Morgunblaðið - 02.03.2021, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Það vaktióneit-anlega at-
hygli þegar
Macron forseti
Frakklands, að
því er virtist illa
haldinn í fýlu-
kasti út í afrek Breta í
bólusetningum, fullyrti að
ekki mætti bólusetja fólk
sem væri orðið eldra en 65
ára með Astra-
Zeneca-bóluefni vegna
skorts á viðbótartilraunum
á fólki á því aldursbili!
Ekki var gerð nokkur
grein fyrir því hvað gerði
þennan aldurshóp svo frá-
brugðinn öllum öðrum.
Enda virtist blasa við að
ekki væri snefill af fræði-
legum forsendum fyrir
fullyrðingunum.
En íslensk yfirvöld
ákváðu þó af óskiljan-
legum ástæðum að taka
þátt í vitleysunni til að
sanna enn og aftur að á
þeim bæ væru menn
lengra komnir inn í ESB
en innanbúðarmenn sem
fastir eru þar.
Vakti óneitanlega undr-
un þegar sóttvarna-
læknirinn hér lét sig hafa
að taka þátt í þessum
undarlega leik.
Bretar gerðu ekkert með
þetta og höfðu fremur
gaman af en hitt. En Þjóð-
verjum var augljóslega
ekki skemmt. Þessi
ákvörðun varð til þess að
þeir yrðu að sitja uppi með
milljón skammta ónotaða
fyrir rétttrúnaðinn einan,
sem bættist við vandræða-
gang þeirra í bólusetning-
armálum vegna klaufa-
bárðanna í Brussel.
Nú hefur Angela Merkel
kanslari fengið áskorun frá
virðulegum þýskum
ónæmisfræðingi, Carsten
Watzl, prófessor og að-
alritara í félagi ónæm-
isfræðimanna, um að hún
skipaði sér þegar í stað
fremst í röð þeirra sem
létu bólusetja sig með efn-
inu í beinni sjónvarps-
útsendingu til að slá á dell-
una.
En um leið og ósjálf-
stæðu ríkin í ESB velta sér
upp úr heimatilbúnum
vandræðum sínum í bólu-
efnum tilkynnti
heilbrigð-
isráðherra
Breta að algjört
hrun hefði orðið
á innlögnum hjá
80 ára og eldri
eftir að þeir
fengu fyrrnefndan bólu-
efnaskammt. Að sögn ráð-
herrans hafði bólusetning
með honum haft betri ár-
angur, ef eitthvað væri, til
að draga úr áhrifum smits
en til að mynda bólusetn-
ing með Pfizer-bóluefninu.
En nú er svo komið að
einungis einn skammtur af
bóluefninu veitir mun betri
vörn en áður hafði verið
gengið út frá. Bólusetning
eldra fólks í aðeins eitt
skipti hefði nær alfarið
slegið á innlagnir á sjúkra-
hús.
Sagði Matt Hancock
heilbrigðisráðherra þetta
vera „stórbrotnar og
einkar góðar fréttir“.
Bretar hafa þegar náð að
bólusetja yfir 20 milljónir
manna hjá sér.
Það voru einkar dapur-
legar fréttir sem „RÚV“
sagði í kvöldfréttum sínum
í gær, um að samningslof-
orð Íslands um bólulyf frá
framleiðandanum Janssen
hefðu algjörlega brugðist
en þar lægi stærsta pöntun
Íslands, eða um 235.000
skammtar efnisins. Væri
alls óvíst um hvenær af af-
hendingu gæti orðið.
En fréttinni fylgdu svo
æði óljósar fréttir um að
hugsanlega myndu aðrir
hraða sinni framleiðslu í
staðinn (!) og gætu þá mál
Íslands lagast á ný. Það er
algjörlega óboðlegt að
fjalla um þetta mikla hags-
munamál með þeim hætti
að við öllum blasi að mest
þyki liggja við að breiða yf-
ir yfirgengilegan klaufa-
gang íslenskra yfirvalda.
Hann er auðvitað bæði
furðulegur og yfirgengi-
legur en er samt aukaatriði
hjá því sem mestu máli
skiptir og hjá hinu sem
sjálfsagt er, að gefa réttar
og ljósar upplýsingar um
þróun mála. Ríkisútvarpið
á að hætta að feta í fótspor
Tass heitinnar og annarra
slíkra sem enn tóra.
