Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 02.03.2021, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. MARS 2021 ✝ Magnús Finn-ur Hafberg fæddist á Lauga- veginum í Reykja- vík 22. júní 1923. Hann lést á hjúkr- unar- og dval- arheimilinu Höfða á Akranesi 13. febrúar 2021. For- eldrar hans voru hjónin Engilbert Hafberg, fæddur að Hliði á Álftanesi 9. sept- ember 1890, d. 1. nóvember 1949 og Olga Magnúsdóttir Hafberg frá Stykkishólmi, f. 17. desember 1896, d. 18. sept- ember 1930. Alsystkini Magn- úsar voru: Gunnar, f. 1925, d. 1943. Einar Jens, f. 1927, d. 2003. Hulda Guðrún, f. 1928, d. 1988 og Olga, f. 1930, d. 2020. Seinni kona Engilberts var Rannveig Guðmundsdóttir Hafberg, f. 1907, d. 2003, þeirra börn: Helga, f. 1939, d. 2014, Eysteinn, f. 1940 og Ingibjörg Ólína, f. 1947. Einn- ig átti Engilbert synina Þór- hennar er Helgi Ómar Þor- steinsson, f. 25. ágúst 1955, þeirra synir eru Magnús Þórð- ur, Fannar Freyr, Ómar Örn og Þorsteinn, barnabörnin eru sex. 4) Þórdís Guðný, fædd 14. október 1966, fyrrverandi eig- inmaður hennar er Indriði Björn Ármannsson, f. 10. apríl 1971, börn þeirra eru Ármann Örn og Úrsúla Eva. Magnús ólst upp í Reykjavík og Viðey þar sem hann fór snemma að vinna og var hann bústjóri hjá föður sínum þar. Hann vann síðar lengi sem bíl- stjóri hjá Olíuverslun Íslands. Síðustu áratugina vann hann í Umbúðamiðstöðinni við Héð- insgötu. Magnús og Eva byggðu sér hús í Sæviðarsundi og bjuggu þar í 53 ár. Hann var mikið náttúrubarn, rækt- aði garðinn sinn og stundaði hestamennsku. Einnig byggðu þau sér sumarhús á æskuslóð- um Evu, þar sem hann undi sér vel, ræktaði tré og hafði þar hesta. Á haustdögum 2019 flutti hann á dvalar- og hjúkr- unarheimilið Höfða á Akra- nesi, þar naut hann ein- staklega góðrar umönnunar sem hann var þakklátur fyrir. Útförin fór fram í kyrrþey að hans ósk. arin, f. 1915, d. 1988 og Einar Eggert, f. 1918, d. 1986. Eftirlifandi eiginkona Magn- úsar er Eva Þórðardóttir, f. 29. ágúst 1933, hún fæddist í Hvítanesi í Skil- mannahreppi og ólst þar upp. For- eldrar hennar voru hjónin Þórður Guðnason, f. 8. nóv- ember 1897, d. 5. maí 1975 og Þórunn Jónsdóttir, f. 10. mars 1899, d. 13. mars 1973. Börn Magnúsar og Evu eru: 1) Margrét, f. 9. ágúst 1953, eiginmaður hennar er Marinó Þór Tryggvason, f. 9. sept- ember 1953, þeirra börn eru Þórunn, Tryggvi Þór, Ásta María, Jón Þór, barnabörnin eru sjö. 2) Þórður, f. 1. júní 1957, dætur hans eru Eva, Hildur Björk og Þórgunnur, barnabörnin eru sex. 3) Olga, f. 8. janúar 1959, eiginmaður Hræddist ég, fákur, bleika brá, er beizlislaus forðum gekkstu hjá. Hljóður spurði ég hófspor þín: Hvenær skyldi hann vitja mín? Föður og móður barstu braut, bróður minn, vin og förunaut, upp yfir Brún og í þá sveit sem enginn í þessum sóknum leit. Gáta þín óræð elti mig, eins þótt ég hefði sætzt við þig og vellirnir, kjörrin, vötnin ströng veitt mér í þrautum ilm og söng. Ófst þá í hug mér hvert eitt blóm og hver einn smáfugl með tæran óm, hjarta míns titran, hröð og gljúp, við himinstjarnanna regindjúp. Af