Sarkozys staðfesti í gær að honum yrði áfrýjað. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrrver- andi forseti Frakklands fær á sig dóm sem felur í sér óskilorðsbundna fang- elsisvist, en dómarinn tók sérstaklega fram að Sarkozy yrði heimilt að af- plána það ár refsingarinnar í stofu- fangelsi, þar sem fylgst yrði rafrænt með því að hann yfirgæfi ekki heimili sitt. Sarkozy var sakaður um að hafa boðið öðrum dómara, Gilbert Azibert, háttsett starf í Mónakó í skiptum fyr- ir upplýsingar um rannsókn á fjár- málum kosningabaráttu Sarkozys, en þar var honum gefið að sök að hafa þegið ólögleg fjárframlög til forseta- framboðs síns árið 2007 frá Liliane Bettencourt, eiganda L’Oreal-- snyrtivörurisans. Azibert og Thierry Herzog, fyrr- verandi lögmaður Sarkozys, fengu einnig fangelsisdóma fyrir aðild sína að málinu. Talið er að þeir muni einn- ig áfrýja. Saksóknarar kröfðust þess að Sarkozy og hinir sakborningarnir fengju allir fjögurra ára dóm og af- plánuðu minnst tvö af þeim. Hleruðu síma forsetans Málarekstur ríkisins gegn Sarkozy byggðist meðal annars á hlerunum á samtölum hans við lögmann sinn Herzog, en saksóknarar héldu því fram að þeir hefðu nýtt sér „leyni- legar símalínur“ til þess að koma í veg fyrir að aðrir yrðu þess áskynja hvað þeim fór á milli. Töldu saksóknarar sig hafa sannað, svo hafið væri yfir allan vafa, að Azi- bert hefði afhent Herzog rannsókn- argögn um Bettencourt-málið, en Sarkozy var á endanum hreinsaður af öllum ásökunum í tengslum við það. Þótti einnig fullsannað með aðstoð símhlerananna að Sarkozy hefði boð- ið Azibert starf í Mónakó. Verjendur sögðu hins vegar að samtölin sem tek- in voru upp væru ekkert annað en spjall milli vina, og bentu auk þess á það að Azibert hefði ekki fengið um- rædda stöðu, og því gæti ekki verið um spillingu að ræða. Þeirri kenningu var hins vegar hafnað af dómara málsins. Þá bíða Sarkozys önnur réttarhöld vegna ásakana um að hann hafi eytt of miklu í forsetaframboð sitt þegar hann sóttist eftir endurkjöri árið 2012. Þau réttarhöld hefjast 17. mars næstkomandi og eiga að standa í tvær vikur. Sarkozy er enn vinsæll meðal franskra hægrimanna, og hafði hann m.a. verið nefndur sem mögulegur forsetaframbjóðandi þeirra á næsta ári. Dómurinn í gær þykir hins vegar hafa slökkt í öllum slíkum vonum. AFP Dómur Sarkozy yfirgefur dómsal- inn eftir niðurstöðuna í gær. Finnsk stjórnvöld lýstu í gær yfir neyðarástandi til þess að reyna að stemma stigu við auknum fjölda kórónuveirutilfella í landinu. Hyggst ríkisstjórnin jafnframt herða á sóttvarnaaðgerðum sínum, en Sanna Marin, forsætisráðherra landsins, varaði við því fyrir helgi að veitingahúsum í sumum hlutum landsins yrði gert að bjóða við- skiptavinum sínum eingöngu upp á að taka mat með heim frá og með 8. mars. Finnsk stjórnvöld ákváðu í lok febrúar að takmarka samkomur fólks í vissum borgum við sex manns, en líkamsræktarstöðvar, sundlaugar og söfn eru lokuð. Í neyðarlögum ríkisstjórnarinnar er einnig að finna heimild til þess að takmarka ferðafrelsi Finna, en gripið var til þess í mars síðast- liðnum að loka á milli ferða til og frá höfuðborgarinnar Helsinki. Sagði Sanna Marin hins vegar að ekki stæði til að grípa til slíkra ör- þrifaráða að svo komnu máli. Það yrði þó gert ef nauðsyn krefði. Rúmlega 58.000 tilfelli hafa greinst í Finnlandi á því rúma ári sem liðið er frá upphafi faraldurs- ins, og 750 manns hafa dáið af völdum kórónuveirunnar í land- inu. Nýjum