„RÚV“ verður að
herða sig upp og
hætta að taka
afglöp sinna manna
svona áberandi
inn á sig}
Vondum fréttum drekkt
með innantómu tuði
Þ
ú ert barn og því númer 300, nei 500,
nei 1.200, á biðlista eftir heilbrigðis-
þjónustu. Hversu mörg börn með
t.d. geðheilbrigðis- og eða önnur
lífsnauðsynleg vandamál eru á bið-
lista eftir úrræðum í dag? Fyrir áramót biðu
1.193 börn um allt land eftir greiningu eða með-
ferð við geðrænum eða sálrænum vanda. Við lát-
um börn með geðræn vandamál bíða, ekki bara
mánuðum saman heldur árum saman. Eins og
við vitum eru geðraskanir ein helsta orsök ör-
orku og því fer ekki á milli mála að hana ber að
meðhöndla strax hjá börnum og unglingum.
Ef veikum börnum og unglingum fjölgar jafnt
og þétt á biðlistum og ekkert er gert, verður það
dýrkeypt til framtíðar fyrir börnin og ung-
lingana, fjölskylduna og samfélagið allt. Þá er
nánast enginn stuðningur eða úrræði í boði fyrir
þann hóp barna sem elst upp hjá foreldrum með
geðrænan vanda vegna vímuefna- eða áfengisvanda og
verður fyrir andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Það hefur komið í ljós að andlegt og líkamlegt ofbeldi
gegn börnum hefur aukist í Covid-19-faraldrinum, sem ger-
ir góða og skjóta heilbrigðisþjónustu fyrir börn lífs-
nauðsynlega. Við gerum okkur enga grein fyrir hvernig
ástandið er í þjóðfélaginu í dag og hefur verið. Ástandið í
málefnum barna var ekkert sérstaklega gott fyrir Covid-19
og við vitum að það hefur versnað í veirufaraldrinum. Við
sjáum það á tíðni heimilisofbeldis og biðlistunum eftir þjón-
ustu fyrir börn með vanda sem þarf að meðhöndla strax.
Það á ekki að eiga sér stað í okkar þjóðfélagi
að við segjum barni að bíða eftir þjónustu og
hvað þá eftir lífsnauðsynlegri þjónustu. Börn
eiga ekki að fara á biðlista. Við eigum að vera
það gott samfélag að við grípum börnin strax og
sjáum til þess að þau þurfi ekki að bíða mán-
uðum eða allt að þremur árum eftir þjónustu í
heilbrigðiskerfinu. Þess vegna er það alveg
óskiljanlegt fyrirbrigði að við skulum vera með
tvöfalda biðlista hjá börnum eftir greiningu.
Nýleg könnun sýndi fram á hvernig ástandið
er t.d. hjá þeim einstaklingum sem eru í af-
brotum og fóru í fangelsi. Stór hluti þeirra flosn-
aði upp úr barna- og unglingaskólum, er með
ADHD, skrifblindu og einnig lesblindu og hafa
lent í skelfilegum málum eins og einelti. Við
sjáum afleiðingarnar og líka hversu mikilvægt
er að grípa strax inn í.
Flokkur fólksins segir börnin fyrst og síðan
kemur allt hitt. Við eigum aldrei að setja börn á bið og það
getur aldrei talist eðlilegt að tala um kostnað þegar við erum
að tala um velferð barna. Þar á kostnaðurinn ekki að skipta
höfuð máli, heldur velferð barnsins.
Dagarnir, vikurnar, mánuðirnir og árin líða og skaðinn af
biðinni kemur í ljós og skaðinn er eitt það versta við biðlista.
Hve lengi er þá lífið að líða þegar þú þarft að sitja og bíða og
bíða og bíða?
Guðmundur
Ingi Krist-
insson
Pistill
Börn eiga aldrei að fara á biðlista
eftir heilbrigðisþjónustu
Þingflokksformaður Flokk fólksins.
gudmundurk@althingi.is
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Reykjanesskaginn er þekktjarðskjálftasvæði. Þarhafa stórir jarðskjálftarátt upptök, meðal annars í
Brennisteinsfjöllum. Spurningin nú
er hvort þar verði stórir jarðskjálftar
í framhaldi af atburðarásinni vestar
á Reykjanesskaga.
Stóri jarðskjálftinn 1929
Tíðir jarðskjálftar fundust á
Reykjanesi á árunum 1925-1928.
Meðal annars skemmdist Reykja-
nesviti í jarðskjálfta 25. október 1926
og slokknaði á vitanum og sprungur
komu í vitahúsið. Sprungur mynd-
uðust í jörð og breytingar urðu á
hverum.