flestu því hef ég fátt eitt gert sem fólki hér þykir mest um vert, en ef til vill sáð í einhvern barm orði sem mildar kvöl og harm. Loks þegar hlíð fær hrím á kinn hneggjar þú á mig, fákur minn. Stíg ég á bak og brott ég held, beint inn í sólarlagsins eld. (Ólafur Jóhann Sigurðsson) Að leiðarlokum streyma minn- ingarnar fram. Það voru forrétt- indi að fá að eiga þig sem pabba í 67 ár. Þú hvattir okkur alltaf áfram og innprentaðir okkur skyldurækni, stundvísi, heiðar- leika og jákvæðni. Með fyrstu minningum er að þú ert að kenna mér umferðar- reglurnar og segja mér sveita- barninu af hættum borgarlífsins. Þú hafðir mikinn áhuga á búskap enda stóðstu ungur fyrir búi fjöl- skyldunnar í Viðey. Ég þurfti alveg fram á síðasta dag að segja þér hvað væri fyrir stafni á búgarðinum og á sumrin hvað væri búið að rúlla í dag og hvað væru komnar margar rúllur í allt, því að vera ekki með nóg hey fyrir skepnurnar hefði hann ekki liðið. Hann pabbi gat allt, það var sama hvort það var að byggja hús, rækta blóm eða aðlaga afa- börnin í leikskóla, þetta lá allt vel fyrir honum. Hann vildi ekkert væl, vinna göfgar manninn sagði hann enda hafði hann sýnt það í verki. Það var mikill missir fyrir þennan atorkumann að tapa sjóninni fyrir um 15 árum, það var svo ótrúlegt æðruleysi sem hann sýndi og reyndi þá bara að fylgjast með því sem var að ger- ast og reyndi að stjórna okkur. Því nú hafði hann nógan tíma til að hugsa. Hann var alla tíð heilsuhraustur og sem betur fer fékk hann að halda henni þar til síðustu þrjá dagana, það ber að þakka forsjóninni, því að liggja ósjálfbjarga í rúminu hefði ég ekki getað hugsað mér hann. Guð geymi þig, elsku pabbi. Þín dóttir, Margrét. Í dag kveð ég elskulegan föður minn, Magnús Finn Hafberg. Pabbi var á 98. aldursári. Bar- næska hans var erfið, missti móður sína Olgu úr barnsfara- sótt þegar hann var 7 ára, elstur af fimm systkinum. Þetta mark- aði allt hans líf, hann bar mikla ábyrgð á systkinum sínum. Þessi lífsreynsla var með okkur alla tíð og upplifðum við fjölskyldan sorg og missi með pabba. Pabbi elskaði náttúruna, blómin, trén, hestana sína. Hann var alltaf að rækta, líka hesta. Samt voru börnin sem elskan var mest að. Það sóttu öll börn í hann og hann sætti sig ekki við ef það voru börn sem hann gat ekki hænt að sér. Ég var lengi litla stelpan hans, alnafna móður hans, Gullnastokkurinn, eins og hann kallaði mig. Pabbi var ekki mikið fyrir að eyða í óþarfa svo sem dýra bíla, átti alltaf rússneska bíla. En hann byggði raðhús fyrir fjöl- skylduna í Sæviðarsundi og hef- ur það verið mikið átak fyrir verkamanninn og einu fyrirvinn- una framan af. Þetta hús var hans stolt og yndi og var hann mjög óásáttur að flytja úr húsinu sínu 96 ára. Húsið var enn nýtt í hans augum þó hann hefði búið þar í 53 ár, enda annað eins hús aldrei verið byggt. Þegar um fór að hægjast og börnin að vaxa úr grasi keypti hann sér hesthús í Víðidalnum og var hann með hesta þar í nokkur ár og hafði mikla ánægju af, síð- an seldi hann hesthúsið og byggði sumarbústað í Vallarnesi á æskuslóðum