tilfellum hefur hins vegar fjölgað hratt í febrúar og hafa rúmlega 500 tilfelli bæst við að meðaltali á dag síðustu sjö daga. Leggja til „grænt vegabréf“ Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, greindi frá því í gær að framkvæmdastjórnin ætlaði að leggja fram drög að reglum um svokallað „stafrænt grænt vega- bréf“ eða bóluefnapassa, sem myndi staðfesta að handhafi hans hefði verið bólusettur gegn kór- ónuveirunni, og jafnframt einnig sýna niðurstöður skimunar gegn kórónuveirunni. Sagði von der Leyen að tilgang- ur passans væri sá að gera fólki kleift að ferðast óhikað á milli að- ildarríkja ESB og jafnvel til ríkja utan sambandsins. Stefnt er að því að gagnagrunn- ur sá sem passinn veltur á verði tilbúinn innan þriggja mánaða, en von der Leyen sagði í síðustu viku að huga yrði vandlega að öllum persónuverndarsjónarmiðum. Neyðarástand í Finnlandi  Framkvæmdastjórn ESB hyggst leggja til bóluefnapassa Herforingja- stjórnin í Búrma, sem einnig er þekkt sem Mjan- mar, ákærði í gær Aung San Suu Kyi, leiðtoga réttkjörinna stjórnvalda í landinu, fyrir tvö brot, en áður hafði Suu Kyi verið ákærð fyrir brot á innflutn- ingslögum og brot á sóttvarnalög- um. Nú bættust við ákærur fyrir að hafa hvatt til mótmæla. Mánuður var liðinn í gær frá því að herinn í Búrma rændi völdum og setti Suu Kyi og Win Myint, forseta landsins, í stofufangelsi. Alda mót- mæla hefur farið stigvaxandi síðan þá, en lögreglan skaut 18 mótmæl- endur hið minnsta til bana á sunnu- daginn. Þá voru um 1.300 manns handteknir fyrir þátt sinn í mótmæl- unum. Antony Blinken, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, og Dom- inic Raab, utanríkisráðherra Bret- lands, fordæmdu báðir í gær ofbeldi herforingjastjórnarinnar. Hét Blin- ken því að þeir sem bæru ábyrgð á því yrðu dregnir til ábyrgðar. Ákæra Suu Kyi fyrir fleiri brot Aung San Suu Kyi  Blóðbaði í Búrma mótmælt harðlega Filippus prins, hertogi af Edin- borg og eigin- maður Elísabetar 2. Bretadrottn- ingar, var í gær fluttur á St. Bart- holomew’s- sjúkrahúsið í Lundúnum, en hann hefur dval- ist undanfarnar tvær vikur á sjúkrahúsi sem kennt er við Játvarð 7., langafa drottning- arinnar, vegna sýkingar, sem teng- ist ekki kórónuveirufaraldrinum. Filippus var fluttur, þar sem læknar töldu brýnt að fylgjast betur með hjartavandamálum sem hertog- inn glímdi við áður en sýkingin kom upp, en St. Bartholomew’s- sjúkrahúsið er með eina af fremstu hjartadeildum Evrópu. Er gert ráð fyrir að hertoginn, sem er 99 ára gamall, verði áfram undir læknis- hendi til loka þessarar viku hið minnsta. Filippus fluttur á annað sjúkrahús BRETLAND Filippus, hertogi af Edinborg. Nikol Pashinyan, forsætisráðherra Armeníu, til- kynnti í gær á fjölmennum útifundi með stuðn- ingsmönnum sínum að hann væri reiðubúinn að boða til kosninga vegna ástandsins sem komið er upp í stjórnmálalífi landsins. Forseti Armeníu neitaði Pashinyan fyrir helgi um heimild til að reka yfirmann herafla landsins, en Pashinyan hafði sakað herinn um að hafa ætl- að að reyna valdarán. Rúmlega 20.000 stuðn- ingsmenn forsætisráðherrans streymdu á götur Jerevan í gær, en hann hefur sætt mikilli gagn- rýni fyrir „uppgjöf“ sína í átökum síðasta árs við Aserbaísjan um Nagornó-Karabak-hérað. Nokk- ur þúsund manns mótmæltu á sama tíma við þinghús landsins, og kröfðust afsagnar hans. Mikil ólga og fjölmennir útifundir í Armeníu AFP

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.