Stærsti jarðskjálfti sem vitað er
að orðið hafi á Reykjanesskaga varð
svo 23. júlí 1929. Hann var 6,3 stig og
fannst víða um land. Upptök hans
voru nálægt Brennisteinsfjöllum, lík-
lega á svokölluðu Hvalhnúks-
misgengi. Þessi skjálfti olli miklu
tjóni í Reykjavík og víðar eins og
greint var frá í Morgunblaðinu dag-
inn eftir. „Stundarfjórðungi fyrir
klukkan 6 í gær, kom hjer í Reykja-
vík svo harður jarðskjálftakippur, að
menn muna hjer ekki annan eins.
Hús hristust svo að brakaði í þeim og
fjölda fólks var nóg boðið svo það
þusti út á göturnar, sumpart til að
bjarga sjer, ef húsin skyldu hrynja,
sumpart til þess að verða sjón-
arvottar að atburðum þeim, er fyrir
kæmi í grendinni. Talið er að kipp-
urinn hafi staðið 35-40 sekúndur. Er
það langur jarðskjálftakippur.“
Miklar skemmdir urðu á húsum.
Mestar skemmdir virtust hafa orðið
á þeim sem hlaðin voru úr grásteini
eins og Alþingishúsinu og Land-
símastöðinni. Sprungur sáust í flest-
um herbergjum þinghússins „og
hrundi nokkuð niður af loftlistum -
einkum í Neðrideild“. Brestur kom í
konungsmerkið yfir innganginum og
datt moli úr því á gangstéttina.
Í Landsímahúsinu sprungu
veggir og reykháfur hrundi líkt og á
fleiri húsum í bænum. Blaðið hafði
ekki tölu á þeim reykháfum sem
hrundu. Sprungur komu í veggi
nokkurra steinsteyptra húsa. Munir
duttu úr hillum og vörur sem var
stillt upp í búðargluggum hrundu í
hrúgur. Rúður í nokkrum búð-
argluggum sprungu. Mesta tjónið
varð í glervörubúðum en þar brotn-
aði all mikið af vörum.
Hús sveifluðust til með braki og
brestum eins og væri ofsarok en veð-
ur var hið besta, blæjalogn og sól-
skin. Allmikil bára kom á Tjörnina
og gaus upp úr henni óþefur. Götur
og gangstéttir gengu til. Sprungur
komu í hafnargarðinn og hafn-
arbakkann í Reykjavík.
Jarðskjálftinn fannst austur að
Skeiðarársandi, vestur á Snæfellsnes
og norður á Borðeyri, að því er
Morgunblaðið hafði frétt. Ekki frétt-
ist af neinum slysum á fólki. Annar
kippur, miklu vægari, kom klukkan
rúmlega sjö og sá þriðji sem var
þeirra vægastur kom klukkan átta
um kvöldið.
Minni háttar tjón í
skjálftanum 1968
Jarðskjálfti að stærð
6,0 varð svo 5. desember
1968. Upptök hans voru lík-
lega á svipuðum slóðum og
stóri jarðskjálftinn varð
1929. Skjálfti þessi fannst
víða um land. Hann olli
minni háttar tjóni í
Reykjavík og gamlar
sprungur opnuðust í
húsum í Hafnarfirði.
Sterkir skjálftar í
Brennisteinsfjöllum
Dr. Páll Einarsson, jarðeðl-
isfræðingur og prófessor em-
eritus við jarðvísindadeild Há-
skóla Íslands, tók saman
yfirlit um jarðskjálftavirkni á
Reykjanesskaga. Það er að
finna á heimasíðu Jarðvís-
indastofnunar HÍ (https://
jardvis.hi.is/sogulegt_yf-
irlit_um_jardskjalfta-
virkni_reykjanesskaga). Páll
studdist m.a. við nýlega grein
Sveinbjörns Björnssonar og
fleiri höfunda um jarð-
skjálftavirkni á Reykjanes-
skaga. Þar eru taldir upp at-
burðir sem urðu á árabilinu
1151-2013.
Jarðskjálftavirknin und-
anfarið hefur verið frá
Reykjanestá og að Kleif-
arvatni. Þar fyrir austan
eru Brennisteinsfjöll
en þar urðu
sterkir jarð-
skjálftar árin
1929 og 1968.
Þekkt jarð-
skjálftasvæði
REYKJANESSKAGI
Páll
Einarsson
Morgunblaðið/Kristinn
Jarðskjálftamælir Mælar voru í Stýrimannaskólanum 1929 en þeir virk-
uðu ekki. Fyrst var því ekki vitað hvar upptök stóra skjálftans voru.