mömmu. Bjugg- um við þá tvær systurnar á jörð- um hvor sínum megin við Valla- nes og nutu barnabörnin þess að hafa ömmu og afa svo nálægt. Pabbi naut þess að vera á Hamri en sjónina fór hann að missa um áttrætt og var hún nánast farin nú í lokin. Það var mikið frá þessum athafnasama manni tek- ið að missa sjónina. Hann lifði í minnst 15 ár við mikla sjónskerð- ingu. En það stoppaði hann ekki, hann hélt áfram að sá blómum, gróðursetja tré og basla. Mamma varð augun fyrir hann, las Moggann svo hann gæti fylgst með áfram, hann hlustaði á allar fréttir fram í andlátið. Ég held að þarna hafi pabbi átt sín bestu ár, að byggja og rækta. Og hjálpa til með barna- börnin sem hann dáði. Í dag er þarna unaðsreitur, sonurinn bú- inn að byggja hús á staðnum og litla systir sér um bústaðinn hon- um til mikillar gleði að þetta grotni ekki niður. Pabbi fylgdist með sínu fólki alla tíð og stjórn- aði á bak við tjöldin. Strákarnir mínir fjórir eiga miklar og góðar minningar um afa sinn. Hann fylgdist með öllu sem þeir gerðu, í námi, vinnu og íþróttum og hafði skoðanir á öllu og vissi oft mikið betur en þeir hvernig hlut- irnir ættu að vera. Og langafa- börnin elskuðu öll þennan gamla afa, eitt sinn var ég spurð: Amma, af hverju er hann afi Magnús svona rosalega gamall? Elsku pabbi, tíminn er kom- inn, við geymum minningu um góðan pabba, tengdapabba, afa og langafa. Við munum hlúa að mömmu. Þú hlakkaðir til að kom- ast í sumarlandið, þar er nóg að gera, og hitta mömmu. Pabbi naut einstakrar umönn- unar á Hjúkrunarheimilinu Höfða á Akranesi síðast eitt og hálft árið og á starfsfólkið miklar þakkir skilið frá okkur. Olga og fjölskylda. Vorið er á næsta leiti og það var tíminn hans pabba, sumar- blómaræktunin í fullum gangi og tilhlökkun eftir sumrinu þegar oftar en ekki var von á folaldi. Það var pabba erfitt að missa sjónina og geta ekki notið áhuga- málanna á sama hátt og áður en hugurinn og áhuginn var alltaf til staðar og allt fram á síðasta dag. Pabbi hugsaði um sína og þurfti alltaf að vita hvað allir voru að sýsla og kom með ráðleggingar um það sem honum fannst skipta máli. Ég naut þeirra forréttinda að vera „litla barnið“ og sam- skipti okkar báru þess merki alla tíð. Skemmtilegar minningar úr barnæsku eru margar og þótti mér ekki leiðinlegt að fá að skot- tast með pabba í olíubílnum til Hafnarfjarðar eða kannski upp að Geithálsi. Margar voru ferð- irnar í Hveragerði þar sem pabbi spáði og spekúleraði í blómum og trjám til að setja í garðinn sinn. Pabbi stundaði hestamennsku og hafði mikinn áhuga á ræktun hrossa, hann átti lengi hesthús í Víðidal þar sem hann naut sín og var vinmargur í samfélaginu þar. Þegar barnabörnin fóru að fæð- ast fylltist pabbi stolti og auðvit- að líktust þau honum öll. Pabbi passaði alltaf upp á að nokkrir ópalpakkar væru í hanskahólfinu á Lödunni til að færa þeim þegar hann fór í heimsókn. Seinna þeg- ar yngri barnabörnin og síðar barnabarnabörnin komu í heim- sókn til þeirra mömmu í Sæó þurfti alltaf að vera til ís handa þeim. Pabbi kenndi mér margt sem ég hef tileinkað mér. Pabbi var ábyrgur, ákveðinn, stundvís, heiðarlegur, skynsamur, úrræða- góður, sparsamur, barngóður, æðrulaus, traustur og tryggur. Hann var líka þúsundþjalasmið- ur, vel lesinn, fróður og forvitinn. Ég og ungarnir mínir, Manni og Úlla, erum þakklát fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Blessuð sé minning þín, elsku pabbi og afi. Telpan þín, Þórdís Guðný Magnúsdóttir. Elsku afi, takk fyrir alla góðu tímana sem þú gafst okkur. Það er margs að minnast og þakka fyrir. Takk fyrir Hrímkollu, merina sem þú gafst mér þegar ég flutti á Hvítanes með mömmu og pabba. Takk fyrir að kenna mér á hesta og styðja mig í þeirri frumstæðu hestamennsku sem ég stundaði ein á Hvítanesi þeg- ar þín naut ekki við. Það var allt- af miklu meira gaman á sumrin því þá varst þú með bleiku hest- ana þína í Vallarnesinu og þá gátum við riðið út saman og þú sagt mér til. Þú varst oft uppi á Hvítanesi þegar ég var yngri og mér er það minnisstætt hversu stórstígur þú varst og hvað mér þótti oft erfitt að fylgja þér. Eitt sinn fór ég líka að hágráta því allt í einu varstu farinn án þess að kveðja mig, þetta sárnaði mér ógurlega. Þarna erum við samt töluvert lík, ég arka áfram og er svo bara allt í einu farin, langt á undan öllum öðrum. Ég er ykkur ömmu mjög þakklát fyrir að hafa leyft mér að búa hjá ykkur í Sæó meðan á há- skólanámi mínu stóð. Þú sagðir nú ekki margt við þessa ungu sveitakonu sem var að búa í fyrsta sinn í höfuðborginni en furðaðir þig endrum og eins á því hversu mikið var hægt að vera í útlöndum og úti á lífinu um helg- ar ásamt því að stunda námið. Það kom svo sem í ljós að það fór ekkert alltaf vel saman. Það voru svo einstök forrétt- indi og er ég afar þakklát fyrir að Jón Þór okkar skyldi fá að njóta sín hjá ykkur í nokkra mánuði áður en hann fékk pössun hjá dagmömmu. Hann var algjör handfylli en ykkur fórst vel að tjónka við hann á ykkar einstaka máta og hændist hann verulega að ykkur ömmu, líkt og Margrét og Sóley gerðu. Afi var alla tíð al- gjör barnagæla og hafði mest gaman af þeim mjög ungum og svo þegar þau eltust og máttu fá ís þá passaði hann upp á það að amma gæfi þeim sem komu í heimsókn alltaf ís, það mátti ekki klikka. Afi þoldi enga meðalmennsku og vildi að allir legðu sig 100% fram hverju sinni. Hann var afar stoltur af fólkinu sínu og var allt- af með það á hreinu hvar hver og einn væri staddur og hvað við værum öll að gera. Það mátti líka alveg treysta því að afi segði manni það sem honum fannst ef hann var spurður og þá dró hann ekkert endilega undan. Hann hafði líka húmorinn í lagi alveg fram á síðasta dag. Afi talaði alla tíð af miklu stolti um Sæviðarsundið, raðhúsið sem hann byggði fyrir fjölskyldu sína ekki af miklum efnum. Það var því ekki auðhlaupið að því að fá afa til að flytja sig yfir á Hjúkr- unarheimilið Höfða á Akranesi en mikil Guðs blessun var það skref fyrir bæði ömmu og afa þó sárt hafi verið að sjá á eftir Sæóinu. Afi var afar þrautseigur, sum- ir mundu kalla það þrjósku en á henni fór hann í gegnum lífið sem ekki var honum alltaf auð- velt, sérstaklega ekki hans fyrstu æviár. Hann missti mömmu sína ungur ásamt fleiri áföllum sem dundu yfir hann. Þetta styrkti hann eflaust og mótaði. Það segir nú margt um þrautseigjuna að hann missti sjónina fyrir mörg- um árum og hafði einnig afar litla heyrn en allt fram á það síð- asta var hann vel með á nótunum með flesta hluti. Elsku afi, takk fyrir allt. Þórunn Marinósdóttir. Elsku afi. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þann tíma sem við áttum með þér, þakklát fyrir að hafa átt svona hraustan og góðan afa og þakklát fyrir allt það sem þú kenndir mér. Ég fékk hestaáhugann alfarið frá þér og fannst svo gaman þeg- ar þú fórst með mig í hesthúsin. Þegar við fórum í útreiðartúr um Rauðhólana, ég sveif um á bleiku skýi og það var ekki aftur snúið. Alltaf þegar þú fórst í bílskúrinn kom ég með til að skoða hesta- dótið þitt í skúrnum en skúrinn var eins og stórt listasafn í mín- um huga. Þegar ég eignaðist mitt fyrsta folald kom ekki annað til greina en að þú fengir að velja nafn á folaldið, ég gaf þér smá umhugsunartíma og hringdi fljótlega til baka í þig og þá varstu búinn að ákveða nafn, Sæ- faxi. Þú varst alltaf til í að grípa í spilin og það voru sko spilaðir ófáir olsen olsen og taflleikir þess á milli. Þegar ég hugsa til baka er ekki annað hægt en að brosa yfir öllum þessum góðu minningum. Takk fyrir allt sam- an afi minn. Þórgunnur Þórðardóttir. Elsku afi er farinn í sumar- landið, 97 ára. Afi var saddur líf- daga þegar kallið kom en það er samt erfitt að kveðja þig. Síðustu árin voru þér erfið, þú hafðir tap- að sjóninni og heyrninni en hug- urinn og húmorinn á sínum stað. Þú varst mikill barnakall og spáðir mikið í hvað við krakk- arnir værum að gera hverju sinni og fylgdist vel með allt til enda. Ég á margar yndislegar minn- ingar með þér og ömmu í Sæó, t.d. fékk ég að hjálpa þér að smíða pallinn í Sæó, bíltúrar á Lödunni í hesthúsin að hitta alla „skrýtnu hestakallana“. Við spjölluðum oft um sjóinn og þú varst stoltur af því að ég hafi verið að vinna með pabba á sjónum öll þessi ár. Því fann ég vel fyrir enda vildir þú að allt þitt fólk væri duglegt að vinna, helst áttum við að vinna mikið. Þú skildir ekkert í fólki að taka sér frí, það var eitthvað sem þú gerð- ir helst ekki enda sást það vel að þegar þú varst að vinna í Um- búðamiðstöðinni þá smíðaðir þú sumarbústað fyrir utan vinnuna og notaðir allar lausar stundir í það, t.d. matartímann þinn. Þetta lýsir þér mjög vel elsku afi, þú varst svo duglegur. Það er ekki auðvelt að kveðja þig enda varst þú stór partur af lífi okkar en ég veit að þú ert á góðum stað og mun líða vel og ég lofa að við pössum ömmu fyrir þig. Góða ferð í sumarlandið elsku afi minn. Eva Þórðardóttir yngri. Elsku afi. Mig langaði að skrifa þér nokkur orð í kveðju- og þakklæt- isskyni. Með þér á ég ótalmargar frábærar minningar sem spanna allt frá því þegar þú komst við á Hvítanesi í gamla daga til þeirra ára þegar ég bjó hjá þér og ömmu í Sæviðarsundinu og síðar þegar ég var að koma í heimsókn með Svandísi Ylfu og Marinó Kára til ykkar í Sæó. Þegar ég hugsa til baka voru þau ár sem ég bjó hjá þér og ömmu í Sæó mér algerlega ómet- anleg. Þú hafðir þann eiginleika að sýna því sem maður var að gera hverju sinni mikinn áhuga, vissir alltaf í hvaða próf maður var að fara og varst meðvitaður um þegar maður var að fara á skólaböllin. Þá sagðir þú mér gjarnan að muna eftir lyklinum úti í gróðurhúsi ef ég myndi týna mínum, sem átti það til að gerast. Eftir að ég fékk bílpróf fórum við oft á rúntinn upp í hesthús, hlustuðum gjarnan á fréttir og ræddum það sem var fréttnæmt. Þú hafir skoðanir á mörgu og varst alltaf ótrúlega vel að þér í allri þjóðfélagsumræðu sem gerði það að verkum að ég hafði ákaflega gaman af rökræðum við þig um hluti sem við vorum kannski ekki alltaf alveg sam- mála um. Eftir því sem árin liðu og ég fór að mynda mér sterkari skoðanir á þjóðfélagsmálunum hafði ég enn meira gaman af þessum samræðum okkar og gjarnan var stutt í húmorinn hjá okkur báðum. Til þessara sam- tala hugsa ég nú með hlýhug og bros á vör, þau voru ómetanleg. Þegar ég flutti frá ykkur yfir götuna í Sæviðarsundinu fylgdist þú enn vel með og iðulega kíkti maður í kaffi yfir götuna til að taka spjallið. Það er til marks um eftirtekt þína þegar þú tilkynntir mömmu í óspurðum fréttum að fyrir utan hjá mér væri alltaf ein- hver bíll sem þú þekktir ekki. Það var bíllinn hennar Ingu Dís- ar og þetta var á upphafsdögum sambands okkar. Þú hafðir gam- an af því að spyrja mig út í þetta, varst sposkur á svip og vissir ná- kvæmlega hvað var í gangi, eins og alltaf. Eftir því sem aldurinn færðist yfir minnkaði getan til þess að fara út að hjóla, þú sást orðið illa og heyrnin batnaði ekki. Ég á mér þá von og trúi að þú sjáir og heyrir betur þar sem þú ert núna. Hafir hjól til umráða og hjólir nú eins og þér einum var lagið um hverfið. Hafir Lödu Sport fyrir utan hjá þér og takir nú reglulega rúntinn um hest- húsahverfin eins og þú hafðir svo gaman af. Ég vona jafnframt og veit að nú hefur þú betri tök á að fylgjast með okkur öllum úr fjar- lægð, leiðbeina okkur í fram- kvæmdum sem við stöndum í og fylgjast með gangi mála í vinnu okkar og með barnabarnabörn- unum með bros á vör. Allt eru þetta atriði sem þú hafðir ávallt mikinn áhuga á og fyrir það verð ég þér ævinlega þakklátur. Ég kveð þig nú með bros á vör og þakklæti fyrir þann tíma sem ég átti með þér. Guð geymi þig, elsku afi, við sjáumst síðar og þú ert ávallt velkomin í heimsókn til okkar til að athuga með gang mála. Ég treysti því að þú finnir leið til að láta vita af þér. Þinn Tryggvi Þór. Magnús Finnur Hafberg Kær systir mín og frænka okkar, ÞORBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Obba, kennari, Karlagötu 9, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 22. febrúar. Útförin verður frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 3. mars klukkan 15. Elínborg Guðmundsdóttir Kolbrún Ingólfsdóttir Sigríður Pálsdóttir Guðmundur Ingólfsson Aldís Pálsdóttir Lýður Pálsson Guðmundur Pálsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.